Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
HANDKNATTLEIKUR
Alþjóðlegt mót í Danmörku
Ísland – Noregur 22:34
Mörk Íslands: Róbert Gunnarsson 4, Alex-
ander Pettersson 3, Vignir Svavarsson 3,
Guðjón Valur Sigurðsson 3, Ólafur Stefáns-
son 2, Snorri Steinn Guðjónsson 1, Einar
Örn Jónsson 1, Ragnar Óskarsson 1, Logi
Gunnarsson 1, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1.
Danmörk – Pólland ..............................26:31
Mót í Frakklandi
A–riðill:
Frakkland – Tékkland ..........................38:25
B–riðill:
Úkraína – Túnis.....................................27:33
1. deild kvenna, DHL-deildin
FH – Akureyri ......................................26:19
Mörk FH: Ásta Björk Ragnarsdóttir 8,
Þóra Björg Helgadóttir 6, Sigrún Gilsdóttir
5, Andrea Olsen 3, Elín Hrafnsdóttir 2,
Hafdís Guðjónsdóttir 1, Marianne Marx 1.
Mörk Akureyrar: Guðrún Tryggvadóttir 5,
Ester Óskarsdóttir 4, Lilja Þórisdóttir 4,
Þórdís Sigurbjörnsdóttir 2, Erla Tryggva-
dóttir 2, Emma Havin Davoody 1, Jóhanna
Tryggvadóttir 1.
Staðan:
Grótta 10 8 0 2 260:227 16
Valur 9 7 1 1 247:209 15
Stjarnan 8 7 0 1 268:172 14
Haukar 10 6 0 4 290:244 12
ÍBV 8 4 1 3 214:201 9
Fram 10 3 3 4 231:259 9
HK 10 3 0 7 258:309 6
FH 11 2 1 8 241:295 5
Akureyri 10 0 0 10 190:283 0
1. deild karla
FH – Haukar 2.......................................23:22
Selfoss – Víkingur/Fjölnir ....................28:25
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindavík – Fjölnir 78:85
Íþróttahúsið í Grindavík, úrvalsdeild karla,
Iceland Express-deildin, föstudagur 5. jan-
úar 2007:
Gangur leiksins: 19:20, 38:35, 61:55, 78:85.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson
30, Steven Thomas 24, Calvin Clemons 11,
Páll Kristinsson 7, Þorleifur Ólafsson 6,
Adam Darboe 4, Björn S Brynjólfsson 2.
Fráköst: 11 í sókn, 15 í vörn.
Stig Fjölnis: Nemanja Sovic 29, Kareem
Johnson 24, Hörður Axel Vilhjálmsson 18,
Árni Ragnarsson 6, Hjalti Vilhjálmsson 4.
Fráköst: 10 í sókn, 21 í vörn.
Áhorfendur: Um 250.
Dómarar: Jón Guðmundsson og Halldór
Jensson.
Staðan:
KR 12 10 2 1058:929 20
Njarðvík 12 10 2 1042:962 20
Snæfell 12 9 3 944:867 18
Skallagrímur 11 8 3 971:895 16
Keflavík 11 7 4 981:903 14
Grindavík 12 6 6 1019:953 12
Hamar/Selfoss 12 5 7 900:955 10
Tindastóll 12 4 8 1032:1095 8
ÍR 12 4 8 969:1028 8
Þór Þ. 12 3 9 967:1090 6
Fjölnir 12 3 9 1003:1083 6
Haukar 12 2 10 1005:1131 4
1. deild karla
KFÍ – Stjarnan ......................................82:79
Þór Ak. – Höttur..................................102:85
Staðan:
Þór A. 6 6 0 608:462 12
Breiðablik 6 4 2 555:531 8
Valur 6 4 2 585:563 8
FSU 5 3 2 465:465 6
Höttur 4 2 2 343:344 4
Stjarnan 6 1 5 492:513 2
Ármann/Þróttur 5 1 4 375:425 2
KFÍ 6 1 5 456:576 2
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
New Orleans – Detroit..........................68:92
Dallas – Indiana...................................100:91
Sacramento – LA Lakers .................128:132
KNATTSPYRNA
England
2. deild
Yeovil – Huddersfield ...............................3:1
Bikarkeppnin
3. umferð:
Bristol R. – Hereford................................1:0
Stoke – Millwall .........................................2:0
SKÍÐI
Marlies Schild frá Austurríki varð sigur-
vegari í svigi á heimsbikarmótinu, en keppt
var í Zagreb-Slieme í Króatíu.
