Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 F 25 ÁNANAUST Glæsilegar nýjar 2ja og 3ja herb. íbúðir í fallegu 4ra hæða lyftuhúsi. Staðsetning hússins er einstök og sameinar það besta úr miðbænum og Vesturbænum. Miðbærinn og Há- skólinn eru í göngufæri frá húsinu en íbúar þess þó fjarri skarkala miðbæjarins um helgar. Frá- bært útsýni er yfir sjóinn úr mörgum íbúðanna, til Esjunnar og út á Snæfellsnes. Aðrar íbúðir hafa góðar suðursvalir. Falleg eign sem verður hluti af enduruppbyggingu svæðisins. ÁSAKÓR Mjög vel skipulagðar 3ja-5 herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í nýju lyftuhúsi í Kópavogi. Íbúðirnar verða til afhendingar í lok þessa árs og byrjun þess næsta. Íbúðunum verð- ur skilað fullbúnum án gólfefna en baðherbergi eru með flísalögðu gólfi og veggjum í hurðarhæð. Allar innréttingar í íbúðum verða úr eik. KLAPPARSTÍGUR Stórglæsilegar nýjar íbúðir í lyftuhúsi, steinsnar frá Skuggahverfinu, á mótum Klapparstígs og Lindargötu. Fallegur nú- tímalegur arkitektúr með stórum gólfsíðum gluggum, hita í gólfi og innfelldri lýsing í lofti ásamt einstakri staðsetningu gera þessar eignir mjög glæsilegar og eftirsóknarverðar. NAUSTABRYGGJA Glæsilegar, bjartar og rúmgóðar íbúðir við Naustabryggju í Grafarvogi. Íbúðirnar eru í miðju Bryggjuhverfinu með glæsi- legu útsýni út á sjóinn. Verið er að breyta jarð- hæðinni í húsinu og skipuleggja þar nýjar íbúðir. Góð lofthæð er í öllum íbúðunum og stór opin rými. Hiti verður í öllum gólfum með sérhitastilli fyrir hvert rými. Að öðru leyti skilast íbúðirnar fullbúnar en án gólfefna. HOLTSBÚÐ - FJÖLSKYLDUHÚS Glæsi- legt 5-6 herbergja raðhús á þessum vinsæla stað í Garðabæ. Eigninni hefur verið vel viðhaldið, er hlýleg og falleg. Innbyggður bílskúr fylgir með góðri lofthæð. Fyrir framan húsið er steypt plan með snjóbræðslu. Snyrtilegur garður með verönd snýr til suðurs. Verð 38,8 milljónir. , MÁVAHRAUN Mjög gott 194 fm einbýlishús á einni hæð ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið er vel staðsett í rólegri götu með fallegum og skjólsæl- um garði í mikilli rækt. Húsið nýtist sérlega vel, rúmgóð stofa og möguleiki á 5 svefnherbergjum. Hér er um að ræða góða, vel staðsetta eign sem vel hefur verið hugsað um í fjölskylduvænu um- hverfi. Verð 41,5 milljónir. SÉRBÝLI NÝBYGGINGAR ESKIHOLT Mjög gott einb. í hlíðum Hnoðra- holts í Garðabæ. Húsið er 182 fm, tvílyft með sér- stæðum 50 fm fullb. tvöföldum bílskúr í rólegri götu. Góðar suðvestursvalir með frábæru útsýni yfir Álftanesið. Stór og fallegur garður. Góð bíla- stæði á hellulögðu plani. Verð 52,9 milljónir. ÖLDUTÚN Glæsileg eign á draumastað í Hf., stutt frá Öldutúnsskóla. Í dag skiptist húsið í tvær íbúðir en eignin er alls 222 fm. Á neðri hæð er 3ja herb. íbúð sem er tilvalin til útleigu. Á efri hæð og í risi er 5 herb. björt og rúmgóð íbúð. Húsinu hefur verið vel viðhaldið en stutt er síðan það var klætt að utan og þak einangrað. Verð 43,9 milljónir. , FLYÐRUGRANDI Góð 3ja-4ra herbergja 131 fm íbúð með sérinngangi á 1. hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbænum. Íbúðinni fylgir 25 fm bílskúr með hita og rafmagni. Mjög stórar svalir. Frábær staðsetning í hjarta Vesturbæjarins með útsýni af svölum út á KR völlinn. Verð 31,5 milljónir. GALTALIND Sérlega vönduð og glæsileg 4ra herb. endaíbúð í litlu fjölbýli ásamt bílskúr, alls 130 fm á þessum eftirsótta stað í Lindarhverfinu í Kópavogi. Glæsilegt útsýni. Örstutt í skóla og leik- skóla, liggur vel við stofnbrautum og þjónustu. Verð 29,5 milljónir SÓLHEIMAR Hlýleg og rúmgóð 4ra herb. jarð- hæð mjög vel staðsett í Heimunum. Sérþvottahús inn í íbúð. Snyrtileg sameign. