Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Phil Mickel-son frá Bandaríkjunum, sem hefur titil að verja á Mast- ersmótinu, og Adam Scott frá Ástralíu verða saman í ráshóp fyrstu tvo keppn- isdagana á Augusta vellinum ásamt Skotanum Richie Ramsay sem sigr- aði á opna bandaríska áhuga- mannameistaramótinu á s.l. ári. Það er venja að sigurvegarinn á Mast- ersmótinu leiki í ráshóp með áhuga- kylfingi fyrstu tvo keppnisdagana. Tiger Woods verður í ráshóp með Paul Casey frá Englandi og Aaron Baddeley frá Ástralíu.    Brett Quigley frá Bandaríkjunumhefur í nógu að snúast á Mast- ersmótinu en hann yfirgaf Augusta völlinn í gær á 11. holu á æfinga- hring þar sem hann fékk þær fréttir að eiginkona hans væri farin á fæð- ingardeildina. Quigley náði í tæka tíð áður en dóttir þeirra kom í heim- inn og mun hann hefja leik á Mast- ersmótinu í dag.    Skotinn Colin Montgomerie ereinn af fáum kylfingum mótsins sem er sannfærður um að hann geti ekki sigrað á Mastersmótinu. „Monty“ sagði þetta eftir fyrsta æf- ingahringinn á Augusta. „Ég get í mesta lagi leikið á 70 höggum og ef 8 högg undir pari duga til þess að vinna þá á ég kannski möguleika. Hinsvegar er ég ekki nógu högg- langur og innáhöggin hjá mér eru ekki nógu há til þess að ég eigi möguleika,“ sagði Montgomerie.    Bjarni Þór Viðarsson lék allanleikinn með varaliði Everton sem sigraði Newcastle, 2:1, í deild- arkeppni varaliða. Skoski landsliðs- maðurinn James McFadden skoraði bæði mörk Everton en hann er að komast í gott form eftir að hafa ver- ið frá vegna fótbrots síðustu mán- uðina.    Bo Henriksen, danski knatt-spyrnumaðurinn sem lék með ÍBV í fyrra og þar áður með Fram og Val, hóf þjálfaraferilinn vel um síðustu helgi. Henriksen var í vetur ráðinn þjálfari og leikmaður Bröns- höj sem sat á botni 2. deildar í Dan- mörku. Með hann í fremstu víglínu vann Brönshöj óvæntan útisigur á Slagelse, 2:1, í fyrsta leik sínum eftir vetrarfríið og komst úr fallsæti deildarinnar. Henriksen skoraði ekki en Thomas Maale, sem lék með Val 2003, sá um bæði mörkin.    Íslendingaliðinu Malmö FF er spáð4.-5. sæti í sænsku úrvalsdeild- inni í kvennaflokki í knattspyrnu í ár. Sérfræðingar telja 44 prósent líkur á að Umeå verji titilinn en Lin- köping kemur næst með 25 prósent möguleika og Djurgården með 13 prósent. Malmö og Kopparberg/ Göteborg koma þar á eftir með 7 prósent. Þær Ásthildur Helgadóttir og Dóra Stefánsdóttir leika með Malmö FF, sem mætir Bälinge á útivelli í fyrstu umferðinni 11. apríl.    Ekkert verður af árlegum meist-araleik Íslands og Færeyja í knattspyrnu þar sem FH og HB náðu ekki samkomulagi um leikdag. Á vef stuðningsmanna FH segir Jón Rúnar Halldórsson formaður knatt- spyrnudeildar FH að KSÍ hafi ekki staðið í stykkinu við að koma leikn- um á og undanfarin tvö ár hafi FH haft veg og vanda af þessum leikjum við Færeyingana, ásamt því að bera kostnað af þeim. Á vef HB er hins- vegar sagt að samskipti við Íslend- inga vegna leiksins, og sérstaklega við FH, hafi verið afar erfið. FH- ingar hafi einhverra hluta vegna haft lítinn áhuga á leiknum. Fólk sport@mbl.is Phil Mickelson og Tiger Woods hafa sigrað á fimm af síðustu sex Mastersmótum og eru þeir að sjálf- sögðu á meðal þeirra sigurstrang- legustu í ár. Mickelson segir að Tiger Woods sé einfaldlega besti kylfingur sög- unnar. „Ef ég næ frábærum enda- spretti á ferli mínum, og vinn 20 at- vinnumót og 7 stórmót, þá hef ég náð 50 sigrum og 10 á stórmótum. Þessi árangur mun aldrei duga til þess að komast á þann stall sem Woods er á þessa stundina. Ég hef því aldrei reynt að líkja mér saman við Tiger Woods. Það er einfaldlega ekki hægt,“ sagði Mickelson í gær. Fyrir áratug sigraði Tiger Woods á mótinu en það var í fyrsta sinn sem hann tók þátt á Masters- mótinu. Hann er yngsti sigurvegari mótsins frá upphafi en hann var 21 árs gamall og yfirburðir hans voru gríðarlegir þar sem hann var 12 höggum betri en næsti keppandi. „Ég hefði ekki náð að sigra árið 1997 ef faðir minn hefði ekki verið mér til aðstoðar. Í aðdraganda mótsins lék ég vel en á æfingadög- unum voru púttin ekki á sínum stað. Ég bað pabba að gefa mér ráð og hann sagði mér einfaldlega að fara út á völl og framkvæma,“ sagði