Morgunblaðið - 27.08.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 13
MENNING
DÚÓ Stemma, sem er skipað
þeim Herdísi Önnu Jónsdóttur
og Steef van Oosterhaut, leikur
á sumartónleikum í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar á morg-
un. Herdís og Steef munu leika
á marimbu, víólu, slagverk og
steinaspil Páls á Húsafelli.
Flutt verða tónverk sem
Snorri Sigfús Birgisson, Áskell
Másson og Sveinn Lúðvík
Björnsson hafa samið sér-
staklega fyrir þau, auk eigin útsetninga á íslensk-
um þjóðlögum.
Tónleikarnir hefjast á morgun, þriðjudaginn 28.
ágúst, kl. 20:30.
Tónleikar
Dúó Stemma leikur
á víólu og steinaspil
Steef van
Oosterhaut
PÍANÓLEIKARINN Agnar
Már Magnússon sendir frá sér
nýjan geisladisk, sem hann
nefnir Láð, þann 30. ágúst
næstkomandi.
Agnar Már er í fremstu röð
íslenskra djasspíanista og á
Láð sýnir hann á sér nýja og
spennandi hlið með frum-
sömdum tónsmíðum sem vísa
beint og óbeint í íslensk þjóð-
lög.
Láð kemur formlega út 30. ágúst nk. á 33 ára
afmæli Agnars Más en þá verða jafnframt útgáfu-
tónleikar í Iðnó undir merkjum Djasshátíðar
Reykjavíkur.
Tónlist
Agnar Már sendir
frá sér Láð
Agnar Már
Magnússon
UM ÞESSAR mundir eru liðn-
ir þrír áratugir frá fyrstu út-
gáfu Kvöldfrétta, LP plötu þar
sem Olga Guðrún flutti lög og
texta Ólafs Hauks Símonar-
sonar. Nú hefur Kvöldfréttir
verið endurútgefin á geisla-
diski í tilefni af 60 ára afmæli
höfundarins.
Þegar Kvöldfréttir komu út
höfðu Ólafur Haukur og Olga
Guðrún þegar slegið í gegn
með barnaplötunni Eniga meniga. Kvöldfréttir
féllu á vissan hátt í skugga barnaplötunnar, en ef-
laust muna þó margir eftir lögunum „Keflavíkur-
vegurinn“, „Allar leiðir“ og „Karl Marx“.
Tónlist
Kvöldfréttir koma
út að nýju
Ólafur Haukur
Símonarson
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Cormac McCarthy hlaut um helgina
hin virtu James Tait Black Memor-
ial-bókmenntaverðlaunin sem afhent
voru á bókmenntahátíðinni sem nú
fer fram í Edinborg í Skotlandi.
Verðlaunin hlaut McCarthy fyrir
bók sína Road en í apríl fékk hann
Pulitzer-verðlaunin fyrir bókina.
Bókin Road fjallar um ferðalag
feðga sem ferðast um Ameríku eftir
miklar hörmungar.
Í flokki æviminninga og fræði-
bóka hlaut rithöfundurinn og blaða-
maðurinn Byron Rogers verðlaun
fyrir bók sína um breska ljóðskáldið
R.S. Thomas.
Hvor höfundur fékk 10 þúsund
pund, 1,3 milljónir króna, í verðlaun.
McCarthy mætti ekki við verðlauna-
afhendinguna en hann þykir mjög
fjölmiðlafælinn. Auk McCarthy voru
þau Chimamanda Ngozi Adichie,
Alice Munro, Sarah Waters, James
Lasdun og Ray Robinson tilnefnd til
verðlaunanna sem voru fyrst veitt
árið 1919. Meðal þeirra sem hafa
hlotið þau eru skáldin D.H. Lawr-
ence, E.M. Forster, Evelyn Waugh
og Iris Murdoch.
Í lok desember í fyrra sagði Óttar
Proppé, bóksali og tónlistarmaður, í
viðtali við Morgunblaðið að bókin
Road hefði verið eftirminnilegasta
bók sem hann las á árinu.
„Óskilgreindar hamfarir hafa skil-
ið eftir sig sviðna jörð á borð við
kjarnorkuvetur. Fótgangandi maður
er á leið til sjávar með ungan son
sinn í kulda og myrkri. Lífsbarátta
þeirra felst í að finna ómengaðar
vistir í hálfbrunnu umhverfinu og
forðast aðra eftirlifendur því það er
ljóst að engum er treystandi. Í
fyrstu minnir bókin á vísindaskáld-
sögur sjötta og sjöunda áratugarins
en síðan tekur saga samskipta feðg-
anna yfir. Einföld bók í margbreyti-
leika sínum sem vekur áleitnar
spurningar um hvert við stefnum
hnattrænt en ekki síður persónu-
lega,“ að sögn Óttars Proppé.
