Morgunblaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 24
neytendur 24 FIMMTUDAGUR 8. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 8. mars - 11. mars verð nú verð áður mælie. verð Egils pilsner 500 ml ............................. 39 49 78 kr. ltr Egils appelsín 500 ml .......................... 39 69 78 kr. ltr Bónus ferskur heill kjúkl. kryddaður ....... 479 719 479 kr. kg KF lambalæri einiberjakryddað .............. 1.069 1.604 1.069 kr. kg Myllu heimilisbrauð 375 g .................... 69 98 184 kr. kg Bónus fetaostur 250 g ......................... 179 229 716 kr. kg Chicago örbylgjupizzur 4 stk.................. 398 672 99 kr. stk. Freschetta pizzur 3x400 g..................... 599 799 499 kr. kg KF hrásalat 350 g ................................ 98 159 280 kr. kg KF kartöflusalat 350 g.......................... 98 159 280 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 8. mars - 10. mars verð nú verð áður mælie. verð Svínabógur úr kjötborði ........................ 498 600 498 kr. kg Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.498 1.878 1.498 kr. kg Nauta innralæri úr kjötborði .................. 2.198 2.818 2.198 kr. kg Nauta rib eye úr kjötborði ..................... 2.398 2.818 2.398 kr. kg Ali partískinka ..................................... 1.416 1.888 1.416 kr. kg Ali léttreyktar grísakótilettur .................. 1.255 1.673 1.255 kr. kg Kjúklingabringur frá Matfugli ................. 1.760 2.513 1.760 kr. kg FK ís vanillu og súkkulaði 1ltr ................ 125 206 125 kr. ltr Pepsi max 2ltr ..................................... 89 149 45 kr. kg Pampers duo+active blautklútar............ 1.398 1.763 1.398 kr. stk. Hagkaup Gildir 8. mars - 11. mars verð nú verð áður mælie. verð Nautalundir íslenskar úr kjötborði.......... 2.998 3.753 2.998 kr. kg Lambainnralæri úr kjötborði.................. 1.998 3.095 1.998 kr. kg Svínarifjasteik...................................... 562 699 562 kr. kg Hamborgarhryggur m/beini................... 957 1.594 957 kr. kg Underground 3 teg. af ís 850 ml ........... 600 750 705 kr. ltr Krónan Gildir 8. mars - 11. mars verð nú verð áður mælie. verð Grísasnitsel ......................................... 877 1.594 877 kr. kg Nautahakk .......................................... 787 1.124 787 kr. kg McCain franskar 900g.......................... 299 374 332 kr. kg Hatting brauð Filonino/Panino 420 g..... 299 374 712 kr. kg Skyr.is 7 tegundir, 170 g, 6 fyrir 4 ......... 40 61 235 kr. kg Delon barnasápa og krem 425 ml......... 59 129 139 kr. kg Best Bite Snakk 4 tegundir 175 g.......... 199 234 1137 kr. kg Truly Unique Vöfflur Orginal 390 g.......... 229 281 587 kr. kg Nóatún Gildir 8. mars - 11. mars verð nú verð áður mælie. verð Kindainnlærisvöðvi............................... 1.698 2.249 1.698 kr. kg Kindasnitsel ........................................ 998 1.689 998 kr. kg Kindagúllas ......................................... 898 1.589 898 kr. kg Kindafille ............................................ 1.998 2.339 1.998 kr. kg Þykkvabæjar plokkfiskur ....................... 468 712 780 kr. kg Þykkvabæjar kartöflugratín ................... 262 374 437 kr. kg Hatting Veggen speltbrauð.................... 399 459 50 kr. stk. Frigodan brokkolíblanda....................... 399 440 532 kr. kg VS lífrænt spelt pasta........................... 319 375 1123 kr. kg Enricós Lífrænt pastasósa basil/tóm ..... 239 281 324 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 6. mars - 6. mars verð nú verð áður mælie. verð Goða lifrapylsa................................... 