Tiger Woods en faðir hans, Earl, lést sl. sumar. Woods hefur sigrað á alls 12 stórmótum og á þeim tveimur síðustu sem haldin hafa verið, opna breska meistaramótinu og PGA-meistaramótinu. Bandaríkin í minnihluta Í fyrsta sinn í sögunni eru banda- rískir kylfingar í minnihluta á Mastersmótinu en alls eru 47 bandarískir kylfingar en 50 kylf- ingar koma frá öðrum löndum. Fimm áhugakylfingar eru á meðal keppenda en það er samkvæmt venju. Gary Player jafnar met Arn- old Palmer á mótinu en Player hef- ur 49 sinnum tekið þátt á þessu móti og en Palmer lék 50 sinnum á Mastersmótinu. Fyrir mótið í fyrra var gríðarlega mikið rætt um breytingarnar sem gerðar voru á vellinum en í ár hef- ur engin slík umræða átt sér stað. Skiljanlega þar sem aðeins smá- vægilegar tilfærslur á teigum voru gerðar á 11. og 15. braut. Árið 2006 voru gerðar umfangsmiklar breyt- ingar á alls 6 brautum sem voru gerðar mun lengri og erfiðari fyrir högglanga kylfinga nútímans. Jim Furyk frá Bandaríkjunum er í öðru sæti á heimslistanum en hann hefur ekki áhuga á því að fá að baða sig í sviðsljósinu sem beint er að Tiger Woods efsta kylfingi heimslistans. Furyk sagði á fundi með fréttamönnum í gær að hann öfundaði ekki Woods af þeirri at- hygli sem hann fengi. „Ég kann vel við að geta farið á veitingahús með fjölskyldu minni án þess að vekja mikla athygli. Það eina sem ég væri til í að fá frá Woods væri meiri högglengd. Hann slær 30 metrum lengra en ég í upphafshöggunum og það væri gott fá lánaða 10 metra af þeirri vegalengd. Ég þarf ekki á öllum 30 metrunum að halda,“ sagði Furyk en hann varð annar á pen- ingalista PGA-mótaraðarinnar í fyrra og þrátt fyrir að hann hafi um nokkra hríð verið í öðru sæti heimslistans vekur hann litla at- hygli. Golfsérfræðingar bandaríska tímaritsins Golfdigest spá því að þeir 10 kylfingar sem eru efstir á heimslistanum þessa stundina séu þeir líklegustu til þess að fagna sigri á páskadag: Þeir eru; Tiger Woods, Jim Furyk, Adam Scott, Phil Mickelson, Ernie Els, Henrik Stenson, Vijay Singh, Geoff Ogilvy, Retief Goosen og Padraig Harr- ington. Alls hafa 18 kylfinganna aldrei áður leikið á þessu móti og 5 þeirra eru áhugamenn. Á fréttavefnum golf.com er gríð- arlega áhugaverð spá sérfræðinga þar á bæ. Davis Love III, Charles Howell, paul Casey, Tom Watson (já, þessi gamli góði Watson sem er 57 ára), Jim Furyk, Henrik Stensson, Geoff Ogilvy, Phil Mickelson og Tiger Woods eru að mati golf.com eru lík- legir til sigurs á mótinu en Aaron Baddeley frá Ástralíu er sigur- stranglegastur að mati þeirra. Baddeley er 26 ára gamall og er í 32. sæti heimslistans. Hann hefur aðeins sigrað á 5 atvinnumótum á ferlinum en að mati sérfræðinga golf.com hentar leikstíll hans gríð- arlega vel á Augusta þar sem hann getur slegið boltann hátt með járn- kylfum af löngu færi og látið bolt- ann stöðvast á hörðum flötum vall- arsins. Það halda margir að fréttavefurinn sé að grínast með að setja Tom Watson á listann en hann lék vel á Pebble Beach á PGA-mótaröðinni um miðjan febr- úar þar sem hann endaði í 19. sæti á 7 höggum undir pari vallar. Reuters Ósigrandi? Tiger Woods hefur sigrað á tveimur síðustu stórmótum í golfi og fátt kemur í veg fyrir að hann blandi sér í baráttuna á Mastersmótinu. Phil Mickelson segir að Woods sé kóngurinn PHIL Mickelson frá Bandaríkj- unum hefur titil að verja á Mast- ersmótinu í golfi sem hefst í dag á Augusta-vellinum. Alls keppa 97 kylfingar um titilinn í ár en en þetta er í 71. skipti sem mótið fer fram. Mastersmótið er eina mótið af alls fjórum stórmótum sem alltaf fer fram á sama keppnisvellinum en hin stórmótin eru opna bandaríska meistaramótið, opna breska meist- aramótið og PGA-meistaramótið. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Hinn 57 ára gamli Tom Watson er ekki útbrunnið gamalmenni          ! "!!"# "!"$ " %! !  & '!  ()*+* "* , &%' -  !     ! .!   *               /   0 122*(2 * 23* 4!5 /  0 6 7!    89 : &      : * 22*4! ;<(<=  2 *4! ;3(2<  23*4! ;)( <== $! $!   !!  ! ; >         ? @ >>          3*<2)             3*3A =*+          3=          3=   B-  ( .( !2AA &      2 .! *           !  "! # $ #!  %# $&

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.