Morgunblaðið - 27.08.2007, Side 12
12 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Ástu Sóley Sigurðardóttur
astasoley@mbl.is
MIKLIR skógareldar hafa geisað í
Grikklandi síðan á föstudag og hefur
minnst 61 maður látið lífið í eldunum.
Þeir eru meðal þeirra mannskæð-
ustu í heiminum síðustu 150 árin en
neyðarástandi og þjóðarsorg var lýst
yfir í landinu á föstudag.
Mestu eldarnir voru á Pelóps-
skaga og á Evia-eyju, sem er norður
af Aþenu, og talið var að ástandið
væri mjög slæmt á um 42 stöðum. 60
nýir eldar brutust út í gær en sam-
kvæmt embættismönnum í Grikk-
landi höfðu menn þegar náð stjórn á
40 þeirra í gærkvöldi.
Tugir sviðnaðra mannslíka hafa
fundist í fjallaþorpum á Pelópsskaga
en svæðið í kringum bæinn Sakaro
hlaut verstu útreiðina. 37 lík hafa
fundist þar enn sem komið er. Um 40
þorp höfðu verið rýmd í gærkvöldi.
Íkveikjur taldar líklegar
Grísk stjórnvöld segjast hafa grun
um að margir eldanna séu af manna-
völdum og segja ekki einleikið
hversu margir eldar brutust út á
sama tíma. 10 manns hafa verið
handteknir vegna gruns um íkveikju
eða vítavert gáleysi við meðferð elds,
þar á meðal kona á níræðisaldri og
65 ára maður. Stjórnvöld hafa lýst
yfir að allt að 88 milljónir séu í boði
fyrir þá sem geta gefið upplýsingar
um brennuvarga.
„Allir gráta,“ segir Jóhannes Lyb-
eropoulos, sonur íslenska ræðis-
mannsins í Grikklandi. Hann segir
ekki nóg af vélum og fólki til að berj-
ast við eldinn og að það sé ólýsanleg
tilfinning að vita af samlöndum sín-
um í þessum ótrúlegu aðstæðum.
„Þegar eldurinn berst inn í litlu
þorpin eru allar vélar og tækir
slökkviliðsmenn að berjast við elda
sem geisa annars staðar. Þorpsbúar
eru einir á móti óviðráðanlegum
skógareldum sem eyðileggja þorpin
þeirra og taka líf ættingja þeirra,“
segir Jóhannes. Hann segir slökkvi-
starf mjög erfitt bæði vegna þess að
sterkur vindur hafi verið í gær og
einnig vegna könglanna á furutrján-
um, en þeir springa og kastast yfir í
nálæg tré og leggja þannig eld að
þeim. „Þegar maður stendur á móti
30 metra eldhafi skilur maður hvað
maður er lítill í raun og veru,“ segir
Jóhannes.
Grísk stjórnvöld hafa kallað eftir
hjálp frá Evrópusambandinu og í
gærkvöldi höfðu 18 flugvélar borist
frá Frakklandi, Kanada og Ítalíu.
Ein rússnesk flugvél hefur verið í
slökkvistörfum í Grikklandi síðan í
júlí.Von var á sjö flugvélum í viðbót
og 13 þyrlum frá hinum ýmsu lönd-
um. 60 franskir slökkviliðsmenn, 30
kýpverskir og 18 ungverskir börðust
við hlið um 1500 innlendra her- og
slökkviliðsmanna.
Evrópusambandið segir viðbrögð
sambandslanda þau stærstu síðan
sérstakt kerfi, sem vernda á borg-
ara, var sett upp árið 2001.
Einir mestu skógareldar í
heiminum síðastliðin 150 ár
AP
Sigurgyðjan Eldtungur sleiktu hina fornfrægu Ólympíu en engar minjar
skemmdust. Sérstakt úðakerfi ver minjarnar og varðlið var á staðnum.
„Allir gráta – maður skilur núna hvað maður er lítill í raun og veru“
! "
#
$
%
Hyperabad. AFP, AP. | Tugir slösuðust
og 42 létu lífið er tvær sprengjur
sprungu á laugardag með nokkurra
mínútna millibili í Hyperabad í Ind-
landi. Sprengjunum var komið fyrir á
fyrirlestrarsvæði í almenningsgarði
og á veitingahúsi. Þriðja sprengjan
var gerð óvirk er hún fannst í bíósal.
Stjórnvöld á Indlandi leita nú með
logandi ljósi eftir þeim sem bera
ábyrgð á sprengingunum en enginn
hefur lýst yfir ábyrgð. Telja þau lík-
legt að íslamskir öfgamenn í Pakist-
an eða Bangladesh standi að baki
sprengjutilræðinu.
Talið er að sprengingarnar á laug-
ardag tengist tilræði er átti sér stað
þremur mánuðum fyrr, en þá létust
11 manns þegar sprengja sprakk í
mosku.
Mannskæð
sprengju-
tilræði á
Indlandi
AP
Blóðugt Önnur sprengjan sprakk á
meðal áheyrenda á fyrirlestri.
HÖFRUNGURINN Winter missti sporðblöðkurnar er
hann festist í krabbagildru en hann er eini höfrungur-
inn sem vitað er um sem hefur lifað af þrátt fyrir sporð-
missi. Hann hefur lært að synda án sporðs, en sund-
aðferðin fer illa með hrygg höfrungsins þannig að hann
er í sjúkraþjálfun hvern dag. Sérfræðingur í gervilim-
um vinnur nú að því að græða nýjar blöðkur á Winter.
