Morgunblaðið - 27.08.2007, Side 10
10 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
www.utflutningsrad.is
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 71506
Viðtalstímar
sendiherra í haust
Sendiherrar Íslands í Peking, París, Ósló og Ottawa eru til
viðtals sem hér segir:
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra í Peking,
mánudaginn 27. ágúst
Auk Kína eru átta önnur ríki í umdæmi sendiráðsins:
Ástralía, Kambódía, Laos, Mongólía, Norður-Kórea,
Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Víetnam.
Tómas Ingi Olrich, sendiherra í París,
miðvikudaginn 29. ágúst
Auk Frakklands er umdæmi sendiráðsins Alsír, Andorra,
Ítalía, Marokkó, Portúgal, San Marínó, Spánn og Túnis.
Sendiráðið gegnir hlutverki fastanefndar gagnvart
Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnuninni (OECD) og
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
Stefán Skjaldarson, sendiherra í Ósló,
fimmtudaginn 6. september
Umdæmislönd sendiráðsins eru auk Noregs: Barein,
Egyptaland, Grikkland, Íran, Jemen, Líbía, Óman, Pakistan,
Sameinuðu arabísku furstadæmin og Súdan.
Markús Örn Antonsson, sendiherra í Ottawa,
þriðjudaginn 23. október
Auk Kanada er umdæmi sendiráðsins Belís, Bólivía,
Ekvador, Hondúras, Kostaríka, Kólumbía, Panama, Perú,
Níkaragva, Úrúgvæ og Venesúela.
Fundirnir eru ætlaðir fyrirtækjum sem vilja ræða viðskiptamöguleika,
menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmum sendiskrif-
stofanna, þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði
Þau fyrirtæki sem hafa hug á að bóka viðtöl eru hvött til að gera það
sem fyrst. Gert er ráð fyrir að fundur sendiherra með hverju fyrirtæki
standi í hálfa klukkustund, nema annars sé óskað.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands,
Borgartúni 35, og má bóka þá í síma 511 4000 eða með tölvupósti:
utflutningsrad@utflutningsrad.is
Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Aðalsteinsdóttir:
svanhvit@utflutningsrad.is
www.utn.stjr.is
Þátttökugjald kr. 1.500 með morgunverði
Allir velkomnir – skráning á www.sa.is
L O F T S L A G S S A M N I N G A R
O G A T V I N N U L Í F
A T V I N N U L Í F
O G U M H V E R F I
F U N D A R Ö Ð S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S 2 0 0 7
Mánudaginn 3. september kl. 8:30-10:00
Á Grand Hótel Reykjavík – Gullteig
Morgunverður hefst kl. 8:00
Halldór Þorgeirsson
forstöðumaður hjá Loftslagsstofnun Sameinuðu
þjóðanna ræðir um stöðuna í loftslagsmálum
og áhrif alþjóðaskuldbindinga á atvinnulíf.
Hvert stefnir? Hvernig má nýta verkefni
í þróunarríkjum til að draga úr útstreymi
heima fyrir? Hvernig starfa alþjóðlegir
kolefnissjóðir? Hver verða áhrif á
orkunýtingu og orkuvinnslu Íslendinga?
Umræður og fyrirspurnir
-
800 milljarða króna
aukagjöld á neytendur
GJALDTAKA kortafyrirtækja og
banka var meðal umræðuefna á ár-
legum fundi samtaka verslunar- og
þjónustufyrirtækja á Norðurlöndun-
um, sem fór fram í Stykkishólmi sl.
föstudag. Meðal fyrirlesara var Xav-
ier Durieu, framkvæmdastjóri Euro-
Commerce, Evrópusamtaka versl-
unarinnar. Fram kom í máli hans að í
Evrópu legðist viðbótarálag upp á 9
milljarða evra, jafnvirði nærri 800
milljarða króna, á neytendur með
ýmsum kortagjöldum.
Það voru Félag íslenskra stór-
kaupmanna, FÍS, og Samtök versl-
unar og þjónustu, SVÞ, sem stóðu
saman að því að taka á móti norræn-
um kollegum sínum í Hólminum.
Meðal annarra fyrirlesara má nefna
Gunnar Sigurðsson, forstjóra Baugs.
Dregið úr höftum
Xavier Durieu sagði í samtali við
Morgunblaðið að samtökin sem hann
starfaði fyrir hefðu ávallt unnið með
hagsmuni viðskiptavina verslunar-
innar að leiðarljósi. Eitt helsta bar-
áttumál samtakanna í þeim efnum
væri að stuðla að aukinni fríverslun
og draga úr höftum í viðskiptum,
ekki síst á sviði landbúnaðar. Borið
hefði á aukinni verndarhyggju hjá
einstökum ríkjum og við því þyrfti að
bregðast.
Innan EuroCommerce starfa sex
milljónir fyrirtækja með alls um 30
milljónir starfsmanna. Durieu sagði
þessar verslanir og þjónustufyrir-
tæki sinna þörfum hátt í 500 millj-
ónum neytenda í Evrópu.
