Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 2
2 B LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Í
slendingasögurnar eru hluti
af þjóðararfi okkar. Afar og
ömmur hafa sagt frá
hetjum eins og Gunnari á
Hlíðarenda og Agli Skallagríms-
syni allt fram á okkar daga. Þær
voru sagðar í baðstofum í torf-
kofum í gamla daga en í dag
gefst kostur á að sjá sýningu
sem Benedikt Erlingsson hefur
samið upp úr Egilssögu og heitir
Mr. Skallagrímsson. Hann leik-
ur einn í sýningunni sem er sýnd
í Landnámssetri Íslands í Borg-
arnesi. Við tókum Benedikt tali.
Hættulegt að vera aumingi
Hvernig strákur var Egill og
hvernig var umhverfið sem hann
ólst upp í ólíkt því sem við eigum
að venjast?
Egill var náttúrlega ekki til
fyrirmyndar á neinn hátt.
Hann var erfitt barn og hefði
sjálfsagt verið settur inn á stofn-
un eða fengið lyf í dag af því að
hann átti mjög erfitt. Hann bjó í
miklu harðari heimi en við búum
í. Miklu grimmara samfélagi og
þar voru grimmari reglur og við-
mið. Menn voru uppteknir af
heiðrinum. Það var hættulegt að
gefa þau merki frá sér að maður
væri veikur eða ætti bágt. Það
var hættulegt að vera aumingi.
Strákar gerðu allt til að vera
ekki kallaðir aumingjar. Það gat
orðið lífshættulegt, þá gátu þeir
fengið stein í höfuðið eða
kannski exi. Við verðum líka að
fyrirgefa Agli ýmislegt vegna
þess að hann bjó í hörðum heimi,
þetta er eins og hjá dýrunum í
skóginum. Það er mjög hörð lífs-
barátta þar. Það voru aðrar leik-
reglur í hans uppvexti en eru í
dag.
Geta gripið fyrir augu og eyru
Finnst þér þessi sýning eiga
erindi til krakka?
Mér finnst þessi sýning ekki
vera barnasýning en það hafa
komið krakkar á sýninguna í
fylgd með fullorðnum og þau
virðast hafa notið sýningarinnar.
Ég myndi segja að þessi sýning
væri allt í lagi fyrir harðgerða
krakka í fylgd með fullorðnum,
ég tala nú ekki um ef þau hafa
heyrt eða þeim hafa verið sagðar
einhverjar Íslendingasögur, þá
gætu þau notið þessarar sögu.
Það er mikið blóð í þessari sögu
eins og í Tomma og Jenna. Þá
eru menn lamdir í hausinn og
mér skilst að nú séu tölvuleikir
þar sem menn drepi mann og
annan. Þetta er kannski eins og
harður tölvuleikur sem börn
geta orðið vitni að í þessari sýn-
ingu. Ef þau eru undirbúin undir
það þá gætu þau kannski lifað
þetta af, ef þau fá að ræða við
fullorðna og hafa foreldra sína
með sér og þau geta þá alltaf
gripið fyrir augun og eyrun.
Þegar Egill var á gamals aldri
fékk hann áhuga á að hjálpa
ungum þunglyndum stúlkum.
Egill var því ekki bara geðveik-
ur, ofvirkur morðingi og víking-
ur.
Leikari eða bóndi
Hvenær ákvaðst þú að verða
leikari?
Ég ætlaði að verða bóndi en
mig langaði líka að verða leikari.
Svo fór ég í ferðalag með skóla-
systkinum mínum upp á Húsa-
fell. Ég vaknaði snemma um
morguninn og fór upp að Hvítá
og fór að hugsa um hvað ég ætl-
aði að verða þegar ég yrði stór.
Þarna ákvað ég að ég ætlaði
fyrst að verða leikari og svo gæti
ég seinna örugglega orðið bóndi.
Fyrir harðgerða krakka
í fylgd með fullorðnum
Morgunblaðið/EyþórMr. Skallagrímsson.
