Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 6

Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 6
6 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is MEIRA en 15 erlendir starfsmenn Arnarfells slösuðust þegar rúta á leið á Egilsstaði fór út af veginum í Bessa- staðafjalli. Rúmlega 30 starfsmenn voru í rútunni en tveir þeirra slösuðust alvarlega og liggja á gjörgæslu. Slysið varð rétt fyrir klukkan eitt í gærdag. Rútan var að koma úr vinnu- búðum Arnarfells við Ufsarveitu á Fljótsdalsheiði en starfsmennirnir voru á leið í frí á Egilsstöðum og áttu að snúa aftur til búða sinna um kvöldið. Rútan var á leið niður fjallið þegar bíl- stjóri hennar varð þess var að ekki var allt með felldu og gerði farþegum við- vart. Hann náði að hægja á rútunni og sveigja henni að brekkunni svo hún endastakkst fram af veginum og ofan í læk. Engin vegrið eru á þessum stað í fjallinu, en í sömu beygju fóru tveir ruslaflutningabílar út af í fyrra. Af ökurita bílsins að dæma var rútan á um 60 kílómetra hraða á klukkustund þeg- ar hún fór út af. Bílbelti eru í rútunni en talið er að þau hafi ekki verið notuð af farþegum þegar slysið varð. Eftir því sem næst verður komist kastaðist þó enginn út úr rútunni heldur skullu farþegar á sæti fyrir framan sig. Engin bremsuför voru eftir rútuna á vegin- um. Fjöldahjálparstöð opnuð í Grunnskólanum á Egilsstöðum Um leið og Neyðarlínunni barst til- kynning um slysið um klukkan eitt voru sendir sjúkrabílar frá Egilsstöð- um, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Kárahnjúkum, auk þess sem björgun- arsveitir voru kallaðar út. Stjórnstöð aðgerða var komið upp á Egilsstöðum. Þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF- GNÁ og TF-EIR, voru settar í við- bragðsstöðu. Eins og venjan er þegar fjöldaslys eiga sér stað var samhæfing- armiðstöðin í Skógarhlíð í Reykjavík virkjuð. Sjálfboðaliðar Rauða krossins voru jafnframt kallaðir út og komið var upp fjöldahjálparstöð í Grunnskólan- um á Egilsstöðum. Á slysstað hafði öllum farþegum verið komið út úr rútubifreiðinni fyrir klukkan tvö. Læknar, sem komu með sjúkrabílum frá Egilsstöðum, for- gangsröðuðu sjúklingum, en um 15 voru taldir vera það slasaðir að þeir þyrftu á læknisaðstoð að halda. Farið var með þá í sjúkrabílum á Heilbrigð- isstofnun Egilsstaða þar sem læknar tóku á móti þeim. Búið var að flytja alla þá sem slösuðust til Egilsstaða um einni og hálfri klukkustund eftir að til- kynning barst um slysið. Átján farþeg- anna hlutu hins vegar einungis skrám- ur eða vægari högg. Þeir voru keyrðir í rútu í fjöldahjálparstöðina í grunnskól- anum þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins og áfallahjálparteymi tók á móti þeim. Flogið með slasaða farþega á aðrar sjúkrastofnanir Strax var ljóst að slasaðir væru það margir að aðstaða og fjöldi starfs- manna væri ekki nægur á Egilsstöð- um. Læknar og hjúkrunarfólk voru flutt til Egilsstaða með flugvélum og var síðan ákveðið að koma þeim sem hlotið höfðu alvarlegri meiðsl á Fjórð- ungssjúkrahúsin á Akureyri og í Nes- kaupstað og til Reykjavíkur. Flogið var með þá tvo sem voru hvað verst slasaðir til Reykjavíkur á Landspítala – háskólasjúkrahús. Annar þeirra gekkst undir aðgerð vegna meiðsla á báðum öxlum en hvorugur þeirra er lífshættulega