Morgunblaðið - 08.03.2007, Page 30

Morgunblaðið - 08.03.2007, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 8. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FAGNA ber umfjöllun um sam- gönguáætlun fyrir tíma- bilið 2007 til 2018 sem nú er til meðferðar á Al- þingi. Samgöngumálin koma okkur öllum við og því er nauðsynlegt að sem flestir láti í ljós álit sitt ef vera mætti til þess að áætlunin þjóni enn betur tilgangi sínum. Rétt er að minna á að mikil vinna hefur verið lögð í þá tillögu til þings- ályktunar sem þessi samgönguáætlun er. Hún hefur farið fram á vegum samgönguráðs sem í sitja flug- málastjóri, siglinga- málastjóri og vega- málastjóri auk fulltrúa samgönguráðuneytisins. Þarfir eru skilgreindar, sett eru fram markmið og leiðir sem fara á til að ná þeim markmiðum og um leið er fjárhagshlið- inni stillt upp, þ.e. hversu mikið fé þarf til verkefna og hvaðan það kemur. Mörg og brýn verkefni Nokkur umræða hefur orðið um skiptingu framkvæmdafjár milli höf- uðborgarsvæðis og landsbyggðar. Þeir sem búa úti á landi telja of naumt skammtað þangað og íbúar höf- uðborgarsvæðisins vilja fá verkin unnin hraðar þar. Þetta er skiljanleg togstreita að vissu marki og ekki óeðlileg. Annars vegar er höfuðborg- arsvæðið með sína þungu og vaxandi umferð sem krefst stöðugrar fjárfest- ingar og hins vegar landsbyggðin þar sem mörg og brýn verkefni eru óunn- in. Sé litið á skiptingu framkvæmda- fjár samgönguáætlunar áranna 2007 til 2010 renna rúm 37% þess til verk- efna á höfuðborgarsvæðinu (kjör- dæmin þrjú) en 63% til verkefna úti um land. Í tólf ára áætluninni er hlut- fall fjárveitinga á höfuðborgarsvæð- inu orðið rúm 40% en tæp 60% úti á landi. Afkastageta samgöngukerfisins er einkum takmörkuð á höfuðborg- arsvæðinu og næsta nágrenni þess og ástandið hefur heldur farið versnandi. Því er brýnt að herða enn róðurinn við framkvæmdir þar. Ætla má þó að umferðarástand á höfuðborgarsvæð- inu standist samanburð við sambæri- leg borgarsvæði í nágrannalöndum. Markmið framkvæmda á höf- uðborgarsvæðinu eru að mestu skilgreind í samræmi við svæð- isskipulag höfuðborg- arsvæðisins. Umferð og þörf fyrir fjárfest- ingu ræðst af íbúaþró- un og skipulagi byggð- ar og voru gögn úr svæðisskipulaginu höfð til hliðsjónar við mat á framkvæmdaþörf svæðisins. Ljóst er þó að fjárhagsrammi sam- gönguáætlunar leyfir ekki að öllum þessum framkvæmdum verði lokið á áætlunartíma- bilinu. En markmið fyrir árin 2007 til 2018 er að byggja og end- urbæta vegi og brýr á höfuðborgarsvæðinu í þeim mæli að umferð- arástand versni ekki frá því sem er í dag. Aðalatriðið er þó í mínum huga að horfa á samgönguáætlunina í heild. Allt sem verða má til framfara í samgöngu- málum kemur langflestum lands- mönnum til góða. Umbætur á vega- og gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins greiðir íbúum þess leið og jafnframt gestum af landsbyggðinni og erlend- um ferðamönnum. Á sama hátt hljóta íbúar höfuðborgarsvæðisins og aðrir ferðamenn að fagna hverri sam- göngubót í hvaða landshluta sem vera skal. Þetta á við umbætur á sviði flug- mála, siglingamála og vegamála því flest notum við samgöngumannvirki á öllum þessum sviðum. Fjárfestingum í vegakerfinu er að stærstum hluta ætlað að uppfylla lág- markskröfur sem gera verður til grunnnetsins á landsbyggðinni og hins vegar að auka afkastagetu vega- kerfisins á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er