Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 B 3
bílar
Á laugardaginn 29. júlí verður haldin í annað
sinn drifterkeppni eftir vel heppnaða keppni í
fyrra. Max1-bílavaktin í Reykjavík og Bifreiða-
íþróttaklúbbur Reykjavíkur, BÍKR, standa að
keppninni en keppnisstaður verður tilkynntur
mánudaginn 24. júlí á heimasíðu Max eins,
max1.is. Búast má við að 20–25 ökumenn taki
þátt að þessu sinni en minnt er á að skráningu
fyrir keppnina lýkur á þriðjudaginn 25. júlí. Orðið
„drift“ kemur úr ensku og mætti þýða sem flat-
rek og er þetta því flatrekskeppni. Það þykir
heldur óþjált og flestir notast því við orðið drif-
terkeppni en í slíkri keppni er leitast við að sýna
færni ökumanns og getu bíls við stöðugt spól,
út á hlið (skriði), hring eftir hring á þar til gerðri
braut. Einnig verða í boði tvö frísvæði þar sem
frjáls tækni í spóli verður leyfð. Allt er þetta
gert innan ákveðinna tímamarka og svo gefin
stig fyrir magn reyks frá dekkjum, hávaða frá
bíl, fagnaðarlæti áhorfenda, drifthringinn, frjálsa
svæðið og stíl. Einnig eru gefin refsistig fyrir
felldar keilur. Nexen-dekkjaframleiðandinn gefur
vegleg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin auk sér-
stakra tilþrifaverðlauna. Keppendur fá einnig
40% afslátt af Nexen-dekkjum fram að keppn-
isdegi enda má búast við því að miklu gúmmíi
verði brennt á keppnisdaginn. Aðgangseyrir
verður 500 krónur en 11 ára og yngri fá frítt inn
á svæðið í fylgd með fullorðnum.
Drifterkeppni
haldin í
annað sinn
The Fast and the Furious: Tokyo Drift - vonandi má
búast við svipuðum tilþrifum hér heima.
Svona mun
brautin verða
uppsett en ekki
verður gefin upp
staðsetning
hennar fyrr en
eftir helgi.
Árið 1983 ákváðu yfirmenn Toyota að takast á
við risana á lúxusbílamarkaðnum, Mercedes
Benz, BMW og Jagúar með því að hleypa af
stokkunum eigin merki sem ætti að skara fram-
úr og binda enda á einokun evrópsku framleið-
andanna á þessum markaði. 1989 leit afrakstur
erfiðisins dagsins ljós og bar bíllinn Lexus-
merkið á húddinu. Bílablaðamenn allra landa
kepptust við að hlaða lofi á bílinn og alla tíð síð-
an hafa Lexus-bílar þótt vera einstaklega vel
smíðaðir og hafa sankað að sér viðurkenningum
og er svo komið í dag að Lexus-bílar raða sér
reglulega í flest efstu sætin í könnum hjá JD
Powers.
Nú lítur út fyrir að annað vígi evrópskra bíla-
framleiðenda sé að falla en það er sá flokkur
bíla sem stundum hefur verið nefndur „super
sedan“ og þekktasti bíllinn úr þeim flokki er
BMW M5. Lexus virðist þó ætla að taka slaginn
við systur bílinn M3 og etja um leið kappi við
bíla eins og C-línu AMG Benz og Audi S4 og
RS4. Bíll frá Lexus hefur sést við prófanir í dul-
arbúning á Nordshcleife og er líkum að því leitt
að Lexus muni nálgast hugmyndina að þessum
flokki bíla á eilítið annan hátt en keppinaut-
arnir. Lexus hefur ekki viljað láta draga sig í
hestafla stríð þýsku framleiðandanna en þeir
munu þó tefla fram öflugri vél, líklegast 4,6 lítra
V8 vél sem mun skila minnst 380 hestöflum en
þá ætti áherslan jafnframt að vera á afl án
átaka – þægindin í fyrirrúmi að venju.
Bíllinn mun líklega fá tegundarheitið IS500
og koma á markað á næsta ári ef marka má
fréttasíður veraldarvefjarins.
Lexus tekur slaginn aftur
Í NÝRRI könnun sem birt var í vikunni
hjá Insurance Institute for Highway Sa-
fety í Bandaríkjunum kemur fram að fleiri
látast á hverju ári af völdum áreksturs á
hlið bíls en framan á hann. Könnunin þyk-
ir vera til vitnis um mikilvægi þess örygg-
isbúnaðar sem nú er staðalbúnaður í öllum
bílum en það eru líknarbelgirnir. Enn sem
komið er eru þó hliðarlíknarbelgir auka-
búnaður hjá mörgum framleiðendum og
telja rannsakendur að þetta skýri að hluta
af hverju fleiri látast í árekstrum frá hlið.
Jafnframt kemur fram að mikilvægi
hliðarárekstrarvarna hafi aukist verulega
eftir mikla söluaukningu á jeppum, pall-
bílum og jepplingum vestanhafs en slíkir
bílar eru nógu háir til að högg komi fyrir
ofan árekstrarvarnarsvæði flestra fólks-
bíla við árekstur á hlið. Þróunin hefur ver-
ið svipuð hér á Íslandi á síðustu árum með
gífurlegri söluaukningu á bílum í þessum
flokkum. Í Bandaríkjunum voru 47% allra
nýrra bíla árið 2004 jeppar, pallbílar eða
jepplingar og því er ljóst að samsetning
bílaflotans hefur breyst mjög mikið á síð-
ustu árum.
Í þeim bílum sem voru prófaðir og voru
án hliðarlíknarbelgja, en þessar gerðir eru
ekki fluttar inn til Íslands af umboðunum,
hefði ökumaður hlotið lífshættuleg meiðsl.
Það væri því ekki úr vegi fyrir íslenska
vegfarendur að hafa þetta í huga í ljósi
sambærilegrar þróunar hér heima – hlið-
arlíknarbelgir ættu að vera staðalbúnaður
í öllum bílum.
Hliðarárekstrarvörn besta
vörnin í árekstri við jeppa
TENGLAR
.......................................................
www.ihs.org