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald á síðust árum, m.a. er nýtt dren, skipt var um járn á þaki árið 2004, skrautsteypa sett fyrir framan tröppur árið 2005 og tröppur end- ursteyptar það sama ár. Verð 22,9 milljónir. ÁSVALLAGATA LAUS STRAX. Mjög vel stað- sett 3ja herb. íbúð í einu vinsælasta hverfi Rvk, vestan við gamla kirkjugarðinn. Skipulag íbúðar- innar er til fyrirmyndar og herbergjastærð góð. Íbúðin er á efstu hæð og talsvert undir súð og því heildarflatarmál gólfflatar talsvert meira en upp- gefið er. Verð 18,5 milljónir. DRÁPUHLÍÐ Sérlega góð og vel skipulögð 3ja herbergja 65 fm risíbúð á þessum vinsæla stað í Hlíðarhverfinu. Íbúðin hefur verið mikið endurnýj- uð og er hver fermetri hennar nýttur eins og best verður á kosið. Í góðu göngufæri við miðbæinn, Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Verð 16,9 milljónir. 3 HERBERGI 4 HERBERGI GLAÐHEIMAR Góð 3ja herbergja 73 fm íbúð ásamt 24 fm bílskúr í fallegu litlu fjölbýli á einum besta stað í Reykjavík. Húsið er á baklóð í lokuð- um botnlanga og því ákaflega friðsælt. Húsið hef- ur verið nýlega tekið í gegn að utan og málað ásamt því sem skipt var um mest allt gler. Falleg og gróin lóð er umhverfis húsið með bílastæðum fyrir íbúðirnar. Verð 19,9 milljónir. HJALLABRAUT Góð og vel skipul. 3ja herb. 105 fm íbúð á 3. og efstu hæð í álkl. fjölb. í norður- bæ Hf. Sameign hússins hefur nýl. verið endurn. ásamt því að settar hafa verið upp nýjar eldvarnar- hurðir. Byggt hefur verið yfir hluta af svölum íb. Stuttur afhendingartími. Verð 18,9 milljónir. KAPLASKJÓLSVEGUR Mjög góð og vel skipulögð 3ja herbergja, 90 fm endaíbúð á 2. hæð í vel viðhöldnu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Vesturbænum. Gott þvottahús er í kjallara ásamt sérgeymslu og hjólageymslu. Snyrtileg lóð með stórri grasflöt og leiktækjum fyrir börnin. Rólegt og barnvænt hverfi. Stutt í skóla, leikskóla, íþrótt- ir og alla þjónustu. Verð 19,8 milljónir. FURUGRUND Mjög falleg 2ja herb. íbúð á efstu hæð í mjög góðu og vel staðsettu 2ja hæða fjölb. í Kópav. Stórar skjólsælar suðursvalir. Sam- eign hefur nýl. verið teppalögð og máluð. Stutt í alla verslun og þjónustu. Verð 14,9 milljónir. GAUTLAND Mjög falleg 2ja herb. íbúð á jarð- hæð í mjög góðu og vel staðsettu fjölbýli í Foss- voginum. Íbúðin snýr öll til suðurs og er mjög björt. Úr stofu er útgengt á hellul. verönd. Falleg gróin lóð er fyrir framan húsið. Stutt í skóla, verslun og alla þjónustu. Verð 14,5 milljónir. TEIGASEL Björt og falleg einstaklingsíb. á efsta hæð í góðu fjölb. Stórar suðursvalir og góð geymsla í kjallara sem ekki er innfalin í fermetra- tölu íbúðarinnar. Sameign virðist í góðu standi. Gott sameiginl. þvottahús með vélum, einnig góð sameiginleg geymsla og hjólageymsla. Stutt í verslanir og þjónustu. Verð 11,2 milljónir. , VALLARÁS Björt og falleg einstaklingsíbúð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi í Árbænum. Húsið stendur á mjög fallegum útsýnisstað með útsýni yfir borg- ina, Víðidalinn og til Esjunnar. Sameign hússins er til mikillar fyrirmyndar. Íbúðin getur verið laus til afhendingar strax. Stutt í Árbæjarlaug og góð- ar gönguleiðir. Verð 11,5 milljónir. 