að skipta fram- kvæmdafénu milli þessara tveggja þátta en nokkuð ljóst er að við mun- um seint ná því að uppfylla óskir allra á þessu sviði. En með vaxandi hlutfalli vegafjár í næstu samgönguáætlun getum við horft með bjartsýni fram á veginn. Samgönguáætlun er í þágu allra landsmanna Sturla Böðvarsson skrifar um skiptingu fjár til samgöngumannvirkja »Með vaxandihlutfalli vegafjár í næstu samgönguáætl- un getum við horft með bjart- sýni fram á veginn. Sturla Böðvarsson Höfundur er samgönguráðherra. ALÞJÓÐLEGUR baráttudagur kvenna er haldinn hátíðlegur í dag. Jafnréttismál eiga að sjálfsögðu að vera til umfjöllunar og sýnileg á þeim degi og reyndar sérhvern dag á meðan við erum sammála um að enn sé talsvert langt í að fullt jafnrétti hafi náðst með konum og körlum hér á landi og meðal annarra þjóða. Þessi dagur undir- strikar jafnframt mik- ilvægi alþjóðlegs sam- starfs á sviði jafnréttismála. Við Íslendingar get- um verið stoltir af mörgum skrefum sem við höfum stigið í jafnréttisátt. Ég er nýkominn af fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York en Ísland skipar nú í fyrsta sinn sæti Norðurlandanna í nefndinni til og með árinu 2008. Íslendingar voru mjög áberandi á fundinum og við efndum í fyrsta sinn til sérstakrar íslenskrar málstofu um jafnrétt- ismál með þátttöku frjálsra fé- lagasamtaka og sérfræðinga. Þar vakti til dæmis frásögn Margrétar Pálu Ólafsdóttur af Hjallastefnunni mikla athygli og kynning Ingólfs V. Gíslasonar, sérfræðings á Jafnrétt- isstofu, á fæðingarorlofi feðra. Þá vorum við jafnframt í forgrunni í sameiginlegri málstofu með Norð- mönnum og Dönum þar sem fjallað var um fæðingarorlof feðra. Sér- staka athygli vakti yfir 90% þátttaka íslenskra feðra í fæðingarorlofi en frændþjóðir okkar á Norðurlöndum búa enn við mun minni þátttöku en við hér á landi. Við getum verið stolt yfir þessari einstöku þátttöku ís- lenskra feðra í umönnun barna sinna. Ég vænti þess að hún muni hafa víðtæk og jákvæð áhrif til fram- búðar á samfélagið okkar almennt og á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og stuðli að því að jafna launamun kynjanna og hafa áhrif á starfsval þeirra. Á fundi kvennanefndar Samein- uðu þjóðanna óskuðu margir eftir samstarfi við okkur Ís- lendinga á sviði jafn- réttismála og segja má að eftirspurn sé eftir útrás okkar á því sviði. Fulltrúar Evrópuríkja sýndu áhuga á sam- starfi við Íslendinga á þessu sviði og jafn- framt óskuðu fulltrúar þróunarríkja eftir sam- starfi við okkur á sviði jafnréttismála og mun ég beita mér fyrir við- ræðum við utanrík- isráðherra um mögu- leika á því. En þrátt fyrir góðan árangur og mikilvæg skref megum við Íslend- ingar ekki sofna á verðinum. Í gær kynnti ég nýtt frumvarp til jafnrétt- islaga sem samið er af þverpólitískri nefnd undir forystu Guðrúnar Er- lendsdóttur, fyrrverandi hæstarétt- ardómara. Þar er að finna mörg ný- mæli og ég tel að formaðurinn hafi unnið afrek með því að ná í meg- inatriðum sátt um nýtt jafnrétt- islagafrumvarp sem færir okkur nýrri og betri tæki en áður til þess að vinna að jafnrétti kynjanna hér á landi. Nú mun frumvarpið verða sett í almenna umsögn á heimasíðu félags- málaráðuneytisins og í framhaldi af því verður farið yfir athugasemdir og frumvarpið sett í endanlegan búning fyrir framlagningu fyrir Al- þingi næsta haust. Þetta mál er þess eðlis að eðlilegt er að sem flestir fái tækifæri til þess að tjá