Morgunblaðið - 27.08.2007, Side 16

Morgunblaðið - 27.08.2007, Side 16
daglegt líf 16 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þegar reikningur upp á1.000 krónur ber 250króna seðilgjald getatvær grímur farið að renna á greiðandann. Sá kostnaður er hins vegar ekki óumflýjanlegur. Í það minnsta eru til leiðir til að lækka hann verulega. „Seðilgjöldin eru leifar frá þeim tíma þegar það var viðtekin venja að greiðslustaður væri hjá seljanda eða veitanda þjónustunnar,“ segir Hildigunnur Hafsteinsdóttir hjá Neytendasamtökunum. „Hug- myndin með seðlunum var upp- runalega að spara greiðandanum kostnaðinn og fyrirhöfnina af því að fara á marga staði með peninga í poka. Í staðinn gæti hann látið nægja að fara á einn stað með greiðsluseðlana, þ.e. í bankann.“ Rafrænir reikningar Hún segir gjöldin hins vegar ekki alltaf endurspegla raunveru- legan kostnað fyrirtækjanna af innheimtunni. „Bankarnir taka gjald fyrir að gera þessa seðla og senda út en stundum er ekki samræmi milli þess sem bankinn rukkar fyr- irtækið um og þess sem fyrirtækið rukkar greiðandann um. Þetta má sjá með því að bera saman gjald- skrá bankanna og upphæðina sem innheimt er á greiðsluseðlinum. Við fáum jafnvel mál til okkar þar sem fram kemur í gjaldskrá banka að seðilgjald sé 200 krónur en á reikningum er rukkað um 500 krónur. Þess vegna er mikilvægt að fólk sé vakandi yfir þessu, t.d. með því að kynna sér gjaldskrár bankanna.“ Vilji fólk hins vegar losna við eða draga úr gjöldunum ráðleggur Hildigunnur því að hafa viðskiptin sem mest pappírslaus, ef þess er nokkur kostur. Í sumum tilfellum má gera það með því að láta skuld- færa upphæðirnar beint á krít- arkort eða bankareikninga. „Það er líka hægt að lækka þennan kostnað verulega með því að fá rafræna greiðsluseðla í gegnum heimabanka og greiða þá þar. Í einhverjum tilfellum fellur seð- ilgjaldið þá alveg niður en í öðrum Seðilgjöld endurspegli raunverulegan kostnað Ófáar krónur liggja í seðilgjöldum sem rukkuð eru inn þegar sendir eru út reikningar fyrir þjónustu á borð við orkuveitu, síma og húsnæðislán. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir kynnti sér leiðir til að draga úr seðilgjöldunum.        ! # $%&   ' ($$ $  )  & *   )+ ,   $ - ". /  $*%     0 $   *$1 " ( $ 2 $$   *$1 "3  $1 ""$  4   .  $1 "  $1 " ( $ $1 "   .  $1 "  $1 "  $1 "   .  2 $$   *$1 "   .  $1 "  $1 " $ &'() *+) *,+ ,-+ ,-+ ,+) ,'( ,'( ,'+ ,*) .() $ &*&.,/ "0    1 2 fjármál fjölskyldunnar Else Zimsen lyfjatæknirog Guðmundur Gúst-afsson, fyrrverandibankamaður, fluttu fyr- ir þremur árum úr íbúð á Rauða- læk, þar sem þau höfðu búið mest- an sinn búskap og í „penthouse“-íbúð í Grafarholti. Íbúðin er stór og útsýnið í allar áttir en líklega myndu flestir óska sér að geta tekið svalagarðinn með sér heim svo fremi þeir eigi ekki stóran garð fyrir. „Svalirnar hjá okkur á Rauðalæknum voru ekki stórar en við vorum þar samt með nokkra potta með sum- arblómum og svo keilugreninu sem við fluttum með okkur hing- að,“ segir Else. Tíu ára með fræ í poka Else og Guðmundur hafa löngum haft áhuga á gróðri. Afi Else byggði sumarbústað við El- liðavatn árið 1918 og foreldrar hennar tóku við ræktuninni þar upp úr 1938. Þau bjuggu síðan all- mörg ár í Stykkishólmi þar sem faðirinn var apótekari. Við Elliða- vatnið var megináhersla lögð á trjárækt en í Stykkishólmi var ræktaður garður og það þótt fólk segði að þar gæti ekkert sprottið. Guðmundur ólst upp í Laugarnes- hverfinu og þar var fallegur garð- ur í kringum hús fjölskyldu hans. Hann hefur nú hvað mestan áhuga á trjárækt og hefur plantað þús- undum trjáa í sumarbústaðarlandi hjónanna austur í sveitum. Þegar hann var ekki nema 10 ára fór hann vestur í Dýrafjörð til sum- ardvalar og hafði þá með sér fræ- poka með blönduðum fræjum, lík- lega nokkuð óvenjulegt fyrir lítinn dreng. Fræjunum sáði hann og upp spruttu blóm, svo óhætt er að segja að hann hafi lengi haft áhuga á gróðri. Svalirnar í Grafarholtinu snúa mót suðri og eru umluktar hálf- háum steinveggjum og ofan á þá er sett hert gler. Til endanna er glerið meira en mannhæðarhátt og Else segir að þau hafi fengið að koma með hugmynd um þessa hækkun strax á meðan húsið var á teikniborðinu. Vissulega hefði orð- ið nokkuð vindasamt á svölunum ef endaveggirnir hefðu verið lægri og segja má að blásturinn geti stundum orðið óþægilega mikill þrátt fyrir þá. Dreymir um glerhús en ekki pott „Mig dreymir um að fá glerhús yfir þriðjung svalanna en það hef- ur ekkert verið gert í því enn sem komið er. Þá myndum við geta gengið beint út úr svefnherberg- inu út í húsið en vestari hluti sval- anna yrði óyfirbyggður þar sem gengið er út úr stofunni.“ Else hafnar eiginlega alveg hug- myndinni um heitan pott, segist ekki geta hugsað sér að sitja í heitum potti „úti á götu“, fyrir augum þeirra sem aka framhjá. Hún viðurkennir þó að bílstjór- arnir hafi kannski ekki tíma til að horfa mikið upp á svalir þegar þeir aka framhjá. En potturinn bíður betri tíma. Hjónin höfðu eingöngu verið með bláa, glerjaða útipotta á svöl- unum í fyrri heimkynnum sínum og ákváðu að halda sig við bláa lit- inn. Það hefur gengið vel og nú eru öll blómin, trén og runnarnir á svölunum í stórum og fallegum bláum pottum og litur blóma og potta fer svo sannarlega vel sam- an. Tré, runnar og marglitt blómskrúð Sumarblómin eru mest áber- andi, enda litir þeirra sterkir og tegundirnar margar. Hins vegar Grænir fingur í Grafarholti Hvað er yndislegra en að vera með hátt í 40 m² svala- garð á móti suðri? Þess njóta þau Else Zimsen lyfja- tæknir og Guðmundur Gústafsson, fyrrverandi bankamaður. Fríða Björnsdóttir fylltist öfund er hún fékk tækifæri til að njóta sólar og gróðurs á svölunum. Notalegt í sólinni Fyrir miðjum svalagarðinum eru garðhúsgögnin og þar er hægt að njóta þess að fá sér te eða kaffi á sólskinsdögum. Morgunblaðið/Frikki Stundum hvasst Else nýtur sólarinnar en segir oft ansi hvasst á svölunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.