Morgunblaðið - 28.08.2006, Side 8
8 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Ólafur Loftsson, kylfingur úr NK,og Þórður Rafn Gissurarson úr
GR stóðu sig báðir með ágætum á
SAAB-unglingamótinu sem lauk í
Belgíu um helgina. Ólafur lék síðasta
hringinn á laugardaginn á 77 höggum
og varð í 10. sæti á 222 höggum, eða
sex höggum yfir pari vallarins. Til
stóð að leiknir yrðu fjórir hringir en
þriðja hring á föstudaginn var frestað
vegna veðurs og því aðeins leiknar 54
holur. Þórður lék á 80 höggum á
laugardaginn og samtals á 11 högg-
um yfir pari og endaði í 21. sæti.
Einnig var keppt í liðakeppni þar sem
tveir voru frá hverri þjóð og þar urðu
þeir félagar í öðru sæti ásamt Dön-
um, einu höggi á eftir Belgum sem
sigruðu.
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur sigr-aði í sveitakeppni öldunga í golfi
um helgina, lagði sveit Golfklúbbsins
Odds. Akureyringar urðu í þriðja
sæti. Hjá konunum sigraði Sveit
Golfklúbbs Suðurnesja, Keilir varð í
öðru sæti og Nesklúbburinn í því
þriðja.
Noregur tryggði sér í gær sæti ílokakeppni HM kvenna í knatt-
spyrnu með því að gera jafntefli, 1:1, í
Úkraínu. Unni Lehn skoraði þar
jöfnunarmark sem færði norsku kon-
unum stigið sem þær þurftu. Þar með
eru þrjár þjóðir komnar á HM, Nor-
egur, Ástralía og Norður-Kórea,
ásamt gestgjöfunum, Kínverjum.
Birgit Prinz skoraði í sínum 150.leik með þýska kvennalandslið-
inu í knattspyrnu á laugardaginn
þegar það vann Íra, 3:0, á útivelli í
undankeppni HM. Þetta var hennar
95. mark fyrir landsliðið. Anja Mittag
og Petra Wimbersky skoruðu hin
mörkin.
Magnús Ívar Guðfinnsson hefurverið ráðinn þjálfari kvennaliðs
Breiðabliks í körfuknattleik, sem
leikur áfram í 1. deild, efstu deildinni,
í vetur eftir að hafa hafnað í fimmta
sæti af sex liðum í fyrra. Magnús,
sem á sínum tíma lék með Keflavík
og Val, tekur við af Thomas Fold-
bjerg.
Rio Ferdinand, miðvörður Man-chester United og enska lands-
liðsins í knattspyrnu, er ekki tábrot-
inn eins og óttast var eftir leik United
við Watford á laugardag. Hann fór í
myndatöku í gær sem leiddi það í ljós
en það skýrist þó ekki fyrr en eftir
frekari skoðun í dag hvort hann verð-
ur leikfær með enska landsliðinu um
næstu helgi.
Englendingar mæta þá Andorra í
undankeppni EM og síðan Makedón-
íu fjórum dögum síðar. Þegar er ljóst
að Gary Neville, Joe Cole og Jamie
Carragher missa af þeim leikjum
vegna meiðsla og Wayne Rooney
verður í leikbanni.
Fólk sport@mbl.is
„ÞÓ svo þetta hafi ekki verið nógu gott hjá okkur fannst
mér að vísu margt mjög gott í þessum leik. Við fáum á
okkur mjög vafasamt mark í upphafi leiksins og það
drap kannski leikinn dálítið fyrir okkur,“ sagði Elísabet
Gunnarsdóttir landsliðþjálfari eftir leikinn, en Jörundur
Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari kvenna, fylgdist með úr
stúkunni en hann var í leikbanni.
„Varnarleikurinn var mjög góður framan af hjá okkur en síðan missum
við lykilleikmenn útaf vegna veikinda sem hafa herjað á okkur síðustu
daga. Þær Ásthildur og Hólmfríður eru ekki búnar jafna sig af veikind-
unum og urðu að fara útaf. Tapið fannst mér fullstórt miðað við gang leiks-
ins. Við spilum mjög vel í 75 mínútur en duttum niður í lokin og Svíarnir
voru fljótir að nýta sér það,“ sagði Elísabet, sem var sammála því að sókn-
araðgerðir íslenska liðsins hefðu verið of hægar. „Já, það er alveg rétt og
við sóttum með of fáum mönnum,“ sagði Elísabet.
Veikindi herjuðu
á leikmenn
Elísabet
Gunnarsdóttir
„ÞETTA var ekki nógu gott hjá okkur, en veistu að miðað
við leikinn á móti Tékkum getum við ekki kvartað,“ sagði
Þóra B. Helgadóttir, markvörður íslenska liðsins, sem tók
við fyrirliðabandinu af Ásthildi systur sinni á 72. mínútu.
