Morgunblaðið - 16.10.2006, Page 23

Morgunblaðið - 16.10.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 F 23 Heiðargerði- Vatnsleysuströnd. Í einkasölu ca 80 fm 3ja herb. íb. á efstu hæð í klæddri blokk að Vogum Vatnsleysuströnd. Sérinng. af svölum. Vandað parket og flísar á gólfum. Glæsil. útsýni, stórar svalir. V. 15,6 m. 7033 Æsufell - falleg íbúð -laus -nýl. klætt hús. Mjög falleg 93 fm íb. á 7. h. í lyftuh. Húsið er nýl. klætt að utan með nýjum gluggum. Allar framkv. greiddar af selj. Nýl. parket, gott eldhús. Falleg íbúð m. glæsil. út- sýni. V. aðeins 15,9 m. 7015 Tröllaborgir - m. bílskýli Í einkasölu mjög góð efri hæð í þessu fallega húsi. Fráb. staðs. í ról. botnlanga. Stórar svalir. Parket. 2 svefnherb. og góð stofa. Sérþvottahús í íbúð. Einstaklega gott útsýni. V. 18,9 m. 6973 Krummahólar - klætt hús. Góð 91 fm íbúð á 2. h. í góðu fjölb. sem hefur verið klætt að utan. 2 góð herb. Yfirb. svalir. Nýtt eldh. Stutt í skóla og alla þjónustu. Bílskúrs- plata. V. 16,8 m. 4652 Gvendargeisli- stórglæsil. íbúð. Stórglæsil. 130 fm íb. á 2. h. m. sérinng. Stæði í bílskýli. Allt sér. Parket. Gott og vel innr. þvottah. Glæsil. eldh. og baðherb. Stór- ar suðursv. Stutt í skóla og alla þjónustu. Eign í algjörum sérfl. V. 28,9 m. 6932 Möðrufell - 2-3ja herb. íb. talsv. endurn. Í einkasölu falleg talsv. endurn. 2- 3ja herb. (er með 2 svefnherb.) í góðu húsi á fínum stað efst í Breiðholti. Nýl. gólfefni, flís- al. baðherb. V. 12,1 m. 6850 Þórðarsveigur - lyftuhús. Stórglæsi- leg 3ja herb. endaíbúð á 3. hæð í nýju glæsil. lyftuhúsi. Sérþvottahús. Stæði í bílskýli. Tvö svefnherb. Suðursvalir. V. 21,9 m 6823 Eskihlíð - góð 3ja + aukaherb. Laus fljótl. Í einkasölu rúmg. 3ja herb. íb. á 3. h. ásamt aukaherb. í risi m. símat. og aðg. að wc., alls 104 fm. Hús nýstands. að utan, nýtt þak. Ágætt eldhús og bað, tvö mjög stór herb. og rúmg. stofa m. vestursv., fallegt útsýni. Áhv. ca 12 m. íb.lánasj. V. 18,9 m. Laus. 6813 Álfkonuhvarf. - Sérinng. Vönduð ca 100 fm íbúð með sérinng. af svölum. Suð- ursv., þvottahús í íbúð. Vandað parket á flestum gólfum. Gott stæði í lok. bílsk. fylgir íbúð. V. 24,9 m. 4584 Sólvallagata - laus strax Í einkasölu endurn. 3ja herb. íbúð í kj. m. sérinng. í vel staðs. húsi. Íbúð er nýl. innrétt. m. vönd. inn- rétt. og parketi og flísum á gólfum. V. 15,9 m. 3956 2ja herb.íbúðir. Vífilsgata - góð íbúð. Laus strax Í einkasölu góð 52 fm íb. í kj. í þríbýli á góð- um eftirsóttum stað í Norðurmýrinni. Sérinn- gangur. Laus strax. Verð 11,4 m. 7190 Torfufell - laus strax - lyklar á Valhöll. Í einkasölu mjög góð íbúð á 2. h. í góðu vel staðs. fjölb. Stutt í góða þjónustu. Nýl. innrétt. í eldhúsi og nýl. parket á gólfum. V. 11,9 m. Áhv. hagst lán ca 9,7 m. 7077 Brattakinn -Hafnarfirði Í einkasölu góð lítil ca 40 fm íbúð á jarðhæð í mjög vel staðsettu tvíbýli. Sér inngangur, góður garð- ur. V. 9,8 m. 6987 Álfhólsvegur - laus. Falleg nýstand- sett 72 fm íb. á 1. h. m. sérinng. í stenikl. húsi. Sérinng. Nýl. glæsil. eldhús, baðherb., gólfefni, lagnir og fl. 50 fm glæsil. sólpallur sem er afgirtur. Laus strax. V. 15,5 m. 7021 Álfaskeið - 3. hæð ásamt bílskúr. Í einkasölu falleg mjög velskipul. 