Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 2

Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 2
2 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÞÓRUNN Svein- bjarnardóttir um- hverfisráðherra segir að lögfræð- ingar ráðuneytis- ins séu að fara yf- ir beiðni Péturs M. Jónassonar, vatnalíffræðings. Hann telur að úr- skurður ráðu- neytisins frá 10. maí um stjórnsýslukæru hans vegna Gjábakkavegar hafi ekki verið und- irbúinn í samræmi við gildandi lög og óskaði því eftir endurupptöku. „Við eigum eftir að taka afstöðu til beiðninnar og erum að skoða hana vel hvað varðar stjórnsýslulögin. Að öðru leyti er ekkert annað um málið að segja nú,“ sagði Þórunn. Hún minnti á að samkvæmt lögum væri úrskurður ráðherra, líkt og sá sem kveðinn var upp 10. maí síðastliðinn, endanlegur. Endurupp- taka skoðuð Þórunn Sveinbjarnardóttir Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is EINUNGIS tveimur mínútum eftir að tilkynning barst kl. 14.30 í gær um bruna í meðferðarstöðinni Stuðl- um í Grafarvogi var fyrsti sjúkrabíll- inn mættur á staðinn, og fyrsti slökkviliðsbíllinn kom innan fjögurra mínútna. Þessi stutti viðbragðstími skipti án efa sköpum við björgun tveggja unglingsstúlkna sem voru fastar inni í brennandi álmunni. Slökkviliðinu hafði strax í upphafi verið tilkynnt um stúlkurnar og fyrir vikið voru reykkafarar fullbúnir tækjum þegar á staðinn var komið og spöruðu þannig töluverðan tíma við skipu- lagningu og undirbúning. Viðvörunarkerfið bjargaði Að sögn Jóns Viðars Matthíasson- ar, slökkviliðsstjóra í Reykjavík, var það þó fyrst og fremst öflugu viðvör- unarkerfi að þakka að ekki fór verr. „Þarna hefði getað farið mjög illa en það sem hjálpaði til var að þarna var viðvörunarkerfi sem skynjaði hætt- una strax, auk þess sem starfsmenn á Stuðlum unnu þetta mjög vel og gáfu okkur mjög góðar upplýsingar frá fyrstu stundu um hversu margir voru í húsinu og hvar þeir voru,“ seg- ir Jón Viðar. Starfsmenn gátu upplýst reykkaf- arana um að stúlkurnar væri að finna í herbergjum vinstra megin í húsinu, og gátu þeir því takmarkað leitina við þann helming hússins. Björgunarmennirnir tveir gengu fumlaust til verka því rétt um þrem- ur mínútum eftir að þeir mættu á staðinn voru stúlkurnar komnar út undir bert loft, báðar með meðvit- und. Jón Viðar segir að metið sé eftir aðstæðum hvernig fólk sé flutt út úr brennandi húsum sem þessu, stund- um sé t.d. reynt að vefja viðkomandi í teppi til að hlífa þeim við hitanum og ef útgönguleiðin er löng þurfi jafnvel að gefa þeim öndunargrímu. Í þessu tilfelli var herbergið þar sem stúlkurnar höfðust við einungis í um 10-15 metra fjarlægð frá útidyr- unum, en auk þess var hitinn og reykurinn orðinn svo mikill að slökkviliðsmennirnir mátu það svo að koma þyrfti stúlkunum út án frek- ari tafa. Önnur þeirra hlaut væg brunasár auk þess sem báðar fengu snert af reykeitrun en þær eru þó báðar við ágætis heilsu að sögn vakt- hafandi læknis á Barnaspítala Hringsins, þar sem þær dvöldust í nótt. Starfsmaður reyndi að bjarga stúlkunum út Stuðlar eru meðferðarheimili fyrir unglinga og var álman þar sem eld- urinn kom upp svokölluð lokuð deild eða neyðarvistun, þar sem ungling- ar, allt að 18 ára aldri, eru vistaðir tímabundið í gæslu að beiðni