2 HERBERGI SUMARHÚS VIÐ APAVATN Glæsilegt og vel staðsett sumarhús við Apavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið stendur á fallegum stað rétt við vatnið með einstakt 360 gráðu útsýni. Húsið, sem stendur á 1 hektara eignarlóð, er heilsárshús byggt úr finnskum lím- trésbjálkum þar sem vandað er til alls frágangs. Um 100 fm verönd er umhverfis húsið en það er sjálft 85 fm auk 35 fm svefnlofts. Stutt er í alla þjónustu í Reykholti og Laugarási. KJARRVEGUR - FOSSVOGSDAL Stórglæsilegt 213 fm parhús á frábærum stað í Fossvoginum. Kyrrlátt hverfi og fallegur gróður gera húsið að skjólsælum reit í einu veðursæl- asta hverfi borgarinnar. Húsið er nær allt á einni hæð m/útgengi úr stofu á góða timburverönd sem er umkringd gróðri. Margir útivistarmögu- leikar, stutt í skóla og leikskóla sem og í alla þjónustu og á stofnbrautir. Verð 62 milljónir. GALTALIND - FRÁBÆRT ÚTSÝNI Glæsileg og vel skipulög 4ra herbergja íbúð ásamt innbyggðum bílskúr í litlu fjölbýli á þess- um eftirsótta stað í Lindarhverfinu í Kópavogi. Frábært útsýni er úr íbúðinni. Mjög stóra flísa- lagðar svalir. Sameign húsins sem og allur frá- gangur á lóð er til mikilar fyrirmyndar. Bílskúrinn er vel útbúinn m/ fjarstýrðum hurðaropnara, hita og rafmagni og rennandi vatni. Stutt er í skóla, verslanir og alla aðra þjónustu. Verð 34 milljónir. HÖRÐARLAND - FRÁBÆR STAÐSETNING Rúmgóð og falleg 3ja herb. 77 fm íbúð við Hörða- landið í Fossvoginum, Reykjavík. Frábær stað- setning í miðju höfuðborgarsvæðisins. Suður- hlíðar Fossvogsins þykja með eindæmum veður- sælar og eru margir útivistarmöguleikar rétt við þröskuldinn. Stutt er einnig í skóla, leikskóla, íþróttir og alla þjónustu. Þá liggja stofnbrautir einnig vel við. Verð 19,4 milljónir. MIKLABRAUT - HÆÐ OG RIS Mjög rúmgóð efri sérhæð og ris, samt. 155 fm á mótum Engihlíðar og Miklubrautar. Íbúðin hefur í gegnum árin fengið ágætis viðhald, m.a. hefur verið skipt um allt gler, gluggapósta og opnaleg fög að hluta, ofnalagnir verið endurnýjaðar, ný rafmagnstafla er fyrir hæðina ásamt því að þak hússins var endurn. fyrir nokkrum árum. Eignin er mjög vel skipul. m/ rúmgóðum herb. og stórum stofum. Stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttir. Eignin er í góðu göngufæri við miðbæinn, Öskju- hlíð, Nauthólsvík og Miklatún. Verð 29,9 milljónir. VESTURVALLAGATA - GAMLI VESTURBÆRINN Mjög góð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngang á þessum eftirsótta stað í gamla Vesturbænum. Gengið er inn í íbúðina um mjög sjarmerandi port í evrópskum anda með fallegum 90x90 steinflísum á jörðu. Staðsetning íbúðar- innar hentar einkar vel þeim sem vilja hafa góða tengingu við miðborg Reykjavíkur sem og nem- endum í Háskóla Íslands. Við húsið er fallegur og gróinn aflokaður bakgarður. Verð 17,9 milljónir. LÆKJARGATA - MEÐ BÍLSKÚR Falleg og björt 4ra herbergja 125 fm íbúð ásamt 28 fm bílskúr í þessum vinsælu húsum við Læk- inn í Hafnarfirði. Íbúðin er á 2. hæð með sérinn- gangi af svölum. Allar innréttingar eru úr eik. Mjög stórar og góðar suðursvalir eru út frá eld- húsi. Íbúðin er fullbúin með eikarparketi nema á baðherbergi og þvottahúsi eru flísar með inn- steyptri hitalögn í gólfi. Mjög góð íbúð á frábær- um stað í Hafnarfirði. Verð 34,9 milljónir. KÓNGSBAKKI - 5 SVEFNHERBERGI Mjög góð og einstaklega vel skipulögð 6 herb. 158 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýlishúsi. Hérna er um sannkallaða fjölskylduíbúð að ræða með 5 svefnherbergjum ásamt rúmgóðri stofu og eldhúsi. Húseignin er einstaklega vel staðsett með tilliti til skóla, samgangna og allrar þjónustu, s.s. verslana sem eru á næstu grösum og stutt í Mjóddina. Verð 24,8 milljónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.