Morgunblaðið - 27.08.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 232. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
TÍSKAN Í DAG
FATAHÖNNUN, HÁR OG FÖRÐUN
Í HÁTÍSKUBORGINNI REYKJAVÍK >> 30
GÖNGUFERÐ 101-ÍBÚA
Á MENNINGARNÓTT
SAMTÍMINN?
ÓALANDI >> MIÐOPNA
AÐ minnsta kosti fimmtán manns
slösuðust, þar af tveir alvarlega,
þegar rúta fór út af veginum í
Bessastaðafjalli nærri Skriðu-
klaustri. Óljóst er um tildrög slyss-
ins og ekki hefur náðst að taka
skýrslur af þeim rúmlega þrjátíu
mönnum sem voru í rútunni.
Slysið varð rétt fyrir klukkan eitt
í gær. Rútan keyrði beint út af veg-
inum í brekku. Talið er að hún hafi
verið á um 60 km hraða á klst. þeg-
ar hún fór út af veginum en ekki
mátti greina nein bremsuför. Far-
þegar rútunnar voru allir erlendir
verkamenn verktakafyrirtækisins
Arnarfells sem voru á leið til Egils-
staða í eins dags frí. Voru þeir ekki í
bílbeltum þegar rútan fór út af veg-
inum.
Fjölmargir aðilar komu að björg-
unarstörfum og komið var upp
fjöldahjálparstöð í Grunnskólanum
á Egilsstöðum. Þeir farþeganna
sem hlutu einhver meiðsl voru flutt-
ir með sjúkraflugi til Reykjavíkur,
Akureyrar og Neskaupstaðar.
Lárus Bjarnason, sýslumaður á
Seyðisfirði, segir að tildrög slyssins
séu enn óljós enda hafi áherslan í
gær verið lögð á að koma öllum
mönnunum af slysstað og undir
læknishendur. Aðgerðin hafi verið
stór og samhæfingarmiðstöð al-
mannavarna í Reykjavík hafi séð til
þess að nægar bjargir hafi borist
hratt á staðinn. „Það var allt sett af
stað, bæði hér í nágrenninu og í
Reykjavík og Akureyri. Síðan var
dregið úr viðbúnaði þegar ljóst var
að við höfðum stjórn á aðstæðum.“
Aðgerðin hafi gengið vel og menn
hafi unnið hratt og örugglega.
Ljósmynd/Egill Gunnarsson
Tildrög rútuslyss óljós
Fjölmargir
slösuðust og þar
af tveir alvarlega
Slys Margt björgunarfólk dreif að slysstaðnum skömmu eftir að rútan fór út af veginum í Bessastaðafjalli.
Fjöldaslys á Austurlandi | 6
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„VIÐ eiginlega rifum þær bara upp og
hlupum með þær út,“ segir Sigurður
A. Jónsson slökkviliðsmaður sem var
fyrstur á staðinn ásamt félaga sínum
Arngrími Vilhjálmssyni, þegar kvikn-
aði í meðferðarheimilinu Stuðlum í
gær.
Mikill eldur braust út í einni álm-
unni og króuðust stúlkurnar tvær af
inni í einu svefnherbergjanna. Þeir fé-
lagar biðu því ekki boðanna heldur
köfuðu inn í svartan reykinn til bjarg-
ar stúlkunum og mátti vart tæpara
standa.
Eldtungur við útganginn
„Við fundum eldinn á undan þeim
og hann var mjög mikill við útleiðina
svo við slökktum hann eins og við gát-
um á leiðinni til þeirra.“ Fámennt var í
húsinu í gær og hafði öðru heimilis- og
starfsfólki tekist að komast út, en það
gat gefið slökkviliðinu greinargóða
lýsingu á því hvar stúlkurnar væri að
finna og það gerði gæfumuninn við
leitina enda gekk hún mjög hratt.
Þegar slökkviliðsmennina bar að
höfðu stúlkurnar skriðið undir borð
og sátu þar í hnipri undir sæng. „Það
var mikill reykur í herberginu hjá
þeim, eiginlega alveg ofan í gólf og
hitinn mikill, svo það var ekkert ann-
að í boði en að drífa þær upp, það var
bara hviss bang og út,“ segir Sigurð-
ur. Aðeins tók um 3 mínútur að kafa
inn eftir stúlkunum sem verður að
teljast góður tími, en eftir það tók við
um klukkutíma slökkvistarf.
