Morgunblaðið - 12.05.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 B 9
bílar
Komið í nýjan sýningarsal hjá okkur
á Funahöfða 1
EIGUM Á LEIÐINNI NOKKRA
Dodge Caravan og Chrysler Town and Country '06 og '05, dísel og
bensín. Nokkrir litir og tegundir í boði á frábæru verði. Tökum strax við
pöntunum, nýtið ykkur þetta tækifæri að eignast rúmgóðan 7 manna
fjölskyldubíl fyrir sumarið. Bjóðum ávallt hagstæðasta verðið. Útvegum
alla bíla frá USA. Veldu öryggi, bjóðum alla nýja bíla með allt að 5 ára
ábyrgð. Uppl. í s. 534 4433 eða 897 9227. Sjá nánar á www.is-band.is
NÝIR OG NÝLEGIR BÍLAR
LANGT UNDIR MARKAÐSVERÐI
Leitin að nýjum bíl hefst á www.islandus.com. Veitum öfluga þjónustu,
íslenska ábyrgð og útvegum bílalán. Ef draumabíllinn þinn er ekki til á
vefnum okkar í dag, finnum við hann fljótt með alþjóðlegri bílaleit og
veljum besta bílinn úr meira en þremur milljón bíla til sölu, bæði nýjum
og nýlegum. Gerðu kjarakaup í Bílabúð eða reyfarakaup á Bílauppboði
Islandus.com. Sími þjónustuvers 552 2000 og netspjall við sölumenn er
á www.islandus.com
MMC PAJERO DID ÁRGERÐ 2000
breyttur, aukatankur, framlás, loftdæla, skriðgír, leður, sóllúga, sjálf-
skiptur. Þetta er einn glæsilegasti fjallabíll landsins, öll vinna fram-
kvæmd af Heklu og Jeppaþjónustunni Breyti. Verð 4.800 þ. Skipti at-
hugandi.
Hyrjarhöfða 2 - sími 540 5800 - Bílasala.net
M. BENZ S 500 ÁRG. 1999 MEÐ ÖLLU!
Troðinn af aukahlutum! Sjón er sögu ríkari.
Verð 4.800.000, áhv. 3.000.000.
100 bílar ehf., Funahöfða 1, sími 517 9999, www.100bilar.is
Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16.
ÁRG. '97 EK. 164 KM
Til sölu Subaru Impreza '97 módel, 1600
vél, ekinn 164 km, beinskiptur, allur yfir-
farinn, gott lakk. Ásett verð 390 þús. Sími
868 4900.
VOLVO S 80
árgerð 2004. Ekinn 30 þ. km. Nýskráður
8/2004. Næsta skoðun 2007. Bensín knú-
inn. Skráður 5 manna. Sjálfskiptur.
TOPPBÍLAR - SÍMI 587 2000.
TVEIR GÓÐIR: SENDIBÍLL OG SUNNY
DAF 45.150 árg. '93, 28 m3 kassi, lyfta 1,5
tonn, ekinn 153 þ. km, sk. '07. Verð 850
þ. Sunny árg. '93, ek. 203 þ. km, sk. '07,
CD. Verð 120 þ. S. 694 8212 og 553 8212.
TOYOTA LANDCRUISER ÁRG. '98
Ekinn 148 þús. km, dísel, sjálfsk., breyttur
á "38. Áhvílandi 2.250 þús. Verð 2,7 millj.
Uppl. í síma 897 5358.
TOYOTA AVENSIS 1600CC
Avensis '99, keyrður 120 þús. Verðhug-
mynd 650 þús. 5 gíra og 4 dyra. Reyklaus,
ný tímareim, dráttarkúla og vetrardekk
fylgja! Uppl. í síma 858 1028.
TILBOÐ! 350 ÞÚSUND!
Suzuki Baleno station árg. '98, ek. 139
þús., 4x4, dráttarkúla, sumar- og vetrard.
Ný kúpling. Vel með farinn! Sk. okt. '06.
Verð 350 þ. Upplýsingar í síma 696 0884
& 697 8561.
TIL SÖLU VOLVO V70 XC
AWD árg. 2001. Gylltur með drapplitu leð-
uráklæði. Allir hugsanlegir aukahlutir. Lít-
ur út eins og nýr. Ekinn 160 þús. km. Verð
2.490 þús. Uppl. í síma 663 2595. Get sent
myndir í tölvupósti ef óskað er.
ba@internet.is.
RAV4 LÚXUSÚTGÁFA FRÁ USA!
Þú færð mun meira fyrir peningana í nýj-
um Toyota RAV4 frá USA. Mun öflugri lúx-
usútgáfa. Íslensk ábyrgð fylgir bílnum.
Sími þjónustuvers 552 2000 og netspjall
við sölumenn á www.islandus.com
OFURSPORTBÍLLINN frá Audi, Audi
R8, sem einnig er þekktur sem hug-
myndabíllinn Le Mans, fer í fram-
leiðslu í haust. Til aðgreiningar verður
að geta þess að hér er átt við nýjan
bíl, götubíl, en ekki keppnisbílinn R8
sem hefur verið til frá 2001 til 2005.
