Morgunblaðið - 12.05.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.05.2006, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ bílar AUDI er einn af stóru lúxusbílafram- leiðendunum þýsku en ólíkt BMW og Mercedes-Benz hefur Audi ekki boðið upp á borgarjeppa, fyrr en á þessu ári. Heldur hefur framleiðandinn látið sér nægja Allroad sem svipar mjög til Volvo XC 70, fjórhjóladrifinn og afl- mikill bíll með blöndu af jeppa- og langbakslagi og meiri veghæð en venjulegur fólksbíll. Audi Q7, sem ný- lega kom á markað, sýnir hins vegar með óyggjandi hætti að enginn alvöru bílaframleiðandi getur sniðgengið þennan geira markaðarins. Audi ger- ir þetta líka með stæl en stílar um leið nýja bílinn sinn meira inn á göturnar en utanvegaslóðana. Stærri, aflmeiri og betur búinn í grunninn en keppinautar Það er mikil og vaxandi eftirspurn eftir borgarjeppum og flestir fram- leiðendur hafa upp á slíka valkosti að bjóða. Audi fer samt aðra leið en þeir flestir. Q7 er nefnilega stærri, afl- meiri og betur búinn í grunninn en þeir. Tækifæri gafst til að prófa hóg- værustu gerðina í Q7-línunni á dög- unum. Þetta er bíll með V6 dísilvél sem skilar 233 hestöflum og hvorki meira né minna en 500 Nm togi. Og það er þetta með hógværðina; bíllinn er stútfullur af búnaði, jafnt að utan sem innan. Q7 er óvenjulega útlítandi jeppi og grípur strax augað sem stór og kannski plássfrekur lúxusjeppi. Þetta er enda fimm metra bíll og átta senti- metrum betur. Engu að síður er hann lipur í meðförum og lítið mál að fara í kringlurnar á honum, enda búinn fjarlægðarskynjara, sem er hið mesta þarfaþing á stórum bíl. Framendinn er voldugur með sínu stóra og síða grilli en hlutföll fram- lugtanna eru á hinn bóginn fremur smá í samanburði við heildarsvipinn. Séður á hlið er Q7 bogadreginn og jafnvel sportlegur með niðursveigðri glugga- og þaklínu eftir því sem aftar dregur. Stór hjólin gera bílinn líka voldugan ásýndum. Aflmikil og hljóðlát V6-dísilvél Allir Q7 eru fáanlegir með loft- púðafjöðrun og sætum fyrir sjö. Próf- unarbíllinn var hins vegar með gormafjöðrun og fimm sæta. Drif- kerfið er sítengt Torsen-fjórhjóladrif þar sem togátakið dreifist 42% til framhjólanna og 58% til afturhjól- anna. 3 lítra V6 dísilvélin er hin sama og boðin er í A6 og A8 en skilar fleiri hestöflum en í A6 og meira togi en bæði í A6 og A8. Þetta er einstaklega gangþýð dísilvél og hljóðlát en um leið ein af þeim aflmeiri miðað við stærð. Þessi 2,3 tonna þungi lúxusbíll rok- vinnur með þessari vél og skilar sér á 100 km hraða á 9,1 sekúndu. En það er millihröðunin sem vekur mesta ánægju undirritaðs. Það virðist alltaf nóg eftir og Q7 3.0 TDI er sannkall- aður hraðbrautarbíll. Fjöðrunin er stíf, kannski fullstíf því það finnst vel fyrir ójöfnum og holóttu malbiki inn í bílinn en fyrir vikið er hann líka tein- réttur í beygjum og sýnir af sér af- bragðs takta í hröðum þjóðvega- akstri. Dísilvélin er tengd við sex þrepa sjálfskiptingu sem er með handskipti- vali. Jafnframt er hún með svokall- aðri S-stillingu sem gefur bílnum sportlegri takta þar sem hægt er að þenja hann lengur í gírum. Skiptingin er fullkomlega hnökralaus og mjúk. Fyrir utan dísilvélina er Q7 enn sem komið er eingöngu fáanlegur með V8 bensínvélinni sem er 350 hestöfl og 440 Nm í togi, en von er á næstunni á 3,6 l VR6-bensínvél, sem