Morgunblaðið - 08.03.2007, Page 19

Morgunblaðið - 08.03.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2007 19 MENNING LACE sokkabuxur fylgir hverri Oroblu vöru Kaupauki á n‡ju sumarvörunum frá Oroblu í Lyfju í dag, á morgun og laugardag: Stuttermabolur Föstudag, kl. 13-17 á Smáratorgi Föstudag, kl. 13-17 á Laugavegi Fimmtudag, kl. 14-18 í Gar›abæ Fimmtudag, kl. 14-18 í Setbergi Laugardag, kl. 12-16 í Smáralind BANDARÍSKA söngkonan Dolly Parton hélt tónleika í Horsens í Danmörku síðastliðinn þriðjudag. Tónleikarnir voru þeir fyrstu í nýrri Evrópu- tónleikaferð am- erísku kántrídív- unnar. Reyndar eru um 28 ár síð- an Dolly hélt síð- ast tónleika á Norðurlöndunum og aðdáendur hennar á norð- urslóðum því búnir að bíða augna- bliksins lengi. Úlfhildur Flosadóttir var meðal þeirra sem sóttu tónleikana og seg- ir stemninguna þar hafa verið „ríf- andi“. „Það var því mikil eftirvænting og spenna var í salnum áður en tón- leikarnir byrjuðu, og var fólk byrj- að að klappa 10 mínútum áður en Dolly steig á svið,“ segir Úlfhildur. „Á fyrri hluta tónleikanna tók Dolly nokkur vinsæl „bluegrass“ lög. Þó virtist svo sem viðstaddir væru ekki allir í stuði, hugsanlega vegna þess að þeir þekktu ekki lög- in og tónleikarnir fóru því rólega af stað.“ Dolly brást þó ekki skyldum sínum og söng líka þekkt lög eins og „Jolene“ og „Coat of Many Co- lors“, sem fengu gríðargóðar und- irtektir að sögn Úlfhildar. „Í seinni hálfleik var meira um lög sem almenningur þekkti. Þar á meðal voru; „Here You Come Ag- ain“, „Islands in the Stream“ og „Apple Jack“. Allir sungu með og klöppuðu og voru í fullu fjöri, en það var ekki fyrr en komið var að laginu „9 to 5“ að allt varð brjálað og húsið nánast skalf,“ segir Úlf- hildur. Dolly Parton heldur 22 tónleika í Evrópuferðinni, sem nær til Norð- urlandanna, Hollands og Bretlands- eyja, og uppselt er á þá alla, nema á tónleika á Wembley í Lundúnum 19. mars. Dolly í Danmörku Í fyrsta sinn í 28 ár Dolly Parton JENNA Bush, dóttir George W. Bush Bandaríkja- forseta, mun skrifa bók sem byggist á reynslu hennar sem kauplaus lærling- ur hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF, í löndum Rómönsku-Ameríku. Bókin, sem nefnist Saga Önnu: Vonarferð (Ana’s Story: A Journey of Hope) mun hverfast um 17 ára mun- aðarlausa, einstæða móður með HIV-smit. HarperCollins-útgáfan hefur fest sér útgáfuréttinn fyrir ótilgreinda upphæð sem talinn er nema andvirði um 20 milljóna króna, samkvæmt því sem fram kemur í breska dagblaðinu The Guardian. Mun „hluti“ af hagnaði bæði höfund- arins og útgáfufyrirtækisins renna til bandarískrar landsnefndar UNI- CEF. „Vinna mín með ungu fólki í Mið- og Suður-Ameríku hefur fyllt mig mikilli andagift,“ er haft eftir Bush. „Þetta unga fólk hefur mátt þola ótrúlegt harðræði og mismunun en býr yfir miklum krafti og sterkum vilja til að ná langt. Það er von mína að með bókinni takist mér að hvetja unga Bandaríkjamenn til að með- taka betur annað ungt fólk í heim- inum, að kynna sér þær áskoranir sem það glímir við, hvernig það sigr- ast á mótlæti og til að leggja sitt að mörkum til að hjálpa þeim.“ Stefnt er að útgáfu með haustinu. Bush skrifar bók Jenna Bush HLJÓMSVEITIN Drep held- ur tónleika á veitingahúsinu Dillon í kvöld. Á efnisskránni verða gömul og ný lög. Frítt er á tónleikana sem hefjast klukk- an 23. Sveitin var stofnuð í Kaupmannahöfn fyrir tæpum tíu árum og hefur gefið út eina plötu, Dr.Ep., sem út kom árið 2001. Hljómsveitin hefur hins vegar legið í dvala í nokkur ár. Liðsmenn sveitarinnar eru einnig þekktir fyrir verk sín með hljómsveitum á borð við HAM, Hún Andar, Bless og Sororicideen. Þetta eru þeir Kristinn Magnússon, Flosi Þor- geirsson, Pétur Þórðarson og Unnar Bjarnason. Tónlist Hljómsveitin Drep snýr aftur á Dillon Flosi Þorgeirsson RÚNAR Helgi Vignisson flyt- ur í dag fyrirlestur undir yf- irskriftinni „Gengið í Barn- dóm, vikið að Vansæmd“ klukkan 16.30 í Lögbergi. Er erindið þáttur í fyrirlestraröð- inni „Þýðing öndvegisverka“ á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Rúnar Helgi mun segja frá glímunni við bókmenntaverk frá fjarlægum og framandi menningarheimi í tengslum við þýðingar sínar á verkum suður- afríska nóbelsverðlaunahafans J.M. Coetzee en hann hlaut m.a. Íslensku þýðingarverðlaunin 2005 fyrir þýðingu sína á Barndómi eftir Coetzee. Fyrirlestur Rúnar Helgi ræðir þýðingar á Coetzee Rúnar Helgi Vignisson FÉLAG þjóðfræðinga á Ís- landi stendur fyrir þjóðlaga- tónleikum undir yfirskriftinni „Konan“. Tilefnið er alþjóð- legur dagur kvenna. Mun hljómsveitin Funi, skipuð þeim Báru Grímsdóttur og Chris Foster, flytja þjóðlög frá Ís- landi og Englandi. Þau Bára og Chris syngja, leika á gítar, kjöltuhörpu (kantele), langspil og íslenska fiðlu. Auk þess fylgir myndasýning tónlistarflutningnum. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu og hefjast klukkan 20. Miðaverð er 1.500 krónur og er vakin athygli á því að ekki er kortavél á staðnum. Tónlist Þjóðlög á alþjóð- legum degi kvenna Bára Grímsdóttir Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is „OKKUR finnst mikilvægt að bæta umfjöllun um heimildarmyndir við þá vakningu í óhefðbundinni kvik- myndagerð sem átt hefur sér stað á Íslandi undanfarið,“ segir kvik- myndafræðingurinn og listamað- urinn Emiliano Monaco um metn- aðarfull markmið nýstofnaðs félags um heimildarmyndagerð, Reykjavík Documentary Workshop (RDW) „Við viljum vera leiðandi afl meðal heimildarkvikmyndagerðarfólks hér á landi og ryðja brautina fyrir al- þjóðlegt samstarf,“ heldur Emiliano áfram en til félagsins hefur hann stofnað ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mann- fræðingi, og heimspekingnum Að- alheiði Guðmundsdóttur. Leikstjórar með námskeið Til að ná settu marki hyggst fé- lagið m.a. reglulega bjóða til lands- ins virtum heimildarmyndaleik- stjórum sem auk þess að vera viðstaddir sýningu eigin mynda munu leiða námskeið í list heimild- arkvikmyndagerðarinnar. Þegar hafa tveir leikstjórar haldið nám- skeið á vegum félagsins; rússnesk- hollenski leikstjórinn Aliona van der Horst kom með mynd sína Raddir Bam (Voices of Bam), um eftirmál mikils jarðskjálfta í borg- inni Bam í Suður-Íran, og í síðustu viku var hinn ísraelski Micha X. Peled viðstaddur sýningu á mynd sinni China Blue. „Námskeiðin eru öllum opin en þó sérstaklega ætluð kvikmynda- gerðarfólki, listamönnum og nem- endum í kvikmyndafræðum og list- um,“ útskýrir Emiliano. „Fyrstu námskeiðin tókust mjög vel en næst mun hin sænska Malin And- erson halda námskeið í tengslum við myndina Belfast-stúlkur (Bel- fast Girls).“ Mánaðarlegar sýningar „Ég skipulagði námskeið við Há- skóla Íslands um heimildarmyndir, sem er hluti af meistaranámi í hag- nýtri menningarmiðlun og hefur námsbrautin styrkt námskeiðin. Svo stendur einnig til samstarf við ReykjavíkurAkademíuna og Listaháskóla Íslands,“ svarar Emil- iano spurður um fjármögnun á starfsemi félagsins. „Svo hefur Kvikmyndamiðstöð Íslands styrkt okkur. Við erum ekki enn búin að fjármagna allt árið en þó hluta af því. Okkur finnst mikilvægt að RDW verði sjálfstætt félag en vilj- um mjög gjarnan vera í samstarfi við aðila úr fjölbreyttum áttum.“ Félagið mun sömuleiðis standa fyrir mánaðarlegum sýningum á at- hyglisverðum heimildarmyndum. Segir Emiliano þær sýningar í sam- vinnu við annað nýstofnað kvik- myndafélag, Fjalaköttinn, og fara þær fram í Tjarnarbíói. Hann segir það einnig eitt af metnaðarmálum félagsins að koma á fót safni bóka, myndbandsspólna og mynddiska sem tengist heimild- armyndum með einum eða öðrum hætti. Vöntun á slíku efni sé enda mikil á Íslandi. „Í dag samanstendur safnið af um 30–35 bókum og öðru eins af myndum. Það er sem stendur stað- sett í vinnuaðstöðu minni hjá Sam- bandi íslenskra myndlistarmanna en við erum á höttunum eftir stærra húsnæði til að hýsa það í framtíðinni,“ segir hinn geðþekki Ítali og ítrekar að lokum að safnið standi öllum opið. Heimur heimildarmynda Nýstofnað félag vill auka umræðu um heimildarmyndir á Íslandi og hyggst m.a. standa fyrir reglulegum sýningum og heimsóknum virtra leikstjóra til landsins Morgunblaðið/ÞÖK Stofnendur Emiliano Marco og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, tveir þriggja stofnenda heimildamyndafélagsins Reykjavík Documentary Workshop. Í HNOTSKURN » Markmið RDW er að kynnaáhuga- og fagfólki á Íslandi nýjar víddir í heimildarmynda- gerð. » Hinn 29. mars nk. mun MalinAnderson halda námskeið á vegum RDW og fjalla m.a. um mynd sína Belfast-stúlkur þar sem fylgst er með tveimur ung- um konum, mótmælanda og kaþ- ólikka. » Næsta mynd sem sýnd verð-ur á vegum félagsins í Tjarn- arbíói er I for India eftir Sand- hya Suri, 12. mars nk. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.