„Mér fannst þær skora rosalega flott mörk og þær voru í
raun bara þetta betri en við. Það er kannski fáránlegt að
segja eftir 4:0-tap, en ég er ekki neitt rosalega ósátt,“ sagði Þóra, sem var þó
ekki alveg sátt við niðurröðun leikja. „Það voru undanúrslitaleikir í bik-
arkeppninni settir á milli þessara landsleikja. Það þykir mér ekki gáfulegt og
menn eru þreyttir eftir tvo landsleiki og einn undanúrslitaleik í bikar á einni
viku. Það er ekki endalaust hægt að keyra sig áfram á adrenalíninu,“ sagði
markvörðurinn, sem var langt frá því að vera ánægð með dómara leiksins:
„Ég skrifa vítaspyrnuna sem Svíar skoruðu fyrsta markið úr alfarið á
dómarann. Mér fannst dómarinn algjörlega út úr kú þannig að þær voru í
rauninni tólf á móti okkur allan leikinn,“ sagði Þóra.
„Skrifa vítaspyrnuna
alfarið á dómarann“
Þóra B.
Helgadóttir
SVÍAR voru beittir strax frá upphafi og gerðu
fyrsta markið úr vítaspyrnu á 12. mínútu. Boltinn
var þá sendur inn í vítateiginn og Victoria Svens-
son datt með miklum látum og dómarinn taldi að
Hólmfríður Magnúsdóttir hefði ýtt á bakið á henni
og dæmdi víti sem skorað var úr af öryggi.
Eftir að hafa byrjað síðari hálfleikinn af krafti
og sótt nokkuð skoruðu Svíar annað mark sitt. Það
var á 62. mínútu að Íslendingar vildu fá vítaspyrnu
þegar boltinn fór í hönd varnarmanns Svía. Dóm-
arinn dæmdi ekkert, Svíar brunuðu í sókn og
vinstri bakvörður liðsins, Sara Thunebro, gerði
laglegt mark, skrúfaði boltann frá vinstra víta-
teigshorni í hægra hornið.
Seinni tvö mörk Svía komu síðan á síðustu tíu
mínútunum og voru þau bæði lagleg.
Íslenska liðið lék ekki vel að þessu sinni en þó
miklum mun betur en gegn Tékkum fyrir rúmri
viku. Það hljómar kannski ekki mjög gáfulega eft-
ir 4:0-tap að segja að liðið hafi varist vel, en það er
engu að síður rétt. Liðið varðist vel alveg frá
fremsta manni, en hins vegar voru sóknaraðgerðir
þess langt í frá nægilega góðar. Margrét Lára Við-
arsdóttir var ein frammi og Svíar höfðu góðar
gætur á henni og voru mjög fljótir til baka þannig
að oft var hún ein á móti fimm til sex sænskum
leikmönnum. Auk þess sem sóknirnar voru hægar
voru allt of fáir leikmenn þátttakendur í þeim.
Þetta lagaðist í upphafi síðari hálfleiks, en þá
kom Ásthildur Helgadóttir framar og ógnunin var
miklu meiri. Kantmennirnir tveir höfðu aldrei tek-
ið þátt í sókn á sama tíma í fyrri hálfleik en það
lagaðist líka eftir hlé. Hins vegar voru sóknirnar
enn fullhægar og áttu Svíar í raun aldrei í miklum
vanda í öftustu vörn.
Annað mark Svía kom gegn gangi síðari hálf-
leiks og síðasta hálftímann riðlaðist leikur Íslands,
og nýttu Svíar sér það með tveimur mörkum.
Miðvarðarparið í íslenska liðinu, Guðrún Sóley
og Erna, náðu vel saman og Margrét Lára var
dugleg í fremstu víglínu.
Sænska liðið er mjög sterkt og í raun mjög mik-
ill munur á liðunum. Það hljómar kannski eins og
gömul lumma en sænska liðið virtist í miklu betri
æfingu og hafa meiri tækni enda atvinnumanna-
deild í Svíþjóð og stúlkurnar æfa því mun meira en
áhugamennirnir hér heima. Eitt af því sem gerði
gæfumuninn að þessu sinni voru sendingar leik-
manna, íslensku stúlkurnar gerðu sig sekar um
ógrynni misheppnaðra sendinga.
Morgunblaðið/Golli
Skammarkrókurinn Jörundur Áki Sveinsson var í leikbanni og mátti ekki koma nærri leiknum, hann sat því einn og yfirgefinn við norðurenda nýju stúkunnar í Laugardalnum.
Batamerki dugðu
ekki gegn Svíum
ÁKVEÐIN batamerki voru á leik íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu á Laugardals-
velli á laugardaginn þegar liðið tók á móti Svíum
í næstsíðasta leik sínum í undankeppni HM. En
batamerkin frá síðasta leik liðsins dugðu samt
engan veginn gegn sterku og skipulögðu liði
Svía sem vann 4:0. Sanngjarn sigur en óþarflega
stór. Svíar tryggðu sér þar með rétt til að keppa
á HM í Kína á næsta ári.
Morgunblaðið/Golli
Átök Greta Mjöll Samúelsdóttir tekur vel á þegar hún reynir að skalla knöttinn.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is