Morgunblaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007 3 Hörður MárMagnús- son, reyndasti leikmaður HK, verður í leik- mannahópi Kópa- vogsliðsins í fyrsta skipti í sumar þegar það tekur á móti Keflavík í 13. umferð úrvalsdeildar- innar í knattspyrnu í kvöld. Hörður Már, sem er 35 ára, hefur spilað 250 deildarleiki og leikur nú sitt 20. ár í meistaraflokki, en hefur verið frá vegna meiðsla síðan í ágúst á síðasta ári. Hann lék á sínum tíma 115 leiki í efstu deild með Val og Leiftri en gekk á ný til liðs við HK 2002 og hef- ur spilað með félaginu síðan.    Helgi Sigurðsson úr Val var val- inn besti leikmaður Landsbanka- deildar karla í knattspyrnu í umferð- um 7 til 12 en niðurstaðan í valinu var kynnt í gær. Guðjón Þórðarson úr ÍA var valinn besti þjálfarinn á þessu tímabili og Kristinn Jakobs- son besti dómarinn. Þá fengu KR- ingar verðlaun sem bestu stuðnings- menn umferða 7-12.    Helgi hefur þar með unnið tvöfaltí sumar en hann var líka kjör- inn besti leikmaðurinn í fyrstu sex umferðum deildarinnar.    Úrvalslið umferða 7-12 er þannigskipað: Markvörður: Stefán Logi Magnússon, KR. Varnarmenn: Atli Sveinn Þórarinsson, Val, Sverr- ir Garðarsson, FH, Arnór S. Aðal- steinsson, Breiðabliki, Dario Cingel, ÍA. Miðjumenn: Bjarni Guðjónsson, ÍA, Arnar Grétarsson, Breiðabliki, Davíð Þór Viðarsson, FH. Fram- herjar: Helgi Sigurðsson, Val, Guð- mundur Benediktsson, Val, Sinisa Valdimar Kekic, Víkingi R.    Ókeypis aðgangur verður á leikFH og Fram í Landsbankadeild karla í kvöld, í boði Actavis. Fjöl- skyldudagur FH og Actavis hefst í Kaplakrika klukkan 16 og þar verð- ur samfelld dagskrá fram að leikn- um sem hefst kl. 19.15.    Njarðvíkingarhafa samið við bandaríska körfuknattleiks- manninn Joe Webb um að hann leiki með liðinu í vetur. Hann er 198 sentimetra hár og alhliða leikmaður. Miðherji Njarðvíkur, Egill Jónasson, hefur ekki samið við félagið á ný en hann hefur hug á því að reyna fyrir sér erlendis á næstu leiktíð. Egill er hávaxnasti íslenski leikmaðurinn en hann er um 2,14 m. á hæð. Eins og áður hefur komið fram mun Teitur Örlygsson þjálfa Njarðvíkinga en hann tók við af Ein- ari Árna Jóhannssyni. Fólk sport@mbl.is n- k ar da t- Þá n ið ð- n- l- 8 d- m- n i- sa á í ir m g að d- g að n- g, m ki Kópavogsliðið tekur á mót Keflavík í kvöld. Nýliðar HK með 11 stig í áttunda sæti en fráfarandi bikarmeistarar Keflavíkur með 18 stig í fjórða sæti. HK á leik til góða og með sigri í kvöld færi liðið í 14 stig en Keflvíkingar gætu tillt sér við hlið ÍA í þriðja sætið. Finnur Ólafsson, miðjumaður HK, verður í leikbanni, en hann var úrskurð- aður í það eftir fjögur gul spjöld 31. júlí og tekur út leikbannið núna. Keflvíkingar féllu út úr bikarnum um helgina þegar Blikar höfðu betur, Breiðablik lagði líka Keflavík í síðustu umferð deildarinnar þannig að Keflvík- ingar vilja sjálfsagt klekkja á Kópavogs- liðinu, þó svo það séu ekki Blikar að þessu sinni. Þegar liðin mættust í fyrri umferðinni unnu Keflvíkingar öruggan 3:0 sigur. Mikilvægt í Fossvoginum Það verður áhugaverður leikur í Fossvoginum þegar Víkingar taka á móti KR. Víkingar eru í sjöunda sæti með tólf stig og því ekki langt niður í botnbaráttuna en í neðsta sæti situr KR með sjö stig. Með sigri færi KR úr fall- sætinu að því gefnu að FH vinni Fram. Víkingar myndu laga stöðu sína veru- lega með sigri, væru þá komnir með 15 stig. Þegar liðin mættust í vor í Frosta- skjólinu unnu Víkingar 2:1. Síðan þá hefur margt gerst, nýr þjálfari er kom- inn hjá KR og mun Logi Ólafsson stjórna KR í sínum öðrum deildarleik í kvöld. skotið? a Blika  Fyrsti leikur rhug gegn Fylki Reuters ns í ensku úrvalsdeildinni í gær og hér er a spjaldi fór tvívegis á loft í leiknum. SENAL er með vænlega stöðu mferð forkeppni Meistara- dar Evrópu en enska liðið hafði r, 2:0, á útivelli í gær gegn rtu Prag í Tékklandi. Liðin eftir að mætast í síðari leikn- á heimavelli Arsenal. Það tók enal tíma að brjóta niður vörn rta Prag en Spánverjinn Cesc regas skoraði fyrra markið á mínútu og Aleksandr Hleb það ra rétt fyrir leikslok. Arsene ger knattspyrnustjóri Arsenal ánægður með úrslitin. „Við m gegn liði sem lagði sig í a verkefni og það var erfitt að ta niður vörn þeirra. Við vorum heppnir að fá ekki á okkur mark þegar þeir skutu í stöngina en síð- ara markið sem við skoruðum var gríðarlega mikilvægt