Góður McCarthy fékk einnig
Pulitzer-verðlaunin fyrir Road.
Bókmennta-
verðlaun
fyrir Road
McCarthy skrifaði
um ferðalag feðga
TÝND teikning eftir listamanninn
John Constable fannst á Breska
bókasafninu í London nýverið.
Teikningin, sem er af kirkju,
týndist eftir að hún var seld af
barnabarni Constable árið 1896.
Hún fannst síðan í rissbók sem
innihélt ýmsar upplýsingar um deil-
ur keppinautanna Constable og
JMW Turner. Bókin var eign við-
skiptajöfursins og dómarans Johns
Platt sem lést árið 1902. Platt setti
teikningu Constable á milli blað-
síðna í bókinni þar sem var efni sem
hann skrifaði og sankaði að sér um
deilurnar á milli listamannanna.
„Fólk vissi að þessi teikning væri
til en það vissi enginn hvert hún
hafði farið,“ sagði fræðimaðurinn
Felicity Myrone sem fann teikning-
una. „Við vitum ekki enn hvort
þetta var rissa fyrir væntanlegt
olíumálverk en það eru miklir
möguleikar á því.“
Teikning
Constable finnst
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ er óhætt að segja að Sigurður
Flosason saxófónleikari sé með
mörg járn í eldinum um þessar
mundir. Nýverið komu út tvær plöt-
ur með kappanum, Dívan og jazz-
maðurinn og Bláir skuggar, þar sem
hann leitar á ólíkar slóðir.
„Dívan og jazzmaðurinn er dúett-
plata okkar Sólrúnar Bragadóttur
óperusöngkonu. Við flytjum klassísk
íslensk sönglög, sem hvert manns-
barn þekkir, en með óhefðbundnum
hætti. Við frumfluttum þetta verk-
efni á Listahátíð síðasta vor og vor-
um síður en svo með það í huga þá
að gefa út plötu enda er þetta mjög
sjónrænt, með látbragði og leikara-
skap. En svo gerðum við litla til-
raun, tókum upp smá hluta, og fund-
um að þetta gat bara vel gengið og
erum mjög ánægð með útkomuna.
Efniviðurinn á þessum disk er vel
þekktur þó meðferðin sé stundum
nokkuð brött,“ segir Sigurður.
Blússkotinn djass
Á Bláum skuggum eru eingöngu
frumsamin lög eftir Sigurð. „Þetta
er djassplata undir töluvert miklum
blúsáhrifum. Bláir skuggar er inn-
blásin af tvennu, annars vegar blús-
uðum eldri djassstíl frá sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar, þar
sem Hammond-orgelið var oft áber-
andi og margir djassarar voru á
blúsaðri bylgjulengd, og hins vegar
er hún innblásin af þeim sem ég
spila með, en þeir tilheyra orðið
elstu kynslóð starfandi djasstónlist-
armanna hérlendis og eru þjóð-
sagnapersónur í íslenskri tónlist,“
segir Sigurður en ásamt honum
leika á plötunni Þórir Baldursson á
Hammond-orgel, Jón Páll Bjarna-
son á gítar og Pétur Östlund á
trommur.
„Við spiluðum saman á tvennum
tónleikum þegar við tókum upp og
síðan komum við fram á Djasshátíð
Reykjavíkur sem hefst í vikunni.“
Sigurður segir efnið á Bláum
skuggum ekki mjög líkt því sem
hann hefur gert áður. „Auðvitað eru
alltaf einhver höfundareinkenni á
fólki en það kveður við nýjan og
blúsaðri tón hér. Megnið af lögunum
er samið með mennina, sem leika
með mér, í huga.“
Draumkennd tónlist
Eins og áður var sagt kemur Sig-
urður fram á Djasshátíð í Reykjavík
ásamt bandinu sem leikur á Bláum
skuggum en hann mun einnig frum-
flytja þar nýtt efni ásamt öðrum
tónlistarmönnum. „Sú hugmynd að
halda samsetta tónleika kom frá
Djasshátíðinni og það vildi svo til að
ég átti í fórum mínum dálítið af
óhljóðrituðum sönglögum sem ég
hef gert við ljóð Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar, þannig að ég ákvað að
gera tilraun með lög úr því safni og
fékk til liðs við mig söngvarana Egil
Ólafsson og Ragnheiði Gröndal og
annað band sem í eru, auk mín,
Kjartan Valdimarsson á píanó og
Matthías Hemstock á slagverk.
Við munum leika lýríska og
draumkennda músík sem er líka
nokkuð ólík því sem ég hef gert áð-
ur, maður er alltaf að reyna að út-
víkka sjálfan sig,“ segir Sigurður og
hlær að þessari tilraunastarfsemi
sinni.
