Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 14
|mánudagur|27. 8. 2007| mbl.is daglegtlíf Hvað er yndislegra en að vera með 40 m² svalagarð á móti suðri? Þess njóta Else Zimsen og Guðmundur Gústafsson. »16 daglegt Ófáar krónur liggja í seðilgjöld- um sem rukkuð eru inn er send- ir eru út reikningar t.d. fyrir húsnæðislánum og síma. »16 fjármál Ég hef haft áhuga á dýr-um síðan ég man eftirmér og hef alltaf áttmér gæludýr. Þetta byrjaði á því að maður fór að draga heim einhverja flækings- ketti, mömmu til mikillar armæðu, en svo eignaðist ég sjálf hamstra, páfagauka, ketti, hunda og hesta og hef alltaf jafn gaman af því að umgangast dýr,“ segir Stella Kristjánsdóttir, sem er Kópa- vogsbúi, en hefur verið búsett á Selfossi undanfarin fjögur ár. Eftir að Stella fluttist á Selfoss fóru vin- ir og kunningjar að biðja hana um að passa hundana sína ef þeir þurftu að bregða sér frá og nú er orðið svo mikið að gera hjá Stellu í hundapössunarhlutverkinu að hún er alvarlega að spá í að gera hundapössunina að fullu starfi og fara út í rekstur heimilislegs hundahótels. Heimasíða Stellu, www.hundakofinn.is, er í burð- arliðnum og segir hún það rétt- nefni enda búi hún í hálfgerðum hundakofa. „Hingað til hefur þetta snúist um vinargreiða. Ég sé nú fram á að geta látið gamlan draum ræt- ast, en þarf bara að koma mér í stærra húsnæði og í almennilega aðstöðu, helst úti í sveit. Eins og er bý ég í pínulitlu einbýlishúsi ásamt sambýlismanni, hálfsystk- inunum Seif og Heru, sem eru af Dobermann-kyni, og kisunni Birtu. Mig vantar fleiri herbergi, en þrátt fyrir þrengslin hefur verið góð sátt milli manna og dýra á heimilinu. Sambúð hunda og katta gengur sömuleiðis vel enda eru allir vinir hér. Ég anna bara ekki lengur eftir- spurn og fólk, sem ég jafnvel þekki engin deili á, er nú farið að hringja til að biðja mig um að passa hunda. Það er m.a.s. farið að biðja um pössun yfir jólin. Um síð- ustu jól passaði ég tík fyrir vin- konu mína og níu hvolpa, sem komu svolítið óvænt í heiminn. Það var yndislegt. Hundarnir, sem ég tek að mér, eru bara inni á heim- ilinu með mínum hundum og fara út að labba og leika með okkur þegar svo ber undir. Ég fer með hundana í langa labbitúra, oft upp á Hellisheiði, niður í fjöru eða út í sveit þaðan sem sambýlismaðurinn er ættaður. Ég legg mikla áherslu á hreyfingu dýranna sem er óneit- anlega góð líkamsrækt fyrir mig í leiðinni.“ Ástríkir og blíðir varðhundar Þegar talið berst að eigin dýr- um, segir Stella að hálfsystkinin Seifur og Hera séu búin að bræða fjöldamörg hjörtu í gegnum tíðina. En hvernig lýsir hún lundarfari dýranna sinna? „Öfugt við það sem margur heldur eru Dobermann-hundar með eindæmum ástríkir og blíðir þó vissulega geti heyrst mjög hátt í þeim þegar þeir setja sig í varð- hundastellingar enda er tegundin ræktuð með það í huga að passa upp á sitt og sína. Þeir eru ekki grimmir að eðlisfari, aðallega bara háværir og stundum svolítið mikið brussulegir. Ég var til dæmis hlaupin niður um daginn þegar mágkona mín kom í heimsókn að sækja voffann sinn í pössun því gleðin og fjörið var svo mikið við að fá gest. Umburðarlyndur tuðari Seifur heldur að hann sé Casa- nova, en hann er líka alveg rosa- lega mikill pabbi