Morgunblaðið - 02.12.2006, Page 4

Morgunblaðið - 02.12.2006, Page 4
4 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Goran Gusic er markahæstur – hefur skorað 59 mörk. Þar af 40 mörk úr vítaköstum. Gusis hefur skorað sex mörk úr horni, fimm með langskotum, fjögur af línu og fjögur mörk eftir hraðaupphlaup. Jóhann Gunnar hefur skorað 56 mörk og þar af 29 úr vítaköstum. Hann hefur skorað 10 mörk með langskotum, átta eftir gegnum- brot, sjö eftir hraðaupphlaup og eitt af línu. Valdimar, sem er skytta góð, byrjaði sinn keppnisferil með Sel- fossi, fór þaðan í Aftureldingu, síð- an í Fram og leikur nú sitt annað keppnistímabil með HK, hefur skorað 54 mörk – 19 úr vítaköst- um. Hann hefur skorað 27 mörk með langskotum, fimm eftir gegn- umbrot og þrjú eftir hraðaupp- hlaup. Eins og sést á listanum yfir markahæstu leikmenn hér á síð- unni koma Davíð, Björgvin Þór og Markús Máni næstir á blaði, hafa skorað yfir fimmtíu mörk. Eymar með flest mörk úr langskotum Eymar Kruger, leikmaður Fylk- is, er sá leikmaður sem hefur skor- að flest mörk með langskotum, eða 27. Valdimar Þórsson kemur næstur á blaði með 27 mörk, Markús Máni hefur skorað 26 mörk úr lang- skotum og Björgvin Þór 25 mörk. Vladimir Duric, Fylki, hefur skorað 23 mörk úr langskotum. Tite Kalandaze, Stjörnunni, hefur skorað 21 mark úr langskoti og þá koma Andri Stefan, Haukum, og Ernir Arnarson, Val, með 20 mörk skoruð með langskotum. Þrír með 17 mörk af línu Þrír leikmenn hafa skorað 17 mörk af línunni – Hörður Fannar Sigþórsson, Akureyri, Haraldur Þorvaldsson, Fram og Jón H. Gunnarsson, ÍR. Kári K. Kristjánsson, Haukum, og Ingvar Árnason, Val, hafa skor- að 16 mörk af línu. Framarar með öfluga hornamenn Þorri B. Gunnarsson, fyrirliði Fram, sem leikur í hægra horninu, hefur skorað langflest mörk úr horni, eða 24 mörk. Stefán Stef- ánsson, félagi hans úr Fram, sem leikur í vinstra horninu, kemur næstur á blaði með 18 mörk úr horni. Elías Már Halldórsson, Stjörn- unni, hefur skorað 12 mörk úr horni og þeir Ragnar Hjaltested, HK, og Guðmundur Petersen, Haukum, hafa skorað 11 mörk úr horni. Þorri B. fljótastur Þorri B. er einnig fljótasti leik- maðurinn fram í sókn í deildinni – hefur skorað 15 mörk eftir hraða- upphlaup. Elías Már kemur annar á blaði með 14 mörk skoruð eftir harðaupphlaup. Andri Snær Stefánsson, Val, er í þriðja sæti með 10 mörk skoruð eftir harðaupphlaup. Fámennur hópur gegnumbrotsmanna Það eru ekki margir leikmenn sem hafa sýnt mikinn styrk í gegn- umbrotum. Tveir leikmenn hafa skorað yfir tíu mörk eftir gegn- umbrot – báðir 11 mörk. Það eru Vladimir Duric, Fylki, og Sigfús Sigfússon, Fram. Skotnir af toppnum AKUREYRINGURINN Goran Gu- sic, Jóhann Gunnar Einarsson, leik- maður Fram, og HK-maðurinn Valdimar Þórsson eru komnir í þrjú efstu sætin á listanum yfir marka- hæstu menn í úrvalsdeildinni í hand- knattleik karla eftir átta umferðir. Þeir hafa skotið ÍR-ingana Davíð Georgsson og Björgvin Þór Hólm- geirsson ásamt Valsmanninum Markúsi Mána Michaelssyni af toppnum, en þeir þrír hafa verið í efstu sætunum frá byrjun Íslands- mótsins. Ljóst er að hörð keppni er fram undan um markakóngstitilinn. Morgunblaðið/Kristinn Í sókn Valdimar Þórsson, leikmaður HK-liðsins, hefur skorað grimmt fyrir sitt lið að undanförnu í úrvalsdeildinni. Goran Gusic, Jóhann Gunnar Einarsson og Valdimar Þórsson eru búnir að hreiðra um sig sem þrír markahæstu menn í úrvalsdeild karla Ólafur Þórisson körfuknattleiks-maður hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag, ÍR, en hann hefur leikið með Breiðabliki í 1. deild frá því í fyrra. Ólafur verð- ur löglegur með úrvalsdeildarliði ÍR þann 22. desember. Tveir aðrir leik- menn hafa gengið til liðs við ÍR að undanförnu, Elvar Guðmundsson kemur úr námi frá Danmörku um miðjan desember og Róbert Már Ingvason, 19 ára bakvörður, úr Njarðvík.    Kolbeinn Sig-þórsson, drengjalandsliðs- maður í knatt- spyrnu úr HK, fer á morgun til Hollands og æfir með Íslend- ingaliðinu Alkmaar í eina viku. Forráðamenn Alkmaar óskuðu eftir því að fá að skoða hinn 16 ára Kolbein sem vakti athygli með und- ir 17 ára landsliðinu í ár og þá lék hann fimm leiki með HK í 1. deild- inni í sumar og skoraði eitt mark. Í haust óskuðu PSV Eindhoven og Reading eftir því að fá Kolbein til sín til reynslu en hann hefur ekki farið þangað enn þá.    