Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábær kjör á flugi til Trieste á Ítalíu 2. september. Nú er rétta tækifærið til að leggja þetta stóra land að fótum sér. Óhætt er að segja að Ítalía býður endalausa möguleika, hvort sem leitað er eftir strandlífi, náttúrufegurð, verslun, mannlífi eða matarmenningu. Gríptu tækifærið núna og kynnstu öllu því sem þetta einstaka land hefur að bjóða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Ítalíu 2. -9. september Frá aðeins kr. 19.990 Bókaðu strax. Verð kr. 19.990 Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 2. September í viku. Netverð á mann. Verð kr. 24.315 Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 2. sept. og 4 saman í bílaleigubíl í B-flokki í viku. Netverð á mann. Munið Mastercard ferðaávísunina „ÞESSIR menn eru „geðveikir“,“ sagði Benóný Ásgrímsson, flug- rekstrarstjóri Landhelgisgæsl- unnar, um björgunarsveitarmenn sem buðu sig fram til að leita að þýsku ferðamönnunum á Hrúts- fjallstindum eftir að búið var að fljúga með þá upp í fjallið. Á blaða- mannafundi leitaraðila í gær kom fram að verkefnið hefði verið það tæknilega erfiðasta sem fram- kvæmt var í leitinni að mönnunum tveimur. Björgunarsveitarmennirnir voru fimm talsins og buðu sig fram til verksins eftir að menn úr þyrlu sáu til spora á fjallinu á föstudags- kvöldið. Freyr Ingi Björnsson fór fyrir hópnum og segir að aðstæður hafi verið afar erfiðar. „Það er tæknilega krefjandi verk að klífa fjallið á veturna þegar þarna er allt fullt af ís og snjó. Á þessum tíma er það hins vegar tóm vit- leysa. Það er samt ekki hægt að útiloka að þeir hafi farið þarna upp.“ Íslenska bergið laust í sér Þegar hitnar kemur berg fjalls- ins í ljós undan snjónum og ísnum og gerir fjallið nær ókleift. Freyr segir að íslenska bergið sé það laust í sér að erfitt sé að klífa það eins og við þær aðstæður sem eru í Hrútsfjallinu. „Þeir höfðu hins veg- ar klifrað í Ölpunum sem eru úr mun harðara bergi og kannski hafa þeir vanmetið íslenska berg- ið.“ Fram kom á fundinum í gær að aðstæður á Hrútsfjallstindum séu í samræmi við þær gönguferðir sem mennirnir höfðu áhuga á. „Nú er sá tími sem er hættuleg- ast að vera þarna. Sprungurnar eru hvað opnastar og snjórinn bú- inn að bráðna algjörlega úr mörg- um þeirra,“ segir Freyr. TF-GNÁ flaug með fimmmenn- ingana á svæði þar sem tiltölulega öruggt var fyrir þá að fóta sig. Reyndu þeir að komast að því svæði þar sem sést hafði til spora kvöldið áður en komust ekki vegna gríðarstórrar jökulsprungu. Einnig tókst þeim ekki að sjá sporin með sjónaukum þar sem nokkuð hafði snjóað um nóttina. Eftir erfiða göngu um fjallið sótti þyrlan þá því án þess að fleiri vísbendingar kæmu í ljós um afdrif Þjóðverjanna tveggja. Hrútsfjallstindar eru með stærri fjöllum á landinu og þaðan gátu fimmmenningarnir séð yfir allt leitarsvæðið. „Virðing okkar fyrir þessum fjöllum minnkaði ekki við það að horfa yfir svæðið. Við sáum allar þessar sprungur galopnar fyrir framan okkur.“ Freyr segir það áhugavert að taka þátt í svo umfangsmikilli leit. Þótt hópurinn komi úr hátt í 15 björgunarsveitum hafi allir náð að starfa vel saman og samstarfið við Landhelgisgæsluna hafi verið afar gott. „Við hefðum aldrei getað far- ið í þetta verkefni sem við fórum í án hjálpar frá þyrlunni.“ Ganga á Hrútsfjallstinda erfiðasti hluti leitarinnar Spor Ganga björgunarsveitarmannanna á Hrútsfjallstinda var háskaferð. LEIT var formlega hætt í fyrra- kvöld að þeim Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt. Mannanna hefur verið saknað síðan 18. ágúst en þeir eru nú taldir af. Fulltrúar Ríkislögreglustjóra, Lögreglunnar á Eskifirði, Björgun- arfélagsins á Hornafirði, Slysa- varnafélagsins Landsbjargar og Landhelgisgæslunnar tilkynntu á blaðamannafundi í gær niðurstöðu leitarinnar, en hún hófst laugardag- inn 18. ágúst. Víðir Reynisson, lög- reglufulltrúi hjá embætti Ríkislög- reglustjóra stjórnaði umfangs- miklum aðgerðum á leitarsvæðinu sunnan við Vatnajökul síðustu daga. Allt að 122 einstaklingar komu að leitinni sem fram fór í afar erfiðu landslagi. „Það er samdóma álit okk- ar sem komið hafa að þessari aðgerð að það er búið að gera allt sem hægt er að gera. Við erum búnir að leggja björgunarfólk í töluverða hættu og við erum búnir að gera ótrúlega mikið á þessum tíma.