sig um efni þess og hafa áhrif á það. Sá kynbundni launamunur sem kom fram í könnun Capacent Gallup síðastliðið haust er að mínu mati brýnasta viðfangsefni jafnréttismála í dag. Niðurstöðurnar staðfesta í senn stöðnun í tæplega 16% launa- mun kynjanna en birta okkur hins vegar nýja sýn sem fram kemur í viðtölum við stjórnendur og launa- fólk. Svo virðist sem ungar konur séu ákveðnari en áður í að krefjast sjálfsagðs réttar síns bæði að því er varðar stjórnunarstöður og laun og er það vel. Jafnframt kom fram í niðurstöðum könnunarinnar að karl- ar væru nú ekki síður frá vinnu vegna veikinda barna en konur og að meirihluti þeirra sem þátt tóku í launakönnuninni og þeirra sem svöruðu Gallupvagninum töldu breytingar á fæðingarorlofslögunum hafa bætt stöðu kvenna á vinnu- markaði til muna. Þetta er vissulega jákvætt. Ég hef rætt við aðila vinnumark- aðarins, fulltrúa SA, ASÍ, BHM, Sambands íslenskra sveitarfélaga, og fjármálaráðuneytið um aðgerðir til að vinna gegn launamun kynjanna. Í kjölfarið standa nú yfir viðræður um víðtæka samvinnu þessara aðila og gerð yfirlýsingar og aðgerðaáætlunar um jafnlaunamál. Ég bind miklar vonir við slíka sam- vinnu enda er grundvallaratriði að allir taki höndum saman, að bæði stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar- ins leggi sitt af mörkum til að ná raunverulegum árangri. Til hamingju með daginn, konur og karlar. Sátt um mikilvæg skref í jafnréttisbaráttunni Magnús Stefánsson skrifar í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna » Sá kynbundni launa-munur sem kom fram í könnun Capacent Gallup síðastliðið haust er að mínu mati brýn- asta viðfangsefni jafn- réttismála í dag. Magnús Stefánsson Höfundur er félagsmálaráðherra. ALÞJÓÐLEGUR baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti á sér langa sögu. Hér á landi er hefð fyrir því að Menningar- og friðarsamtökin MFÍK hafi frumkvæði að því að minnast dags- ins og mörg undanfarin ár hefur það verið í samvinnu við ýmis fag- og stéttarfélög. Dag- skráin er venjulega lit- uð af því sem efst er á baugi á hverjum tíma hér heima eða í heims- málum, eftir því sem undirbúningshópur kemur sér saman um hverju sinni. Fundirnir eru þekktir fyrir að vera kraftmiklir, vekja fólk til umhugsunar og senda ákveðin skilaboð út í samfélagið. Í ár standa 19 samtök að fundinum og yfirskrift- in er Virkjum kraft kvenna. Eins og titillinn gefur til kynna verður horft til þess hvað konur gera eða gætu gert til að taka á málum. Valið er ekki eingöngu með eða á móti virkjunum, heldur hvaða krafta á að virkja. Ennþá er full þörf fyrir 8. mars, jafnvel í okkar ríka Íslandi. Auðvitað hafi ýmsar breytingar orðið á högum kvenna. Jafnvel svo mjög að sumir halda að misrétti gegn konum heyri fortíðinni til – að minnsta kosti í þró- uðum löndum. Þessar hugmyndir hafa því miður slævt nokkuð sam- stöðu í kvennabaráttu og í bylgju peningahyggju hafa ýmis velferðar- og jafnréttismál hlotið verulegan aft- urkipp. Við sem trúum því að öðruvísi heimur sé raunverulegur möguleiki viljum nota 8. mars, alþjólegan bar- áttudag kvenna fyrir friði og jafnrétti, til að horfa gagnrýnum aug- um á samfélagið. Við hvetjum alla til að spyrna við fótum og virkja sameiginlega krafta til að skapa nýj- an heim jafnaðar. Undanfarin ár hefur heimur ófriðar færst nær ströndum okkar og íslensk stjórnvöld eyða fjármunum í framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og