Hann segir að nýta megi reynslu Winter fyrir menn.
AP
Sporðlaus höfrungur hvíldinni feginn
Ankara. AP. | Líklegt þykir að Abdull-
ah Gul, utanríkisráðherra Tyrk-
lands, tryggi sér stöðu forseta á
morgun. Aðeins þarf einfaldan
meirihluta í kosningum þingsins til
að tryggja sigur hans í kosningun-
um.
Eiginkona Gul, Hayrunnisa, klæð-
ist hefðbundinni höfuðslæðu að hætti
múslima og hefur það vakið mikla
andstöðu meðal veraldlegra valdhafa
í landinu. Ríkisstjórn Tyrklands
telst múslímsk að meiri hluta en ver-
aldleg öfl í Tyrklandi hafa lengi átt í
útistöðum við ríkisstjórnina vegna
árekstra trúar og ríkis. Hafa þau
lagt áherslu á að ráðamenn haldi trú
sinni aðskilinni frá starfinu.
Veraldarhyggjumenn eru
áhyggjufullir vegna slæðuburðar
væntanlegrar forsetafrúar og óttast
afturför í landinu vegna þessa. Slæð-
ur af þessu tagi eru bannaðar bæði í
skólum og á skrifstofum hins opin-
bera. Þeir eru einnig hræddir um að
Hayrunnisa Gul muni berjast fyrir
að slæðubanninu verði aflétt í land-
inu en hún hefur áður leitað álits
Mannréttindadómstóls Evrópu á því
hvort hún megi klæðast slæðu í há-
skóla og hefur verið leiðandi í bar-
áttu kvenna fyrir rétti til að bera
slæður.
Klæðaburður vekur ugg
AP
Hjónin „Ég verð forseti, ekki konan
mín,“ sagði Gul vegna slæðunnar.
ÓLYMPÍULEIKARNIR verða
haldnir í Peking á næsta ári og hafa
ýmsar ráðstafanir verið gerðar. Sú
nýjasta er framtak tveggja bænda
sem telja of mikið af flugum í borg-
inni. Þeir hafa fylgst með salernum
og görðum og gert myndband til að
kynna sér fjölgun flugnanna. Þeir
bjóða 16 krónur fyrir hverja hand-
samaða flugu, dauða eða lifandi.
Tveir fræknir
flugnabanar
ÍBÚAR í Afganistan mótmæltu í
gær á götum úti vegna fótbolta sem
þeir töldu vera guðlast. Bandarísk-
ir hermenn höfðu dreift boltunum
til barna en á knöttunum voru fán-
ar ýmissa þjóða, þar á meðal fáni
Sádi-Arabíu. Á fánann er nafn
Allah ritað og ekki þótti við hæfi að
sparkað væri í nafn hans.
Knattguðlast
í Afganistan
Colombus. AP. | Óveður hefur geisað í
miðvesturríkjum Bandaríkjanna síð-
astliðna viku og hafa minnst 18
manns látið lífið vegna flóða sem
fylgt hafa úrhellisrigningu og roki á
svæði sem nær frá Minnesota til
Ohio.
Hundruð þúsunda heimila voru
enn án rafmagns í gær.
Veðrið var farið að ganga niður í
Michigan í gær en þrátt fyrir það
voru yfir 42 þúsund heimili án raf-
magns. Í Illinois voru enn tugir þús-
unda heimili án rafmagns í gær-
kvöldi en um sex hundruð þúsund
heimili endurheimtu aftur rafmagn í
gær í ríkinu eftir að hafa verið án
rafmagns síðan á fimmtudag.
Um 1500 heimili urðu fyrir tjóni í
Minnesota og um 1400 í Wisconsin
en þar eyðilögðust algerlega 44 hús.
Látin vegna
óveðurs
♦♦♦
♦♦♦
LÖGREGLAN í Bretlandi hefur nú
sex unglinga í haldi vegna morðsins
á Rhys Jones, 11 ára drengnum sem
skotinn var til bana í fyrradag.
Lögreglan hefur áður sleppt úr
haldi tveimur 15 ára drengjum en
yfirheyrir nú unglingana sex sem
eru á aldrinum 15–19 ára. Yfirvöld
hafa hvatt vitni til að gefa sig fram
og bjóða lögregluvernd í staðinn.
Sex unglingar
handteknir
HEIMSMEISTARAMÓT í farsíma-
kasti var haldið í Finnlandi um
helgina. Finnar voru í 17 efstu sæt-
unum, fyrir utan Kanadamann sem
varð í 10. sæti. Tommi Huotari
kastaði síma 82,62 metra og sigraði
í karlaflokki en Eija Laasko vann í
kvennaflokki.
Finnar fleygja
farsímum langt
STAÐFEST hefur verið af ráða-
mönnum sjálfstjórnarhluta Abkh-
azia-héraðsins, að vél hafi brotlent
þar en ekki er vitað hvaðan vélin
er. Telja þeir hana georgíska.
Staðfesta brot-
lendingu vélar
NOURI Maliki, forstætisráðherra
Íraks, segir bandaríska þingmenn
láta eins og Írak sé „þeirra eign“ og
biður þá að virða lýðræði landsins.
Hann beinir orðum sínum sér-
staklega að Hillary Clinton og Carl
Levin, en þau hafa bæði nýlega ráð-
lagt íröskum þingmönnum að velja
sér nýjan leiðtoga.
Maliki geldur
hart með hörðu