Arngrímur Vilhjálmsson, félagi
Sigurðar, er nýliði í slökkviliðinu og
var þetta hans fyrsta reykköfun utan
æfinga og auk þess hans fyrsta líf-
björgun. Hann var að vonum ánægð-
ur með árangurinn. „Mér fannst þetta
ganga mjög vel. Við leituðum í her-
berginu eins og okkur var kennt og
svo heyrðum við í þeim, það var aldrei
spurning um hvað við áttum að gera.“
Hlutskipti reykkafara er ekki öf-
undsvert enda vinnuaðstæður afar
erfiðar vegna hita og reyks. „Við
sáum mjög lítið fyrir reyknum, við
þreifuðum okkur áfram en ég þurfti
eiginlega að halda í félaga minn til að
vita hvert við vorum að fara.“
Stúlkurnar voru fluttar á neyðar-
móttöku með reykeitrun og væg
brunasár, en reyndust ekki alvarlega
slasaðar. Mikið eignatjón varð hins-
vegar á Stuðlum.
Króaðar af
inni í eldhafi
Morgunblaðið/Júlíus
Hetjur dagsins Sigurður A. Jónsson og Arngrímur Vilhjálmsson.
Slökkviliðsmenn björguðu tveimur
ungum stúlkum úr eldsvoða á Stuðlum
Í HNOTSKURN
»Álman þar sem eldurinnkom upp hýsti lokaða deild
á Stuðlum. Því eru engir
neyðarútgangar og óbrjótan-
legt gler í gluggum.
»Miklar skemmdir urðu áálmunni og óvíst um fram-
hald á starfseminni.
»Eftir að tilkynnt var umbrunann tók það slökkvi-
liðið aðeins 6 mínútur að kom-
ast á staðinn og 3 mínútur að
koma stúlkunum út.
Hefði getað farið | 2
FRÉTTASKÝRING
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
GRUNNSKÓLABÖRN eru flest
hver sest á skólabekk að nýju, en
kennsluform er mismunandi eftir
skólum og fjöldi nemenda í bekkj-
um einnig. Sveitarfélögin tóku við
rekstri grunnskólanna árið 1996 en
meðan ríkið rak þá var hámarks-
fjöldi nemenda í bekk 22 í yngri
bekkjum en 28 í eldri bekkjum.
Í dag eru engar sérstakar reglur
um hámarksfjölda nemenda í
bekkjum. Anna Kristín Sigurðar-
dóttir, menntunarfræðingur við
Kennaraháskóla Íslands, segir að í
raun sé hið hefðbundna bekkjar-
form grunnskólanna á undanhaldi.
Það færist í vöxt að tveir eða fleiri
kennarar séu saman með stærri
hóp. Best sé ef hægt sé að hafa
hópana í sömu kennslustofu og að
þessu sé hugað í nýjum skólum á
borð við Ingunnarskóla og Korpu-
skóla. Eldra skólahúsnæði setji
stundum skorður en þrátt fyrir það
„eru menn samt að reyna þetta og
þá með svolítið öðrum hætti“. Þess-
ir nýju kennsluhættir séu meðal
annars til komnir vegna áherslu á
einstaklingsmiðað nám. Séu 2-4
kennarar saman með nemendahóp
verði auðveldara að sinna hverjum
og einum nemanda.
Börnin kynnast betur
Ingunnarskóli leggur áherslu á
að kenna nemendum í stærri hóp-
um. Guðfinna Emma Sveinsdóttir,
upplýsingafulltrúi skólans, segir
börnin kynnast betur með þessu
móti. „Þetta minnkar fordóma, þau
þekkja hvert annað, rígur minnkar,
samheldni og samhygð eykst,“ seg-
ir hún.
Skólinn er að byrja sitt þriðja ár
í núverandi húsnæði, sem hannað
var með tilliti til þess að hægt væri
að kenna á svæði þar sem gætu
verið allt að 90 nemendur. Starfið
sé í þróun og reynt sé að finna út
hvernig megi nýta húsnæðið sem
best.
Hefðbundn-
ir bekkir á
undanhaldi