554 738 554 kr. kg Goða ofnsteik m/ítölskum blæ ............ 1.244 1.777 1.244 kr..kg Borgarnes sítrónukryddað lambalæri.... 1.361 1.945 1.361 kr.kg Borgarnes kindabjúgu......................... 440 629 440 kr.kg Borgarnes skólaskinka 165 g .............. 149 219 903 kr.kg Matfugl kjúklingaleggir magnkaup ....... 395 609 395 kr.kg Matfugl kjúklingavængir magnkaup...... 182 281 182 kr.kg Ísfugl Buffalo vængir........................... 198 360 198 kr.kg Kellogg’s Just Right 500 g................... 299 421 598 kr.kg Myllu orku brauð 500 g....................... 159 241 318 kr.kg helgartilboðin Orkubrauð og plokkfiskur Náttúrulyf og fæðubótar-efni er sitt hvor vöru-flokkurinn þó báðirflokkar geti í daglegu tali kallast náttúruvörur. Á öðrum vöruflokknum skal hins- vegar standa „náttúrulyf“ og á hin- um „fæðubótarefni“, en efast má um að allir geri sér grein fyrir að þarna getur verið mikill munur á. Og enn flækist málið þegar í ljós kemur að sama jurtin er ýmist markaðssett sem náttúrulyf eða fæðubótarefni, til dæmis á það við um náttúruvöruna Ginkgo biloba eða musteristré, sem fólk tekur inn sér til heilsubótar, að sögn Brynhildar Briem, fagstjóra á matvælasviði Umhverfisstofnunar. „Í stuttu máli má segja að helsti munurinn á náttúrulyfi og fæðubót- arefni sé sá að sækja þarf um mark- aðsleyfi til að markaðssetja það fyrr- nefnda, en nóg er að tilkynna markaðssetningu þess síðarnefnda. Náttúrulyfjum þurfa að fylgja upp- lýsingar um klíníska verkun og þannig er neytandanum tryggð meiri verkun. Út frá neytendavernd- arsjónarmiði má því segja að æski- legt væri að þeir, sem vilja markaðs- setja náttúruvörur, sem hafa sannanlegt klínískt notagildi, myndu sækja um markaðsleyfi nátt- úrulyfja,“ segir Brynhildur. Þrátt fyrir að náttúruvörur megi markaðssetja annaðhvort sem nátt- úrulyf eða sem fæðubótarefni eru gerðar mun meiri kröfur til nátt- úrulyfja en til fæðubótarefna. Frá árinu 2004 hafa fæðubótarefni verið skilgreind sem matvæli. Umsjón með þeim er hjá matvælasviði Umhverfisstofnunar og markaðs- eftirlitið er í höndum heilbrigðiseft- irlits sveitarfélaga. Náttúrulyf falla aftur á móti undir verksvið Lyfja- stofnunar. En hvernig á hinn al- menni neytandi að geta áttað sig á muninum á þessum efnum? Náttúruvörur Náttúruvörur geta verið unnar úr örverum, plöntu- eða dýrahlutum en algengast er að um plöntur sé að ræða. Ýmist er notuð öll plantan eða hluti hennar, eins og blöð, rót eða aldin. Þessar vörur geta verið unnar á ýmsan hátt eins og með þurrkun, mölun eða útdrætti. Í útdrætti eru iðulega notuð hjálparefni eða síun til að ná virkum efnum úr jurtinni og búa til eins konar þykkni, sem inni- heldur mun meira af virku efni í hverju grammi heldur en jurtin sjálf og hefur jafnvel aðra eiginleika. Sama náttúruvaran getur ýmist verið markaðsett sem almenn mat- væli eða fæðubótarefni, t.d. grænt te. Ef það er selt á hefðbundinn hátt í tepokum er um að ræða almenn matvæli. En sé beitt aðferðum til að ná virkum efnum úr því og fylla þau í hylki er hægt að markaðssetja græna teið sem fæðubótarefni. Þá geta náttúruvörur einnig inni- haldið efni sem hafa lyfjavirkni og eru þá ekki matvæli. Leiki vafi á því hvort einstök efni eða efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr um það samkvæmt lyfjalögum og hægt er að kynna sér þessa flokkun á heimasíðu stofnunarinnar, www.lyfjastofnun.is undir „vöru- flokkun“. Náttúrulyf Hrein einangruð efni úr nátt- úrunni geta ekki fallið undir skil- greiningu á náttúrulyfjum. Sækja