Morgunblaðið - 12.05.2006, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 B 3
bílar
EINS og greint var frá í síðasta bíla-
blaði frumsýnir B&L í samvinnu við
BMW að kvöldi 22. maí nk. Z4 coupé.
Að sögn Helgu Guðrúnar Jónas-
dóttur, kynningarstjóra B&L, hefur
borist staðfesting þess efnis að Z4
Roadster verði frumsýndur samhliða
hinum nýja coupé-línunnar, en eins og
fram hefur komið er um heims-
frumsýningu á þeim síðarnefnda að
ræða. „Z4 Roadster-blæjubíllinn kom
á markað núna í vor með nýju útliti og
búnaði. Við verðum því með tvöfalda
frumsýningu um kvöldið, en þar sem
Roadsterinn er þegar kominn á mark-
að víða í Evrópu, verður aðeins um
venjulega frumsýningu að ræða á
honum. Í þessu sambandi er jafn-
framt rétt að geta þess, að sýningin
um kvöldið er eingöngu ætluð boðs-
gestum og verður almenn sýning á
bílunum haldin síðar í vikunni,“ segir
Helga Guðrún.
Fjöldi erlendra gesta kemur til
landsins vegna þessa, aðallega um-
boðsaðilar BMW, sem heyra undir
sama alþjóðlega sölusvæði BMW og
Ísland. Umboðsaðilarnir eru aðallega
frá Evrópu, Rússlandi og fyrrverandi
lýðveldum Sovétríkjanna, en þar sem
dreifingarnet BMW í Vestur-Evrópu
er að mestu í eigu framleiðandans
sjálfs eru evrópsku umboðsaðilarnir
aðallega frá Austur-Evrópu.
Z4 coupé
og Roadster
á Íslandi
EINS árs afmælishátíð verður
um helgina í Bílakjarnanum á
Eirhöfða. Þar hafa fjórar bíla-
sölur, Aðalbílasalan, Bílabank-
inn, Nýja bílahöllin og Litla
bílasalan, komið sér fyrir á um
600 bíla sameiginlegu svæði.
Í tilefni afmælisins verða ým-
is afmælistilboð á notuðum bíl-
um alla helgina. Á svæðinu
verða einnig hoppukastali,
veltubíll frá Sjóvá og grillvagn
sem býður upp á pylsur fyrir
gesti. Opið verður í Bílakjarn-
anum frá kl. 10 til 18 á föstu-
dag, á laugardag frá kl. 11 til 17
og á sunnudag frá kl. 13 til 16.
Bílakjarninn
eins árs
TEKIN hefur verið ákvörðun um að
Chrysler Crossfire verði ekki fram-
leiddur á þessu ári fyrir Bandaríkja-
markað. Ástæðan er sú að miklar
birgðir eru af bílnum í Bandaríkjunum.
Engu að síður fullyrða yfirmenn
Chrysler að ekki standi til að hætta
að framleiða hann. Hann verður fram-
leiddur sem 2006 árgerð fyrir Evr-
ópu en Bandaríkjamenn fá hann næst
sem 2007 árgerð seinna á árinu.
Sala á Crossfire hefur minnkað um
6,3% fyrstu fjóra mánuði ársins.
Engin 2006 ár-
gerð af Crossfire