slasaður. Sjö aðrir komu á sjúkrahúsið nokkru síðar. Tveir farþeganna voru fluttir með sjúkra- flugvél til Akureyrar og fjórir í Nes- kaupstað. Þeir eru allir með beinbrot eða önnur meiðsli sem ekki þykja al- varleg. Bílstjórinn vann afrek Farþegar rútunnar voru allir út- lendingar, starfsmenn verktakafyrir- tækisins Arnarfells. Þeir voru á leið frá vinnubúðum fyrirtækisins við Ufsar- veitu, austan Snæfells, til Egilsstaða en á sunnudögum eiga verkamennirnir frídag. Þeir eru frá Póllandi, Lettlandi og Portúgal. Gísli Rafnsson, staðar- stjóri Arnarfells, var staddur á Egils- stöðum þegar honum barst tilkynning um slysið. Hann fór þegar á Heilbrigð- isstofnunina til að taka á móti mönn- unum. „Þetta er skelfileg upplifun. En maður fékk fljótlega þær fréttir að enginn væri stórslasaður og enginn hefði látist.“ Gísli segir að hann hafi strax vitað hvar slysið varð. „Þetta er mjög hættuleg beygja. Ef þeir hefðu farið fram af hefði þetta getað farið miklu verr.“ Engin vegrið eru við beygjuna, sem heimamenn kalla „Ingi- ríði“ og er efst í fjallinu. Gísli segir ljóst að bílstjórinn hafi bjargað mönnunum með því að keyra beint út af í stað þess að taka beygjuna. „Það er mjög líklegt að honum hafi tekist að bjarga miklu. Hann hefur unnið gríðarlegt afrek.“ Bílstjórinn er pólskur og er líðan hans eftir atvikum. Gísli segir hann vera í hálfgerðu taugaáfalli eftir slysið. Ljóst sé að verkamönnunum hafi verið mjög brugðið. „En þeir voru ótrúlega rólegir miðað við hvað hafði gengið á.“ Farið var með þá verkamenn sem ekki slösuðust aftur upp í vinnubúð- irnar síðdegis í gær eftir að læknir hafði skoðað þá. Gísli segir að það hafi verið metið svo að skynsamlegast væri að mennirnir fengju að jafna sig í fé- lagsskap vina sinna uppi í búðum. Læknir sé í búðunum og muni hann sjá um þá. Gísli varð vitni að viðbrögðum björg- unaraðila og segir ótrúlegt hve allt hafi gengið fumlaust fyrir sig og hversu fljótt aðstoð barst. Fjöldaslys á Austurlandi  Á sama stað og bílum var ekið út af í fyrra Ljósmynd/Egill Gunnarsson Á slysstað Björgunarmenn hlúðu að hinum slösuðu sem síðan voru fluttir á sjúkrahús. Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson Skemmd Rútan var á um 60 km hraða þegar hún fór út af veginum.                                                PÉTUR Heimisson, yfirlæknir á Heilbrigðis- stofnun Austurlands, var eini læknirinn á stofnuninni þegar komið var með fyrstu far- þegana úr rútuslysinu í Bessastaðafjalli. Tveir fullmannaðir sjúkrabílar með læknum fóru frá Egilsstöðum um leið og tilkynning barst. „Stjórnstöð aðgerða kallaði til mannskap í Kárahnjúkum, niðri í fjörðum og síðan frá Ak- ureyri og frá Reykjavík. Einnig var kallað til greiningarteymi auk lækna og vanra sjúkra- flutningamanna.“ Hann segir að mjög fljótlega eftir að tilkynningin barst hafi verið kominn saman á Egilsstöðum mjög stór hópur fag- manna frá ýmsum stöðum á landinu. „Ég held að þegar mest var höfum við verið 11 læknarn- ir hérna.“ Á heilbrigðisstofnunina voru fluttir þeir far- þeganna sem taldir voru vera með alvarlega áverka. Pétur segir að það hafi sýnt sig að þeir sem sáu um að forgangsraða sjúklingum hafi metið aðstæður og meiðsl sjúklinga rétt. Læknar og hjúkrunarfræðingar fóru síðar yfir í fjöldabjörg- unarmiðstöðina og mátu þá sem farið hafði verið með þangað. „Þar var einn ein- staklingur sem við mátum svo að hann hefði þurft að fara til okkar.