Marlies Schild, Austurríki .................1.59,40
Ana Jelusic, Króatíu...........................2.01,06
Sarka Zahrobska, Tékklandi.............2.01,25
Chiara Costazza, Ítalíu ......................2.01,42
Resi Stiegler, Bandaríkjunum ..........2.01,50
Um helgina:
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna, DHL-deildin:
Ásgarður: Stjarnan – Valur.......................14
Framhús. Fram – Haukar.........................15
Sunnudagur:
1. deild kvenna, DHL-deildin:
Vestmannaeyjar.: ÍBV – Grótta...........15.30
1. deild karla:
Vestmannaeyjar. ÍBV – Grótta............13.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Úrvalsdeild karla, Iceland Express:
Borgarnes: Skallagrímur – Keflavík ........16
Sunnudagur:
Lýsingarbikarkeppni karla, 8 liða úrslit:
Hveragerði: Hamar – KR.....................19.15
Lýsingarbikarkeppni kvenna, 8 liða úrslit:
Stykkishólmur: Snæfell – Hamar.............15
Kennaraháskólinn: ÍS – Haukar..........19.15
Grindavík: UMFG – Fjölnir .................19.15
SUND
Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga
verður haldið í innisundlauginni í Laugar-
dal á morgun, sunnudag, kl. 15.
Leiðrétting
Sigurður Lárusson var ekki þjálfari Þórs
1990 er hann lék með syni sínum, Lárusi
Orra, í efstu deild. Lúkas Kostic var þjálf-
ari þetta ár, en Sigurður tók síðan við þjálf-
arastarfinu af Kostic.
EIÐUR Smári Guðjohn-
sen verður í byrjunarliði
Evrópu- og Spánarmeist-
ara Barcelona á morgun
þegar liðið sækir Getafe
heim í fyrstu umferð
spænsku 1. deildarinnar á
nýju ári. Skörð hafa verið
höggvin í lið meistaranna
og örugglega kemur til
með að mæða töluvert á
landsliðsfyrirliðanum þar
sem brasilíski snillingurinn Ronaldinho og
Portúgalinn Deco verða báðir fjarri góðu
gamni. Tvímenningarnir, sem báðir taka út
leikbann, hafa leikið stóra rullu í sóknarleik
liðsins á tímabilinu og Ronaldinho er
markahæstur í deildinni með 12 mörk. Bör-
sungar verða sömuleiðis án varnarmann-
anna sterku Gianluca Zambrotta og Lilian
Thuram sem eru meiddir.
,,Það er í leikjum eins og gegn Getafe sem
deildin vinnst. Margir leikmenn eru frá í liði
okkar en þá er okkar að sýna styrkinn,
breiddina og karakterinn í okkar liði. Við
höfum nægilega marga gæðaleikmenn sem
geta fyllt skörð þeirra sem vantar,“ sagði
Eiður á blaðamannafundi Barcelona.
Barcelona, sem leikur á morgun sinn 29.
leik á tímabilinu, er í öðru sæti deildarinnar,
tveimur stigum á eftir Sevilla, en á leik til
góða.
Leikmenn Barcelona ættu að vera vel út-
hvíldir en þeir fengu tólf daga jólafrí og
mættu á fyrstu æfingu á nýju ári á miðviku-
dag. Daginn eftir þegar allar helstu stjörn-
ur liðsins voru mættar komu 12.000 manns
til að fylgjast með æfingu liðsins.
