Morgunblaðið - 08.03.2007, Side 22

Morgunblaðið - 08.03.2007, Side 22
Glæsileg 145 fm 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð með gluggum í þrjár áttir í þessu eftirsótta lyftu- húsi við Efstaleiti auk sérstæðis í bílgeymslu og sér geymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í forstofu með fataherb. innaf, hol, stórar og bjartar samliggjandi stofur með útgangi á verönd til suðurs og vesturs, rúmgott eldhús með góðri borðað- stöðu, 2 herbergi og baðherbergi sem er endurnýjað að hluta. Útgangur á verönd úr hjónaherbergi. Hlutdeild í mikilli sameign m.a. sundlaug, gufubaði og líkamsræktarsal. Verðtilboð. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Efstaleiti - Breiðablik Glæsileg endaíbúð daglegtlíf Náttúruvörur má markaðssetja sem náttúrulyf eða fæðubót- arefni. Mikill munur getur verið á þessum vörum. » 24 neytendur Plastinarium nefnist verkstæði og sýningarrými tileinkað mannslíkamanum sem er í þýska bænum Guben. » 23 sýning Fjósakona fer út í heim er yf- irskriftin á ferðabloggi Hug- rúnar Geirsdóttur sem ferðað- ist um Austur-Evrópu. » 23 ferðalög Pabbi átti eiginlega hugmyndina. Ég ætlaði að saumaþennan kjól fyrir árshátíð skólans og þegar pabbivarpaði því óvænt fram í miðjum saumaskapnum hvort þetta væri ekki tilvalinn fermingarkjóll fannst mér það alveg fáránlegt og spurði hvort hann væri eitthvað klikkaður. En ég var svo ánægð með kjólinn að smátt og smátt komst ég að því að þetta væri ekki svo galin hug- mynd hjá pabba,“ segir Íris Kristinsdóttir sem ætlar að fermast í Grafarvogskirkju í lok þessa mánaðar og skarta kjól sem hún hefur saumað sjálf. „Ég er ekkert vön að sauma, ég hef reyndar saumað náttbuxur og eitthvert smádót í skólanum í handavinn- unni. En mig langaði til að prófa að sauma kjól og ég fékk frænku mína og mömmu til að aðstoða mig við það erfiðasta. Þetta hefur gengið mjög vel og var hvorki erfiðara né auðveldara en ég hélt. Ég byrjaði á honum fyrir þremur vikum og hef eiginlega bara haft tíma til að sauma um helgar, því það er mikið að gera í skólanum og svo fer líka tími í fermingar- fræðsluna og dansæfingar, en ég er að æfa djassballett.“ Íris segist hafa ráðfært sig við saumakennarann sinn í Rima- skóla þegar hún fékk hugmyndina að því að sauma kjól. „Hún sýndi mér nokkur snið og ég var mjög fljót að sjá hvaða snið ég vildi. Mamma fór og fékk nokkrar efnisprufur og ég sá líka strax hvaða efni ég vildi þegar hún sýndi mér þær, það var bara þetta eina efni sem höfðaði til mín.“ Kjóllinn er mjög vandaður, allur fóðraður og hvaðeina. „Það var mjög erfitt að sauma fóðrið saman, því það er svo sleipt og rennur til. Svo þurfti ég að sauma í höndunum þegar ég var að falda kjólinn og það var svolítið seinlegt, en það var samt ekkert mál.“ Íris segir að jafnaldrar hennar séu margir hverjir hissa á þessu framtaki hennar, en flestum finnist það sniðugt. „Ég losna líka við ves- enið sem fylgir því að fara búð úr búð og leita að fermingarfötum,“ segir Íris sem ætlar að spara kjólinn fína fram að fermingu og því fer hún ekki í honum á árshátíð skólans eins og til stóð í upphafi. „Ég hefði farið í honum ef árshátíðin hefði verið eftir fermingu.“ Morgunblaðið/Kristinn Vandvirk Saumaskapurinn gekk vel hjá Írisi. Saumar sjálf ferming- arkjólinn sinn „Ég losna við vesenið sem fylgir því að fara búð úr búð og leita að kjól.“ Komin í klæðin fín Íris getur verið stolt af kjólnum sínum. |fimmtudagur|8. 3. 2007| mbl.is UMFERÐARKEILUR, ormagangur og líkamsskrið eru frasar sem iðk- endum kaos-þjálfunar ættu að vera vel kunnir – en svo nefnist nýjasta líkamsræktaræðið í New York. Kaos-þjálfunin er að sögn banda- ríska Vogue-tískublaðsins „líkams- ræktaræði sem ætlað er að hrista upp í rútínubundinni líkamsrækt“ en fullt er í alla kaos-tíma í hinum vinsælu Exinox-líkamsrækt- arstöðvum í borginni. Og ef gægst er inn í tíma bíður fyrir innan al- gjör ringulreið – enda halda höf- undar tímanna, dr. Paul Jurvis og Lashaun Dale því fram að þeir séu lauslega byggðir á kaos-kenning- unni – þ.e. að að því virðist tilvilj- anakenndar aðgerðir geti á end- anum leitt til fyrirfram ákveðins markmiðs. Það eiga a.m.k. fæstir því að venjast að drykkjarrör, um- ferðarkeilur, blöðrur fylltar af helí- umi og stiga sé að finna í líkams- ræktarsal, en allir þessir hlutir hafa verið notaðir í kaos-tímum. „Stærsti hluti tímans byggist á því sem við köllum „kaos-verkefni“ og þau breytast í viku hverri,“ hef- ur breska blaðið Guardian eftir Dale. „Hverri æfingu er strax fylgt eftir af annarri gjörrólíkri.“ Eitt verkefnið felst þannig m.a. í því að ná 30 helíumfylltum blöðrum niður úr loftinu eins fljótt og hægt er. „Þátttakendur þurfa að sýna frumkvæði – sumir fara upp á axlir annarra, en aðrir hlaupa að skápn- um og ná í stigann: það skiptir ekki máli hvora leiðina þeir velja af því að þær nýta báðar líkama og huga.“ Ringulreið í ræktinni Morgunblaðið/Þorkell Líkamsrækt Það eru nokkuð ólík hinum hefðbundnu lóðum, tækin sem notuð eru í kaos leikfiminni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.