barna- verndarnefndar. Vistun á lokaðri deild er þess eðlis að þar búa börn og unglingar við einangrun og eru her- bergi því ekki búin neyðarútgöngum auk þess sem nánast ómögulegt er að brjóta rúður í gluggum. Eftir að eldurinn breiddist út áttu stúlkurnar því í raun engrar undankomu auðið. Fámennt var á Stuðlum í gær, en alls munu 8 manns hafa verið í hús- inu og komust allir klakklaust út nema stúlkurnar tvær. Einn starfs- maður lagði sig í hættu í tilraun til að sækja þær inn og kláraði úr slökkvi- tæki en eldurinn breiddist of hratt út og hitinn var svo mikill að pússning var hrunin af veggjum og plast bráðnað. Að sögn Jóns Viðars brugð- ust starfsmenn rétt við að öllu leyti og með yfirveguðum hætti. Eftir að búið var að ráða niðurlög- um eldsins þurfti að reykræsta allt húsið og mæltist slökkviliðsstjóri til þess að heimilisfólki yrði útveguð önnur gisting fyrir nóttina vegna reykmengunar. Álman sjálf þar sem eldurinn kom upp er gjörónýt og ljóst að starfsemi getur ekki haldið þar áfram að sögn Sólveigar Ás- grímsdóttur, forstöðumanns Stuðla. „Ég á von á því að eftir þrif getum við haldið áfram annars staðar í hús- inu, en eðli starfseminnar þarna er allt öðruvísi svo ég sé ekki fram á að hún geti færst yfir,“ segir Sólveig. Í dag verður nánar farið yfir málin og möguleg úrræði. Vel þjálfaðir slökkviliðsmenn Sé litið til vinnubragða slökkviliðs- manna á staðnum segir Jón Viðar allt benda til þess að þjálfun slökkvi- liðsins skili sér. „Það sem okkar starf og þjálfun gengur út á er að ná fólki út við svona aðstæður en það er allt- af ánægjulegt þegar það heppnast og ég er gífurlega stoltur af mínum mönnum að hafa tekist þetta við svo erfiðar aðstæður því reykur og hiti var umtalsverður á staðnum.“ Hefði getað farið mjög illa Morgunblaðið/Júlíus Gjörónýtt Mikill eldur var í rýminu framan við herbergið þar sem stúlkurnar voru, sem sést hér til vinstri.  Alvarlegur bruni varð á meðferðarheim- ilinu Stuðlum BJÖRN Th. Björnsson, listfræðingur og rithöf- undur, andaðist á líkn- ardeild Landakotsspít- ala 25. ágúst, nær 85 ára að aldri. Björn fæddist í Reykjavík 3. september 1922. Foreldrar hans voru Baldvin Björnsson gullsmiður og Martha Clara Björnsson, fædd Bemme, húsmóðir. Björn ólst upp í Reykjavík og Vest- mannaeyjum og lauk stúdentsprófi frá MR 1943. Hann nam listasögu við Edinborgarhá- skóla, Lundúnaháskóla og Kaup- mannahafnarháskóla. Björn kenndi listasögu við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands, Kennaraskóla Íslands og síðar Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Hann var m.a. fulltrúi í útvarpsráði og í undir- búningsnefnd um stofnun íslensks sjónvarps, sat í menntamálaráði og var formaður og varaformaður Rithöf- undasambands Ís- lands. Þá var Björn forstöðumaður Lista- safns Háskóla Ís- lands. Björn var afkasta- mikill rithöfundur og liggja m.a. eftir hann bækur um íslenska listasögu og lista- menn, skáldsögur og heimildaskáldsögur, endurminningar, sagnaþættir, þjóðleg- ur fróðleikur, leikrit og þýðingar. Björn hlaut fyrstu verðlaun í skáld- sagnasamkeppni menntamálaráðs 1959 fyrir Virkisvetur og bók- menntaverðlaun DV 1988 fyrir Minningarmörk í Hólavallakirkju- garði. Eftirlifandi eiginkona Björns er Ásgerður Búadóttir myndlistar- maður. Þau eignuðust þrjú