þarf um markaðsleyfi fyrir náttúru- lyfjum til Lyfjastofnunar og það er ekki veitt nema fyrir liggi ítarlegar upplýsingar um vöruna, meðal ann- ars tegund og magn innihaldsefna og upplýsingar um klínískt notagildi eða langa reynslu eða hefð fyrir notkun vörunnar. Gerðar eru kröfur um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð og gæðaeftirlit. Þegar náttúrulyf eru markaðssett skal varan merkt með áletruninni „náttúrulyf“ og hverri pakkningu skal fylgja fylgiseðill með upplýsingum fyrir neytandann þar sem fram kemur hverjum varan er ætluð, ábendingar, frábendingar, skammtastærðir og viðvaranir ef við á. Við markaðssetningu náttúrulyfja er heimilt að merkja og auglýsa ábendingar um notkun. Sum nátt- úrulyf má eingöngu selja í lyfjabúð- um en önnur eru einnig seld í heilsu- búðum og matvöruverslunum. Alls eru níu náttúrulyf markaðssett með markaðsleyfi hér á landi, en þrjú af þeim innihalda sömu jurtina, svokall- aða Jóhannesarjurt. Fæðubótarefni Fæðubótarefni eru skilgreind sem matvæli, sem eru ætluð sem viðbót við venjulegt fæði og eru með hátt hlutfall af vítamínum, steinefnum eða annars konar efnum sem hafa næringar- eða lífeðlisfræðileg áhrif. Þessi efni geta verið ein sér eða blönduð saman, og eru markaðssett í formi skammta svo sem töflur, pill- ur, hylki, duftpokar, vökvapúlur, dropaglös og í öðru svipuðu formi vökva eða dufts sem er ætlað til inn- töku í mældum, smáum skömmtum, segir Brynhildur. Hin virku efni í fæðubótarefnum geta því annars vegar verið vítamín eða steinefni og hins vegar önnur virk efni, eins og til dæmis áð- urnefndar náttúruvörur. Af sérstökum ákvæðum sem kraf- ist er við markaðssetningu fæðubót- arefna má nefna að gerðar eru kröf- ur um hreinleika efnanna og sérstakar merkingar. Til dæmis skal standa á vörunni að um fæðubót- arefni sé að ræða. Auk sérákvæð- anna gilda um fæðubótarefni sömu reglur og almennt um önnur mat- væli. Óheimilt er að eigna fæðubót- arefnum þá eiginleika að fyrir- byggja, vinna á eða lækna sjúkdóma eða gefa í skyn slíka eiginleika. Ekki þarf að sækja um leyfi til markaðssetningar fæðubótarefna, en þegar þau koma á markað í fyrsta sinn skal tilkynna um þau til Um- hverfisstofnunar. Sem dæmi um fæðubótarefni má nefna ýmsar vítamíntöflur, blöndur af vítamínum og steinefnum, Gin- seng, Ginkgo, hvítt te og blómafrjó- korn. Meiri kröfur gerðar til náttúrulyfja en fæðubótarefna Morgunblaðið/Sverrir Brynhildur Briem Óheimilt er að eigna fæðubótarefnum að fyrirbyggja eða lækna sjúkdóma. Náttúruvara Grænt te má t.d. selja sem al- menn matvæli í te- pokum eða sem fæðu- bótarefni í hylkjum. » Sækja þarf um markaðs- leyfi til að mark- aðssetja náttúru- lyf, en nóg er að tilkynna mark- aðssetningu fæðubótarefna. Náttúruvörur má mark- aðssetja sem náttúrulyf eða sem fæðubótarefni. Brynhildur Briem, fag- stjóri á matvælasviði Umhverfisstofnunar, sagði Jóhönnu Ingv- arsdóttur að mikill mun- ur gæti verið á þessum vörum og oft erfitt fyrir hinn almenna neytanda að átta sig á honum. Í HNOTSKURN »Um náttúrulyf gildirreglugerð um markaðs- leyfi náttúrulyfja nr. 684/1997 og samkvæmt henni skulu þau innihalda eitt eða fleiri virk efni, sem unnin eru á einfald- an hátt úr plöntum, dýrum, ör- verum, steinefnum eða söltum. » Markmið með reglugerð-inni um fæðubótarefni nr. 624/2004 er m.a. að veita neyt- endum vernd og koma í veg fyrir viðskiptahindranir milli landa Þetta er fyrsta greinin af nokkrum í greinaflokki sem er samstarfs- verkefni matvælasviðs Umhverf- isstofnunar og Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.