Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Reading hefur ekki tapað fyrir liði úr
neðri deild í 3. umferð bikarkeppn-
innar í sex ár og Coppell treystir á að
gæfan verði honum hliðholl áfram.
Reading hefur leikið vel í ensku
úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og er
nú um stundir í 9. sæti eftir stórsigur
á West Ham, 6:0, á nýársdag.
Burnley, sem nú sækir Reading
heim á Madejski Stadium er í 12.
sæti 1. deildar. Það féll úr bikar-
keppninni á síðustu leiktíð í 3. um-
ferð gegn Derby. Í fimm síðustu
skipti sem þessi lið hafa mæst í deild-
arkeppni þá hafa leikmenn Burnley
aldrei náð að hrósa sigri.
Hermann ekki með
í Nottingham
Hermann Hreiðarsson verður
ekki með Charlton í dag þegar liðið
sækir Nottingham Forest á City
Ground í Nottingham. Vegna
meiðsla í hné hefur Hermanni verið
skipað að taka sér tveggja til þriggja
vikna hlé frá keppni og var hann t.d.
ekki með gegn Arsenal í úrvalsdeild-
inni á þriðjudagskvöldið. Ekki bætir
úr skák að Osei Sankofa tekur út
leikbann og framherjinn Darren
Bent glímir við meiðsli í hné og tekur
ekki þátt.
Phil Parkinson, fyrrverandi knatt-
spyrnustjóri Hull, var í gær ráðinn
aðstoðarmaður Alans Pardews,
knattspyrnustjóra Charlton. Saman
eiga þeir erfitt verkefni fyrir hönd-
um að bæta liðið og rífa það upp úr
kjallara úrvalsdeildarinnar.
Fyrirfram virðast möguleikar
Nottingham Forest ekki vera miklir.
Liðið er í þriðja sæti annarrar deild-
ar en á hitt ber þó að líta að leikmenn
Charlton hafa ekki leikið vel í vetur
og sjálfstraust þeirra er ekki mikið.
Liðin hafa einu sinni mæst í bik-
arkeppninni. Það var fyrir níu árum
og einnig í þriðju umferð. Þá vann
Charlton, 3:1, á heimavelli sínum í
Lundúnum.
Óvíst var í gær hvort Rúrik Gísla-
son fengi tækifæri á að spreyta sig
með Charlton að þessu sinni en hann
hefur einstöku sinnum verið í 17 leik-
manna fyrir leiki.
Fer Montella beint í liðið?
Nú þegar ljóst er að Luis Boa
Morte hefur yfirgefið skútuna hjá
Fulham og gengið til liðs við West
Ham þá opnast möguleiki til þess að
Heiðar Helguson verði í byrjunarliði
Fulham þegar liðið mætir Leicester
á útivelli í dag. Ítalinn Vincenzo
Montella, sem lánaður var til Ful-
ham í vikunni, verður örugglega á
varamannabekknum en ósennilegt
er talið að hann verði í byrjunarlið-
inu þar sem hann er ekki í mikill leik-
æfingu. Montella gæti komið við
sögu þegar líður á leikinn.
Steve Coppell íhugar
að gefa Ívari frí
STEVE Coppell, knattspyrnustjóri
Reading, íhugar að stilla ekki upp
sínu sterkasta liði gegn Burnley í
bikarkeppninni í dag og leyfa þar
með nokkrum þeirra leikmanna
sem mest hefur reynt á síðustu
mánuði að slaka aðeins á. Þetta get-
ur þýtt að Ívar Ingimarsson verði
ekki í byrjunarliðinu og svo kann
einnig að fara að Brynjar Björn
Gunnarsson byrji á varamanna-
bekknum en hann hefur átt fast
sæti í byrjunarliðinu að undanförnu
og náði m.a. að skora mark gegn
West Ham á mánudaginn.
AP
Einvígi Bobby Zamora, West Ham, og Ívar Ingimarsson, Reading, berjast um knöttinn.
Reading mætir Burnley á heimavelli í 3. umferð ensku
bikarkeppninnar. Hermann Hreiðarsson leikur ekki með Charlton.
Í HNOTSKURN
» Í fimm síðustu skipti semReading og Burnley hafa
mæst í deildarkeppni þá hafa
leikmenn Burnley aldrei náð
að hrósa sigri.
» Phil Parkinson, fyrrver-andi knattspyrnustjóri
Hull, var í gær ráðinn aðstoð-
armaður Alans Pardews,
knattspyrnustjóra Charlton.
Dallas ermiklu skriði
í NBA-deildinni í
körfuknattleik en
liðið vann í fyrri-
nótt sinn 12. sigur
í röð þegar það
lagði Indiana,
100:91. Josh
Howard skoraði
25 stig fyrir Dallas, Devin Harris 24
og Dirk Nowitski 20. Hjá Indiana
var Al Harrington atkvæðamestur
en hann skoraði 24 stig.