Leikur í Lincoln Center
Í október kemur Sigurður í annað
sinn á sínum ferli fram sem einleik-
ari með Sinfóníuhljómsveit Íslands
þar sem flutt verður nýtt einleiks-
verk fyrir saxófón og hljómsveit eft-
ir Veigar Margeirsson. „Þetta er
stykki sem byggir á íslenskum þjóð-
lagastefjum og minn partur í þessu
er að miklu leyti spuni en ég flyt líka
skrifaðar laglínur.“
En það er ekki allt því nýlega
bauðst Sigurði að halda tónleika í
Lincoln Center í New York.
„Aðdragandinn að því var sá að af
einhverjum ástæðum var óskað eftir
íslensku djassbandi til að halda tón-
leika þar. Íslenskir djassleikarar
fengu tækifæri til að senda inn upp-
lýsingar og upptökur eftir sjálfa sig
og ég er nýbúinn að fá þær fréttir að
ég hafi orðið fyrir valinu og fái að
standa fyrir tónleikum þar í janúar
eða febrúar. Það er ekki orðið alveg
ljóst hvaða verkefni ég mun fara
með en það mun væntanlega vera
tengt því sem ég hef verið að gera á
undanförnum árum. Þetta er mjög
spennandi og heilmikill heiður enda
er um mikla listamiðstöð að ræða,“
segir Sigurður sem heldur eina tón-
leika í Lincoln Center en segist trú-
lega ætla að nýta ferðina og leika
víðar í New York.
Margt í deiglunni
Það er ekki hægt að segja Sigurð
staðnaðan í starfi enda finnst honum
skemmtilegt að leita nýrra leiða.
„Mér finnst mjög spennandi að
geta spannað sem víðast svið í tón-
listinni og nýta þann bakgrunn og
þekkingu á tónlist sem ég hef. Part-
ur af íslensku tónlistarlífi er að spila
í mörgu, kannski frekar en hjá
stærri þjóðum þar sem hlutirnir
verða sérhæfðari. Hér, m.a. af því að
markaðurinn er lítill, kemur maður
víða við og ég hef líka sóst eftir því
og stundaði þannig nám, fyrir utan
hvað það er skemmtilegt.“
Spurður hvort fleiri verkefni séu í
deiglunni segir Sigurður það ekkert
launungarmál að hann standi í að
koma út fleiri plötum. „Ég stefni að
því að koma einhvern tímann út
plötu með sinfónísku efni, með verki
eftir sænskt tónskáld sem ég flutti
með Sinfóníuhljómsveitinni 1996 og
er til hljóðritað nú þegar og vonandi
þessu nýja verki Veigars. Ég geri
líka ráð fyrir því að í mars muni ég
koma fram sem einleikari með einni
fremstu stórsveit Svíþjóðar, Norr-
botten big band, og líklega taka upp
eitthvað sem gæti orðið plata með
þeim. Það eru um tíu ár síðan ég hóf
samstarf við sænskan útsetjara sem
hefur útsett lög eftir mig fyrir stór-
sveit með sjálfan mig sem einleikara
og höfum við spilað þau víða en
þetta er ekki ennþá komið á plötu
svo það verður upptaka líklega í
mars. Ég er því dálítið að horfa á
þessi stærri form, sinfóníu-
hljómsveit og stórsveit, og reyna að
láta mína rödd heyrast í fleiri en
einu samhengi.“
Sigurði Flosasyni hefur verið boðið að leika í Lincoln Center í byrjun næsta árs
Með mörg járn í eldinum
Þjóðsagnapersónur Sigurður Flosason ásamt Þóri Baldurssyni, Jóni Páli Bjarnasyni og Pétri Östlund en þeir
leika með honum á Bláum skuggum sem er ný blússkotin djassplata með lögum eftir Sigurð.
Morgunblaðið/ÞÖK
Saxófónn Sigurður leikur í
Lincoln Center í byrjun næsta árs.
Leikur á Djass-
hátíð í Reykjavík
Í HNOTSKURN
»Sigurður á hlut í fjórum plöt-um sem hafa komið út á
þessu ári. Auk Blárra skugga og
Dívunnar og jazzmannsins kom
út fyrr á árinu plata með Kvart-
etti Sigurðar Flosasonar og Jóels
Pálssonar, sem tekin var upp í
Kína. Þá kom einnig út plata með
færeysk-íslenska tríóinu Trisfo.
»Sigurður og Sólrún eru nú átónleikaferð um landið. Á
morgun koma þau fram á Höfn í
Hornafirði, á fimmtudaginn í
Stykkishólmi og á sunnudaginn á
Akureyri.
♦♦♦