Morgunblaðið - 09.04.2006, Qupperneq 20
20 | 9.4.2006
Víngerðarhúsið Chateau Cantenac
Brown í bænum Margaux í Bordeaux
skipti um eigendur í vikunni. Canten-
ac Brown er með þekktari víngerð-
arhúsum Bordeaux jafnt fyrir vín sín
sem glæsilegan kastalann í Tudor-stíl
sem setur sterkan svip sinn á um-
hverfið.
Cantenac Brown hefur um nokkurt
skeið verið í eigu frönsku samsteyp-
unnar Axa-Millésimes sem m.a. á og rekur víngerðarhúsin Suduiraut, Pichon-
Baron og Pibran. Nýr eigandi er breskur fjárfestir af sýrlenskum uppruna að
nafni Simon Halabi. Hann er með ríkustu mönnum Bretlands og auðgaðist á
fasteignaviðskiptpum. Halabi segir að hann hafi keypt víngerðarhúsið af per-
sónulegri ástríðu en gaf jafnframt í skyn að hann hefði mikilfengleg áform í far-
teskinu.
PORTÚGALAR GLEÐJAST YFIR
TOPPÁRGANGI Í PÚRTVÍNI
Púrtvín eru þekktasta afurð Portúgal og konungur
púrtvínanna er árgangspúrtvínið. Það er einungis þegar
náttúran leikur við menn að framleiðendur nota hluta
uppskerunnar í árgangspúrtvín. Nú er að koma á mark-
aðinn árangurinn 2003 og hann hefur vægast sagt feng-
ið stórkostlega dóma. Hefur honum jafnvel verið líkt
við árganginn 1994 sem var einn sá besti á síðustu öld.
Aðstæður voru semsagt nær fullkomnar sumarið 2003.
Í nýjasta hefti bandaríska tímaritsins Wine Spectator
fær 2003 árgangurinn 98 punkta af 100 í einkunn en til
samanburðar má nefna að árgangurinn 1994 fékk á sín-
um tíma 98 punkta. Segir fulltrúi blaðsins að á 25 ára ferli sínum hafi hann
aldrei rekist á árgang sem er jafn heilsteyptur að gæðum – það eru ekki ein-
ungis nokkrir toppar, nær hvert einasta vín er frábært.
Að hluta til er þetta rakið til náttúrunnar en jafnframt til þess hve mikið hef-
ur verið lagt í endurnýjun á vínekrum og búnaði í Douro á síðastliðnum árum.
Sem dæmi má nefna húsið Quinta do Noval, eitt af þeim bestu í Douro. Fyrir
rúmum áratug var hafist handa við að rífa upp runna á þeim hluta ekranna er
ekki stóðust ítrustu kröfur og var gróðursettur vínviður af bestu gerð, yfirleitt
Touriga Nacional og Tinta Cao.
Vínið Quinta do Noval Nacional fær einmitt hæstu einkunn en einnig hafa
húsin Roriz, Croft, Fonseca, Niepoort og Cockburn fengið góða dóma svo
nokkur séu nefnd fyrir árgangspúrtvín sín.
Það ætti líka að gleðja neytendur að verð á 2003 árgangspúrtvíni er töluvert
lægra en fyrir árin 1994 og 1997 og er meira í samræmi við það verð sem 2000
árgangurinn fór á. Menn verða hins vegar einnig að sýna þolinmæði því varla
borgar sig að fara að opna þessar flöskur fyrr en upp úr árinu 2015. Árgangs-
púrtvín þarf langan tíma.
VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
FONTERUTOLI KAUPIR VÍNHÚS
Einn besti framleiðandi Chianti-vína í Toskana, Castello di Fonterutoli, hefur
fest kaup á nágranna sínum, víngerðarhúsinu Il Caggio. Þar með bætast 45 hekt-
arar af ekrum við Fonterutoli og er fyrirtækið þar með orðið eitt mikilvægasta
vínhús Toskana jafnt hvað varðar magn sem gæði. Lapo Mazzei stjórnandi Font-
erutoli segist ávallt hafa dáðst að gæðum nágranna síns og kaup sem þessu séu
eðlilegasta leiðin fyrir fyrirtækið til að stækka.