Kobe Bryant fór fyrir liði LA La-kers sem hafði betur gegn
Sacramento, 132:128 í framlengdum
leik. Bryant skoraði 42 stig, tók 10
fráköst og átti 9 stoðsendingar í
leiknum en hann komst þó ekki á
blað fyrr en eftir 16 mínútur. Smush
Parker tryggði Lakers framleng-
ingu en honum tókst að jafna á loka-
sekúndu venjulegs leiktíma. Brian
Cook kom næstur í stigaskorun fyrir
Lakers en skoraði 26 stig. Hjá
Sacramento var Mike Bibby langa-
tkvæðamestur en hann skoraði 38
stig.
Ítalski landsliðsmaðurinn AntonioCassano fer líklega frá Real Ma-
drid fljótlega. Fabio Capello, þjálf-
ari Real, hefur hug á að selja hann.
Markvörð-urinn Oli-
ver Kahn, fyr-
irliði Bayern
München, segist
ekki ætla að hefja
störf við knatt-
spyrnu er hann
leggur skóna á
hilluna eftir þetta
keppnistímabil. „Ég er ákveðinn að
taka mér gott frí frá knattspyrnu,
þegar ég yfirgef æfingasvæði Bay-
ern,“ sagði Kahn við þýska blaðið
Abendzeitung.
Roma hefur fengið miðherjannFrancesco Tavano, 27 ára, að
láni frá Valencia út keppn-
istímabilið.
Luiz Felipe Scolari, fyrrverandiþjálfari heimsmeistara Brasilíu
2002, mun stjórna landsliðið Portú-
gals í vináttuleik gegn Brasilíu á
heimavelli Arsenal í London, Em-
irates Stadium, 6. febrúar. Brasilía
lék vináttuleik gegn Argentínu á
vellinum í ágúst sl.
Sama dag leika Suður-Kórea og
Grikkland vináttuleik á heimavelli
Fulham, Craven Cottage.
Wigan fékk í gær varnarmann-inn David Unsworth í sínar
raðir frá Sheffield United. Uns-
worth er 33 ára og hefur víða komið
við á ferli sínum. Hann lék sam-
anlagt í 11 ár með Everton en hefur
einnig leikið með West Ham,
Portsmouth og Ipswich. Hann er
þriðji leikmaðurinn sem Wigan fær á
nýju ári en áður
hafði félagið fengið Andreas
Granqvist frá Helsingborg og Krist-
ofer Hæstad frá Start.
Fabien Bart-hez leikur í
dag sinn fyrsta
leik með Nantes
þegar liðið mætir
Guingamp í
frönsku bik-
arkeppninni.
Þessi litríki
markvörður, sem
lék með Manchester United fyrir
nokkrum árum, ákvað að taka fram
hanskana að nýju en hann stóð síðast
á milli stanganna þegar Frakkar
biðu lægri hlut fyrir Ítölum í úrslita-
leik HM í Berlín í júlí. Barthez er 35
ára og sagði skilið við Marseille í vor.
Fólk sport@mbl.is
WEST Ham gekk í gær frá kaupum
á Luis Boa Morte, fyrirliða Fulham,
og greiddi fyrir hann 5 milljónir
punda eða sem svarar um 700 millj-
ónum króna. Hann er þar með fyrsti
leikmaðurinn sem Alan Curbishley,
nýráðinn stjóri West Ham, kaupir.
,,Ég mat stöðuna þannig að það
væri kominn tími fyrir mig til að
breyta til og fara til annars stórliðs á
Englandi. Það var ekki auðvelt að
fara frá Fulham en mér var boðinn
góður samningur hjá West Ham og
ég fæ mun hærri laun en ég hafði hjá
Fulham,“ sagði Boa Morte í gær.
Boa Morte er 29 ára gamall miðju-
og sóknarmaður og kemur frá
Portúgal. Hann hefur verið á Eng-
landi í áratug og hóf feril sinn hjá
Arsenal og var einn af fyrstu leik-
mönnunum sem Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, keypti
þegar hann tók við stjórn liðsins árið
1997. Hann var í herbúðum Arsenal í
tvö ár, fór þaðan til Southampton
þar sem hann var í eitt ár en síðustu
sex árin hefur hann leikið með Ful-
ham. Hann á að baki 25 landsleiki
með Portúgölum og var í landsliðs-
hópi þeirra á HM í sumar.
Luis Boa til
West Ham
VIJAY Singh frá Fidji-eyjum fékk
sex fugla á fyrsta keppnisdegi
Mercedes meistaramótsins í golfi á
PGA-mótaröðinni í fyrrinótt á
Hawaii en hann lék fyrsta hringinn
á 69 höggum eða fjórum höggum
undir pari Kapalua-vallarins. Fimm
kylfingar deila efsta sætinu og er
Singh þar á meðal en hinir fjórir
eru; K.J. Choi, Brett Wetterich,
Stephen Ames og Will MacKenzie.
Mótið er það fyrsta á PGA-
mótaröðinni á þessu ári en þeir
kylfingar sem náðu að sigra á PGA-
móti á árinu 2006 fá að taka þátt á
þessu móti og eru því aðeins 34
kylfingar sem leika.
Davis Love III lék á 70 höggum
og er því á þremur höggum undir
pari en Tiger Woods og Phil Mic-
kelson eru ekki með á mótinu.
Vijay Singh
byrjar vel