Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 7 ójöfnur í malbiki en fyrirrennarinn Z3 M Coupé var. Öll áhersla við hönnun bílsins hefur verið lögð á aksturseiginleika hans og aksturs- upplifun og þar hefur tekist sérlega vel til. Bíllinn hegðar sér óaðfinn- anlega innanbæjar en lifnar allur við þegar stefnan er tekin á fáfarinn og kræklóttan sveitaveg. Ökumaður situr mjög aftarlega í bílnum og finnst sem hann sitji hreinlega á milli afturdekkjanna en langt húdd- ið á stóran þátt í því að skapa þessa tilfinningu. Stýri bílsins er þykkt og hárná- kvæmt og þarf aðeins litlar hreyf- ingar til að bíllinn skipti um stefnu – allt eftir vilja ökumanns. Gírskiptingin er stíf, en nákvæm og virkar þannig að mjög gaman er að láta gírkassa og vél vinna saman en það hefur lengi verið aðalsmerki BMW og er þessi skipting í raun ekki svo frábrugðin því sem maður á að venjast almennt í BMW – nema auðvitað styttra á milli gíra og með mun meira afli að spila úr. Vélin er togmikil, hljómfögur og einstaklega lífleg enda býr hún yfir nógu afli. Með því að þrýsta á „sport“-hnappinn við gírstöngina má svo breyta allri hegðan bílsins úr ljúfum kraftabíl í hið mesta óarga- dýr því þá er eins og bíllinn hnykli alla sína vöðva og búi sig undir átök. Bensíngjöfin verður mun næmari og fjöðrunin stífnar og bíllinn hreinlega breytir um eðli þegar ýtt er á þenn- an ágæta hnapp. Reyndar er best að láta þennan hnapp vera innanbæjar því bíllinn verður öllu erfiðari við- fangs með hann á, og því er ekki eins auðvelt að aka mjúklega – enda ekki til þess ætlast á svona bíl þegar sport-hnappurinn er virkur. Bremsur bílsins eru líka magn- aðar enda eru þær frá gamla M3 CSL-bílnum sem er einn sá þekkt- asti sem BMW hefur sent frá sér og var síðasti harðkjarnabíllinn á und- an Z4 M Coupé. Þessi blanda trygg- ir að M Coupé er t.d. fljótari að aka Nordschleife-brautina alræmdu í Þýskalandi en síðasta kynslóð BMW M3. Bremsurnar eru líklega mik- ilvægasti þátturinn í því, ásamt fjöðrun og svo auðvitað driflæsingu sem er staðalbúnaður í bílnum, en þar gæti Porsche lært ýmislegt af BMW því mikið hefur verið kvartað undan að Cayman S hafi ekki drif- læsingu. BMW Z4 M Coupé er því bíll sem hefur flest það sem þarf að prýða sportbíl. Undirritaður kann af- skaplega vel við línur bílsins og tel- ur þennan bíl einn þann best heppn- aða sem BMW hefur sent frá sér ásamt hinum topplausa bróður hans. Spurning um stíl og notkun Það er hins vegar ljóst að bíladell- an þarf að vera á háu stigi til að taka M Coupé fram yfir t.d. Z4 M Roads- ter í sömu útgáfu. Sætin eru bara tvö og við íslenskar aðstæður, þar sem ekki er hægt að þeysa mikið á meðan engin er brautin til að leika sér á, væri líklega hægt að hafa enn meiri ánægju út úr BMW Z4 M Roadster. Hvað stíl varðar hallast ég þó að M Coupé. Eigandi bíls af þessu tagi sendir ákveðin skilaboð um smekk, fágun og fleira í þeim dúr og sýnir líka að hann, eða hún, lætur sér í léttu rúmi liggja hvað öðrum finnst. Sportbílar vekja oft blendnar til- finningar hjá fólki en öllum sem komu nálægt Z4 M Coupé meðan á reynsluakstrinum stóð þótti hann hreint út sagt æðislegur. Kröftugur Geysilega kröftugur bíll en á sama tíma afskaplega öruggur enda útbúin góðum bremsum frá M3 CSL. Breiður Bíllinn er breiður að sjá og allsstaðar eru í honum sérstakar línur. Afturljósin eru sérstök en þó ekki allra. Púströrin fjögur gefa til kynna hverskonar afl er falið undir húddinu. Smátriði Í BMW M Coupé er mikið lagt allskonar smáatriði sem geta komið eigandanum og öðrum sem bílinn sjá á óvart. ingvarorn@mbl.is Vél: sex strokka línuvél, 3,2 l. Afl: 343 hö. Eldsneytisnotkun: 12.1 l/100km CO2-útblástur: 292 g/km Snerpa: 5 sek. upp í 100 km/klst. Dekk: 225/45 R18 - 255/40 R18. Drif: Afturdrif með drif- læsingu. Þyngd: 1495 kg. Staðalbúnaður: Xenon- ljósabúnaður, leðursæti, leiðsögutæki, sjónvarp, bakkskynjarar o.fl. Verð á þessu eintaki: 8.300.000 kr. Umboð: B&L BMW Z4 Forester 2.590.000,- Forester PLUS 2.890.000,- Forester LUX 3.190.000,- Subaru Forester sameinar það besta úr fólksbíl og jeppa. Hann er lipur í akstri eins og fólksbíll en hefur dráttar- og drifkraft á við marga stærri jeppa. „Mér finnst stundum eins og ég sé á tveimur bílum. Ég kemst í þröng stæði innanbæjar en dríf síðan í torfærum á landsbyggðinni eins og ekkert sé.“ Forester liggur mjög vel á veginum en er samt með mun meiri veghæð en aðrir jepplingar. Hann er á svipuðu verði og venjulegur fólksbíll þrátt fyrir að vera með 158 hestafla vél, sem er mun meiri kraftur en í mörgum stærri jeppum. „Maður er orðinn of góðu vanur á Forester. Það er í raun ótrúlegt hvað maður fær rosalega mikið fyrir lítið.“ Subaru hefur verið seldur á Íslandi í yfir 30 ár. Reynslan af bílnum við þær erfiðu og óvenjulegu aðstæður sem hér eru hefur gert Subaru að samnefnara fyrir endingu, hörku og úthald. Raunar er hvergi selt meira af Subaru miðað við höfðatölu en einmitt á Íslandi. Það ætti enginn að kaupa sér bíl án þess að koma fyrst og reynsluaka Subaru. Spyrðu bara Subarueigendur. Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega gáfulegustu bílakaup sem þú gerir: „Hey, þetta er Ísland!“ Opið: Mán. 10 - 18, þri.-fös. 9 - 18, lau. 12 - 16.Sævarhöfða 2 Sími 525-8000 Akureyri 464-7940 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Umboðsmenn um land allt 200.000 kr. ferðapakki fylgir öllum nýjum Forester. innifalið: Upphækkun, heilsársdekk og dráttarbeisli. Naumur Innrétting bílsins er hugguleg en þó ekki sérlega lúx- usleg að sjá. Allt er sniðið að akst- ursánægju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.