börn, Baldvin, Björn Þránd og Þórunni, sem öll lifa föður sinn. Andlát Björn Th. Björnsson Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is AÐFARANÓTT sunnudags var annasöm mjög hjá lögreglunni í Reykjavík og höfðu vaktmenn í nógu að snúast vegna útkalla. Alls komu upp tíu líkamsárásarmál, misalvarleg þó, auk tveggja innbrota, eldsvoða og ölvunaraksturs. Einn lögreglumaður varð fyrir árás í slagsmálum sem brutust út um þrjú- leytið við Gróttuheimilið á Seltjarn- arnesi, þar sem fram fóru Stuð- mannatónleikar. Dyraverðir höfðu óskað eftir aðstoð vegna þriggja manna sem vísað hafði verið af staðn- um vegna óláta. Þegar lögreglumenn hugðust fjarlægja mennina réðst að þeim annar hópur manna sem reyndi að hindra þá í störfum sínum m.a. með grjótkasti. Skemmdir á lögreglubíl Rúða brotnaði í einum lögreglubíl- anna vegna grjótkastsins auk þess sem lögreglumaður var barinn í bringuna af manni með grjóthnullung í hönd. Árásarmaðurinn tók svo á rás og kastaði áfram grjóti og flöskum í átt að lögreglumönnunum, sem náðu honum á hlaupum. Enginn meiddist alvarlega í átökunum, en sjö voru vist- aðir í fangageymslum í kjölfarið. Klukkan 2.30 var lögreglan kölluð að skemmtistað við Tryggvagötu, þar sem dyravörður hafði verið sleginn í andlitið með glerglasi og skorist illa. Árásarmaðurinn var handtekinn af lögreglu. Um klukkutíma síðar stökk ölvaður maður út úr bíl í Lækjargötu og sló vegfaranda í höfuðið með kylfu. Árásin reyndist þó ekki eins alvarleg og í fyrstu leit út fyrir. Þó nokkrir pústrar voru fyrir utan Hlégarð í Mosfellsbæ þar sem hald- inn var dansleikur í tilefni bæjarhá- tíðarinnar Í túninu heima. Að sögn lögreglu var mikill hiti í mönnum og var einn sleginn í höfuðið með flösku. Hann slasaðist þó ekki alvarlega og enginn var handtekinn. Tilkynnt var um hópslagsmál á Sportbarnum í Hafnarfirði kl. 3.20, en þegar lögreglan kom á staðinn voru árásaraðilarnir farnir af vettvangi. Árásarþolanum var ekið blóðugum á slysadeild, en hann vildi ekki tjá sig um hverjir hefðu verið að verki og var því enginn handtekinn. Þá var tilkynnt um blóðugan mann á gangi við Brimborg á Bíldshöfða og var hann fluttur á slysadeild mikið slasaður. Maðurinn, sem er af erlendu bergi brotinn, sagðist hafa orðið fyrir árás nokkurra manna, einnig er- lendra, en hann hafði að eigin sögn aldrei séð mennina áður. Litlir hópar á vaktinni Á helgarvakt sem þessari eru að sögn lögreglu að staðaldri þrír stórir bílar á ferðinni og í hverjum þeirra fjórir lögreglumenn. Milli þess sem þeir sinna útköllum er bílunum lagt í miðborginni á meðan lögreglumenn ganga um svæðið og sinna eftirliti. Slagsmál og grjótkast á lögregluna Morgunblaðið/Júlíus Í HNOTSKURN »Alls komu upp tíu líkams-árásarmál aðfaranótt sunnudags, þar af nokkur vegna hópslagsmála og ein árás á lögregluþjón. »Tvær tilraunir til innbrotsvoru stöðvaðar af lögreglu eftir að íbúar urðu varir við umgang. Báðir mennirnir voru handteknir á staðnum. »Lögreglumenn við eftirliturðu varir við reyk á verk- stæði við Lyngháls og var slökkvilið strax kallað út. Tókst þannig sennilega að koma í veg fyrir mikið tjón. »Einn maður var settur ífangageymslur eftir út- afakstur á Reykjanesbraut, grunaður um ölvun við akstur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.