Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 17

Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 17
lækkar það verulega. Með þessu losnar maður líka við glugga- umslögin og pappírinn sem þeim fylgir. Hins vegar er þetta vissu- lega ákveðið óréttlæti gagnvart þeim sem eru ekki með heima- banka.“ Í einhverjum tilfellum er hægt að spara seðilgjöld með því að skipta reikningum á færri greiðslur að sögn Hildigunnar. „Þeir sem geta hagnast á því að hafa gjalddagana sem fæsta því þannig lækkar heildarupphæðin sem fer í seðilgjöld.“ Bölvað og borgað Og það er eftir heilmiklu að slægjast ef marka má Hildigunni. „Seðilgjöldin eru frá því að vera í kringum 200 krónur og allt upp í tæplega 500 krónur svo að upp- hæðirnar geta orðið stórar þegar þær safnast saman. Ef meðalheim- ilið greiðir um 10 greiðsluseðla mánaðarlega og meðalupphæð seð- ilgjaldsins er í kringum 300 krónur fara um 3.000 krónur í seðilgjöld í hverjum mánuði. Á ári gera það 36 þúsund krónur.“ Hún bætir því við að stundum séu gjöldin nefnd ein- hverjum öðrum nöfnum, s.s. til- kynningar- og greiðslugjald, út- skriftargjald o.þ.h., en þau eigi það sammerkt að vera ekki hluti af því sem greiðandinn kaupir heldur bætast þau við upphaflega samn- ingsupphæð. Hún segir marga ekki nægilega meðvitaða um hversu háar upp- hæðir er um að ræða. „Maður bara borgar og bölvar og telur þetta ekkert saman. Raunar eru margir ekki meðvitaðir um reikninga yf- irleitt, hvað þeir eru að borga fyr- ir. Þannig geta þeir uppgötvað seint og síðar meir að þeir hafa verið að borga fyrir eitthvað sem þeir áttu ekki að borga fyrir. Hvað seðilgjöldin varðar ættu þeir sem geta að biðja um rafræna reikn- inga eins og hægt er og/eða fækka gjalddögum. Þeir sem eru hins vegar í greiðsluþjónustu hjá við- skiptabanka sínum ættu að ræða við sinn þjónustufulltrúa um leiðir til að draga úr þessum gjöldum.“ ben@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 17 SUMIR ERU TRYGGÐIR, ÁN ÞESS AÐ VITA NÁKVÆMLEGA FYRIR HVERJU. VERTU VISS eru þarna ófá tré og runnar. Reynitrén eru þónokkur og af ýmsum afbrigðum og síðan eru trjákenndir runnar á borð við run- namuru sem blómstrar, hvítum, gulum og bleikum blómum. Sú með gulu blómin er viljugust að blómstra en í sumar eru komin hvít og bleik blóm líklega á hin tvö afbrigðin vegna þess hversu sólríkt hefur verið. Í svalagarð- inum eru líka gljámisplar og hyrn- ar (cornus). Þeir eru bæði með rauðum og lime-grænum leggjum sem halda litnum allt árið og eru því fallegir á veturna. Keilugrenið gleður augað allt árið en það á að geta orðið a.m.k. eins og hálfs metra hátt en á þó nokkuð í að ná þeirri hæð enn sem komið er. Gróðurinn dafnar vel enda natni þeirra Else og Guðmundar mikil. Það skemmir svo heldur ekki þeg- ar sólskinsstundirnar er eins margar og þær hafa verið í sumar. Kannski glerhús Hver veit nema í austurenda svalanna verði komi glerhús einn góðan veðurdag. Þangað til er hægt að sóla sig þar á sólbekkjunum. Grænt og blátt Keilugrenið í suðvesturhorni svalanna er sígrænt og fallegt allan ársins hring. Það á að geta hækkað a.m.k. um helming. Þessar þrjár plöntur eru orðnar 5 ára og komu í pottunum af Rauðalæknum. Sólarblóm Sólfífillinn er gulur og appelsínurauður á lit- inn og ofsalega fallegur með sínum stóru blómum sem auka enn á litríki svalanna. Else segir að hann hafi blómstra meira í fyrra þótt sólin væri þá minni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.