Morgunblaðið - 09.04.2006, Side 4
4 | 9.4.2006
Á
Kjarvalsstöðum var hin ævintýralega sýning Kosuth og Kabakov,
Lífheimur, sett af herra Ólafi Ragnari Grímssyni en forseti lýð-
veldisins var unglegur og gott ef ekki svolítið strákslegur í töff,
svörtum jakkafötum. Opnunardaginn bar upp á fæðingarafmæli H.C. And-
ersen en skáldið er uppspretta innsetninga listamannanna auk þess sem Sör-
en Kierkegaard kemur við sögu. Sýninga-opnana-áskrifendur mættu sam-
viskusamlega og sprönguðu um hugarheima listamannanna, keikir og kátir,
rétt eins og keisarinn í nýju fötunum sínum. Þekktir og þenkjandi voru
Mörður Árnason málverndarmaður, Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona og
listamannaættmóðir, og Helgi Þorgils myndlistarmaður. Mætt voru Vigdís
Finnbogadóttir hin eina sanna og að sjálfsögðu sendiherra Danmerkur,
Lasse Reimann, auk þess sem óvenju margir úr leikarastétt voru á staðnum.
Fluga spottaði svo aftur forsetann okkar flotta er þau voru bæði viðstödd
frumsýningu á Stóra sviði Þjóðleikhússins á glæpsamlega gamanleikritinu
Átta konur eftir Robert Thomas. Stóðu leikhúsgestir allir sem einn upp á
annan endann til að sýna tilhlýðilega virðingu, þeirra á meðal Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir fræðimaður, en hún var með dúnmjúkt hárið uppsett og
stóra, gyllta eyrnalokka, og fallegasti leikari landsins, Björn Hlynur Har-
aldsson. Þau voru þó ekki saman á ferð. Margt merkra manna mætti, sjarm-
urinn Páll Baldvin Baldvinsson, ritstjóri DV, Jón Óttar Ragnarsson Vest-
urfari, og frú hans Margrét Hrafnsdóttir, og Þórður Árnason Stuðmaður
eða ,,frummaður“ samkvæmt nýjasta útspili bandsins. Í hléinu í Kjallaran-
um tylltu sér við dúklagt borð athafnahjónin Björgólfur Guðmundsson
með appelsínurautt bindi og samlitan klút í brjóstvasanum og hvítklædd
Þóra Hallgrímsson. Fluga er alvarlega að hugsa um að fjárfesta í leikhúskíki
enda nauðsynleg njósnagræja fyrir forvitnar hefðardömur og smart viðbót
við klæðnaðinn, t.d. skreyttur perlum eða semelíusteinum. Með einum slík-
um hefði hún séð kroppinn Samúel Jón Samúelsson (Samma í Jagúar) í
nærmynd en hann hafði umsjón með tónlist leikritsins.
Í Galleríi Anima í Ingólfsstræti opnaði Helga Egilsdóttir málverkasýn-
inguna Hugin. Nokkuð margt var um manninn og sást meðal annars til list-
fræðingsins Hrafnhildar Schram og Sigurðar Örlygssonar listmálara.
Reykjavík, musteri menningarinnar, var fersk og fjörug þrátt fyrir hressilegt
kuldakast. Á vappi sínu á Vesturgötunni spottaði fröken Fluga Kristján
Þorsteinsson, veitingamann á Humarhúsinu, sem brunaði flottur á silf-
urgráum tveggja sæta Benz eftir götunni í glæsilegum, ljósum leðurjakka.
Lalli Johns gaf sig á tal við vegfarendur fyrir framan Kaffi Reykjavík, bros-
andi og lífsglaður með veraldlegar eigur sínar í poka á bakinu, og Hugleikur
Dagsson hélt fermingarveislu vegna útkomu bókarinnar Fermið okkur í
anddyri Borgarleikhússins. Hugmyndasmiðurinn Hugleikur sló upp
veisluborði með klassískri kransaköku og bauð upp á malt og appelsín
íklæddur presthempu með hvítum kraga og allt. Amen og allt það … | flug-
an@mbl.is
Valgerður Árnadóttir, Ágúst Bogason, Máni Pétursson og
Viðar Friðriksson.
Ína Hrund Ísdal og Bríet Ósk Guðrúnardóttir.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson.
Harpa Einarsdóttir, Eygló Lárusdóttir og Berglind Laxdal.
Eva Garðarsdóttir Kristmanns, Ástríður Jónsdóttir, Guðríður Sveins-
dóttir og Hanna Hjördís Jónsdóttir.
Björgólfur Guðmundsson, Þóra Hallgrímsson, Elína Hallgrímsson og
Ragnar Guðmundsson.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Sigríður Frans-
iska Friðriksdóttir og Júlía Kristmundsdóttir.
Ævintýraskáld og átta konur
… brunaði flottur á silfurgráum tveggja sæta Benz eftir götunni í glæsilegum, ljósum leðurjakka …
FLUGAN
TÓNLEIKAR hljómsveitarinnar
Leaves voru á Gauki á stöng.
Oddur Ingi Þórsson og Valgerður Björk
Pálsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Anna Dóra
Ófeigsdóttir og
Heiða Dóra
Jónsdóttir.
Silja Björg Halldórsdóttir og Halla Rut
Halldórsdóttir.
FRUMSÝNING
á Átta konum var
á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
Kristín Bergs-
dóttir og Samúel
Jón Samúelsson.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t