Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 15
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 15
HVAÐ VILTU VERÐA? HVAÐ VILTU LÆRA? HVERT VILTU FARA?
ÞÚ ERT LEIKSTJÓRINN Í ÞÍNU LÍFI, OG ÞAÐ ER SAMA HVAÐA HLUTVERK ÞÚ VELUR, KAUPÞING STENDUR MEÐ ÞÉR.
KAUPÞING BÝÐUR ÞJÓNUSTU SEM ER SNIÐIN AÐ ÞÖRFUM UNGS FÓLKS.
KANNAÐU MÁLIÐ Á WWW.KAUPTHING.IS/UNGTFOLK EÐA HRINGDU Í SÍMA 444 7000.
HVERT ER ÞITT HLUTVERK?
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
3
4
9
aðkall. Ætli þau græði
eitthvað á þessu? Getur
verið að Kolaportið sé
með efnahagslíf sem er
sjálfstætt frá restinni af
landinu? Innbyrðis við-
skipti þar sem peningar
skipta um hendur en
fara þó aldrei út úr
míní-hagkerfinu? Ætli
harðfisksala sé eina
auðlind Kolaportsins og
sjái hinum fyrir „gjald-
eyri“?
x x x
Áleiðinni í Kolaport-ið stoppaði Vík-
verji á skyndibitastað og keypti sér
ljúffengan rétt. Víkverji var rukkaður
um 700 krónur og síðan bent á, þegar
hann ætlaði að yfirgefa staðinn, að
gos fylgdi með. Víkverji þakkaði fyrir
sig og labbaði út en uppgötvaði síðan
að hann ætlaði aldrei að kaupa gos.
En þetta var búið og gert þannig að
Víkverji lét sig hafa það.
Svona getur gerst er samlandar
Víkverja kaupa sér flugfar með Ice-
land Express. Alsaklausir neytend-
urnir ætla sér ekki að kaupa neina
forfallatryggingu – en uppgötva svo á
leiðinni í flugið að það er búið og gert.
Innifalið í verðinu.
x x x
Hrós Víkverja að þessu sinni fertil gatnamálastjóra fyrir lagn-
ingu göngu- og hjólastígar Árbæj-
armegin við Elliðaárnar í Stíflu-
hringnum. Kominn tími til! Víkverji
vill endilega sjá meira af þess háttar
framkvæmdum enda göngu- og hjóla-
stígakerfi borgarinnar löngu úrelt.
Víkverji ákvað í síðustu viku að hjóla
frá Kirkjusandi og upp að Hádeg-
ismóum og valdi Sæbrautina sem
heillavænlegustu leiðina. Víkverji
hefði betur tekið strætó – þetta
reyndist hættuför. Oftar en einu sinni
er Víkverji hjólaði eftir gangstéttinni
tók hún upp á því að enda skyndilega
og neyða Víkverja ýmist út á Sæ-
brautina eða í torfæruakstur á gras-
inu. Þvílík og önnur eins hættuför
verður ekki farin aftur fyrr en þetta
verður lagað.
Víkverji skellti sér íKolaportið um
helgina og sá þar sýn-
ishorn af skrautlegu
mannlífi borgarinnar.
Merkilegast fannst
honum þó að mestu við-
skiptin virtust fara
fram á milli seljenda.
Einn báseigandi
keypti hatt hjá öðrum
og stillti honum síðan
upp á eigin bás á upp-
sprengdu verði. Bóka-
strákurinn skaust á
milli borðanna með
reglulegu millibili og at-
hugaði hvort hann fengi
nú ekki hina og þessa bók á hundr-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
NÍU af hverjum tíu launþegum at-
huga einkatölvupóst, skoða verald-
arvefinn eða sinna öðrum einka-
erindum í vinnutímanum, að því er
ný rannsókn frá Analyse Danmark
leiðir í ljós.
Það voru 1.078 launþegar sem
tóku þátt í könnuninni sem sýnir
svo ekki verður um villst að það er
ekki eingöngu unnið eftir starfslýs-
ingu í vinnutímanum en hvorki
stéttarfélög né vinnuveitendur telja
þetta þó vera vandamál.
Minnst klukkutími á dag
Í könnuninni kemur fram að 10%
launþega noti minnst klukkutíma á
dag í það að skoða tölvupóst,
hringja einkasímtöl, skoða verald-
arvefinn í eigin þágu og til þess að
hafa samband við banka, skóla og
aðrar opinberar stofnanir, en einnig
í styttri útréttingar í vinnutím-
anum.
Launþegar nota einnig tímann til
þess að spila tölvuspil og spjalla við
aðra tölvunotendur í gegnum spjall-
forrit en þó í mun minna mæli.
Það var Jens Christian Tonboe,
prófessor við félagsfræðideild Ála-
borgarháskóla sem greindi frá nið-
urstöðum rannsóknarinnar en hann
segir jafnframt að meira sé um að
fólk noti vinnutímann til útréttinga í
Kaupmannahöfn en t.d. á Jótlandi.
Hann telur að Jótar séu almennt
húsbóndahollari en borgarbúarnir
og séu meðvitaðri um hvað má og
hvað ekki og taki þar með sínar
skyldur alvarlegar.
Jens segir einnig að munur sé á
höfuðborgarbúunum og Jótum að
því leytinu til að Jótar séu ólíklegri
til að taka sér veikindafrí og mæti
frekar í vinnuna en að sitja veikir
heima.
Þó þessi munur sé á landsbyggð-
inni annarsvegar og höfuðborginni
hinsvegar virðast vinnuveitendur
ekki telja þetta vandamál. Ástæðan
er sögð vera sú að tæknin hafi gert
það að verkum að frítími og vinnu-
tími renni sífellt meira saman.
Þannig vita vinnuveitendur vel að
þótt starfsfólk noti vinnutímann til
að sinna einkaerindum upp að vissu
marki þá notar starfsfólk líka mik-
inn hluta af sínum frítíma til að
sinna vinnunni sinni.
Aðeins 8% þátttakenda í könn-
uninni sögðust aldrei myndu sinna
einkaerindum í vinnutímanum.
Útréttingar Mörk vinnutíma og
einkalífs renna æ meira saman og
ein afleiðingin er að fólk notar
vinnutíma til að sinna einkaerindum.
Einkalífi og
vinnu bland-
að saman
Morgunblaðið/Sverrir