“ Hann segir verkamennina almennt hafa verið í áfalli eftir slysið en þeir hafi þó tekið öllu saman af mikilli rósemd. „Þetta eru allt saman harðjaxlar sem báru sig ótrúlega vel.“ Aðallega beinbrot á útlimum Allir farþegarnir voru útlendingar og þurfti því á túlkum að halda til að miðla upplýsingum milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Pétur segir að sá þáttur hafi gengið tiltölulega snurðulaust fyrir sig þrátt fyrir að þurft hafi að túlka úr pólsku, lettnesku og portúgölsku. Fljótlega voru þrír túlkar komnir inn á stofn- unina og sáu þeir um að miðla upplýsingum. Aðspurður um hvers eðlis meiðsli verkamann- anna séu segir Pétur að fyrst og fremst sé um að ræða beinbrot á fótum og höndum. „Síðan er einstaklingur sem er með verk í baki og hann þarf að greina nánar. Því miður er ekki hægt að útiloka að það séu hryggáverkar.“ Að liðnum degi segir Pétur að verkið hafi gengið vel. „Það sem mér finnst mikilvægast er að manni sýnist að enginn einstaklingur muni sitja eftir með varanleg meiðsl af því að honum var ekki sinnt í tíma. Hins vegar fer ekki hjá því með svona stórt slys, að það fer strax fram úr bæði viðbúnaði, reynslu og að- stöðu sem við höfum. Það er því fullt af hlutum sem við reynum að læra af.“ Farþegarnir í áfalli en tóku slysinu með ró Morgunblaðið/Gunnar Páll Á Egilsstöðum Þeim sem ekki slösuðust að ráði var ekið aftur í vinnubúðirnar. Pétur Heimisson MARÍA Har- aldsdóttir er svæðisstjóri Rauða kross Íslands á svæðinu frá Hornafirði að Vopna- firði. Rétt fyrir klukk- an tvö barst henni til- kynning um fjöldaslys í hennar umdæmi og að setja þyrfti upp fjöldahjálparstöð. Tæpum tveimur tímum síðar kom rúta með þá 18 farþega rútunnar sem þóttu ekki hafa slasast að ráði. „Þetta gekk rosalega vel. Við vorum nýbúin að halda æf- ingu þar sem viðbrögð voru æfð við fjöldaslysi eins og þessu. Það gekk allt upp og þetta sýnir hvað æfingarnar borga sig.“ María segir að mennirnir hafi augsjáanlega orðið fyrir miklu áfalli. „Sumir voru með skurði, höfuðverki og axlarverki. Við hófum strax að hlúa að þeim og seinna meir komu hingað læknar og hjúkr- unarfræðingar og mátu meiðslin.“ Síðdegis voru síðan allir fluttir yfir á Heilbrigð- isstofnun Austurlands þar sem aðgætt var að engin meiðsl hefðu farið framhjá greining- araðilum en mennirnir sneru aftur heim til vinnubúða sinna um kvöldið. María segir að fyrst og fremst hafi brunnið á mönnunum að komast í sam- band við sína nánustu í heima- löndunum og hafi verið mögu- legt að koma því í kring að þeir gætu það. Í fjöldahjálparstöðinni störf- uðu rúmlega 20 einstaklingar. Skyndihjálparteymi sem sam- anstóð af sjálfboðaliðum Rauða krossins hlúði að verka- mönnunum og veitti þeim hressingu. „Síðan kölluðum við út áfallahjálparteymi sem sam- anstóð af presti og kaþólskum munkum frá Reyðarfirði. Þess- ir menn þurftu virkilega á sál- gæslunni að halda.“ Sá Rauði krossinn jafnframt um að kalla út túlka fyrir fjöldahjálp- arstöðina og heilbrigðisstofn- unina. Um klukkan hálf sex var aðgerðum síðan lokið í grunnskólanum. Vildu hringja heim í sína nánustu María Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.