Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.08.2006, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ knattspyrna Þrír sterkir Andriy Shevchenko og Michael Ballack fagna Frank Lampard, eftir að hann kom Chelsea á bragðið með marki úr vítaspyrnu. „Drogba sýndi mikinn styrk“ ENGLANDSMEISTARAR Chelsea í knattspyrnu komust aftur á sigurbraut í gær þegar þeir unnu góðan útisigur á Blackburn, 2:0, í úrvalsdeildinni. Chelsea, sem tapaði fyrir Middles- brough í vikunni, hefur þá hlotið sex stig eftir þrjá leiki, en Blackburn situr á botninum með aðeins eitt stig. Ekkert mark var skorað í fyrri hálf- leik en strax á þriðju mínútu síðari hálf- leiks skoraði Frank Lampard úr víta- spyrnu fyrir Chelsea. Didier Drogba tryggði sigurinn með marki tíu mínút- um fyrir leikslok. Leikurinn var mar- tröð fyrir hollenska varnarmanninn Andre Ooijer sem lék sinn fyrsta leik með Blackburn. Hann fékk á sig víta- spyrnuna og réð síðan ekki við Drogba sem reif sig framhjá honum og þrumaði boltanum í mark Blackburn. „Þetta er afar erfiður útivöllur en eft- ir að hafa klúðrað leiknum í Middles- brough á lokamínútunum vorum við sérlega ákveðnir. Við sýndum ekki okk- ar besta fótbolta en sóttum þrjú stig, og það er ánægjulegt að ná að sigra á þennan hátt,“ sagði John Terry, fyrirliði Chelsea, og hrósaði sérstaklega Drogba, sem kom inn á sem varamaður. „Hann vann frábærlega fyrir mark- inu. Vissulega var hann svekktur yfir því að vera ekki í byrjunarliðinu en hann sýndi mikinn styrk með að koma inn á og spila eins og hann gerði.“ ÞETTA er auðvitað ekkert annað en grín. Við fórum upp í skallabolta og þetta var bara heiðarleg barátta hjá okkur. Ég horfði ekkert á manninn heldur var einbeittur á boltanum. Ef þetta er rautt spjald þá ætti Alan Shearer að hafa fengið rautt spjald í hverjum einasta leik sem hann hefur spilað á ferlinum. Ef ég horfi á leikmanninn og rek olnbogann í andlitið á manninum þá er það auðvitað rautt spjald, en við fórum báðir upp og það kemur oft fyrir að menn skalla saman og eins fær maður olnboga í sig. Maður notar hendurnar til að rífa sig upp og ef þetta er rautt spjald þá … já. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja,“ sagði Hermann. „Í þessum leik fengu menn olnboga sjálfsagt tíu sinnum í sig – eru það þá tíu rauð spjöld? Það hefur sjálfsagt setið í dómaranum í þessum leik þetta atvik með Ben Thacher og eins það sem á undan var gengið í leiknum. Við munum reyna að áfrýja þessu en það hefur örugglega ekkert að segja því mér sýnist að slíkt sé ekki tekið til greina nema í ljós komi að engin snert- ing hafi verið,“ sagði Hermann. Endaði í leikbanni í vor Hann missti af síðustu þremur leikj- unum í deildinni í fyrra eftir að enska knattspyrnusambandið ákærði hann fyrir að gefa Luis Boa Morte olnbog skot í leik Charlton og Fulham. He mann gekkst við brotinu og fór þv snemmbúið sumarfrí. „Ég byrja tím bilið svipað og ég endaði það í fyrra, e þetta er fyrsta rauða spjaldið sem é fæ í úrvalsdeildinni en ég er búinn leika ríflega 230 leiki þar. Ég vona dómararnir ætli ekki að fara að tak upp á því að það sé rautt spjald í hve sinn sem maður fer í skallaeinvíg sagði Hermann, en Charlton miss líka mann útaf með rautt spja snemma í fyrsta leiknum. Davies fékk rautt spjald undir lo leiksins. „Það var heldur ekkert rau spjald. Hann hoppaði upp með hen