Líklegt að mikið mæði
á Eiði Smára gegn Getafe
Eiður Smári
Guðjohnsen
HEINER Brand, landsliðs
handknattleik, hefur áhy
mundir þar sem flest bend
geti ekki stillt upp sinni st
heimsmeistaramótið hefst í
úar. Ekki færri en fimm
landsliðshópnum eru meidd
að a.m.k. þrír þeirra miss
kemur til kraftaverk. Fran
Tiedtke og Oleg Velyky le
vegna meiðsla. Behren er
armaður Þjóðverja um þes
lyky ein öflugasta rétthenta
henti hornamaðurinn Flor
að ná sér eftir handarbrot o
hann getur beitt sér. Mich
leikmaðurinn sem er á sjúkr
Brand liggur nú á bæn o
menn hans komist hjá freka
Brand he
meiðslum
íþróttir
Það verður mikið í húfi á Anfield þeg-
ar stórliðin Liverpool og Arsenal leiða
saman hesta sína. Bæði lið líta svo á að
möguleikar þeirra á að hampa Eng-
landsmeistaratitlinum í ár séu nánast
fyrir bí og sigur í bikarkeppninni geti
að einhverju leyti bjargað tímabilinu
þó svo að liðin eygi von um velgengni í
meistaradeildinni þar sem þau eru
bæði í 16 liða úrslitum.
Arsenal vann öruggan 3:0-sigur á
Liverpool þegar liðin mættust í deild-
inni á Emirates Stadium, heimavelli
Arsenal, fyrr á leiktíðinni en í tveimur
síðustu viðureignum þeirra á Anfield
hefur Liverpool haft betur. Liðin átt-
ust síðast við í bikarkeppninni í 4. um-
ferðinni 2002 þar sem Arsenal hrósaði
sigri og hefndi ófaranna frá árinu áður
þegar Liverpool lagði Arsenal í úrslit-
um á Þúsaldarvellinum í Cardiff þar
sem Michael Owen var hetja Liver-
pool.
Arsenal, sem hefur hampað bikar-
meistaratitlinum þrívegis á síðustu
árum, verður án Robins van Persie og
Cesc Fabregas, sem báðir taka út
leikbann, og þá eru Theo Walcott,
Emmanuel Adebayor, Fredrik
Ljungberg, William Gallas og Abou
Diaby allir á sjúkralistanum. Hjá Liv-
erpool, sem hefur ekki tapað á Anfield
síðan í mars 2006, eru allir lykilmenn
klárir í slaginn.
Larsson leikur sinn fyrsta leik
Manchester United er sigursælast
allra liða í bikarkeppninni en 12 sinn-
um hafa rauðu djöflarnir unnið
keppnina og 17 sinnum hefur liðið
leikið til úrslita. Sir Alex Ferguson
hefur fimm sinnum stýrt United-lið-
inu til sigurs í bikarkeppninni en tví-
vegis hefur lið hans tapað úrslitaleik,
síðast fyrir tveimur árum.
Henrik Larsson leikur sinn fyrsta
leik fyrir Manchester United á morg-
un þegar toppliðið í ensku úrvals-
deildinni fær Aston Villa í heimsókn.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, hefur tilkynnt að
Larsson muni hefja leik í fremstu víg-
línu með Ole Gunnari Solskjær en
báðir eru komnir á fertugsaldurinn.
Louis Saha er meiddur og verður ekki
í hópnum hjá United en að öðru leyti
getur Ferguson stillt upp sínum
sterkustu leikmönnum.
