Morgunblaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ LANDGRÆÐSLUFLUG- VÉLIN Páll Sveinsson flýgur ekki á þessu vori eins og undanfarin 34 ár. Hvers vegna? 1. Engin þörf lengur fyrir áburðardreifingu á örfokaland við gróð- urmörk hálendisins? 2. Allt land upp- grætt og kominn tími til að leggja flugvélinni því engin frekari verk- efni fundust fyrir þetta afkastamikla tæki lengur við að styrkja gróður lands- ins? 3. Flugvélin úrsér- gengin og borgar sig ekki að endurnýja hana fyrir þessi óþörfu verkefni? 4. Flugmenn ekki til staðar, of dýrir og áhugalausir um þetta þjóð- þrifamál? 5. Engir flugvirkjar til staðar til að sinna venjubundnu viðhaldi og skoðunum á gamla þristinum? 6. Engir peningar til í þjóðfélag- inu til þess að halda þessu 34 ára verkefni áfram? Sem sagt, allt búið, og öllu fjármagni og vinnu und- anfarinna áratuga hent út í busk- ann? Svarið við þessum spurningum öllum er auðvitað NEI, nei nei, ekki aldeilis. Þörfin er enn fyrir hendi og í raun ekki minni en áður, landið þarfnast enn frekara átaks við að styrkja gróðurþekjuna á við- kvæmum stöðum þar sem tækjum á landi verður illa eða ekki við komið. Flugvélin Páll Sveinsson, sem er í eigu íslenska ríkisins, þ.e. íslensku þjóðarinnar, er í stórfínu standi og sjaldan betri til að takast á við landgræðsluverkefni sumarsins. Flugmenn í Félagi íslenskra at- vinnuflugmanna eru mjög áhuga- samir um að fljúga Páli Sveinssyni næstu sumur við áburðardreifingu fyrir ekki eina krónu. Alger- lega frítt fyrir ánægj- una við að halda við og bæta gróðurfarið á há- lendinu. Flugvirkjar eru og áhugasamir um að halda þessum aldna flugkosti við fyrir land og þjóð. Peningar hafa aldrei verið meiri til í þjóðfélaginu til þess- ara hluta, og því gott tækifæri nú til að skila landinu til baka því sem við höfum oftekið af því um aldir þegar óblítt veðurfar, fátækt og hungur landans neyddi þjóðina til þess að ganga freklegar að land- gæðunum en réttlætanlegt var til þess að þjóðin lifði af á þessu harð- býla landi fyrir tæknibyltinguna á 20. öld. Ég skora á nýjan landbún- aðarráðherra að taka þetta mál nú upp sem allra fyrst, því sumarið er jú komið, landið hrópar á áburð mjög víða, þar sem sandfok eyðir gróðurþekjunni ef engin næring kemur. Flugvélin Páll Sveinsson er í fínasta lagi, flugmenn þurfa að halda við hæfni sinni á þessa flugvél með flugi hvert sumar og einnig flugvirkjar með viðhaldi og skoð- unum. Þetta glatast allt á 2-3 árum ef flugvélinni er lagt nú. Þótt Guðni Ágústsson, fyrrver- andi landbúnaðarráðherra, sé á stundum skemmtilegur, þá var hann það ekki við Landgræðslu- flugvélina Pál Sveinsson. Hafði eng- an áhuga, þrátt fyrir áskoranir, á því þjóðþrifaverkefni sem Land- græðsluflugvélin hafði verið í und- anfarna áratugi með mjög greini- legum árangri víða á heiðum og uppsveitum, og víða má sjá gróð- urrákir eftir Pál, þar sem landið er orðið sjálfbært að mestu, en þægi einhverja áburðargjöf tímabundið sem og ótalmörg önnur uppblást- urssvæði. Auðvitað er það hlutverk sameiginlegs sjóðs landsmanna að standa undir kostnaði við land- græðslu en ekki einstakra fyr- irtækja í landinu sem greiða skatta og skyldur til ríkissjóðs. Nú er lag, Einar Guðfinnsson og ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálf- stæðisflokks. Skilum landinu árlega að lágmarki 1.000 tonnum af áburði úr Páli Sveinssyni og höldum þess- ari sögufrægu flugvél á lofti fyrir komandi kynslóðir og tryggjum