57,3 fm íb. á 3. h. í fallegu velstaðs. fjölb. ásamt 23,7 fm bílsk. Góðar innrétt. Rúmg. stofa og herb. Parket og flísar. Mikið skápapl. V. 15,8 m. 6948 Skipholt - 2ja herb. Snyrtileg 46 fm íb..í kj. á fráb. stað. Nýl. eldhús og plastparket. V. 12,9 m. 6875 Klapparstígur. m bílskýli Í einkasölu glæsil. 71,2 fm íb. í mjög góðu lyftuhúsi. Parket og flísar á gólf- um. Suður svalir. V. 23,9 m. 6989 Eigendur hússins, SvavaÁgústsdóttir og ÓlafurSigurðsson, arkitekt, getanotið sumarsins lengur en flestir landsbúar og frá skjólgóðum og gróðursælum garðinum er frá- bært útsýni til norðurs og vesturs. „Við fengum lóðina 1991 og byrj- uðum fyrst á því að planta garðinn. Við urðum að hafa stærri lóð en gengur og gerist, það er ekki hægt að byggja svona hús inni í venju- legu íbúðarhverfi, þá missir hug- myndin marks, útsýnið og aðgang- ur ljóssins er mikilvægur þáttur í hönnuninni, segir Ólafur. Bygging hússins tók nokkurn tíma, mest vegna þess að erfitt var að selja eignir á þessum tíma, en Ólafur og Svava voru að selja húsið þar sem þau höfðu búið áður. „Við byggðum þetta svolítið í áföngum, fyrst reistum við bílskúr- inn og steyptum plötuna, svo var húsið byggt og að lokum sjálft glerhúsið og við fluttum inn fyrir um það bil tíu árum.“ Gróðursæld Skjólgóður garðurinn kringum húsið er mjög gróðursæll og þar kennir sannarlega ýmissa grasa. Hér eru bæði stór tré frá Ástralíu, japanskur hlynur og blóm, tré og runnar af mörgum gerðum og flest af erlendum uppruna. Hér rækta þau hjónin bæði bláberjarunna og maís, gráfíkjur epli auk alls konar grænmetis. „Það var Óli Valur Hansson, garðyrkjuráðunautur, sem sá um gróðurinn í garðinum, en allar plönturnar voru fluttar inn frá Hollandi þótt þær komi frá öllum heimshornum. Það er einfalt gler í veðurhjúpnum og stundum kemur það fyrir að það frýs hjá okkur, en það hjálpar bara plöntunum að fella lauf og endurnýja sig,“ segir Ólafur. Þótt ótrúlegt kunni að virðast komu allar plönturnar, sem nú þekja stóran hluta af garðinum, í einum kassa sem ekki var stærri en einn rúmmetri. Ólafur kveðst margoft hafa orðið að saga stærstu trén sem í garð- inum eru, enda geta þau stærstu orðið allt að 18 metra há. „Þau stærstu, eins og þetta ástr- alska tré, hefðu fyrir löngu staðið langt upp úr glerhúsinu, ef þau hefðu ekki verið skorin og hirt. Þetta er eins og hver önnur garð- vinna, nema hvað þak er yfir plönt- unum og þess vegna verður að gæta hæðarinnar sérstaklega.“ Þurfa að nota sólhlíf Þó hjónin þurfi að nota sólhlíf, þegar sést til sólar hvort heldur að sumri eða vetri, breytir það ekki lofthitanum í veðurhjúpnum. „Geislunin frá sólinni hitar bara en breytir ekki lofthitanum, þannig að hitinn hérna inni helst alltaf jafn. Bæði er það að hér er hátt til lofts og eins hitt að eftir endilöng- um mæni hússins er 50 fermetra gluggi, sem lyftist sjálfvirkt þegar lofthiti hefur náð 20 gráðum. Það er hitaskynjari í tveggja metra hæð og ég hef stillt hann á 20° C af því að okkur finnst það þægilegur hiti,“ segir Ólafur. Á langhliðum glerhússins eru 20 fermetrar af opnanlegum gluggum. Þetta samsvarar því að opnanlegir gluggar séu um 15 % af gólffleti veðurhjúpsins og Ólafur segir að þetta hafi reynst vera hæfilegt. Margir halda að húsið sé gróð- urhús og Ólafur segir frá því að eitt sinn meðan húsið var í bygg- ingu hafi tvær sænskar stúlkur knúið dyra og spurt um vinnu. „Það eru margir sem halda að húsið sé gróðurhús, en ég hef séð teikningar og ljósmyndir af húsum sem byggð hafa verið úr gleri, en það hefur ekki lánast vel, þess vegna reistum við glerhúsið bara sem veðurhjúp kringum sjálft íbúðarhúsið.