BANDARÍKIN OG ESB SEMJA
Það eru alltaf einhver deilumál í gangi á milli Evrópu og Bandaríkjanna –
vínframleiðsla er þar ekki undanskilin. Það hefur til dæmis lengi farið fyrir
brjóstið á evrópskum framleiðendum að vínframleiðendur í öðrum heimsálfum
geti notað þekktustu vörumerki sem yfirleitt tengjast hefðum og landafræði.
Þannig hefur verið hægt að fá bandarískt Chablis-vín þótt þorpið Chablis sé
sannarlega í Mið-Frakklandi og sama má segja um sérrí og Chianti. Nú hefur
náðst samkomulag um að bannað verði að nota heiti sem þessi og á móti ætlar
ESB að leyfa sölu á víni frá Bandaríkjunum sem framleitt hefur verið með að-
ferðum sem ekki eru viðurkenndar í Evrópu. Má þar nefna vín sem hefur verið
bragðbætt með eikarspæni en það er mun ódýrari aðferð við að ná fram eik-
arbragði en að láta vínið liggja í nýjum og dýrum tunnum.
CANTENAC BROWN
SKIPTIR UM EIGENDUR
Það er alltaf jafnánægjulegt að rekast á góð vín frá
suðurhluta Frakklands, ég tala nú ekki um allt að
því frábær vín líkt og í þessu tilviki.
Saga víngerðarhússins Mas de Morties er ekki löng. Við ræt-
ur fjallsins Pic Sainte Loup, sem er um tuttugu kílómetra norð-
ur af Montpellier, var árum saman að finna hrörlegt eyðibýli –
Mas de Morties – og ekrur í órækt þó svo að býlið væri á
einhverju af bestu ræktunarsvæðum Languedoc.
Allt breyttist þetta árið 1993 þegar Michel Jorcin og
Rémy Duchemin festu kaup á býlinu og lyftu húsi, ekrum
og búnaði upp úr öskustónni. Mas de Morties hefur á
þeim fáu árum sem síðan eru liðin sýnt og sannað að
þarna er í raun eins konar Grand Cru svæðisins Coteaux
de Languedoc að finna.
Þessi vín minna um margt á betri vín frá Rhone s.s. frá
Chateauneuf eða Gigondas og eru þar að auki á hagstæð-
ara verði.
Morties Coteaux de Languedoc er hvítvín hússins og
þrúgurnar eru Roussane (90%) og Rolle, sem á Ítalíu gengur
undir nafninu Vermentino. Þetta er karaktermikið vín, með öfl-
ugri angan af suður-frönskum blómum í bland við ljósan ávöxt
og þurrkaðar ferskjur. Þykkt og fremur feitt í munni. Þetta er
vín sem hentar vel t.d. sem fordrykkur. 1.390 krónur. 17/20
Morties Coteaux de Languedoc 2004 er aðgengilegt og
þægilegt vín, miðjarðarhafslegt úr Grenache-þrúgunni. Í nef-
inu sveskjur, rúsínur og ber, í munni þykkur og þægilegur
berjaávöxtur. Milliþyngd. 1.390 krónur. 17/20
Morties Pic Sainte Loup „jamais content“ 2002 er
toppurinn frá Mas de Morties en heitið jamais content
þýðir „aldrei ánægður“. Þetta er vín sem byggir að mestu á
Syrah-þrúgunni eða 80%. Það er þungt og mikið, lokað all
lengi og maður skynjar í fyrstu einungis kraftinn sem
þarna leynist. Þegar það opnar sig kemur fram eik og
dökkur ávöxtur í miklu magni, kryddaður, þurr og heitur.
Þarna er íslenskt blóðberg og mosi. Glæsilegt vín. 1.960
krónur. 19/20
VÍN