Sigurlaug Björnsdóttir
9 ára
Selási 33
700 Egilsstaðir
Guðný Rún Ellertsdóttir
6 ára
Steinahlíð 5B
603 Akureyri
Máni Ingason
8 ára
Skógarási 3
110 Reykjavík
Þórkatla Haraldsdóttir
8 ára
Kleppsvegi 36
105 Reykjavík
Halldór Ísak Ólafsson
6 ára
Húsalind 11
201 Kópavogi
Til hamingju, krakkar!
Þið getið nálgast bókina ykkar í
afgreiðslu Morgunblaðsins eða
hringt og fengið hana senda.
Í þessari viku ríður á hversu vel
þið hafið lesið blaðið. Í þessari
gátu eigið þið að svara spurn-
ingum um Egil Skallagrímsson.
Lesið spurningarnar vel og svarið
þeim síðan. Svörin eiga að fara
inn í krossgátuna. Svar við
spurningu eitt fer inn í reit nr. 1 en
gætið að hvort svarið á að vera
lárétt eða lóðrétt. Skrifið síðan
hvert svarið á fætur öðru. Klippið
hana síðan út og sendið okkur í
pósti. Ef til vill verðið þið heppin
og vinnið bókarverðlaun. Bókin
sem er í vinning er Egla sem
Brynhildur Þórarinsdóttir end-
ursagði úr Egilssögu en Margrét
E. Laxness myndskreytti hana.
Morgunblaðið
Börn – verðlaunaleikur
01.07.2006
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Fyrir tveimur vikum áttuð þið
að svara litakrossgátu. Allmargir
gátu svarað henni en vinnings-
hafarnir eru:
Verðlaunaleikur
Lárétt
1. Hvað heitir fornsagan sem er um Egil
Skallagrímsson?
4. Hver leikur Egil í leikritinu Mr. Skallagrímsson?
6. Hvað heitir fjörðurinn þar sem Egill átti heima?
7. Hver var fyrsti landnámsmaðurinn í Borgarfirði?
8. Hvert var viðurnefni fóstru Egils?
Lóðrétt
1. Hvað leika margir í sýningunni um Egil?
2. Hvar er Borgarfjörður?
3. Þegar Egill var þriggja ára orti hann
sitt fyrsta _____?
5. Hver var fyrsti landnámsmaðurinn á
Íslandi?
Í þessari bók sem
Brynhildur endur-
sagði getur þú lesið
meira um herskáa
víkinginn og stór-
skáldið Egil
Skallagrímsson.
Egla
Það mælti mín móðir
að mér skyldi kaupa
fley og fagrar árar,
fara á brott með víkingum,
standa uppi í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svo til hafnar,
höggva mann og annan.
Skáld
Egill var mikið skáld og orti
sína fyrstu vísu aðeins þriggja
ára. Þessa vísu orti hann sjö
ára gamall. Tildrögin voru
þau að hann hafði drepið
kunningja sinn sem hafði gert
grín að honum í knattleik.
Knattleikur á víkingatímanum
var svipaður fótbolta en gat
annað hvort farið fram á grasi
eða ís. Móðir hans var ánægð
með strákinn sinn því að á
þessum tíma var æran mik-
ilvægari öllu öðru. Hún taldi
að með þessu hefði hann sýnt
að hann gæti orðið mikill vík-
ingur sem og hann varð. Þið
sjáið á þessu að á landnáms-
öld gat verið dýrt að móðga
aðra.
Faðir Egils Skallagrímur
var fyrsti landnámsmaðurinn í
Borgarfirði. Hann átti einnig
fóstru sem var kölluð Þor-
gerður Brák. Viðurnefnið
Brák fékk hún því að hún
gekk í buxum en það þótti
ekki kvenlegt á landnámsöld.
Vísa Egils
Myndin er úr bókinn Egla eftir
Brynhildi Þorsteinsdóttur.
börn