vor- og sumarkomu með til- komumiklu hljóði hreyflanna sem hafa yljað svo mörgum undanfarin 34 ár. Gamlir hlutir eru svo margfalt skemmtilegri komi þeir að lifandi gagni en steindauðir á safni! Vorboðinn ljúfi þagnaður Jón Karl Snorrason skrifar um landgræðslu og flugvélina Pál Sveinsson » Skilum landinu ár-lega að lágmarki 1.000 tonnum af áburði úr Páli Sveinssyni … Jón Karl Snorrason Höfundur er flugmaður og áhugamaður. FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA kom fram í fjölmiðlum til að til- kynna þjóðinni að með ákvörðun sinni um að lækka lánshlutfall íbúðalána úr 90% í 80% væri rík- isstjórnin að senda mikilvæg skila- boð til fjármálakerfisins og þjóð- félagsins í heild sinni. Hvað þýðir þetta? Hver eru þessi mikilvægu skilaboð? Verulegar skerðingar Í fyrsta lagi er rétt að leggja áherslu á að þessar hlutfallstölur segja aðeins hálfan sannleikann. Há- markslán frá Íbúða- lánasjóði eru nú 18 milljónir. Það eitt þýð- ir að íbúð má að há- marki kosta 22,5 millj- ónir til þess að kaupandi geti náð 80% hámarki. Samkvæmt auglýsingum eru fjög- urra herbergja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu nú seldar á um 30 milljónir króna. 18 milljóna króna lán er 60% af því. Lækkun lánshlutfallsins kemur að sjálfsögðu harðast niður á þeim sem eru tekjuminnst og glíma við að kaupa smæstu íbúðirnar. Kaupandi sem fékk 90% lán frá Íbúðalánasjóði til kaupa á 15 milljóna króna íbúð fékk að há- marki 13,5 milljónir króna en mun eftir síðustu breytingu ríkisstjórn- arinnar fá að hámarki 12 milljónir. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar veldur því skertum lánamöguleikum hjá þessum aðila sem nema 1,5 millj- ónum! Hvernig á hann að fjármagna skerðinguna? Væntanlega með skammtímaláni með allt að 20% yf- irdráttarvöxtum eða þá með því að taka lán með veði í eign ættingja sinna. Þetta þýðir á mannamáli aukna vaxtabyrði og meiri fjárútlát. Heggur sá er hlífa skyldi. Fleiri sperrur Ekki er sagan þar með sögð því að eitt skilyrðanna fyrir lánveit- ingum úr Íbúðalánasjóði er að lánið má ekki nema hærri upphæð en brunabótamati að viðbættu lóð- arverði. Hér eru dæmi úr raunveru- leikanum: Einstaklingur keypti ný- lega íbúð á 17,3 milljónir. Brunabótamat þessarar íbúðar var 11,5 milljónir og lóðarmat 2 millj- ónir, samtals 13,5 milljónir. Í stað þess að fá 15,5 milljónir, sem er 90% af 17,3 milljónum, fékk viðkomandi aðeins 13,5 milljónir sem að sjálf- sögðu var ekki neitt 90% lán heldur 78% lán. Annað dæmi úr raunveru- leikanum: Íbúð var seld á 15,9 millj- ónir. Brunabótamat ásamt lóð- armati er 10,7 milljónir. Í stað þess að fá 14,3 milljónir fékk viðkomandi aðeins 10,7 milljónir sem er 67% lán. Er hálf önnur milljón í vexti of lítið? Með ákvörðun sinni nú er rík- isstjórnin að torvelda aðgang að lánum Íbúðalánasjóðs, sem getur bitnað hart á millitekjuhópunum. Þeim allra lægst launuðu hefur fyrir löngu verið úthýst af eignamarkaði vegna óheyrilega erfiðra lánskjara. Eða hafa menn hugleitt að 4,8% með uppgr. þókn. og 5,05% vextir (eins og lán Íbúðalánasjóðs bera) í 4% verðbólgu jafngilda u.