Morgunblaðið - 27.08.2007, Side 4
4 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábær kjör á flugi til Trieste á Ítalíu 2. september. Nú
er rétta tækifærið til að leggja þetta stóra land að fótum sér. Óhætt er að
segja að Ítalía býður endalausa möguleika, hvort sem leitað er eftir
strandlífi, náttúrufegurð, verslun, mannlífi eða matarmenningu. Gríptu
tækifærið núna og kynnstu öllu því sem þetta einstaka land hefur að
bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til Ítalíu
2. -9. september
Frá aðeins kr. 19.990
Bókaðu strax.
Verð kr. 19.990
Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 2. September í
viku. Netverð á mann.
Verð kr. 24.315
Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 2. sept. og 4 saman
í bílaleigubíl í B-flokki í viku. Netverð á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
„ÞESSIR menn eru „geðveikir“,“
sagði Benóný Ásgrímsson, flug-
rekstrarstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, um björgunarsveitarmenn
sem buðu sig fram til að leita að
þýsku ferðamönnunum á Hrúts-
fjallstindum eftir að búið var að
fljúga með þá upp í fjallið. Á blaða-
mannafundi leitaraðila í gær kom
fram að verkefnið hefði verið það
tæknilega erfiðasta sem fram-
kvæmt var í leitinni að mönnunum
tveimur.
Björgunarsveitarmennirnir voru
fimm talsins og buðu sig fram til
verksins eftir að menn úr þyrlu sáu
til spora á fjallinu á föstudags-
kvöldið. Freyr Ingi Björnsson fór
fyrir hópnum og segir að aðstæður
hafi verið afar erfiðar. „Það er
tæknilega krefjandi verk að klífa
fjallið á veturna þegar þarna er
allt fullt af ís og snjó. Á þessum
tíma er það hins vegar tóm vit-
leysa. Það er samt ekki hægt að
útiloka að þeir hafi farið þarna
upp.“
Íslenska bergið laust í sér
Þegar hitnar kemur berg fjalls-
ins í ljós undan snjónum og ísnum
og gerir fjallið nær ókleift. Freyr
segir að íslenska bergið sé það
laust í sér að erfitt sé að klífa það
eins og við þær aðstæður sem eru í
Hrútsfjallinu. „Þeir höfðu hins veg-
ar klifrað í Ölpunum sem eru úr
mun harðara bergi og kannski
hafa þeir vanmetið íslenska berg-
ið.“ Fram kom á fundinum í gær að
aðstæður á Hrútsfjallstindum séu í
samræmi við þær gönguferðir sem
mennirnir höfðu áhuga á.
„Nú er sá tími sem er hættuleg-
ast að vera þarna. Sprungurnar
eru hvað opnastar og snjórinn bú-
inn að bráðna algjörlega úr mörg-
um þeirra,“ segir Freyr.
TF-GNÁ flaug með fimmmenn-
ingana á svæði þar sem tiltölulega
öruggt var fyrir þá að fóta sig.
Reyndu þeir að komast að því
svæði þar sem sést hafði til spora
kvöldið áður en komust ekki vegna
gríðarstórrar jökulsprungu. Einnig
tókst þeim ekki að sjá sporin með
sjónaukum þar sem nokkuð hafði
snjóað um nóttina. Eftir erfiða
göngu um fjallið sótti þyrlan þá því
án þess að fleiri vísbendingar
kæmu í ljós um afdrif Þjóðverjanna
tveggja.
Hrútsfjallstindar eru með stærri
fjöllum á landinu og þaðan gátu
fimmmenningarnir séð yfir allt
leitarsvæðið. „Virðing okkar fyrir
þessum fjöllum minnkaði ekki við
það að horfa yfir svæðið. Við sáum
allar þessar sprungur galopnar
fyrir framan okkur.“
Freyr segir það áhugavert að
taka þátt í svo umfangsmikilli leit.
