Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 9
FRÉTTIR
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Stuttir kjólar og pils
HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 562 2862
HAUST 2007
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR
Hefst á
miðvikudag
azzREYKJAVÍK07
ALLIR ELSKA JAZZ!
DAGSKRÁ:
sjá www.jazz.is
29. ágúst -
1.september
2007
AÐGÖNGUMIÐAR:
sjá www.midi.is
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BIRGIR H. Sigurðsson, skipulags-
stjóri Reykjavíkurborgar, segir að
nákvæmlega hafi verið unnið innan
þess ramma sem deiliskipulagið geri
ráð fyrir í sambandi við tillögu um
niðurrif húsa við Laugaveg 4-6 og
byggingu fjögurra hæða hótel- og
verslunarhúss í staðinn.
Magnús Skúlason, forstöðumaður
Húsafriðunarnefndar ríkisins, segir
að áður en hús byggð fyrir 1918 séu
rifin eigi að koma til álit Húsafrið-
unarnefndar. Fyrir rúmu ári hafi hún
fengið erindi frá þáverandi arkitekt
nýrrar byggingar við Laugaveg 4-6
varðandi niðurrif núverandi húsa á
lóðinni. Í svarinu hafi komið fram að
til að veita endanlegt svar við er-
indinu væri nauðsynlegt að fá teikn-
ingar af fyrirhuguðum byggingum,
ekki síst vegna þess að nágrannahús-
ið Laugavegur 2 væri friðað hús. Þær
hefðu ekki enn borist og því hefði
ekkert álit verið gefið.
Tillagan rædd á morgun
Tillagan verður tekin til umfjöllun-
ar á fundi byggingafulltrúa á morg-
un, en málinu var frestað á síðasta
fundi þar sem eftir átti að ganga frá
nokkrum tæknilegum atriðum. Birg-
ir H. Sigurðsson segir að deiliskipu-
lag lóðarinnar hafi verið samþykkt
2002 að undangenginni umfjöllun
eins og getið sé um í lögum. Fyrir-
liggjandi tillaga að nýbyggingum sé
innan marka deiliskipulagsins, bæði
hvað varði hæð, umfang, tölur og
notkun, og að mati þeirra sem að af-
greiðslu málsins hafi komið falli hún
vel að götumynd Laugavegar. Að-
koma Húsafriðunarnefndar að mál-
inu hafi verið frá fyrstu stigum þess
og fram hafi komið í umsögn hennar,
að hún vilji koma að málinu á síðari
stigum og þá varðandi útlit nýbygg-
inga. Af þessu verði ekki annað ráðið
en að Húsafriðunarnefnd hafi með
umsögn sinni ekki lagst gegn niður-
rifi núverandi bygginga að Lauga-
vegi 4 og 6 og nýrri byggð í stað
þeirra en í erindi nefndarinnar dags.
18. maí 2006 komi m.a. fram að sýna
verði „ýtrustu nærgætni við hönnun
nýbygginga“. Af gögnum málsins sé
ljóst að Húsafriðunarnefnd hafi í um-
fjöllunum sínum ekki gert kröfu um
friðun umræddra húsa. Hlutverki
nefndarinnar í þessu máli hafi þar
með lokið. Birgir segir að rétt sé að
ítreka það sem þegar hafi komið fram
að það sé ekki hlutverk Húsafriðun-
arnefndar og ekki í hennar verka-
hring að veita Reykjavíkurborg álit á
útliti nýbygginga. Auk þess hafi sér-
stakur rýnihópur komið að málinu
þegar fjallað hafi verið um útlit fyr-
irhugaðra nýbygginga en í honum
sitji m.a. varaformaður Húsafriðun-
arnefndar. Á síðari stigum hafi menn
verið ósáttir við kynnt útlit og skipu-
lagsráð því óskað eftir að embætti
skipulagsstjóra legði fram fleiri til-
lögur þar að lútandi. Fagaðilar hafi
verið fengnir til að leggja fram sitt
álit og eftir umfjöllun í rýnihópnum
og í skipulagsráði hafi niðurstaðan
verið sú tillaga, sem nú sé til af-
greiðslu hjá byggingafulltrúa.
Teikning GP-arkitektar ehf.
Laugavegur 4-6 Tillaga að fjögurra hæða húsi þar sem gert er ráð fyrir hótel- og verslunarhúsnæði er til afgreiðslu hjá byggingafulltrúa borgarinnar.
Unnið innan ramma deiliskipulagsins
Morgunblaðið/Ásdís
Gömul hús Húsin sem nú standa á Laugavegi 4-6 og í bígerð er að rífa.
