Morgunblaðið - 16.10.2006, Síða 2
2 F MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Þar sem tryggingar
snúast um fólk
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
8
8
7
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is
Seldu án eftirsjár!
Söluvernd er nýjung á íslenskum tryggingamarkaði þar sem seljandi fasteignar tryggir sig
fyrir skaðabótakröfum sem hann gæti fengið á sig í allt að 5 ár eftir að eign er seld. Slík
eftirmál koma ekki einungis illa við fjárhaginn heldur eru þau bæði tímafrek og leiðinleg.
Með Söluvernd tryggir þú þig gegn skaðabótakröfum vegna seldrar eignar auk þess sem
VÍS sér alfarið um öll samskipti og málarekstur ef til skaðabótakrafna kemur.
Söluvernd er eingöngu fyrir einstaklinga sem ætla að selja íbúðarhúsnæði
og þarf að ganga frá vátryggingunni þegar eignin er sett á sölu.
Það er bæði einfalt og fljótlegt að kaupa Söluvernd.
Tryggðu þér áhyggjulaus fasteignaviðskipti
og kynntu þér Söluvernd VÍS.
Ásgrímur, faðir Egils, hófnám árið 1932 og opnaðisíðan verkstæði á Smiðju-stígnum. Verkstæðið var
um tíma á Óðinsgötu, en hefur nú í
rúm fimmtíu ár staðið við Bergþóru-
götuna. Húsið, sem verkstæðið er í,
var byggt 1898 og þar bjó meistari
Þórbergur Þórðarson um skeið.
„Við höfum í rauninni alltaf haldið
okkur við þetta svæði í miðborginni,
það er afskaplega gott að vera hér,“
segir Egill.
Vaxandi áhugi
Egill byrjaði að vinna með föður
sínum 1960 og lauk námi í bólstrun
1964. Feðgarnir ráku svo verkstæðið
saman þar til Egill tók alfarið við
1987.
„Reyndar vann pabbi hérna með
mér fram til 1992, en þá hætti hann.
Sigríður kona mín hefur svo verið
með mér í þessu síðustu árin, séð um
bókhaldið og þá hlið viðskiptanna
sem ekki snýr beinlínis að bólstrun,
en þó hjálpar hún mér nú við að fjar-
lægja eldri klæðningu af húsgögn-
unum sem á að bólstra,“ segir Egill.
Egill segist hafa orðið var við vax-
andi áhuga fyrir því að gera upp
eldri húsgögn um og upp úr 1990.
„Eftirspurnin jókst um þær
mundir og ég held að það hafi öðrum
þræði verið vegna þess að fólk hafði
ekki ráð á nýjum húsgögnum, enda
var víst lítið að gera í húsgagna-
verslunum á þeim árum. En svo hef-
ur auðvitað afstaðan til eldri hús-
gagna verið að breytast og margir
vilja gjarnan eiga eldri húsgögn og
þá vilja þeir helst að þau séu falleg,“
segir Sigríður.
Smíðar líka húsgögn
Egill, og faðir hans á undan hon-
um, hafa bæði hannað og smíðað
húsgögn og Ásgrími var á sínum
tíma veitt gullorða fyrir handverk
sitt úr hönd Ludwig Erhardts, fyrr-
verandi kanslara Þýskalands.
„Þessi orða og skjalið sem henni
fylgir er ekki fyrir hönnunina á
stólnum, sem verðlaunin voru veitt
fyrir, heldur fyrir sjálft handverkið,
enda var það gífurleg vinna og bund-
in ýmsum tæknilegum örðugleikum
af því að leðrið í stólnum var svo
þykkt.“
Egill hefur meðal annars annast
húsgögnin fyrir veitingastaðina Oli-
ver, Vegamót og Café Paris, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þá hefur hann bólstr-
að biskupsstólinn í Dómkirkjunni og
stóla sem notaðir hafa verið á Bessa-
stöðum.
„Pabbi var mjög sniðugur að
teikna og við smíðuðum marga stóla
og sófasett eftir teikningum sem
hann gerði,“ segir Egill.
Ekki ósjaldan fær hann stóla og
önnur húsgögn til viðgerðar, sem
hann hefur sjálfur smíðað.
