Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 11

Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 11 ÚR VERINU Baltimore/ Washingtone FARGJALD AÐRA LEIÐ FRÁ 24.050* KR. New York FARGJALD AÐRA LEIÐ FRÁ 24.050* KR. Boston FARGJALD AÐRA LEIÐFRÁ 24.050* KR. KYNNTU ÞÉR ÚRVAL BORGARFERÐA, SÉRFERÐA OG FERÐATILBOÐA Á WWW.ICELANDAIR.IS – UPPLÝSINGAR UPPFÆRAST DAGLEGA. ‘07 70ÁR Á FLUGI FLUG OG GISTING Í 3 NÆTUR Í NEW YORK FRÁ 73.100 KR. Á mann í herbergi m.v. 2 fullorðna á Hotel Beacon **** í New York 23. –26. nóv. 2007. Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting í 3 nætur. * Með flugvallarsköttum. FLUG OG GISTING Í 3 NÆTUR Í BOSTON FRÁ 59.500 KR. Á mann í tvíbýli á The Lenox Hotel **** í Boston 7.–10. sept., 5.–8. okt. , 15–18. nóv. og 6.–9. des. 2007. Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. * Með flugvallarsköttum. FLUG OG GISTING Í 3 NÆTUR Í BALTIMORE FRÁ 48.900 KR. Á mann í tvíbýli á Days Inn Inner Harbor*** í Baltimore, 8.–11. nóv., 22.–25. nóv. og 6.–9. des. 2007. Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. * Með flugvallarsköttum. HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ W W W. I C E L A N DA I R . I SFerðaávísun gildir ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 85 71 0 8 /0 7 Finnur fiskurinn til? Hefur hann til-finningar og svo framvegis? Þessumspurningum eru menn að velta fyrirsér í Noregi þessa dagana. Meðal annars sem um er rætt er krafa dýraverndar- samtakanna Nóa (Noah) um að hætt verði að veiða lax og sleppa honum aftur. Þar segja menn að sportveiðimenn séu að leika sér með lifandi skepnur sem finni til og því sé ekki hægt að flokka þessar aðfarir öðru vísi en sem illa meðferð á dýrum. Það er rætt um velferð eldisfisks í kvíum og það hvernig villtur fiskur er veiddur. En helzt vilja fylgjendur Nóa að fólk borði hvorki fisk né kjöt. Hér er kannski rétt að staldra við. Ábyggi- lega finna fiskar eitthvað til. Auðvitað hlýtur aðbúnaður eldisfisks í kvíum að skipta máli. Séu aðstæður slæmar vex fiskurinn hægar og afföll verða meiri. Það eru því hreinlega prakt- ískar aðstæður fyrst og fremst fyrir því að láta fiskinum líða vel í kvíunum. Það er nokkuð þekkt staðreynd að við fáum hvorki fisk né kjöt á okkar disk öðru vísi en að drepa dýrin fyrst. Hvernig farið er að því að slátra dýrum okkur til matar getur vissulega skipt máli. Það á að Það er full ástæða til að staldra við þegar umræðan er komin inn á þessar brautir. Nátt- úru- og dýrverndarfólk verður að átta sig á þeim staðreyndum að heimsbyggðin er háð kjöti og fiski. Þeir mega ekki ganga of langt í baráttu sinni í þágu dýranna. Getum við átt það á hættu að allar veiðar verði bannaðar? Nú þegar eru Nóa-samtökin að beina spjótum sínum að fiskeldi. Þau segja að fiskurinn hafi verið tekinn úr náttúrulegu umhverfi sínu og hrúgað í kvíar, þar sem honum líði illa. Það getur svo sem vel verið að fiskinum líði illa í kvíunum, en út í náttúruna hefur hann aldrei komið og hefur ekki hugmynd um hvernig lífið utan kvíanna er. Auðvitað verðum við að halda áfram að veiða og ala fisk. Það verðum við að gera á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Maðurinn lifir ekki af brauði einu saman. Jesú stundaði fiskveiðar og bauð upp á fisk með brauðinu á sínum tíma. Finnur fiskurinn til á önglinum? » Öll þurfum við að borða ogblávatn og gras er kannski ekki á óskalistanum. BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason gera á þann hátt sem „mannúðlegastur er“. Hvernig skilgreinum við svo mannúð? Getur það að veiða fisk á öngul flokkast undir mann- úð, eða veiða hann í net eða troll? Flokkast það undir mannúð að loka hænsn inni í búrum og ala þau þar til þess eins að verða étin? Já, það getur svo sannarlega flokkast undir mannúð. Öll þurfum við að borða. Það er veru- leikafirrt fólk sem heldur það að hægt sé að seðja heimsbyggðina án þess að ala og veiða og drepa dýr sér til matar. hjgi@mbl.is VEIÐAR á túnfiski hafa staðið í stað undanfarin ár en árlegur afli er ríflega 4 milljónir tonna og ekki er fyrirsjáanlegt að veiðar aukist á komandi árum þar sem flestir tún- fiskstofnar heimsins eru ýmist full- nýttir eða ofnýttir. Sagt er frá þessu á heimasíðu Glitnis. Túnfiskur er almennt nokkuð dýr og eftirsótt fiskafurð en af heildarvirði heimsviðskipta með fiskafurðir er túnfiskur í fjórða sæti með um 7.6% hlutdeild. Þegar fjallað er um túnfisk er almennt átt við fimm undirtegundir en þær eru randatúnfiskur (e. skipjack), gulugga túnfiskur (e. yellowfin), gláparatúnfiskur (e. bigeye), hvítur túnfiskur (e. albacore) og bláuggat- únfiskur (e. bluefin). Í magni talið eru randa- og guluggatúnfiskur stærstu tegundirnar en samtals eru þær um 84% af veiddu heildar- magni. Bláugga-túnfiskurinn er aftur á móti verðmætasta tegundin þegar litið er á verð fyrir hvert veitt kíló en hann vegur hins vegar aðeins um 1,3% af veiddu heild- armagni. Niðursoðinn túnfiskur á niðurleið Eftirspurn eftir niðursoðnum túnfiski hefur heldur minnkað und- anfarin ár og hefur heimsneysla dregist nokkuð saman en áætlað er að hún hafi verið 0,45 kíló á mann árið 2006 samanborið við 0,49 kíló árið 2004. Vinsældir fersks túnfisks hafa á hinn bóginn aukist talsvert, sérstaklega innan landa ESB og í Bandaríkjunum, hækkandi verð á túnfiski hefur þó orðið til þess að eftirspurn eftir honum hefur lítið aukist upp á síðkastið. Túnfiskeldi að aukast Árið 2004 tók eldi á bláugga- túnfiski nokkurn kipp en þá jókst eldið um tæp 80% samanborið við árið á undan. Af heildar-heims- framboði er alinn túnfiskur þó að- eins lítið brot eða 0,5% af heild- armagni ársins 2005. Nánast allt eldi á túnfiski í heiminum í dag er áframeldi, þ.e. smár fiskur er veiddur, settur í kvíar og alinn þar upp í markaðsstærð. Þróun á seiða- framleiðslu og notkun á þurrfóðri eru helstu hindranir sem túnfisk- eldisiðnaðurinn þarf að komast yfir til að framtíðarvöxtur og sjálfbærni slíks eldis séu tryggð. Veiðar á túnfiski standa í stað Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.