FIMM voru fluttir á Sjúkrahúsið á
Akranesi síðdegis í gær eftir aftaná-
keyrslu í sunnanverðum Hvalfjarð-
argöngum. Sá sjötti úr bílunum
tveimur sem lentu í árekstrinum
kom á sjúkahúsið stuttu síðar. Þrír
þurftu frekari rannsóknar við og
fengu aðhlynningu. Um var að ræða
tvo karla, þrjár konur og eins árs
gamlan dreng. Þau voru öll útskrif-
uð í gær, að sögn vakthafandi lækn-
is.
Aftanákeyrslan varð um kl. 15.30
og var lokað fyrir umferð um göngin
kl. 15.35. Opnað var aftur fyrir um-
ferð um göngin kl. 16.27. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni mynd-
aðist talsverð biðröð við göngin,
enda um að ræða annatíma í um-
ferðinni á þessum slóðum. Lögregl-
an beindi umferðinni eftir gömlu
leiðinni fyrir Hvalfjörð meðan göng-
in voru lokuð og völdu margir að aka
þá leið í stað þess að bíða við göngin.
Draga þurfti annan bílinn sem
lenti í árekstrinum af vettvangi en
hinn var ökufær, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/ÞÖK
Á annatíma Talsverð biðröð myndaðist við göngin vegna lokunarinnar.
Aftanákeyrsla í
Hvalfjarðargöngum
TALSVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum aðfaranótt
sunnudagsins. Tvær grófar líkams-
árásir áttu sér stað í bænum þá um
nóttina. Önnur þeirra var gerð í
Sandgerði en hin á Hafnargötunni í
Reykjanesbæ.
Í báðum tilvikum voru árásar-
mennirnir voru handteknir og árás-
arþolar voru fluttir á sjúkrahús til
aðhlynningar.
Einn ökumaður var tekinn fyrir
ölvunarakstur á Hafnargötu í
Reykjanesbæ um nóttina, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í bænum.
Tvær grófar
líkamsárásir
ARON Pálmi Ágústsson, sem setið
hefur í fangelsi og síðar stofufang-
elsi í Texas undanfarin 10 ár, kom til
landsins snemma
í gærmorgun með
flugi frá Boston.
Hann dvelur nú
hjá móðursystur
sinni í Kópavogi
þar sem hann
hvíldist í gær og
hitti íslenska ætt-
ingja sína sem
hann hefur ekki
séð í rúman ára-
tug, frá síðustu heimsókn.
Aron Pálma hafði lengi dreymt
um að snúa aftur til Íslands eftir að
hafa afplánað fangelsisvist sem hann
var dæmdur í aðeins 13 ára að aldri.
Hann heimsótti Ísland oft sem barn
og var nýsnúinn aftur eftir heimsókn
hérlendis þegar atvikið átti sér stað
sem átti eftir að breyta lífi hans til
hins verra. Að sögn Einars S. Ein-
arssonar, formanns RJF-samtak-
anna sem barist hafa fyrir frelsi Ar-
ons Pálma, líður honum sem nú sé
hann kominn heim, enda eigi hann
hér mjög sterkar rætur og Ísland sé
hans draumaland eftir hremming-
arnar í Texas.
Aron Pálmi
snúinn heim
Aron Pálmi
Ágústsson
SALA á sígarettum jókst um 6,3% í
júní og júlí sl. miðað við sömu mán-
uði í fyrra. Reykingabann á veit-
inga- og skemmtistöðum sem gekk í
gildi 1. júní sl. virðist því ekki hafa
dregið úr neyslu. Í Bretlandi hefur
sala á sígarettum dregist saman um
7% í júlí, en reykingabann tók þar
gildi í upphafi þess mánaðar. Einari
S. Einarsson, framkvæmdastjóri
sölu- og þjónustusviðs ÁTVR, segir
að í júní og júlí í ár hafi selst 283
þúsund karton af sígarettum, en
rúmlega 266 þúsund í sömu mánuð-
um fyrir ári. Sígarettur eru 92%
alls þess tóbaks sem selt er í land-
inu. Sé tímabilið frá janúar til júlí á
þessu ári borið saman við sama
tímabil í fyrra hefur sígarettusala,
að sögn Einars, aukist um 5%.
Sala á tóbaki jókst í júní og júlí
ÖKUMAÐUR var stöðvaður af lög-
reglu í Svínadal í gærmorgun og
var hann undir áhrifum fíkniefna.
Var hann einnig með fíkniefni í fór-
um sínum.
Lögreglan í Stykkishólmi sagði
ökumanninn ekki hafa verið yfir
löglegum hraðatakmörkum en
hann hefði verið stöðvaður vegna
gruns um tengsl hans við annað
mál.
Ók undir áhrif-
um fíkniefna
♦♦♦