„Þótt ég hafi tekið að mér slík
verkefni fyrir fyrirtæki eru flestir
viðskiptavinirnir einstaklingar og
sumir eru kannski að koma í þriðja
ættlið með sömu húsgögnin til
bólstrunar. En fyrir 1970 má segja
að ég og pabbi höfum framleitt sófa-
sett og stóla í stórum stíl, en þetta
breyttist upp úr því vegna innflutn-
ings ódýrra húsgagna. Fyrir þann
tíma átti fólk ekki svo mikið af hús-
gögnum, en það hefur allt breyst.“
Fáir nemar
Það eru ekki margir eftir í faginu,
sem kunna að bólstra upp á gamla
mátann með fjöðrum og stoppi.
Flest húsgögn eru nú bólstruð í vél-
um, að sögn Egils.
„Já, það eru fáir sem kunna þetta
nú orðið, en þeir sem læra bólstrun
fara flestir út til Danmerkur að
læra. Sjálfum finnst mér gaman að
vinna við þetta. Það er mjög
skemmtilegt að geta gefið sér nógan
tíma til að bólstra húsgögnin upp á
gamla mátann. Ef viðskiptavinurinn
er ánægður veit ég að það er vel gert
og það veitir manni mikla ánægju.“
Af þekktari stílhúsgögnum, sem
Egill hefur endurnýjað, má nefna
eggið og svaninn, sem svissneski
arkitektinn Le Corbusier hannaði.
„Svo hef ég líka bólstrað sófasett,
sem Danakóngur gaf íslenskum
kaupmanni að gjöf úr snekkju sinni
og sex stóla, sem notaðir eru við há-
tíðlegar athafnir í Dómkirkjunni,“
segir Egill.
Hefur bólstrað fyrir biskupinn
Bólstrun Ásgríms er
annað af tveimur elstu
bólstrunarverkstæðum
á landinu, en það var
stofnað 1940 og er því
hátt á sjötugsaldri.
Kristján Guðlaugsson
ræddi við Egil Ás-
grímsson bólstrara og
Sigríði Lúthersdóttur,
konu hans, um starf-
semina, en meðal verka
Egils er biskupsstóllinn
í Dómkirkjunni.
Fjölbreytt Verkfæri bólstarans eru margvísleg, stílar, hnífar, tangir og
hamrar eru meðal þess sem nota þarf.
Verðlaun Ásgrími, föður Egils, var
á sínum tíma veitt gullorða fyrir
handverk sitt úr hönd Ludwig Er-
hardts, fyrrverandi kanslara
Þýskalands.
Morgunblaðið/Ásdís
Samvinna Hjónin Egill Ásgrímsson og kona hans, Sigríður Lúthersdóttir,
reka elsta bólsrunarverkstæði landsins.
!
"
# # # # $
$
%
%
%
%
! "
%
& ' ( )) * +
& ' + ( ) * +
%
#
$
%
%
%
,-
.
(
/012
345
/
6
7
0
0 6
8
12
9
:556
;
<=
! %&
(
$ ;
<=
! %&
) * "+! !
;
<=
! %&
8 .6 >
,*
Efnisyfirlit
101 Reykjavík ....................... 12 – 13
Akkurat .................................... 8 – 9
Ás ..................................................... 9
Berg .............................................. 47
Borgir ....................................... 4 – 5
Domus ........................................... 15
DP fasteignir ..................... 40 – 41
Eignaborg ....................................... 7
Eignamiðlunin .................. 28 – 29
Eignatorg .................................... 24
Eignaumboðið ............................. 52
Eignaval ......................................... 51
Eik fasteignafélag ...................... 18
Fasteign.is .................................. 32
Fasteignakaup ............................... 6
Fasteignamarkaðurinn .... 20 – 21
Fasteignamiðluninn .................. 43
Fasteignamiðstöðin ................. 48
Fasteignasala Íslands ............... 41
Fasteignasala Mosfellsbæjar . 37
Fasteignastofan ......................... 42
Fjárfesting ................................... 46
Fold ...................................... 38 – 39
Foss ................................................. 14
Garðatorg ...................................... 11
Garður ............................................ 17
Gimli ............................ 26 –27 og 7
HB fasteignir ............................... 51
Heimili ............................................ 19
Híbýli ............................................. 49
Hóll .................................................. 3
Hraunhamar ............ 34 – 35 – 36
Húsakaup .................................... 25
Húsavík ........................................ 50
Höfði ............................................... 16
Kjöreign ....................................... 53
Klettur ...................... 54 – 55 – 56
Lundur ................................. 44 – 45
Miðborg ................................ 30 – 31
Nethús .......................................... 52
Skeifan ........................................... 10
Stórborg ....................................... 33
Valhöll ................................. 22 – 23