fyrir síðari leikinn. Jens Lehmann markvörður Arsen- al átti fína spretti í leiknum og er hann greinilega búinn að jafna sig eftir mistökin sem hann gerði gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni sl. sunnudag. Arsenal með góða stöðu Arsene Wenger ÚKRAÍNUMAÐURINN Andriy Voronin skoraði glæsilegt mark fyrir Liverpool á útivelli gegn franska liðinu Toulouse í gær í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evr- ópu. Voronin tryggði enska liðinu sigur með markinu sem er hans fyrsta frá því hann kom til liðsins í sumar á frjálsri sölu frá þýska liðinu Bayern Leverkusen. Rafael Benitez knattspyrnustjóri Liverpool hrós- aði Voronin fyrir markið. „Markið var stór- kostlegt og lýsir þeim eiginleikum sem Vor- onin býr yfir. Við getum nýtt okkur styrk- leika hans á ýmsa vegu. Hann getur leikið fyrir aftan framherjana eða verið sjálfur í fremstu víglínu. Hann getur einnig verið hættulegur úti á kantinum. Við erum að sjálfsögðu ánægðir með úrslitin en verkefn- inu er ekki lokið. Tou- louse er gott lið sem sæk- ir hratt þegar tækifærin gefast. Það munu þeir reyna að gera gegn okk- ur á Anfield og það er mikilvægt fyrir okkur að halda okkur á jörðinni. Við erum ekki búnir að tryggja okkur áfram en staða okkar er góð,“ sagði Benítez. Steven Gerrard fyrirliði Liv- erpool haltraði af velli í síðari hálfleik en meiddist á ökkla en ekki er vitað hvort meiðslin séu alvarleg. „Við verðum að bíða og sjá til. Ég veit ekki hver staðan er á Gerrard,“ sagði Benítez. Benítez ánægður með Voronin Andriy Voronin MANCHESTER City vann í gær 1:0 sigur á Derby og hefur þar með unnið báða leiki sína í ensku úrvals- deildinni til þessa án þess að fá á sig mark, undir stjórn Svíans Sven- Göran Eriksson. Knattspyrnustjórinn eyddi tals- verðum upphæðum í leikmenn fyrir tímabilið, en í gær var það 19 ára gamall heimamaður, Michael John- son, sem sá um að skora. „Það var gaman að sjá uppöldu strákana. Johnson skoraði frábært mark, Mi- cah Richards spilaði einkar vel og [Stephen] Ireland átti stórkostleg- an leik,“ sagði Eriksson, sem kvaðst hlakka til nágrannaslagsins við United um næstu helgi. Aftur vann Man. City „ÞAÐ var reyndar bara eitthvað drulluslen yfir okkur í þessum leik, og við áttum í erfiðleikum með að koma inn marki. En Víkingsliðið er samt allt annað og betra nú en þegar við mættum því í fyrri umferðinni og hreinlega mjög gott fótboltalið, sagði Hjörtur Hjartarson, framherji Þróttar, sem skoraði fyrra mark liðs- ins eftir um 80 mínútna leik, í 2:0 sigri á Víkingi frá Ólafsvík á Val- bjarnarvell í Laugardal í gærkvöldi. Hann lagði einnig upp síðara markið fyrir félaga sinn, Adolf Sveinsson, stuttu áður en dómari leiksins flaut- aði af. sumar og er markahæstur. „Ég er náttúrulega með fjóra eða fimm leik- menn í kringum mig sem eru mjög duglegir við að finna mann inni í ví- tateignum, og svo er maður svo sem eldri en tvævetur í þessum bransa og veit hvar er gott að staðsetja sig,“ sagði Hjörtur, sem var þó sammála því að hugsanlega hefði verið um rangstöðu að ræða þegar hann skor- aði markið sitt. „Línuvörðurinn var í góðri að- stöðu til að sjá þetta. Ég hélt reynd- ar að ég væri rangstæður en maður stoppar ekkert heldur klárar sitt færi,“ sagði Hjörtur. Þetta var fyrsti leikurinn í 15. um- ferð fyrstu deildar karla í knatt- spyrnu, og með sigrinum komust Þróttarar í efsta sæti deildarinnar. Grindvíkingar geta þó náð toppsæt- inu á ný, sigri þeir Njarðvík annað kvöld. „Hélt að ég væri rangstæður“ „Mikilvægast er náttúrulega að koma sér upp, en mér finnst við vera með sterkasta hópinn í deildinni í dag og það væri kjánalegt ef við myndum ekki stefna á að enda á toppnum,“ sagði Hjörtur. Hann hef- ur nú skorað 14 mörk í deildinni í Morgunblaðið/Kristinn Brosa Michael Jackson, leikmaður Þróttar, virðist betur meðvitaður um um myndatökuna en Peter Ferme, leik- maður Víkings, en leikur liðanna endaði með 2:0 sigri Þróttar sem komst þar með í efsta sæti 1. deildar. „Við erum með sterkasta hópinn í deildinni í dag“ Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik Vals og Breiðabliks. Sækja þarf miðana í afgreiðslu Morgunblaðsins í Hádegismóum 2. Klippið út auglýsinguna og framvísið við afhendingu. Valur - Breiðablik Laugardalsvelli 16. ágúst kl. 19:15 býður áskrifendum á völlinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.