í sér. Þegar ég vann í Húsdýragarðinum fyrir nokkrum árum tók hann miklu ást- fóstri við fjölmörg dýr og gekk í mörgu ungviðinu í föður stað. Hann ól til dæmis upp nokkra grísi, tók á móti þeim þegar þeir fæddust, þreif eyrun þeirra, skeindi og smalaði þeim svo undir hitaperuna svo þeim yrði ekki kalt. Þegar grísirnir gerðust óstýrilátir var hann Seifur minn eins og um- burðarlyndur faðir að næstum óskiljanlegt var. Hann er líka mjög árvökull og passar vel upp á sitt og sína. Hann er duglegur og vinnusamur fjörkálfur, en er svo- lítill tuðari og spjallar mikið þegar honum liggur mikið á hjarta. Hann er mikil kelirófa og minnir stund- um á gamlan, rymjandi og stynj- andi karl, sem vill láta dekstra sig,“ segir Stella um Seif, sem hún fékk tveggja mánaða fyrir sjö ár- um. Ropandi matargat „Hera, sem nú er þriggja og hálfs árs, er ofsalega umburð- arlynd og skemmtileg tík. Hún er mun hægari týpa en stóri bróðir, en dugleg og árvökul. Hún fleygir sér fram af klettum og syndir út í straumharðar ár á eftir dótinu sínu svo passa þarf að henda því ekki á of glæfralega staði. Líkt og Seifur hefur hún foreldraeðlið í sér og er alltaf ákaflega glöð þegar litlir hvolpar koma í pössun. Hún er reyndar ekki eins góð í uppeldinu því hún leyfir þeim að komast upp með alltof mikinn hamagang og á endanum ræður hún ekkert við þessa prakkara. Henni lyndir al- veg svakalega vel við alla hunda og er mjög leikglöð. Hún er hinsvegar ofboðslegt matargat og betra er að skilja ekki stórsteikurnar eftir á borðinu ef maður bregður sér af bæ því þá er ekki ólíklegt að mað- ur komi að henni á ný ropandi eft- ir skyndibitann. Hera er mikil keli- rófa eins og Seifur og keppast þau systkinin um að liggja í fanginu á mér yfir sjónvarpsglápinu á kvöld- in,“ segir Stella. Heimtufrek kelirófa Birta, kisan hennar Stellu, er norskur skógarköttur, kafloðin, blíð og heimtufrek kelirófa. „Ef hún vill klapp og knús um miðja nótt er maður vakin með mali, nuddi, narti og stappi og svo treð- ur hún sér stundum líka undir sængina. Það er vart hægt að glugga í bók nálægt henni því hún ýtir lesefninu bara úr höndunum á mér og plantar sér sjálf þar fyrir og malar. Helst drekkur hún bara úr baðvaskinum og leggur sig gjarnan í blauta sturtu þegar ég er búin að athafna mig þar. Birta er nefnilega dálítið furðuleg.“ join@mbl.is Draumurinn heimilislegt hundahótel Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Dýravinur Stella Kristjánsdóttir ásamst heimilishundunum þeim Seif og Heru og norska skógarkettinum Birtu sem er, líkt og hundarnir, mikil kelirófa. Langt er síðan Stella Kristjánsdóttir tók ástfóstri við hunda. Hún sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að hún væri alvarlega að spá í að segja upp vinnunni sinni og ger- ast hundapassari í fullu starfi enda væri eftirspurnin næg. ÞAÐ kallast víst ekki beint blíðusvipur sem kötturinn Nude Dude sendir ljósmyndaranum, enda víst ekki í tísku að brosa þegar maður stillir sér upp fyrir ljósmyndarann að hætti háttlaunaðra fyrirsætna. Nude Dude er af teg- undinni hárlaus Sphynx og var meðal katta sem tóku þátt í kattasýningu sem haldin var í Waco í Texas á dögunum. Og brosa svo … Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.