Morgunblaðið - 17.02.2007, Page 3
Dragðu línu milli þeirrahluta sem passa saman.
Hvað passar saman?
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 3
Hann Gísli Vilberg Stefánsson, 12 ára, gerði þessa ótrúlegalitlu gogga. Hann gerði þá alla í höndunum og er sá
minnsti aðeins 4 mm. Þetta gæti jafnvel verið einn minnsti
handgerði goggur í heimi.
Pínulítill goggur
Þótt myndirnar líti út fyrir að vera eins í fyrstu er þrennt aðfinna á hægri myndinni sem er ekki á þeirri vinstri. Hvað
skyldi það nú vera? Lausn aftast.
Hvað er ólíkt?
Getur þú hjálpað norninni í gegnum völundarhúsið svo húneigi möguleika á að halda upp á öskudaginn með vinum
sínum, draugnum og leðurblökunni.
Norn í leit að vinum
Þegar mömmur ykkarog pabbar voru börnlæddust þau um göt-
urnar og hengdu öskupoka á
gesti og gangandi. Þá unnu
þau hörðum höndum að því
að búa til öskupoka nokkrum
dögum fyrir öskudaginn. Það
gat verið mjög fyndið að sjá
mann í frakka með 6 ösku-
poka hangandi aftan á sér.
Sumir settu aura eða ein-
hvers konar skilaboð í pok-
ana og gat verið ansi fróðlegt
að tína af sér öskupokana eft-
ir daginn.
Síðan gerðist það að ekki
var lengur hægt að beygja
títuprjóna, sem voru megin
festing öskupokanna, og þá
lagðist þessi siður smám sam-
an af. Við hvetjum samt alla
krakka til að taka upp þenn-
an sið og þó ekki sé lengur hægt að nota títuprjóna er hægt að
nota litlar öryggisnælur. Það þarf þó að gæta þess að stinga
ekki í dúnúlpur eða viðkvæm efni, ullarfrakkar eru alveg til-
valdir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Öskupokar Ætli þessi maður
viti af öllum öskupokunum?
Öskupokar
Hvar sló eldingunni
niður?
Næst þegar það komaþrumur og eld-ingar getið þið
reiknað út hversu langt í
burtu eldingunni hefur
slegið niður. Um leið og þið
sjáið eldinguna byrjið þið að
telja; ein elding, tvær eld-
ingar, þrjár eldingar o.s.frv.
Það er mikilvægt að setja
orðið elding eftir hverri
tölu því þá fáið þið nokkurn
veginn rétt út hversu marg-
ar sekúndur líða. Maður er
nefnilega fljótari en þrjár
sekúndur að segja einn,
tveir, þrír.
Hljóðið fer einn kíló-
metra á þremur sekúndum
og ef þið getið talið upp í
sex áður en þið heyrið í
þrumunni hefur eldingunni
slegið niður tvo kílómetra í
burtu.
Kærleikur
Ef vinir hverfa frá þeir koma aftur
því kærleikurinn hann er sterkur kraftur.
Því ef þér þykir vænt um einhvern mann
hann elskar þig því kærleikinn hann fann.
Og þó að hjörtu stoppi og vinir hverfa
þá væntumþykjuna þú færð að erfa
því sönnum vini þykir vænt um fleiri
en sjálfan sig því hann er maður meiri.
Iðunn hefur mjög gaman af því að
lesa og teikna. Henni finnst líka
gaman að syngja en hún er einmitt í
kór Selfosskirkju.
Iðunn lá andvaka eitt kvöldið og
fékk þá allt í einu hugmyndina að
þessu ljóði. Hún er ekki vön að skrifa
ljóð en les mikið og hefur mest gam-
an af Nancy-bókunum. Iðunn ætlar
að verða snyrtifræðingur þegar hún
verður eldri þar sem hún elskar að
mála fólk.
Iðunn Rúnarsdóttir,
11 ára.
Hverjir eru vinir mínir?
Vinir mínir eru bækur.
Vinir mínir eru dýr.
Vinir mínir eru mannfólk.
Vinir mínir eru náttúran.
Vinir mínir eru allt sem ég á og vil aldrei
missa.
Sigrún Lóa skrifar stundum ljóð
þegar hún er í tölvunni og er í góðu
skapi og þá byrja ljóðin að flæða frá
henni. Henni finnst alveg frábært að
vera úti í sveit með dýrunum og
komast í snertingu við náttúruna.
Frænka hennar á sveit rétt hjá
Akranesi og þar eru bæði kýr og
hestar sem hún fær að sinna. Sigrún
Lóa er að æfa körfubolta og frjálsar
íþróttir en henni þykir skemmtileg-
ast að hlaupa. Sigrún Lóa stefnir að
því að verða förðunarfræðingur í
framtíðinni.
Sigrún Lóa Þorsteinsdóttir,
13 ára.
Kærleikur
Kærleikur er mér allt,
vinátta er mér allt,
fjölskylda mín er mér meira en allt.
Í stríðum er ekki kærleikur,
í stríðum er ekki vinátta,
í stríðum geta fjölskyldur sundrast.
Í allra hjörtum er kærleikur,
í allra hjörtum er vinátta,
allra hjörtu vilja fjölskyldu.
Hrafnhildur segist hugsa mikið
um fjölskyldu sína og því var það
ekki mikið mál fyrir hana að skrifa
þetta ljóð. Hún skrifar oft ljóð og á
fleiri til. Hún les mikið og er bóka-
flokkurinn Einhyrningurinn minn í
uppáhaldi. Helstu áhugamál
Hrafnhildar eru fimleikar og
myndlist.
Hrafnhildur Magney
Gunnarsdóttir, 13 ára.
Systir mín
Ég á marga vini
því ég sit oftast ekki inni
nema með fjölskyldu minni
að spila eða gera eitthvað saman
því okkur finnst það svo gaman.
Ég á systur sem heitir Andrea Ýr.
Ég leik oft með henni
því hún á svo margar kýr
en hún nennir
ekki að hugsa um þær
og fer frekar að nudda sínar tær.
Kristín skrifar ljóð í samveru í
skólanum en þar fær hún flytja ljóð-
in sín fyrir hina krakkana. Síðan
tölvan hennar Kristínar bilaði er hún
búin að vera ótrúlega dugleg að lesa
og mamma hennar er svo ánægð
með það að henni finnst ekkert liggja
á að gera við tölvuna.
Kristín Axelsdóttir
Foelsche, 10 ára.
Vinur
Úti í horni ein ég sit
frosin inn að beini.
Kuldinn bítur bitur bit
ég held ég verði að steini.
Til mín kemur stelpa rjóð
ég er enn að frjósa úr kulda.
Mér sýnist hún vera mjög svo góð.
Hún segist heita Hulda.
Og allt í einu ég hlýju finn.
Mér er ei lengur kalt.
Og hvað sem segir þessi og hinn
það var Hulda sem gerði allt.
Þórdís segir skapið ráða því hvort
hún skrifar ljóð eða ekki. Þórdís æfir
bæði dans og blak og hún les mjög
mikið. Svo er hún líka að læra á pí-
anó þannig að það er nóg að gera hjá
Þórdísi alla daga.
Morgunblaðið/Kristinn
Þórdís Tryggvadóttir,
12 ára.
Unnu ljóðasamkeppni Barnablaðsins