Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ bílar NÝ RANNSÓKN leiðir í ljós, að breskar konur hrífast mjög af blæjubílum. Um milljón konur þar í landi eiga blæjubíl og algengasta tegundin er Peugeot 206. Hlutfalls- lega flestir eru bílarnir í þéttbýli í suðausturhluta Englands en fæstir í Skotlandi. Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir breskt tryggingafélag, Dia- mond, er sérhæfir sig í að tryggja konur, eiga þrefalt fleiri konur nú blæjubíla í Bretlandi en fyrir ára- tug, eða rúm milljón. Í lok síðustu aldar og frameftir þessari var Mazda MX-5 lang- vinsælasti blæjubíllinn meðal breskra kvenna. Árið 2005 leysti Peugeot 206cc hann hins vegar af og hefur haldið fyrsta sæti síðan. Talsmaður Diamond segir að franski bíllinn hafi eiginlega hleypt blæjubílaæðinu af stað þar sem hann var mun ódýrari og mun fleiri höfðu því efni á honum. Fleiri framleiðendur hafa brugð- ist við æðinu og bjóða upp á blæju- bíla. Keppa þeir um hylli kvenna með því að spyrja hvaða blæjuþak opnist og lokist hraðast. Þar stend- ur nýi MX-5 Roadster-bíllinn vel að vígi, þak hans leggst saman á 12 sekúndum en það tekur 20 sek- úndur á 206cc-bílnum. Og það tekur enn meiri tíma á arftaka hans, Peu- geot 207cc, eða 25 sekúndur. Morgunblaðið/Golli Sumarlegur Blæjubílar njóta mikla kvenhylli í Bretlandi. Breskar konur hrífast af blæjubílum Ágúst Ásgeirsson VERKFRÆÐISTÚDENTAR í Cam- bridge í Englandi hafa smíðað bíl sem talar til eigandans, eða vél- virkjans, ef svo ber undir. Byggist hann á Fiat Stilo-bíl. Bíllinn getur tjáð vélvirkja hvað virkar og hvað ekki í gangverki og búnaði hans. Senda vélarhlutar frá sér tiltekna hljóðrunu sem segir til um ástand þeirra. Af þeim má og ráða hvort viðkomandi hlutur hafi verið þjónustaður eða ekki og eins hvort borgi sig að hirða hann eða ekki ef bíllinn er á leið til niðurrifs. Verkfræðisveitin á að sögn tíma- ritsins Auto Express í samningum við „nokkur fyrirtæki“ um að selja þeim þessa talandi tækni. Morgunblaðið/Golli Málglaður Bíllin getur tjáð vél- virkja hvað virkar og hvað ekki. Smíða „tal- andi“ Fiat SÝSLUMAÐURINN í Nott- inghamskíri á Englandi, söguslóð- um Hróa hattar, hefur skorið upp herör gegn ökuföntum og eig- endum hraðskreiðra bíla. Til að uppræta hávaða sem fylgir metingi er slíkir mætast hefur verið gripið til þess ráðs að banna samkomur hraðskreiðra bíla. Frá og með nýliðnum mán- aðamótum og fram í júní árið 2009 verða hvers konar samfundir fimm eða fleiri akandi eða kyrrstæðra bíla bannaðir í Nottinghamskíri. Mega þeir heldur ekki aka saman í hóp eða reyna með sér á vegum. Til bannsins er gripið til að auka á umferðarsiðferði í sýslunni sem þótt hefur heldur losaralegt. Gerð var mun vægari ráðstöfun í október í fyrra sem lítinn árangur hefur borið. Lögregla mun fylgjast með því í eftirlitsmyndavélum sem víða er að finna hvort bannið sé virt. Getur hún gripið fljótt inn í rísi ein- hver „Hrói“ upp gegn sýslumanni. Þannig sást um miðjan mánuð í myndavélum til þriggja unglinga spreyta sig á mótorhjóli í bæ nokkr- um í sýslunni. Lögregla skundaði á staðinn og í ljós kom að þótt eigandi hjólsins væri tryggður til að aka því voru hinir unglingarnir það ekki. Gerði hún mótorhjólið upptækt og krafðist 200 punda lausnargjalds, auk þess sem eigandinn var sekt- aður um 80 pund á staðnum fyrir „óviðeigandi orðbragð“. Morgunblaðið/Kristinn Porsche Hraðskreiðir bílar eru ekki vel séðir í Nottinghamskíri. Sker upp herör gegn hraðskreið- um bílum LO R E M IP SU M B O X H JÓ LA G R IN D U R T O P P B O G A R www.stilling.is // stilling@stilling.is Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur | Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður Draupnisgata 1, 600 Akureyri | Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000 Upplifðu Ísland með THULE ferðavörum. Margvíslegar lausnir fyrir mismunandi þarfir. Allar upplýsingar um ferðaboxin er að finna á vef Stillingar www.stilling.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.