nýlega voru lög um íslenska frið- argæslu lögð fyrir Alþingi. Full ástæða er til að minna á að stríð og ófriðarbrölt stuðlar ekki að jafnrétti og hefur aldrei bætt kjör kvenna. Þá skulum við muna að það ekki náttúrulögmál að konur séu betri menn en karlar og konur í valdastöð- um, sem leggja kvenleikann til hliðar, fleyta málstað jafnréttis lítið fram á veg. En þrátt fyrir að leiðin sé löng skulum við stefna að því að allir dagar verði jafnréttisdagar. Á fundinum í dag flytur Harpa Njáls erindi sem byggist á rann- sóknum hennar: Hvað þarf til að rétta hlut fátækra kvenna? Frelsi til að vera fátækur er innlegg Maríu Kristjánsdóttur. Pálína Björk Matt- híasdóttir talar um gildi Grameen- banka fyrir fátækar konur og Gunnar Hersveinn talar um friðarmenningu. Þá tala Ezster Tóth, fulltrúi Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Guð- ríður Ólafsdóttir, félagsmálafulltrúi Öryrkjabandalags Íslands, og María S. Gunnarsdóttir, formaður Menn- ingar- og friðarsamtaka MFÍK. Hall- dóra Malin Pétursdóttir leikkona flytur brot úr einleiknum „Power of Love“. Guðrún Hannesdóttir, hand- hafi Ljóðstafs Jóns úr Vör, les ljóð og Áshildur Haraldsdóttir leikur á flautu. Í hliðarsal verða sýndar ljósmyndir sem Harpa Stefánsdóttir og Ármann Hákon Gunnarsson tóku af konum á Indlandi og sýnd verður myndröðin: Konur á Íslandi í lífi og starfi, sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur unnið. Jafnréttis- og friðarsinnar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn sem verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst kl. 17. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti María S. Gunnarsdóttir skrifar í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna » Alþjóðasamstaðasem hefur gefið kon- um víða um heim styrk til að standa upp í heimalöndum sínum. María S. Gunnarsdóttir Höfundur er formaður Menningar- og friðarsamtaka MFÍK. GREIN Þorkels Helgasonar orkumálastjóra með yfirskriftinni „Stjórnkerfið og vistvænir bílar – Morgunblaðið úti að aka?“ birtist á bls. 29 í Morgunblaðinu í gær. Þar er fjallað um tillögur stjórnskipaðs stýrihóps svokallaðs Vettvangs um vistvænt eldsneyti um að öll gjöld á bíla og notkun þeirra verði bein- tengd við losun þeirra á koltvísýr- ingi og annarri mengun. Vegna mis- taka féll niður sá kafli greinarinnar sem innihélt umræddar tillögur, en án þeirra verður blaðagreinin ill- skiljanleg. Tillögurnar voru birtar í skýrslu undir heitinu Stefna Íslend- inga í eldsneytismálum einka- bifreiða. Tillögur um aðgerðir stjórnvalda. Skýrsluna má finna í heild sinni á vef Orkustofnunar ásamt kynningarefni, sjá www.os.is/ page/vve. Á bls. 32 í skýrslunni eru settar fram tillögur, sem sjá má á með- fylgjandi mynd, sem orkumálastjóri vitnar til í fyrrgreindri blaðagrein. Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Tillögur stýrihóps Vett- vangs um vistvænt eldsneyti Að mótuð verði sú stefna að endurskoða í heild opinber gjöld af ökutækjum með það að markmiði (a) að skilgreina og afmarka sérstaklega gjöld fyrir notkun á vegakerfinu og aðra þjónustu við umferðina (veggjöld) og (b) að tengja öll önnur gjöld af stofnkostnaði, árlegri notkun og eldsneytisnotkun við losun á koltvísýringi en innbyrðis samsetning gjaldanna verði með þeim hætti, að þau leiði til sem mests samdráttar í losun á koltvísýringi og annarri mengun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.