Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 1
fimmtudagur 5. 4. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
US Masters: Phil Mickelson segir að Tiger Woods sé kóngurinn >> 4
ERFITT HJÁ ENSKUM
MANCHESTER UNITED TAPAÐI Í RÓM OG CHELSEA
GERÐI JAFNTEFLI VIÐ VALENCIA Á HEIMAVELLI >> 2
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson landsliðs-
maður í knattspyrnu og leikmaður þýska
liðsins Hannover getur ekki leikið með sín-
um mönnum á laugardaginn þegar þeir
taka á móti meistaraliði Bayern München.
Gunnar Heiðar á enn við nárameiðsli að
stríða sem urðu þess valdandi að hann
missti af leik íslenska landsliðsins gegn
Spánverjum í Mallorca í síðustu viku.
Gunnar Heiðar, sem gekk í raðir Hann-
over frá sænska liðinu Halmstad síðastliðið
sumar, hefur verið sérlega óheppinn hvað
meiðsli varðar en hann missti af nær öllum
fyrri hluta tímabilsins vegna þeirra.
,,Þetta er allt að koma. Ég er búinn að
vera í meðferð hjá lækni í Berlín sem hefur
gefið góða raun og vonandi sér nú fyrir
endann á þessu. Ég missi því miður af leikn-
um á móti Bayern München. Það hefði verið
frábært að fá að spila á móti Bæjurunum en
ég verð að fá mig alveg góðan og geta sýnt
hvað í mér býr í stað þess að vera nánast á
öðrum fæti. Vonandi verð ég klár um miðj-
an mánuðinn þegar við mætum Stuttgart,“
sagði Gunnar Heiðar við Morgunblaðið í
gær en hann hefur aðeins verið með í sjö
leikjum liðsins af 27 í 1. deildinni á tíma-
bilinu.
,,Maður hefur lært heilmikið á þessu
fyrsta ári. Þetta er búinn að vera erfiður
tími en ég reyni að taka þessu létt, brosa í
gegnum þetta og koma sterkur til leiks á
næsta tímabili.“
Gunnar Heiðar ekki með Hannover gegn Bayern
Morgunblaðið/Ómar
Með undirtökin Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í Haukum sigruðu
Keflavík, 87:78, í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik. Hér sækir Helena að körfu Keflvíkinga. » 3
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Eftir páskana fara tveir síðustu leik-
irnir fram hjá HSG Sulzbach/Leid-
ersbach í deildarkeppninni en þótt
því takist halda núverandi stöðu
sinni og verða efst deildinni þá er
það langt í frá öruggt um keppnis-
rétt í efstu deild á næstu leiktíð. Að
deildarkeppninni lokinni tekur við
úrslitakeppni þar sem HSG Sulz-
bach/Leidersbach mætir liðinu sem
hafnar í fjórða sæti, takist HSG
Sulzbach/Leidersbach að vinna
deildina. Um leið mætast liðin sem
hafna í öðru og þriðja sæti í úrslita-
leikjum. Sigurliðin úr þessum rimm-
um leika síðan til úrslita um sæti í
efstu deild. Eitt lið fer upp í 1. deild
úr suðurhluta 2. deildar og annað úr
norðurhlutanum. Eivor og félagar
standa vel að vígi takist þeim að
vinna deildina og hafa þar með
heimaleikjarétt í síðari úrslitaleikj-
um um sæti í deildinni sem leiknir
verða í maí.
Eivor fór að leika með HSG Sulz-
bach/Leidersbach fyrir nærri tveim-
ur árum þegar hún flutti með eig-
inmanni sínum, Alexander
Petersson leikmanni Grosswallstadt
og landsliðsmanni, frá Düsseldorf til
Grosswallstadt. Fyrir ári vann HSG
Sulzbach/Leidersbach 3. deildina og
í vetur hefur allt verið í lukkunnar
standi í 2. deild suður. Eivor segir að
mikið hafi verið lagt í liðið fyrir þetta
tímabil og m.a. sé uppistaða liðsins
skipuð leikmönnum sem hafa hand-
knattleik að lifibrauði, séu atvinnu-
menn, sem e.t.v. sé ekki mjög al-
gengt í 2. deildinni í þýska
kvennahandknattleiknum.
Fleiri íslenskir handknattleiks-
menn eru í herbúðum HSG Sulz-
bach/Leidersbach því Elfa Björk
Hreggviðsdóttir hefur leikið með því
undanfarin þrjú ár. Elva hefur
reyndar verið fjarri góðu gamni síð-
ustu þrjár vikur þar sem hún dvelur
á Íslandi nú vegna náms við Kenn-
araháskólann.
Mikill áhugi er á meðal fólks fyrir
leikjum HSG Sulzbach/Leidersbach
og m.a komu rúmlega 3.000 manns á
leik liðsins við TuS Metzingen fyrir
viku síðan. „Það þykir mjög góð að-
sókn á kvennaleiki. Við njótum góðs
af því að hér í kringum okkur eru
margir smábæir og ekki svo margt
við að vera hjá íbúum. Þeir eru því
fúsir að koma á leiki og mæta yf-
irleitt snemma, jafnvel tveimur tím-
um áður en leikur hefst til þess eins
að fylgjast með upphitun,“ segir Ei-
vor sem er línumaður.
Framtíðin er óviss
Eivor segir að óvíst sé hvað hún
geri komist HSG Sulzbach/Leiders-
bach upp í 1. deild. Hún hafi samning
við félagið fram á vorið og allt sé á
huldu með framhaldið verði liðið í
efstu deild á næstu leiktíð. „Ég verð
bara að sjá til hvernig leikir hjá okk-
ur falla saman við leikina hjá Alex
með Grosswallstadt. Kannski spilar
maður eitthvað með, það verður bara
að skýrast með tímanum,“ segir Ei-
vor Pála Blöndal, handknattleik-
skona hjá HSG Sulzbach/Leiders-
bach.
Allt lagt í sölurnar
til að fara upp
Eivor Pála Blöndal, eiginkona Alexanders Peterssonar,
gerir það gott með HSG Sulzbach/Leidersbach
Eivor Pála Blöndal Elfa Björk Hreggviðsdóttir
„ÞAÐ gengur mjög vel og okkur
vantar aðeins sigur til þess að vinna
aðra deildina,“ sagði Eivor Pála
Blöndal, handknattleikskona hjá
þýska liðinu HSG Sulzbach/
Leidersbach og fyrrverandi leik-
maður Vals. Liði hennar hefur
vegnað afar vel á leiktíðinni, unnið
16 leiki gert þrjú jafntefli og tapað
aðeins þremur og situr í efsta sæti
suðurhluta 2. deildar þegar tvær
umferðir eru eftir. „Stefnan er sett
á að fara upp í 1. deildina og tals-
vert hefur verið lagt í sölurnar til
þess að það markmið náist,“ sagði
Eivor í samtali við Morgunblaðið í
gær, en hún var þá að ganga út af
æfingu hjá liðinu.