“ Hugmyndina að húsinu segist hann ekki vita hvernig hann fékk, hún hafi bara komið. En Ólafur hefur lagt gjörva hönd á margt, þótt hann sé nú að mestu hættur að teikna. Má þar meðal annars nefna Seðlabankann, Borgarleik- húsið, Sorpu, Mjólkursamsöluna og fjölda dagheimila. „Ég vann lengi á teiknistofunni Arkþing með Guðmundi Kr. Guð- mundssyni, en einhvern tímann verður maður að hætta.“ Lengra sumar Ólafur segir að grundvall- arhugmyndin sé fyrst og fremst að skapa skjól fyrir fjölskylduna, að búa til rými þar sem hægt sé að njóta þess að vera úti í garði – lengur en annars er hægt að vera á Íslandi – með trjám og plöntum í kring um sig. „Jafnvel um miðjan vetur, ef sól- skin er, er hægt að sitja úti í veð- urhjúpnum í þægilegri hlýju. Það vorar að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrr og haustar álíka miklu seinna inni í veðurhjúpnum. Þannig verður sumarið lengra hjá okkur,“ segir Ólafur. Byggingarefni veðurhjúpsins er límtré og gler en íbúðarhússins vikursteypa og timbur. Austurgafl veðurhjúpsins er steyptur, bæði til stífingar og einn- ig til skjóls fyrir verstu vindátt- inni. Annað burðarvirki er límtré. Glerjað er beint á berandi bita og stoðir. Glerið er einfalt 5 mm þykkt á veggjum og 6 mm þykkt í þaki, en allir glerlistar eru úr 5 mm þykku flatáli og eingöngu er notast við náttúrulega loftræst- ingu. Íbúðarhúsið er steypt í hólf og gólf úr vikursteypu. Vik- ursteypan er látin nægja sem ein- angrun íbúðarhússins. Útveggir eru 15 sm þykkir og þak er 20 sm þykkt. Öll gólf eru klædd brennd- um leirflísum. Gaman að stórhríðum Ólafur segir að það sé bara mjög gaman þegar óveður stendur upp á húsið að vetrarlagi. „Maður heyrir lítið þó stórhríð sé vegna þess að glerið tekur betur við veðrum en plast. Ef ég loka gluggunum, eins og ég gerði með- an við vorum að prófa okkur áfram, kom fyrir að móða kæmi á gluggana. Döggin fraus og maður fékk eins konar tilfinningu af að vera í íshelli. Það var mjög fallegt en ekki praktískt. Þegar gluggarn- ir voru opnaðir hvarf móðan strax.“ Ólafur segist hafa verið svolítið hræddur við að of heitt yrði inni í glerinu en sú hræðsla hafi reynst óþörf. „Við erum ekki með neina aðra einangrun í íbúðarhúsinu en vik- ursteypuna, en það hefur reynst vel. Á íbúðarhúsinu eru engir gluggar, bara rennihurðir í hverju herbergi, þannig að gengt er út í garðinn úr öllum vistarverum hússins.“ Sumar allt árið í Mosfellsbæ Við Hjallabrekku í Mosfellsbæ stendur eitt af sérkennilegustu einbýlishúsum lands- ins. Kristján Guð- laugsson ræddi við eig- andann, Ólaf Sigurðsson arkitekt, hús hans er byggt inni í 460 fermetra veð- urhjúpi, eða gróðurhúsi eins og margir myndu eflaust orða það. Sólríkt Hjónin þurfa að nota sólhlíf þegar sést til sólar, hvort sem er að sumri eða vetri. Skjól Hugmyndin var að skapa skjól fyrir fjölskylduna. Bjart Margir halda að húsið sé gróðurhús. kristjan@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.