Sala hefst á götubílnum vorið 2007.
Hann verður svar Audi við Mercedes-
Benz SLR en er þó ekki síst beint
gegn Porsche 911. Hann er að stórum
hluta byggður á Lamborghini Gall-
ardo. Tvær vélar eru sagðar verða í
boði; annars vegar V8-vél sem skilar
um 400 hestöflum og tveggja túrb-
ínu V10 sem skilar nálægt 500 hest-
öflum.
Undirbúningur smíðinnar er þegar
hafinn í í Neckarsulm í Þýskalandi.
R8 er að stærstum hluta handsmíð-
aður. Starfsmenn verksmiðjunnar
hafa margir hverjir hlotið þjálfun í
gæðasmíði hjá Lamborghini. Stór
hluti tækniliðsins í kringum R8 eru
þeir sömu og unnu að þróun Lam-
borghini Gallardo, en bæði Audi og
Lamborghini eru sem kunnugt er
undir regnhlíf VW-samstæðunnar.
Audi R8 verður fáanlegur með V10-vél, nálægt 600 hestafla.
Framleiðsla á Audi R8
hefst í haust
NÝJAR myndir af Opel Vectra, sem
er bíll sem hefur jafnan átt upp á
pallborðið hérlendis, sýna hann
breyttan en þó ekki jafn róttæka
breytingu og búast hefði mátt við.
En það er reyndar háttur framleið-
enda að villa um fyrir papparössum,
þ.e.a.s. þeim ljósmyndurum sem
vinna það þarfaverk að svala forvitni
þeirra sem ekki geta beðið eftir opin-
berum ljósmyndum frá framleiðend-
unum sjálfum. Automedia er eitt af
þeim ágætu fyrirbærum sem stunda
það að gefa út á netinu myndir sem
teknar eru úr launsátri þar sem verið
er að prófa nýja bíla, þ.e.a.s. nýtt út-
lit eða alveg nýja gerð bíla. Auto-
media hefur tekist vel upp í gegnum
tíðina og er virt sem eitt framsækn-
asta papparassafyrirtækið á sviði
bílaljósmyndunar af þessu tagi.
Fyrir skemmstu náði Automedia
myndum af nýrri kynslóð Vectra,
sem sennilega er meiri spenningur
fyrir á meginlandi Evrópu, einkum
þó í Þýskalandi, en hér á útnáranum.
Þessar fyrstu myndir gefa ekki til
kynna að hönnuðir Opel hafi haft
mikið áræði í í farteskinu þegar þeir
tókust á við það verkefni að endur-
hanna fremur þreytulegt en stíl-
hreint útlit núverandi Vectra. En
sem fyrr segir vita framleiðendur af
linsunum á bakvið limgerðin og gera
hvað þeir geta til þess að leyna end-
anlegu svipmóti bíls sem kostar
mörg hundruð milljónir, ef ekki
milljarða króna, að kynna á lokastig-
um ferilsins. Mörg hundruð blaða-
mönnum, hvaðanæva úr heiminum,
er boðið til veislu þar sem hver
markaðssérfræðingurinn á fætur
öðrum reynir að fullvissa viðstadda
um fullkomleika framleiðslunnar.
Sem betur fer eru blaðamennirnir á
slíkum fundum starfi sínu vaxnir og
spyrja spjörunum úr að heilaþvotti
loknum. Og þá verður oft fátt um
svör.
Þótt myndirnar sýni næstum
óbreyttan bíl geta menn greint að
hjólhafið er mun lengra en áður,
framendinn er breiðari, hjólaskál-
arnar útstæðari og bíllinn hærri. Allt
gefur þetta til kynna að bíllinn í dul-
arklæðunum sem Automedia náði
myndum af er í raun á undirvagni
næstu kynslóðar Vectra.
Vitað er að nýi undirvagninn fyrir
Vectra og fleiri bíla GM kallast Epsi-
lon 2. Jafnframt er vitað að þessi
undirvagn gerir ráð fyrir breiðari og
hærri yfirbyggingu sem ætti að hafa
í för með sér meira innanrými fyrir
farþega. Og það skiptir meginmáli í
samkeppni í þessum stærðarflokki
bíla, þar sem Volkswagen hefur tekið
áberandi forystu með nýjum Passat.
Það mun líka hjálpa Vectra að
hann fær nýjar og gæðameiri inn-
réttingar og þar er sagt að menn
verði varir við mestar breytingar. Þá
verða dýrustu útfærslurnar útbúnar
myndavélum sem sýna veginn fram-
undan og laser-búnaði sem varar við
fyrirstöðum og þegar farið er yfir ak-
reinamerkingar. Þá er sagt að
Vectra verði í þessari gerð í fyrsta
sinn boðin með fjórhjóladrifi. Bíllinn
verður frumsýndur í Frankfurt
haustið 2007 og kemur á markað
2008.
Vectra, eins og við þekkjum hana, og Opel kýs að sýna enn sem komið er.
Ný og gerbreytt Vectra 2008