“ Í fyrrakvöld tóku björgunarsveit- armenn saman útbúnað sinn og lögðu af stað í bæinn. Voru allir farnir af svæðinu upp úr klukkan tíu þá um kvöldið. Í gærmorgun hittu stjórnendur leitarinnar dómsmálaráðherra, full- trúa þýska sendiráðsins og móður Matthíasar Hinz og tilkynntu þeim að leit væri hætt. „Við tilkynntum þeim að við sæjum ekkert í spilunum sem kallaði á að við gætum gert neitt frekar á þessu svæði. Við telj- um okkur vera búna að leita á því svæði sem er líklegast, því svæði sem hægt er að leita á og enn fremur því svæði sem skynsamlegt er að leita á. Það er niðurstaða okkar að við séum búnir að gera allt sem hægt er til að finna þessa menn.“ Það er samdóma álit þeirra sem að leitinni hafa komið að erfiðara lands- lag og torfærara leitarsvæði sé vart fundið á Íslandi. Lægsti punktur svæðisins er rétt yfir sjávarmáli og sá hæsti er Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur landsins. Ferðamenn „vanmeta Ísland“ Ljóst er að mennirnir tveir hafa verið á ferðinni á svæðinu þegar að- stæður eru ferðamönnum, og einnig björgunarmönnum, hvað verstar. „Jökullinn er á bullandi hreyfingu á þessum árstíma. Þarna eru stórar sprungur og svelgir. Á öðrum árs- tíma væri óhætt að fara þarna um,“ segir Jónas Guðmundsson frá Slysa- varnafélaginu Landsbjörgu en hann tók þátt í stjórn aðgerða síðustu daga leitarinnar. Aðspurður hvort vitað væri hvort mennirnir hefðu vit- að hversu aðstæður væru óhagstæð- ar á þessum árstíma segir Jónas að svo sé ekki. „Við vitum eftir margra ára reynslu af erlendum ferðamönn- um að þeir vanmeta Ísland. Þeir vanmeta aðstæður og þeir vanmeta veður. Það hefur eitthvað komið upp á í þessu tilviki, sama hvort það er vanmat eða slys. Slys geta líka kom- ið fyrir hjá bestu mönnum.“ Víðir Reynisson, hjá Ríkislög- reglustjóra, segir að það sé alltaf erfið ákvörðun að hætta leit þegar svona stendur. Hann segir hins veg- ar að aðstæður hafi verið þess eðlis að ekki hafi verið talið réttlætanlegt að halda leitinni áfram. „Það er að koma vetur þarna uppi. Það er farið að snjóa og þá daga sem við vorum á leitarsvæðinu var komið upp undir 10 til 20 cm lag af nýjum snjó.“ Talið er að mennirnir hafi verið á leitar- svæðinu fyrir 3-4 vikum. Þá hafi þar ekki verið snjóflóðahætta en hún sé að skapast nú. „Ef þeir hafa lent í einhverjum slysum þá eru sprungur og svelgir það líklegasta sem þeir geta hafa lent í,“ segir Víðir og bendir jafnframt á að verið geti að snjór hafi síðan lokað sprungunum. Benóný Ásgrímsson, flugrekstr- arstjóri Landhelgisgæslunnar, seg- ist telja að yfirborðsleit hafi farið fram alls staðar þar sem snjór hafi verið. Veður hafi verið gott í gær og þá hafi þyrlan náð að fljúga vel yfir mest allt svæðið. Mennirnir taldir af Morgunblaðið/ÞÖK Niðurstöður Jónas Guðmundsson frá Landsbjörgu og Benóný Ásgrímsson hjá Landhelgisgæslunni á fundinum í gær. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is BRESKU háskólanemarnir Tony Proser og Ian Harrison týndust á Öræfa- jökli í ágúst 1953. Fjallavistfræðingurinn og Íslandsvinurinn dr. Jack D. Ives lýsti því, þegar félagar hans hurfu, í viðtali við Morgunblaðið 2003. Ives sagði að félagar hans hafi lagt á jökulinn í góðu veðri, en nokkrum klukkustundum síðar hafi skollið á óveður. Líklega hafi þeir ákveðið að halda áfram en villst og fallið í jökulsprungu hulda nýsnævi. Mennirnir fundust ekki þrátt fyrir mikla leit, en búnaður þeirra fannst í júlí 2006. Samantekt Jóns E. Ísdal um ferðir manna á Vatnajökul fram að fyrstu vor- ferð Jöklarannsóknafélagsins 1953 birtist í Jökli, tímariti félagsins, 1998. Þar er því lýst þegar Jón Pálsson kennari fórst í september 1927. Hann var á ferð ásamt fleirum á jökli fyrir útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi. Jökulbrúnin brast og fór Jón niður ásamt hestum. Lík Jóns fannst ekki fyrr en um vorið. Týndust í jöklinum 17. ágúst Thomas Grundt og Matthias Hinz skila sér ekki heim til Þýskalands eftir Íslandsferð. 18. ágúst Eftirgrennslan hefst hér á landi og upplýsinga óskað að utan. 19. ágúst Rannsóknarhópur stofnaður og kemur saman. Ferða- áætlanir finnast í tölvum mann- anna. 20. ágúst Eftirgrennslan í skálum og á tjaldstæðum við Vatnajökul. 21. ágúst SMS-samskipti sýna að Matthias var við Skaftafell. Björg- unarsveitir kallaðar út og leit þar skipulögð. 22. ágúst Leitað á jöklum og lág- lendi í Skaftafelli úr þyrlum og á jörðu niðri. 23. ágúst TF-GNÁ finnur tjöldin við Svínafellsjökul. 24. ágúst Spor finnast. Björg- unarsveitarmaður slasast. 25. ágúst Svínafellsjökull fín- kembdur og Hrútsfjallstindar. 26. ágúst Leit hætt. Mennirnir taldir af. Leitin að Þjóðverjunum  Leit að Þjóðverjunum Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt hefur verið hætt  Mannanna hefur verið saknað frá 18. ágúst en allt að 122 einstaklingar hafa komið að leitinni í nágrenni Vatnajökuls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.