Morgunblaðið - 20.10.2006, Síða 2
Renault MEGANE
árg. 2005, ek. 34 þús. km.
Verð 1.690 þús. kr.
Land Rover DISCOVERY 2.5 TDI
38" árg. 1997, ek. 200 þ. km. Dísel.
Verðtilboð 1.490 þ. kr., áhv. 600 þ. kr.
Volvo XC90 TURBO T6
árg. 2005, ek. 28 þús. km.
Verð 5.950 þús. kr.
Jeep GRAND CHEROKEE LAREDO 3,7
árg. 2005, ek. 22 þús. km. Verð áður 3.490
þús. kr. Verð nú aðeins 3.290 þús. kr!
Opel ZAFIRA-A
árg. 2000, ek. 107 þ. km.
Verð 850 þ. kr. Stgr.tilboð. 760 þ. kr.
Toyota AVENSIS SOL
árg. 2004, ek. 33 þús. km.
Verð 2.250 þús. kr. Alger dekurbíll!
Peugeot 307
árg. 2004, ek. 22 þús. km.
Verð 2.090 þús. kr.
Nissan QUEST SE
árg. 2004, ek. 43 þús. km.
Verð 3.850 þús. kr., áhv. 2.900 þús. kr.
Nissan TERRANO II
árg. 2001, ek. 106 þús. km.
Verð 1.590 þús. kr., áhv. 1.450 þús. kr.
Suzuki GRAND VITARA
árg. 2000, ek. 110 þús. km.
Verð 1.100 þús. kr.
Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 12-17
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR Á WWW.100BILAR.IS
2 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Bílar Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón
Guðjón Guðmundsson, gugu@mbl.is, sími 5691264 Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir sími 5691105
netfang kata@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins.
ÞÓ að bíll hafi orðið fyrir verulegu
tjóni, er hann ekki einskis nýtur.
B&L gaf Borgarholtsskólanum ný-
lega nánast gjörónýtan bíl sem mun
koma nemendum á bíliðnabraut að
góðu gagni sem kennslutæki.
Bíllinn, sem er af gerðinni Hy-
undai Getz, varð fyrir miklum
skemmdum þegar svo slysalega vildi
til að gámur fór utan í hann. Í stað
þess að afskrá bílinn ákvað umboðið
hins vegar að færa hann Borgar-
holtsskóla að gjöf, ásamt sérhæfðum
bilanagreini og er ástæðan að sögn
Atla Vilhjálmssonar, þjónustustjóra
umboðsins, m.a. sú, að skólann hefur
vantað nýja bíla sem kennslubíla í
bíliðngreinunum.
Nýtist öllum þremur greinum
bíliðna við skólann
„Flestir bílar sem skólinn fær til
afnota eru komnir nokkuð til ára
sinna og þar sem þróunin innan bíl-
iðnarins hefur verið og er hröð, töld-
um við að bíllinn gæti átt sér brúk-
legt framhaldslíf sem kennslubíll.
Ingibergur Elíasson, kennslu-
stjóri, segir að bíllinn muni jafnframt
nýtast öllum þremur greinum bíliðna
við skólann. „Skemmdirnar eru það
miklar að hver grein fær þarna verð-
ug verkefni til að leysa. Bílasmíðin
mun rétta bílinn og færa að öðru
leyti í fyrra horf. Hann verður síðan
sprautaður í bílamáluninni og þær
skemmdir sem hafa orðið á vél- og
tæknibúnaði verða greindar í bif-
vélavirkjuninni,“ segir Ingibergur.
Gjöfinni fylgdi enn fremur nýr bil-
anagreinir frá Hyundai og gefur það
nemendum í þar kost á að kynna sér
nýjustu tækni í bilanagreiningu og
tæknibúnaði, en á því sviði eru hlut-
irnir ekki síður að þróast hratt.
