Morgunblaðið - 08.03.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2007 15
ÚR VERINU
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
RÚSSNESK yfirvöld hafa ákveðið
að eingöngu sé leyfilegt að flytja
sjávarafurðir til Rússlands frá fyr-
irtækjum sem skoðuð hafa verið og
samþykkt af rússneskum yfirvöld-
um og mun Fiskistofa hafa milli-
göngu um þær skoðanir. Hefðbund-
in vottorð Fiskistofu vegna
útflutnings sjávarafurða munu því
ekki gilda ein sér vegna útflutnings
til Rússlands eins og til allra ann-
arra landa. Von er á rússneskum
eftirlitsmönnum til landsins fljót-
lega.
Tugir þúsunda tonna
Hið nýja fyrirkomulag á að taka
gildi fyrsta apríl næstkomandi. Um
40 fyrirtæki fengu í fyrra vottorð
Fiskistofu vegna útflutnings sjáv-
arafurða í fyrra. Útflutningur sjáv-
arafurða til Rússlands héðan frá Ís-
landi byggist fyrst og fremst á síld
og loðnu og er um tugi þúsunda
tonna að ræða. Gert er ráð fyrir að
útflutningi allra loðnuafurða héðan
til Rússlands af vertíðinni, sem nú
er að ljúka, verði lokið áður en nýja
fyrirkomulagið tekur gildi.
Norðmenn hafa lent í nokkrum
vandræðum vegna þess, einkum
hvað varðar útflutning á laxi til
Rússlands. Rússar munu taka upp
sömu aðferðir í öllum löndum, sem
selja þeim sjávarafurðir.
Öll önnur ríki sátt
við vottorð Fiskistofu
„Þetta er alveg furðulegt uppá-
tæki hjá Rússunum. Þetta yrði þá
fyrsta ríkið í heiminum sem beitir
svona gagnvart okkur,“ segir Þórð-
ur Ásgeirsson, fiskistofustjóri. „Öll
önnur ríki heimila innflutning sjáv-
arafurða héðan á grundvelli vott-
orða sem Fiskistofa gefur út. Þau
staðfesta það að viðkomandi fram-
leiðandi sé undir okkar eftirliti og
uppfylli allar kröfur um framleiðslu
og útflutning sjávarafurða. Þetta er
alls staðar tekið gott og gilt. Hvað
varðar Evrópska efnahagssvæðið
þarf ekki einu sinni vottorð, flæði
sjávarafurða er þar frjálst. Þetta er
því algjörlega á skjön við það sem
hingað til hefur viðgengizt, líka
gagnvart Rússum. Þeir hafa hingað
til tekið okkar vottorð góð og gild,
svo maður veit ekkert hvað er á
bakvið þetta.
Þarf að greiða kostnaðinn
Þeir ganga líka svo langt, að þeg-
ar þeir senda menn til að taka út
fyrirtækin, þarf einhver annar en
þeir, annað hvort stjórnvöld eða
fyrirtækin sjálf, að borga ferðir
þeirra til og frá landinu, ferðakostn-
að innan lands, hótel, mat og háa
dagpeninga þar ofan á. Fyrir utan
túlka. Þetta er því verulegur kostn-
aður.“
Hvað hefur gerzt í þessu máli til
þessa?
„Þeir sendu hingað þrjá menn í
janúar og þeir skoðuðu 14 fyrirtæki
og skip. Síðan áttum við langa fundi
með þeim, þar sem við sýndum
þeim kerfið okkar og kynntum þeim
hvað við værum að gera. Við vorum
að vonast til þess að niðurstaðan af
því yrði að þeir myndu viðurkenna
okkur, þannig að útflutningurinn
gæti gengið áfram á grundvelli vott-
orða frá okkur. Það reyndist ekki.
Þeir ætla að búa til sinn eigin lista
og aðrir fá ekki að flytja út til
þeirra nema þeir, sem á þennan
lista komast. Við erum að bíða eftir
skýrslunni frá heimsókninni í jan-
úar. Þeir sögðu þá að af þessum 14
fyrirtækjum þyrftu þrjú að gera
meiriháttar lagfæringar á húsnæði.
Hvað það er vitum við ekki. Allir
þurfa að gera einhverjar smá lag-
færingar, en þeir töldu að 11 fyr-
irtæki af þessum 14 myndu komast
á listann hjá þeim, en hin þrjú gætu
komizt inn eftir lagfæringar og
Rússarnir væru búnir að skoða þau
aftur.
Þeir ætla að senda hingað sveit
manna alveg á næstunni til að taka
út þau fyrirtæki sem þess óska. Það
liggur ekki alveg fyrir hvað þetta
kostar en miðað við heimsóknina í
janúar gæti upphæðin verið nálægt
200.000 krónum á fyrirtæki. Fyrir
stóru fyrirtækin skiptir það kannski
ekki miklu máli, en vegur þyngra
fyrir þau smærri. Það fengu um það
bil 40 vottorð hjá Fiskistofu vegna
útflutnings til Rússlands á síðasta
ári. Það má því reikna með að 20 til
25 fyrirtæki bætist við nú.
Það er ákaflega ógeðfellt að þurfa
að kyngja svona. Þetta er afar
slæmt fordæmi, ef aðrir fara að
taka upp á hinu sama. Þeir munu
hins vegar örugglega ekki komast
upp með þetta áfram eftir að þeir
eru orðnir aðilar að Heimsviðskipta-
stofnuninni, WTO. Þetta gengur al-
veg þvert á allar viðskiptavenjur og
reglur, sem í gildi eru.
Það eina jákvæða sem hefur kom-
ið fram í þessu máli er að á fundi
okkar í Moskvu í síðustu viku kom
fram að eftirlit og eftirfylgni gæti
orðið á hendi Fiskistofu. Eins ef
einhver ný fyrirtæki vildu bætast á
listann,“ segir Þórður Ásgeirsson.
Furðulegt uppátæki
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fiskur Það eru aðallega síld og loðna, sem er flutt héðan til Rússlands. Út-
flutningurinn nemur tugum þúsunda tonna á ári.
‘07 70ÁR Á FLUGI
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
W W W. I C E L A N DA I R . I S
MADRID
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
REYKJAVÍK
AKUREYRI BERGEN
GAUTABORG
*Á mann í tvíbýli á Copley Square Hotel *** í Boston 26.–29. apríl og 29. nóv.–2. des.
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting.
Ferðaávísun gildir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
65
68
0
3
/0
7
FLUG OG GISTING Í 3 NÆTUR FRÁ 54.900* KR.
FENWAY
„Þú ert ekki maður með mönnum nema að kíkja á Fenway sem er leikvangur hafnaboltaliðsins
Boston Red Sox. Þetta er einn elsti leikvangur Bandaríkjanna og er þess vegna lítill og frekar lúinn.
Það gerir hann þó bara þeim mun meira sjarmerandi. Pylsur og bjór eru það eina
sem kokkurinn mælir með þar.“
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is
NÝI BÆKLINGURINN ER KOMINN ÚT
BORGMÍN
BOSTON
ALLT AÐ TVISVAR Á DAG Í SUMAR
MAGNÚS EÐVALD BJÖRNSSON
DOKTOR Í TÖLVUNARFRÆÐI