þ.b. 9% nafnvöxtum sem svo aftur þýðir fjármagnskostnað upp á 1,35 millj- ónir kr. á ári af 15 milljón króna láni (ódýrasta kjallaraíbúð)? Samsvar- andi kostnaður af 18 milljón króna láni eru 1,62 milljónir. Þetta þykir ríkisstjórninni ekki vera nóg, eða hvað? Ekki verður önnur ályktun dreg- in af „hinum mikilvægu skila- boðum“ félagsmálaráðherra til fjár- málakerfisins og þjóðfélagsins í heild sinni. Með því að takmarka að- gang að lánum Íbúðalánasjóðs er fólki ýtt í ríkari mæli til bankanna sem bjóða lán á hærri vöxtum en Íbúðalánasjóður. Bankarnir tóku strax skilaboðum ráðherra og ríkisstjórnar fagn- andi, fleiri kúnnar, hærri vextir! Forstjóri KB banka var mættur kampakátur í sjónvarp fáeinum klukkustund- um eftir að félagsmála- ráherra sendi út skila- boð ríkisstjórnarinnar til að skýra lands- mönnum frá því að bankinn myndi að öll- um líkindum hækka vexti sína fljótlega. Skilaboðin voru semsé meðtekin. Einfeldningsleg skýring Allt er þetta eflaust gert í þeirri trú að mik- ið framboð á láns- fjármagni á skaplegum lánskjörum þenji upp íbúðaverð. Það komi kaupendum síðan í koll. Þetta er afar einfeldningsleg skýr- ing. Eða hvernig skyldi standa á hinum gríðarlega verðmismun á suðvesturhorninu annars vegar og víða í dreifbýlinu hins vegar? Hvernig skyldi standa á því að verð á íbúðum í „álbæjum“ fer nú hækk- andi, sbr. frásögn Blaðsins 6. júlí? Skyldu framboð og eftirspurn ekki ráða þarna einhverju? Þenslu- svæðin þenja nefnilega jafnframt út verðlagið á húsnæði því alls staðar eru húsnæðislánin jafnhá. Reyndar eru þau rýmri víða í dreifðustu byggðunum – þar sem verðið er lægst – því þar er brunabótamat ekki sá þröskuldur sem það er á þenslusvæðunum þar sem markaðs- verð er umfram brunabótamat. Samfylking segir eitt en gerir annað Niðurstaðan er þessi. Ríkisstjórnin telur að lánskjör íbúðalána séu of góð, það þurfi að takmarka aðgang að lánsfé á þeim „kostakjörum“ sem Íbúðalánsjóður býður og hvetja bankana til að okra meira! Hvernig var það annars, er það ekki Samfylkingin sem tíðrætt hefur orðið um „Evrópuvexti“? En eru þeir ekki stórhættulegir? Er ekki stórhættulegt að lækka vext- ina, myndi íbúðaverð ekki margfald- ast með þeim afleiðingum að enginn gæti keypt neitt, svo hátt yrði verð- lagið? Samkvæmt skilaboðum fé- lagsmálaráðherra og hvatningu um meira okur á íbúðakaupendum mætti halda að vaxtalækkun væri af hinu illa. Mikið væri annars gaman ef Samfylkingunni tækist að vera sjálfri sér samkvæm í málflutningi sínum, þó ekki væri nema í þessum málaflokki. Okrið meira á íbúðakaupendum Ögmundur Jónasson segir skilaboð ríkisstjórnarinnar til bankanna vera að okra meira á íbúðakaupendum Ögmundur Jónasson » Samkvæmtskilaboðum félagsmálaráð- herra og hvatn- ingu um meira okur á íbúða- kaupendum mætti halda að vaxtalækkun væri af hinu illa. Höundur er alþingismaður. UNDANFARIN ár hefur ferða- þjónusta verið í örum vexti á suð- austurhorni landsins. Vatnajökull er án efa stærsta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn á þessum slóðum. Enda er gjarnan talað um það á suðausturhorni landsins sé maður staddur í ríki Vatna- jökuls. Langt er síðan Hornfirðingar áttuðu sig á aðdráttarafli jök- ulsins í augum ferða- manna. Sveitarfélagið og ýmsir aðilar tengd- ir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu hafa kerfisbundið mark- aðssett Hornafjörð með skírskotun til Vatnajökuls. Allir vita að snjó- sleðaferð á Skálafellsjökul í góðu veðri er ferð sem enginn gleymir. Annað gott dæmi um markaðs- setningu og metnað Hornfirðinga tengdan Vatnajökli er Jöklasýn- ingin sem staðsett er á Höfn. Það er verkefni sem hefur heppnast ákaflega vel og við sjáum stöðuga aukningu á heimsóknum ferða- manna þangað yfir sumartímann. Einnig sjáum við stöðuga aukningu á jaðartímum ferðaþjónustunnar