Shavlik Randolph, framherjiNBA-liðsins Philadelphia 76’ers, ökklabrotnaði á æfingu liðs- ins og verður hann frá keppni 6–8 vikur. Randolph hefur verið í byrj- unarliði 76’ers í undanförnum leikj- um vegna meiðsla Chris Webber en Randolph kom til liðsins sl. sumar eftir að hafa verið án samnings í þrjú ár.    Clay Bennett, eigandi NBA-liðsins Seattle Sonics, hefur fengið Lenny Wilkens til starfa hjá félaginu og verður hann varaforseti þess. Wilkens þjálfaði liðið á sínum tíma og gerði Seattle að meisturum en hann er 69 ára og þjálfaði síðast hjá New York Knicks árið 2005.    Forráðamenn NBA-deildarinnarhafa sektað Phil Jackson um 1,7 milljónir króna vegna ummæla hans í garð dómara eftir leik LA La- kers og Utah Jazz á dögunum. Þar kvartaði Jackson yfir því að And- rew Bynum, leikmaður Lakers, fengi óréttláta meðferð hjá dóm- urum leiksins.    Lilian Thuramsegir í við- tali við franska íþróttablaðið L’Equipe að hann sé ekki ánægður með stöðu sína hjá Evrópu- og Spánarmeist- urum. Frakkinn, sem er 35 ára, hef- ur ekki fengið að spreyta sig mikið með Börsungum en Rafael Margu- ez og fyrirliðinn Carles Puyol hafa nær einokað miðvarðarstöðurnar. ,,Ég kom ekki til Barcelona sem túristi. Kannski þekkja for- ráðamenn liðsins mig ekki og halda bara að ég sé ánægður en það er fjarrri lagi,“ segir Thuram.    Robbie Green frá Englandi erlítt þekktur atvinnumaður í pílukasti en hann er sá fyrsti sem fellur á lyfjaprófi í þeirri íþrótt. Green fór í lyfjapróf í júní á þessu ári á opna breska meistaramótinu og reyndist hafa notað kannabisefni. Aðeins átta atvinnumenn í pílukasti hafa farið í lyfjapróf á þessu ári á Bretlandseyjum en í byrjun þessa árs tóku í gildi nýjar reglur þar sem að keppendum er skylt að mæta í lyfjapróf sé þess krafist. Keppn- isbannið, sem Green var úrskurð- aður í, nær yfir átta vikur og tvo daga. Fólk sport@mbl.is ERNIE Els náði sér á strik á öðum keppnisdegi á Nedbank-golfmótinu í heimalandi hans, S-Afríku, í gær en þar eigast við 12 atvinnukylf- ingar. Els lék á 67 höggum eða 5 höggum undir pari vallar en hann lék á pari vallar á fyrsta keppn- isdegi eða 72 höggum. Keppni var frestað í gær vegna þrumuveðurs, þar sem að Jim Furyk frá Banda- ríkjunum var búinn að leika 16 hol- ur og er hann samtals á 10 höggum undir pari á Gary Player-vellinum. Furyk hefur titil að verja á mótinu. Sigurvegari mótsins fær rúmlega 81 millj. kr. í verðlaunafé en allir keppendur mótsins fá verðlaunafé. Annað sætið gefur af sér rúmlega 40 millj. kr. og sá sem endar í 12. sætið fær rúmlega 12 millj. kr. Staðan í gær þegar mótinu var frestað, feitletruð nöfn hafa lokið 36 holum: Jim Furyk (-10), Henrik Stenson (-6), Charl Schwartzel (-5), Padraig Harrington (-5), Ernie Els (-5), Retief Goosen (-4), Trevor Im- melman (-4), David Howell (-2), Jose Maria Olazabal (par), Sergio Garcia (+4), Chris DiMarco (+5), Colin Montgomerie (+8). Ernie Els lék vel DAVID Williams, 18 ára piltur hjá danska knattspyrnuliðinu Bröndby, sló í gegn í fyrrakvöld þegar hann skoraði tvö mörk fyrir liðið í 3:1- sigri gegn Hammarby í Skandinav- íudeildinni. Hannes Þ. Sigurðsson lék við hlið hans í framlínu Bröndby og skoraði þriðja markið og Willi- ams þakkar Hannesi mörkin tvö. „Ég hafði aldrei áður spilað með Hannesi en það var frábært að vera með sterkan mann eins og hann við hliðina á sér. Hann fór í öll návígin og bjó með því til auð svæði handa mér. Ég er alls ekki viss um að ég hefði skorað þessi tvö mörk ef hann hefði ekki hjálpað mér svona mik- ið,“ sagði Williams í samtali við vef Bröndby. Þakkar Hannesi mörkin Markahæstu leikmenn úrvalsdeildarkarla í handknattleik eru þessir leikmenn: Goran Gusic, Akureyri..........................59/40 Jóhann G. Einarsson, Fram.................56/29 Valdimar Þórsson, HK .........................54/19 Davíð Georgsson, ÍR.............................52/31 Björgvin Þór Hólmgeirsson, ÍR ............51/4 Markús Máni Michaelsson, Val ...........51/14 Eymar Kruger, Fylki .............................43/7 Guðmundur Petersen, Haukum ..........41/23 Þorri B. Gunnarsson, Fram ......................41 Valdimir Duric, Fylki..............................41/3 Árni Þór Sigtryggsson, Haukum..............38 Elías Már Halldórsson, Stjörnunni .......33/1 Ernir Arnarson, Val...................................33 Tite Kalandaze, Stjörnunni ....................31/6 Andri Stefan, Haukum...............................30 Stefán B. Stefánsson, Fram ......................27 Markahæstu menn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.