Bíll með
framhaldslíf
Framhaldslíf Atli Vilhjálmsson, þjónustustjóri B&L (t.v.), færir Ingibergi Elíassyni, kennslustjóra, bílinn ónýta að
gjöf ásamt Hyundai bilanagreini. Með greininum er nemendum í Borgarholtsskóla boðið upp á nýjustu tækni.
Skemmdur Nemendur í Borgar-
holtsskóla fá það verkefni að gera
við þennan bíl.
NÝ kynslóð af sportjeppanum
BMW X5 er væntanleg á Evrópu-
markað næsta vor og verður líklega
komin á markað hér á landi í byrjun
apríl.
Aðdragandi kynslóðaskipta ein-
kennist venjulega af lokaútgáfum
sem státa af háu búnaðarstigi og
hagstæðu verði og er þeim þannig
ætlað að brúa bilið á milli kynslóða.
Karl Óskarsson, sölustjóri hjá B&L,
segir að hjá BMW komi síðustu bíl-
arnir fyrir hver kynslóðaskipti bók-
staflega hlaðnir búnaði.
Hann segir að BMW X5 verði
þess vegna boðinn í lúxusútgáfu á
sérstökum kjörum.
„Þessi útgáfa er afar vel útbúin,
sem þýðir í reynd að veglegur auka-
búnaðarpakki er innifalinn í verði
bílsins. Sem dæmi má nefna Xenon
ljós, leðuráklæði, viðarinnréttingu,
PDC fjarlægðarvara að framan- og
aftanverðu, leðurklætt Servotronic
sportstýri með aðgerðarhnöppum,
18" felgur, blátönn, regnskynjara,
málmlakk og margt fleira. Síðast, en
ekki síst, fylgja ýmis áhugaverð
fjármögnunartilboð með í pakkan-
um,“ segir Karl. BMW X5 3.0 er í
lúxusútgáfu með 231 hestafla vél á
6.950 þúsund kr. og með 218 hest-
afla dísilvél á 7.150 þúsund kr.
BMW X5
í loka-
útgáfu
ALLNÝSTÁRLEG æfingakeppni
verður haldin á vegum Vélhjóla-
íþróttaklúbbsins (VÍK) á morgun.
Æfingakeppnin verður haldin í
samvinnu við nýstofnaðan Vél-
íþróttaklúbb Akraness og fer fram
á Langasandi, Akranesi. Keppt
verður í krefjandi þolakstursbraut
sem lögð verður í þungan og
blautan fjörusandinn á Langa-
sandi. Brautin mun liggja um
þröngar beygjur, hraða fjörukafla
og gerð erfið með alls konar
þrautum þar sem keppendur munu
þurfa að aka yfir hindranir af öll-
um stærðum og gerðum.
Á sama tíma fer fram keppni í
því að aka sem lengst á afturdekk-
inu eftir ströndinni og því ljóst að
mikil tilþrif eru framundan.
Áhorfendastæðin verða vel
skipulögð, enda fer keppnin í raun
fram innanbæjar og því verður
auðvelt að fylgjast með átökunum
á svæðinu.
Strandakstursmót sem þetta er
einstaklega náttúruvænt, ef svo
Æfingakeppni á Langasandi
Mótokross Æfingakeppni verður á Langasandi á morgun.
mætti að orði komast, því brautin
er lögð í fjöru og að lokinni keppni
verður hún hreinsuð og síðan mun
stórstraumsflóðið sjá um að slétta
svæðið og afmá spólförin.
Keppnin er skipulögð í sam-
vinnu við bæjaryfirvöld á Akranesi
og ef vel tekst til gæti keppnin
orðið að árlegum viðburði. Keppn-
in er liður í uppskeruhátíð vél-
hjólaíþróttafólks og um kvöldið fer
fram árshátíð Vélhjólaíþrótta-
klúbbsins.
Prjónkeppnin hefst kl. 11:00 og
Strandaksturinn kl. 12:00. Frekari
upplýsingar um keppnina má finna
á heimasíðu VÍK, www.motocross-
.is.