Fyrirliðinn Gareth Barry kemur
aftur inn í lið Aston Villa eftir að hafa
afplánað eins leiks bann en sænski
varnarmaðurinn Olof Mellberg verð-
ur í banni. Liðin áttust við á Villa Park
á dögunum þar sem United fór með
sigur af hólmi og þau eigast svo við í
þriðja sinn á skömmum tíma um
næstu helgi þegar þau mætast að nýju
í úrvalsdeildinni. Þetta verður tólfta
viðureign liðanna í bikarkeppninni og
af leikjunum ellefu til þessa hefur
United unnið átta, þar af síðustu fjóra
leiki. Aston Villa hefur gengið afar illa
á móti United og hefur tapað síðustu
níu leikjum sínum gegn liðinu. 24 ár
eru liðin frá því Villa hrósaði sigri á
Old Trafford en 1983 hafði liðið betur,
2:1, þar sem Peter nokkur Whithe
skoraði bæði mörk liðsins.
Davíð og Golíat á Stamford
Leik Englandsmeistara Chelsea og
3. deildarliðs Macclesfield á Stamford
Bridge í dag má með sanni kalla við-
ureign Davíðs og Golíats. Chelsea sit-
ur í öðru sæti úrvalsdeildarinnar á
meðan Macclesfield berst fyrir lífi
sínu í 3. deildinni en liðið er þar í næst-
neðsta sæti og er í baráttu um að
halda sæti sínu í deildarkeppninni.
Bikarkeppnin er eina keppnin sem
Jose Mourinho hefur ekki tekist að
vinna með Chelsea. Liðið komst í und-
anúrslit í fyrra en beið þar lægri hlut
fyrir Liverpool. Chelsea hefur þríveg-
is farið alla leið, síðast fyrir sjö árum
þegar það hafði betur á móti Aston
Villa, 1:0.
,,Ég get ekki leyft mér þann munað
að hvíla menn þó svo að margir þurfi á
hvíld að halda. Lykilmenn eru meidd-
ir og við þurfum að nota þá menn sem
eru til staðar,“ segir Mourinho en
hans menn glíma við annað 3. deild-
arlið í næstu viku þegar þeir mæta
Wygombe í fyrri leik liðanna í undan-
úrslitum deildabikarsins.
Gamall refur er við stjórnvölinn hjá
Macclesfield, Paul Ince, fyrrum leik-
maður West Ham, Manchester Unit-
ed og Liverpool, en hann var í vikunni
var útnefndur knattspyrnustjóri mán-
aðarins í 3. deildinni. Ince tók við lið-
inu fyrir nokkrum vikum og hefur
heldur betur tekist að hleypa lífi í leik
þess. Liðið hefur unnið átta af tíu síð-
ustu leikjum sínum.
Liverpool hefur titil-
vörnina gegn Arsenal
Reuters
Mark í fæðingu Kolo Toure skýtur boltanum á milli fóta Jose Reina og skorar mark fyrir Arsenal gegn Liverpool
þegar liðin áttust við á Emirates Stadium í úrvalsdeildinni í nóvember þar sem Arsenal vann öruggan sigur.
LIVERPOOL hefur titilvörn sína í
ensku bikarkeppninni í knattspyrnu
á Anfield síðdegis í dag þegar liðið
tekur á móti Arsenal í stórleik 3. um-
ferðarinnar sem leikin verður í dag
og á morgun. Englandsmeistararar
Chelsea taka á móti 3. deildar liði
Macclesfield og á Old Trafford fá
heimamenn í Manchester United lið
Aston Villa í heimsókn.
Í HNOTSKURN
»Eins og jafnan áður ríkirmikil spenna og eftirvænt-
ing hjá liðunum, ekki síst hjá
þeim smærri, fyrir leikina í bik-
arkeppninni sem hefur verið
við lýði í 136 ár og er elsta bik-
arkeppni í veröldinni.
»Manchester United hefuroftast allra liða hampað
bikarmeistaratitlinum eða 12
sinnum. Arsenal kemur næst
en 10 sinnum hefur liðið sigrað.
Liverpool hefur unnið 7 sinn-
um, síðast í fyrra þegar liðið
lagði West Ham.
v
v
þ