Þótt hópurinn komi úr hátt í 15
björgunarsveitum hafi allir náð að
starfa vel saman og samstarfið við
Landhelgisgæsluna hafi verið afar
gott. „Við hefðum aldrei getað far-
ið í þetta verkefni sem við fórum í
án hjálpar frá þyrlunni.“
Ganga á Hrútsfjallstinda
erfiðasti hluti leitarinnar
Spor Ganga björgunarsveitarmannanna á Hrútsfjallstinda var háskaferð.
LEIT var formlega hætt í fyrra-
kvöld að þeim Matthiasi Hinz og
Thomasi Grundt. Mannanna hefur
verið saknað síðan 18. ágúst en þeir
eru nú taldir af.
Fulltrúar Ríkislögreglustjóra,
Lögreglunnar á Eskifirði, Björgun-
arfélagsins á Hornafirði, Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar og
Landhelgisgæslunnar tilkynntu á
blaðamannafundi í gær niðurstöðu
leitarinnar, en hún hófst laugardag-
inn 18. ágúst. Víðir Reynisson, lög-
reglufulltrúi hjá embætti Ríkislög-
reglustjóra stjórnaði umfangs-
miklum aðgerðum á leitarsvæðinu
sunnan við Vatnajökul síðustu daga.
Allt að 122 einstaklingar komu að
leitinni sem fram fór í afar erfiðu
landslagi. „Það er samdóma álit okk-
ar sem komið hafa að þessari aðgerð
að það er búið að gera allt sem hægt
er að gera. Við erum búnir að leggja
björgunarfólk í töluverða hættu og
við erum búnir að gera ótrúlega
mikið á þessum tíma.“
Í fyrrakvöld tóku björgunarsveit-
armenn saman útbúnað sinn og
lögðu af stað í bæinn. Voru allir
farnir af svæðinu upp úr klukkan tíu
þá um kvöldið.
Í gærmorgun hittu stjórnendur
leitarinnar dómsmálaráðherra, full-
trúa þýska sendiráðsins og móður
Matthíasar Hinz og tilkynntu þeim
að leit væri hætt. „Við tilkynntum
þeim að við sæjum ekkert í spilunum
sem kallaði á að við gætum gert
neitt frekar á þessu svæði. Við telj-
um okkur vera búna að leita á því
svæði sem er líklegast, því svæði
sem hægt er að leita á og enn fremur
því svæði sem skynsamlegt er að
leita á. Það er niðurstaða okkar að
við séum búnir að gera allt sem
hægt er til að finna þessa menn.“
Það er samdóma álit þeirra sem að
leitinni hafa komið að erfiðara lands-
lag og torfærara leitarsvæði sé vart
fundið á Íslandi. Lægsti punktur
svæðisins er rétt yfir sjávarmáli og
sá hæsti er Hvannadalshnjúkur,
hæsti tindur landsins.
Ferðamenn „vanmeta Ísland“
Ljóst er að mennirnir tveir hafa
verið á ferðinni á svæðinu þegar að-
stæður eru ferðamönnum, og einnig
björgunarmönnum, hvað verstar.
„Jökullinn er á bullandi hreyfingu á
þessum árstíma. Þarna eru stórar
sprungur og svelgir. Á öðrum árs-
tíma væri óhætt að fara þarna um,“
segir Jónas Guðmundsson frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu en hann
tók þátt í stjórn aðgerða síðustu
daga leitarinnar. Aðspurður hvort
vitað væri hvort mennirnir hefðu vit-
að hversu aðstæður væru óhagstæð-
ar á þessum árstíma segir Jónas að
svo sé ekki. „Við vitum eftir margra
ára reynslu af erlendum ferðamönn-
um að þeir vanmeta Ísland. Þeir
vanmeta aðstæður og þeir vanmeta
veður. Það hefur eitthvað komið upp
á í þessu tilviki, sama hvort það er
vanmat eða slys. Slys geta líka kom-
ið fyrir hjá bestu mönnum.“
Víðir Reynisson, hjá Ríkislög-
reglustjóra, segir að það sé alltaf
erfið ákvörðun að hætta leit þegar
svona stendur. Hann segir hins veg-
ar að aðstæður hafi verið þess eðlis
að ekki hafi verið talið réttlætanlegt
að halda leitinni áfram. „Það er að
koma vetur þarna uppi. Það er farið
að snjóa og þá daga sem við vorum á
leitarsvæðinu var komið upp undir
10 til 20 cm lag af nýjum snjó.“ Talið
er að mennirnir hafi verið á leitar-
svæðinu fyrir 3-4 vikum. Þá hafi þar
ekki verið snjóflóðahætta en hún sé
að skapast nú. „Ef þeir hafa lent í
einhverjum slysum þá eru sprungur
og svelgir það líklegasta sem þeir
geta hafa lent í,“ segir Víðir og
bendir jafnframt á að verið geti að
snjór hafi síðan lokað sprungunum.