urnar uppi eins og menn gera og lent andlitinu á einhverjum. Þetta er bara að verða komið út tóma vitleysu. Wayne Rooney fék rautt spjald um daginn í æfingaleik o fékk þriggja leikja bann. Það var ek séns að það væri rautt spjald. Því v áfrýjað en ekki tekið til greina þann Fyrsta rauða spjald varnarjaxlsins Hermanns Hreiðarssonar í rúmlega 230 leikjum í ensku úrvalsdeildinni Er komið út í tóma vitleysu Morgunblaðið/ÞÖK Fékk rautt Hermann Hreiðarsson, sem tekur hér í hönd Bjarna Jóhannssonar aðstoðarlandsliðsþjálfara fékk að sjá rauða spjaldið á laugardaginn. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „ÞAÐ er gott að vera búinn að fá fyrstu stigin í deildinni, en ég hefði nú kosið að taka meiri þátt í því að krækja í þau,“ sagði Hermann Hreið- arsson, varnarmaður hjá Charlton, en liðið vann sinn fyrsta leik í deild- inni á laugardaginn þegar það lagði Bolton að velli 2:0 með mörkum Dar- rets Bents. Hermann var rekinn af velli á 28. mínútu fyrir að gefa Kevin Davies, sóknarmanni Bolton, oln- bogaskot að mati dómarans. RYAN Giggs hélt upp á sinn 600. leik í byrjunarliði Manchester United með því að tryggja liðinu sigur á Watford, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. United mátti virkilega hafa fyrir því að sigra bar- áttuglaða nýliðana á Vicarage Road og trónir nú á toppi úrvalsdeildarinnar með níu stig eftir þrjá leiki og hefur þegar skorað 10 mörk. Mikael Silvestre skoraði fyrra mark United en Damien Francis jafn- aði metin fyrir Watford. „Þið sáuð hina hliðina á okkur í dag, við þurftum virkilega að berjast fyrir þessum stigum. Okkur vantaði að einhver tæki af skarið, stjórnaði spilinu og héldi boltanum,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd. Man. Utd. með fullt hús stiga Sigurmark Giggs í 600. leiknum Reuters Fögnuður Ryan Giggs, leik- maður Manchester United, fagn- ar marki sínu gegn Watford. HEIÐAR Helguson var settur út úr byrjunarliði Ful- ham fyrir leikinn gegn Sheffield United. Hann lék síðustu 25 mínúturnar og tók þátt í fyrsta sigri Ful- ham á tímabilinu, 1:0 gegn nýliðunum, þar sem Jimmy Bullard skoraði sigurmarkið með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu. Bullard, sem var keyptur frá Wigan í sumar, hefur þegar slegið í gegn hjá Ful- ham en hann skoraði jöfnunarmark á 90. mínútu gegn Bolton í síðustu viku. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn með nýliðum Reading sem biðu lægri hlut fyrir Wigan á útivelli, 1:0. Brynjar Björn Gunnarsson sat allan tímann á varamannabekk Reading. Bullard slær í gegn hjá Fulham Heiðar settur á bekkinn „EF menn vilja krýna meistara eftir þrjár umferðir, þá er það þeirra vandamál. Við höfum bara spilað tvo leiki og munum blanda okkur í barátt- una, það er engin hætta á öðru,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir ósigur gegn Manchest- er City, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Arsenal hefur aðeins fengið eitt stig eftir tvo leiki og er þegar átta stigum á eftir Manchester United. Joey Barton skoraði sigurmark City úr vítaspyrnu – fyrsta mark liðs- ins á tímabilinu – eftir að Justin Hoyte braut á Trevor Sinclair rétt fyrir lok þar með enal í 15 Thatche Ben T sem hefu ljósinu fy Mendes h horfa á le „Við sö frá vellinu taka þeir því hann yfir strik knattspyr „Blöndum ok

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.