sem beinlínis er tengd jöklinum og aðdráttarafli hans. Af þessum sök- um þarf engan að undra þótt Horn- firðingar hafi miklar væntingar til stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs í Evrópu. Mikilvægt að hraða uppbygg- ingu stærsta þjóðgarðs Evrópu Hinu má þó ekki gleyma að und- irstöðuatvinnuvegur Hornfirðinga er sjávarútvegur og þess vegna er ljóst að sá niðurskurður á þorsk- kvóta sem sjávarútvegsráðherra hefur nú ákveðið mun hafa mjög neikvæð áhrif á atvinnulíf Horn- firðinga. Þess vegna er mjög brýnt að bregðast hratt og ákveðið við niðurskurðinum með markvissum aðgerðum. Stofnun Vatnajök- ulsþjóðgarðs og það að hraða allri uppbygg- ingu í tengslum við þjóðgarðinn kemur að mati okkar sem sitjum í bæjarstjórn sterk- lega til greina sem mótvægisaðgerð. Það eitt og sér dugir þó ekki til. Hornfirðingar hafa lengi verið þeirr- ar skoðunar að öll yf- irstjórn þjóðgarðsins eigi að vera staðsett í sveitarfélaginu og þá í Nýheimum, fræðslu- og frumkvöðlasetri Hornfirðinga. Það er einnig mat undirritaðs að starfsemi Umhverf- isstofnunar falli vel inn í hug- myndir manna um þjóðgarðinn. Þess vegna tel ég að ríkisvaldið eigi að íhuga það gaumgæfilega að staðsetja hluta starfsemi Umhverf- isstofnunar á Hornafirði til þess að vega upp á móti þeim neikvæðu samfélagslegu áhrifum sem sam- drátturinn í þorskveiðum mun hafa í för með sér. Slík ráðstöfun myndi hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir væntanlegan þjóðgarð og rík- isstjórnin myndi með slíkri ráð- stöfun sýna metnað sinn í verki gagnvart Vatnajökulsþjóðgarði. Aukin verðmætasköpun í sjávarútvegi Mikið starf hefur verið unnið á undanförnum árum á vegum Matís í Nýheimum þar sem m.a. er stefnt að því að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi. Flestir kannast sennilega við humarhótelið þar sem lifandi humar er geymdur í til- tekinn tíma eða þar til aðstæður á markaði eru hagstæðar. Þá er hann seldur ferskur oftast til landa við Miðjarðarhafið sem lúxusvara. Þetta verkefni hefur vakið gríð- arlega athygli og er þegar farið að skila árangri. Það er mjög mik- ilvægt að stjórnvöld átti sig á mik- ilvægi þess að styðja myndarlega við bakið á þróunar- og nýsköp- unarstarfi eins og þessu sem Matís á Hornafirði hefur unnið að. Þetta á ekki hvað síst við um þróun- arvinnu þar sem markmiðið er að auka verðmætasköpun í sjávar- útvegi. Til þess að það geti gengið eftir er mikilvægt að stjórnvöld fjölgi störfum í þessum geira á landsbyggðinni bæði sem mótvæg- isaðgerð vegna skerðingar þorsk- kvótans en ekki síður til þess að efla rannsóknar- og þróunarstarf á landsbyggðinni. Það styrkir stoðir atvinnulífsins á landsbyggðinni og eykur fjölbreytnina í atvinnulífinu. Þótt það sé rétt hjá sjávarútvegs- ráðherra að ekkert komi í staðinn fyrir 60 þúsund tonn af þorski er ljóst að aðgerðir eins og þær sem hér hafa verið reifaðar geta orðið til þess að styrkja innviði og grunnstoðir samfélags útgerð- arbæja eins og Hornafjarðar til framtíðar. Ekkert kemur í staðinn fyrir 60 þúsund tonn af þorski Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar um þróun ferðaþjónustu og nið- urskurð á þorskkvótanum » Það er einnig matundirritaðs að starf- semi Umhverfisstofn- unar falli vel inn í hug- myndir manna um þjóðgarðinn. Árni Rúnar Þorvaldsson Höfundur er forseti bæjar- stjórnar Hornafjarðar og oddviti Samfylkingarinnar. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.