Benóný Ásgrímsson, flugrekstr-
arstjóri Landhelgisgæslunnar, seg-
ist telja að yfirborðsleit hafi farið
fram alls staðar þar sem snjór hafi
verið. Veður hafi verið gott í gær og
þá hafi þyrlan náð að fljúga vel yfir
mest allt svæðið.
Mennirnir taldir af
Morgunblaðið/ÞÖK
Niðurstöður Jónas Guðmundsson frá Landsbjörgu og Benóný Ásgrímsson hjá Landhelgisgæslunni á fundinum í gær.
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
BRESKU háskólanemarnir Tony Proser og Ian Harrison týndust á Öræfa-
jökli í ágúst 1953. Fjallavistfræðingurinn og Íslandsvinurinn dr. Jack D. Ives
lýsti því, þegar félagar hans hurfu, í viðtali við Morgunblaðið 2003.
Ives sagði að félagar hans hafi lagt á jökulinn í góðu veðri, en nokkrum
klukkustundum síðar hafi skollið á óveður. Líklega hafi þeir ákveðið að halda
áfram en villst og fallið í jökulsprungu hulda nýsnævi. Mennirnir fundust ekki
þrátt fyrir mikla leit, en búnaður þeirra fannst í júlí 2006.
Samantekt Jóns E. Ísdal um ferðir manna á Vatnajökul fram að fyrstu vor-
ferð Jöklarannsóknafélagsins 1953 birtist í Jökli, tímariti félagsins, 1998. Þar
er því lýst þegar Jón Pálsson kennari fórst í september 1927. Hann var á ferð
ásamt fleirum á jökli fyrir útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi. Jökulbrúnin
brast og fór Jón niður ásamt hestum. Lík Jóns fannst ekki fyrr en um vorið.
Týndust í jöklinum
17. ágúst Thomas Grundt og
Matthias Hinz skila sér ekki heim
til Þýskalands eftir Íslandsferð.
18. ágúst Eftirgrennslan hefst
hér á landi og upplýsinga óskað
að utan.
19. ágúst Rannsóknarhópur
stofnaður og kemur saman. Ferða-
áætlanir finnast í tölvum mann-
anna.
20. ágúst Eftirgrennslan í skálum
og á tjaldstæðum við Vatnajökul.
21. ágúst SMS-samskipti sýna að
Matthias var við Skaftafell. Björg-
unarsveitir kallaðar út og leit þar
skipulögð.
22. ágúst Leitað á jöklum og lág-
lendi í Skaftafelli úr þyrlum og á
jörðu niðri.
23. ágúst TF-GNÁ finnur tjöldin
við Svínafellsjökul.
24. ágúst Spor finnast. Björg-
unarsveitarmaður slasast.
25. ágúst Svínafellsjökull fín-
kembdur og Hrútsfjallstindar.
26. ágúst Leit hætt. Mennirnir
taldir af.
Leitin að
Þjóðverjunum
Leit að Þjóðverjunum Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt hefur verið hætt Mannanna hefur
verið saknað frá 18. ágúst en allt að 122 einstaklingar hafa komið að leitinni í nágrenni Vatnajökuls