Morgunblaðið - 13.07.2007, Side 1
föstudagur 13. 7. 2007
bílar mbl.isbílar
Fyrsti vetnisfólksbíllinn kominn til landsins frá DaimlerChrysler » 2
SKEMMTILEGUR AKSTUR
BMW Z4 M COUPÉ ER HLJÓMFAGUR OG TOGMIKILL
SPORTBÍLL MEÐ FALLEGAR LÍNUR >> 6
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Yfirvöld Evrópusambandsins
gætu senn gripið til þess ráðs í
baráttunni gegn hlýnun and-
rúmsloftsins að banna sportbíla.
Þar með færu Ferraribílar sjálf-
krafa á lista sambandsins yfir
vától.
Umræður hófust í vikunni á
Evrópuþinginu tillögu og
skýrslu sem felur í sér að bílar
sem hægt er að aka hraðar en á
162 km/klst hraða, eða 25% yfir
algengum hámarkshraða á evr-
ópskum hraðbrautum, verði
bannaðir á vegum í ESB-
löndunum frá og með árinu
2013. Undanteknir banni verði
lögreglu- og sjúkrabílar og her-
bílar.
Aðalflutningsmaður er bresk-
ur þingmaður, frjálslyndur
demókrati að nafni Chris Dav-
ies. Þýskir þingmenn í umhverf-
isnefnd þingsins boða andstöðu
við tillögur hans. „Við þurfum að
framleiða hreinustu bílana, ekki
þá hæggengustu,“ segir einn
þeirra, Karl-Heinz Florenz, sem
ekur um á Mercedes.
Hann gerir líka athugasemdir
um undantekningar fyrir bíla
sem framleiddir eru af litlum
fyrirtækjum, sem smíða innan
við 500 bíla á ári. Segir það
hygla breskum bílsmiðum.
„Hann vill kála Porsche en leyfa
mönnum að keyra Bentley óá-
reittum,“ sagði Florenz við
breska blaðið Financial Times.
Talið er að hinir 99 þýsku
fulltrúar á Evrópuþinginu af alls
785 þingmönnum muni lang-
flestir greiða atkvæði gegn til-
lögunni. Samþykkt hennar yrði
ekki bindandi en fyrirséð er að
framkvæmdastjórn ESB leggi
fram lagafrumvarp um tak-
mörkun gróðurhúsategunda frá
bílum. Verður bílafyrirtækjum
gert að smíða bíla sem gefa að
hámarki frá sér 130 grömm af
kolefni á kílómetra árið 2012 og
að magnið náist niður í 120 g/km
með notkun lífræns eldsneytis.
Til samanburðar gáfu bílar
smíðaðir 2005 frá sér 160 g/km
og rúmlega 10% alls gróð-
urhúsalofts í Evrópu er rakið til
fólksbíla.
Að mati samtaka evrópskra
bílaframleiðenda myndi það í
mesta lagi minnka útblástur
gróðurhúsategunda frá bílum að
banna hraðskreiða bíla. Chris
Davies, flutningsmaður tillög-
unnar, segir að það sé umhverf-
isleg vitfirring að aka á um-
ræddum hraða, og ólöglegt að
auki. „Þetta eru bara leikföng
stóru strákanna,“ sagði hann um
sportbílana.
Morgunblaðið/Eyþór
Vától? Porsche er meðal þeirra sportbíla sem eiga á hættu að verða bannaðir á veg-
um í ESB-löndunum frá og með árinu 2013.
Dagar
sportbílsins
senn taldir
í Evrópu?
!!