verður eina gerðin í boði með bein- skiptingu. Á þriðja ársfjórðungi 2007 kemur V8 dísilvél, 4,2 lítra með tveim- ur forþjöppum og um svipað leyti flaggskipið, 5,2 lítra, V10 FSI-vél. Vel á áttundu milljón Eins og við var að búast frá Audi er vandað til verka, jafnt að utan sem innan. Prófunarbíllinn var prófaður með leðurklæðningu og alls kyns aukabúnaði. Maður finnur sig strax vel undir stýri og helstu aðgerðir, þ.e. sími, hljómtæki og miðstöð/loftkæl- ingu er stjórnað með tökkum og snúningsrofa sem eru staðsettir á milli framsætanna. Á 7 tommu lita- skjá gefur að líta helstu aðgerðir og prófunarbíllinn er með innbyggðan blátannarbúnað, leiðsögukerfi og afl- mikil og breiðhljómandi hljómkerfi, svo aðeins fátt eitt sé nefnt (sjá lista yfir staðalbúnað). Undirrituðum þyk- ir mikill kostur að fjarlægðarskynj- urum, sem eru bæði í fram- og aft- urstuðara bílsins. Skynjararnir láta vita með hljóðmerki og mynd á skján- um þegar bíllinn nálgast fyrirstöðu. Þessi búnaður er eiginlega nauðsyn- legur í jafnstórum bíl og Q7 er. Annað, sem er í takt við lúxusí- myndina, er frábær hljóðeinangrun í bílnum. Það er ekki fyrr en bílnum er gefið duglega inn að það heyrist í vél- inni og þá líkist það meira murri í V6- bensínvél en dísilvél. Í heildina tekið er frumraun Audi í jeppasmíði vel heppnuð. Q7 er traust- legur og vel smíðaður bíll og frágang- ur og efnisval í takt við dýrustu jeppa. Eins og sjá má af listanum yfir staðalbúnað er Q7 ríkulega búinn í grunninn. Verðið á honum er 7.990.000 kr. Til samanburðar má nefna að helstu keppinautarnir, sem allir eru talsvert minni bílar, þ.e. BMW X5 3.0d Luxus, Mercedes-Benz 320 CDI og Range Rover SE TDV6, kosta frá umboðunum í sömu röð 7.650.000 kr., ??? kr. og 8.480.000 kr. Vél: V6, 2.967 rúmsenti- metrar, 24 ventlar. Afl: 233 hestöfl við 4.000 snúninga á mínútu. Tog: 500 Nm við 1.750- 2.750 snúninga á mínútu. Gírskipting: Sex þrepa sjálfskipting með hand- skiptivali. Drif: Sítengt fjórhjóladrif. Hröðun: 9,1 sekúnda úr kyrrstöðu í 100 km. Hámarkshraði: 210 km/ klst. Eyðsla: 14,6 l innanbæjar, 10,5 l í blönduðum akstri (skv. framleiðanda). Lengd: 5.086 mm. Breidd: 1.983 mm. Hæð: 1.737 mm. Sæti: 5. Farangursrými: 775- 2.035 lítrar. Eigin þyngd: 2.330 kg. Veghæð: 20,5 cm. Dráttargeta: 3.000 kg. Hemlar: Kældir diskar að framan og aftan, ABS, EBD, EDL, ASR, ESP. Hjólbarðar og felgur: 265/ 55, 19" álfelgur. Verð: 7.990.000 kr. Umboð: Hekla hf. Audi Q7 3.0 TDI 6 öryggispúðar 19 tomma álfelgur Aksturstölva Armpúðar milli fram- og aftursæta Álþakbogar Bi-Xenon aðalljós Bluetooth-símabúnaður 2 svæða loftfrískunarbún- aður með kælingu Leðuráklæði ABS og ESP Fjarlægðarskynjari Hiti í framsætum Hraðastillir Leðurklætt aðgerðastýri Sítengt fjórhjóladrif Rafdrifin framsæti Rafdrifnar rúður og úti- speglar Regnskynjari Skyggðar afturrúður Tvöfalt krómpúströr Staðalbúnaður íAudi Q7 3.0 TDI Morgunblaðið/Ómar Í grunninn vel búinn – m.a. á 19" álfelgum og með xenon-ljós. Hraðbrautagen í Audi Q7 REYNSLUAKSTUR Audi Q7 eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is Leðursæti, 7" litaskjár, leðurklætt aðgerðastýri – allt staðalbúnaður. Afturhleri með rafstýrðri lokun. Þriðji sætabekkur er aukabúnaður. Sex þrepa sjálfskiptingin er með sportstillingu sem virkar vel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.