Hvað kortagjöldin varðar sagðist
hann telja að hið sama ætti við um ís-
lenska neytendur og aðra í Evrópu.
Þeir greiddu alltof mikið fyrir korta-
viðskiptin, mun meira en viðskipta-
færslurnar raunverulega kostuðu
banka og kortafyrirtæki. Hann sagði
EuroCommerce hafa barist af hörku
gegn óhóflegri gjaldtöku og að nokk-
ur mál væru í gangi innan fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins. Hann tók fram að þessi gjöld
væru þó mismunandi eftir löndum,
þau væru t.d. nánast engin í Finn-
landi.
Durieu sagði mjög mikilvægt að
auka gegnsæi í þessum viðskiptum
og samkeppni milli kortafyrirtækj-
anna. Hann bindur vonir við jákvæða
niðurstöðu samtakanna í máli gegn
MasterCard, sem von sé á fljótlega,
en kortafyrirtækin muni ekki gefa
sig baráttulaust, enda miklir fjár-
hagslegir hagsmunir í húfi fyrir þau.
Þá sagði hann samtökin hafa staðið á
varðbergi gagnvart áformum um
sameiginlega greiðslumiðlun í Evr-
ópu, skammstafað SEPA, sem koma
á í gang á næsta ári.
Framkvæmdastjóri EuroCommerce á fundi hér á landi
Verslun Xavier Durieu, fram-
kvæmdastjóri EuroCommerce, í
Stykkishólmi fyrir helgi.
HB Grandi var rekinn
með 2,9 milljarða
króna hagnaði á fyrri
helmingi ársins á móti
nær 2,6 milljarða tapa
á sama tímabili í fyrra
og munar þar mestu
að fjármagnsliðir
(einkum gengismunur
og verðbætur lána)
voru jákvæðir um
nær 1,7 milljarð fyrstu sex mánuði
ársins en þeir voru neikvæðir um
3,76 milljarða á sama tímabili í fyrra.
Rekstrartekjur voru tæplega 8,2
milljarðar á móti 7,7 milljörðum í
fyrra. Rekstrar-
hagnaður fyrir af-
skriftir og fjár-
magnsliði var
(EBIDTA) án sölu-
hagnaðar skipa var
1,93 milljarðar
(23,6% af tekjum) á
móti 1,6 milljarði
(21,5% af tekjum)
árið áður. Við bæt-
ast síðan 609 milljónir vegna hagn-
aðar af sölu Engeyjar að frádregnu
tapi af sölu Sunnubergs. Á öðrum
ársfjórðungi nam hagnaðurinn 527
milljónum.
HB Grandi með 2,9
milljarða í hagnað
KAUPÞING banki hefur veitt 28
starfsmönnum, sem flestir eru nýir,
kauprétt að samtals 1,155 milljónum
hluta, að nafnverði 11.550.000 krón-
ur. Rétturinn er á samningsgenginu
1.110 krónur á hlut á fyrsta innlausn-
artímabili, 1.166 krónur á hlut á inn-
lausnartímabili 2011 og 1.224 krónur
á hlut á innlausnartímabili 2012.
Þá hefur Landsbankinn gefið út
nýja kauprétti til tiltekinna starfs-
manna bankans í London. Kauprétt-
irnir eru veittir í tengslum við kaup
Landsbankans á Bridgewell Group.
Um er að ræða kauprétti að 66,8
milljónum hluta á genginu 39,4.
Fleiri
kaupréttir
MARORKA hefur gert samstarfs-
samning við svissneska fyrirtækið
Aquametro um markaðssetningu á
eldsneytisstjórnunarkerfi fyrir
skip. Kerfið byggist á mælitækni
þróaðri og framleiddri af Aqua-
metro og orkustjórnunarkerfi
framleiddu af Marorku. Eldsneyt-
isstjórnunarkerfið sem um ræðir er
staðlað kerfi sem hentar öllum
skipum sem ganga fyrir svartolíu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Marorku munu með þessum samn-
ingi opnast ný og spennandi mark-
aðssvæði fyrir fyrirtækið sem í dag
starfar í Noregi og Danmörku, auk
Íslands. Til þessa hefur Marorka
einbeitt sér að markaðssetningu
orkustjórnunarkerfa til skipaút-
gerða við N-Atlantshaf og eru
margar helstu skipaútgerðir heims
meðal viðskiptavina fyrirtækisins.
Samstarfið við Aquametro opnar
leið fyrir Marorku að skipa-
smíðastöðvum í Asíu. Jafnframt
mun svissneska fyrirtækið, sem sér-
hæfir sig í framleiðslu flæðimæla
og orkumælingakerfa, markaðs-
setja allar kerfislausnir sínar fyrir
skip ásamt hugbúnaði frá Marorku.
Á myndinni undirrita þeir samning-
inn, dr. Jón Ágúst Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Marorku, og
Fritz Hauff, forstjóri Aquametro.
Nýir sölumarkaðir
opnast fyrir Marorku