Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 1
föstudagur 22. 9. 2006 bílar mbl.isbílar Nýr Hyundai coupé » 8 INNLENDUR ORKUGJAFI METANGAS ER FRAMLEITT Í GUFUNESI VW TOURAN ECOFUEL BRENNIR METANI VOLVO, sem lengi hefur verið í fararbroddi í ör- yggismálum varðandi bíla, hefur hannað innbyggð- an áfengismæli og sérstakt kerfi í sætisbeltum til varnar akstri undir áhrifum. Ennfremur hafa verk- fræðingar Volvo hannað forritanlegan lykil í kveikjulásinn sem takmarkar hámarkshraða. Ófá umferðarslys verða vegna aksturs undir áhrifum áfengis. Búnaður Volvo felst í öndunar- mæli sem er áfastur við bílbeltið og verður ökumað- ur að anda í hann til þess að geta ræst bílvélina. Öndunarmælirinn sýnir grænt ljós ef ökumaðurinn er í lagi til aksturs og þegar bílbeltið hefur verið fest er hægt að setja í gang eins og venjulega. Ef áfeng- ismagn ökumanns er yfir mörkum lýsir rautt ljós á öndunarmælinum og er þá ekki hægt að setja bílinn í gang. Samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu, deyja u.þ.b. 10.000 manns árlega í umferðarslysum tengd- um áfengisakstri. Hin öryggisnýjungin sem Volvo kynnir er sér- stakur lykill á kveikjulásnum sem hægt er að forrita til að takmarka hámarkshraða og er beint að yngri eða minna reyndum ökumönnum sem tölfræðin sýnir að eru líklegri en aðrir til að valda slysum vegna hraðaksturs. Með hraðalyklinum er hægt að forrita hámarkshraða þannig að ekki sé ekið yfir löglegum hraða. Til dæmis gefur það foreldrum aukna öryggistilfinningu að lána börnum sínum með nýtt ökuskírteini bílinn. Volvo hyggst kanna áhuga almennings og bílgreinarinnar á þessum ör- yggisnýjungum áður en ákveðið verður að setja þær í framleiðslu. Einar M. Magnússon, upplýsingafulltrúi Um- ferðarstofu, segir að í málflutningi þeirra sem mæla hvað harðast gegn hugmyndum manna um hraða- takmarkara hafi komið fram að þetta sé tæknilega óframkvæmanlegt og kostnaður við þetta sé of mik- ill. „Þessi frétt um tækniþróun Volvo ber því aug- ljóst vitni að slíkar fullyrðingar eiga ekki við rök að styðjast auk þess sem vörubílar og hópferðabílar hér á landi sem og annars staðar í Evrópu eru með slíkum búnaði,“ segir hann. „Í ljósi umræðunnar og mistúlkunar þeirra sem ekki vilja skoða þennan möguleika má taka fram að hraðatakmörkun er ein hugmynd af mörgum sem verið er að skoða til að koma í veg fyrir alvarleg um- ferðarslys. Miðað við þá þróun sem þegar hefur átt sér stað má útfæra tæknina á ýmsan máta. Sem dæmi má nefna að hægt er að skilyrða ökuréttindi ungra ökumanna þannig að þeim leyfist aðeins að aka bifreiðum sem komast ekki yfir ákveðinn hraða. Til eru þau tilfelli þar sem nauðsynlegt getur verið að fara hraðar en leyfður hámarkshraði segir til um. Í ljósi þess er ekki verið að tala um að setja mörkin við nákvæmlega leyfðan hámarkshraða. Ætlunin er fyrst og fremst að koma í veg fyrir skilgreindan ofsaakstur,“ segir Einar. Volvo hannar hraðalykil Morgunblaðið/Eyþór Kyron Bílabúð hefur hafið sölu á nýjum jepplingi, SsangYong Kyron. Reynsluakstur er á bls. 4. EINN af kynnum Top Gear- þáttanna, Richard Hammond, slasaðist al- varlega við tökur þegar hann reyndi að slá hraða- met á bíl út- búnum með þotumótor. Bíllinn valt á meira en 450 km/klst hraða en Hammond, sem er 36 ára gamall, náði meðvit- und um stund og gat talað þegar hann var dreginn út úr flakinu. Hammond er á taugadeild sjúkra- húss í Leeds en ástand hans skánaði örlítið yfir nóttina. Hann kom hing- að til lands á síðasta ári í þátt- argerð. Hammond slasast Á Íslandi Ólafur Guðmundsson hjá FÍB og Richard Hammond.                        

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.