Morgunblaðið - 27.08.2007, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VESTURLAND
Toronto í sex vikur. Í Ottawa var
meðal annars haldið kynningarkvöld í
íslenska sendiherrabústaðnum þar
sem stúlkurnar kynntu Snorra-
verkefnið fyrir meðlimum Íslands-
vinafélagsins í borginni, röktu sögu
vesturferðanna frá Íslandi jafnframt
því sem þær gerðu grein fyrir gagna-
grunni Íslendingabókar og ættfræði-
og erfðarannsóknum á Íslandi.
NÝLOKIÐ er fyrsta Snorra vestur-
verkefninu í Ontario og riðu á vaðið
tvær stúlkur, Friðný Ósk Her-
mundardóttir, laganemi við Háskól-
ann á Akureyri, og Unnur Ýr Krist-
mundsdóttir, nemi við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Verkefnið var
byggt upp eins og Snorra vestur-
verkefnið og dvöldu stúlkurnar í
Montreal, Québec City, Ottawa og
Snorri vestur í Ontario Friðný Ósk Hermundardóttir háskólanemi og
Unnur Ýr Kristmundsdóttir framhaldsskólanemi með sendiherrahjón-
unum í Ottawa, Steinunni Ármannsdóttur og Markúsi Erni Antonssyni.
Tvær riðu á vaðið í Ontario
ERIC Stefanson og Wanda Anderson með þátttakendunum í Snorraverk-
efninu í Manitoba, en þeir eru Þóra Samúelsdóttir, Hrafnhildur Sigmars-
dóttir, Katrín Jónsdóttir, Íris Hauksdóttir, Eygló Einarsdóttir, Andrea
Björnsdóttir, Lára Gústafsdóttir og Sindri Viktorsson.
Snorri vestur í sjöunda sinn
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„ÞETTA er frábær upplifun og það
er ótrúlegt að hitta áður óþekkt
skyldfólk eftir öll þessi ár,“ segir
Ronald Johnson, þátttakandi í
Snorra plús verkefni Þjóðræknis-
félags Íslendinga og Norræna fé-
lagsins.
Snorri plús verkefnið fer nú fram
í fimmta sinn. Það hefur farið fram í
lok ágúst síðan sumarið 2003 og eru
þátttakendur nú 16 en áður höfðu
samtals 38 manns sótt þetta um
tveggja vikna námskeið.
Um 50 íslenskir ættingar
„Námskeiðið hefur gengið óskap-
lega vel,“ segir Ásta Sól Kristjáns-
dóttir, verkefnisstjóri, og bætir við
að sú ákvörðun að koma þátttakend-
um í samband við skyldfólk hérlend-
is hafi mælst mjög vel fyrir. Í því
sambandi vísar hún til þess að í
mótttöku á fyrsta degi hafi mætt um
50 ættingjar til að hitta gestina sem
þeir höfðu ekki séð áður.
Snorri plús er hugsað fyrir fólk
eldra en 28 ára, einskonar viðbót við
Snorraverkefnin, sem eru ætluð fyr-
ir yngri þátttakendur. Þegar fólk
sækir um fyllir það meðal annars út
ættartré og vísaar á ættingja sem
það veit um. Í kjölfarið er reynt að
hafa upp á þessum ættingjum og
þeim sagt frá verkefninu. Ásta Sól
segir að viðbrögðin séu almennt
mjög góð og yfirleitt sé fólk mjög
spennt fyrir því að hitta ókunna ætt-
ingja frá Norður-Ameríku.
Verkefnið er í nokkuð föstum
skorðum. Í fyrri vikunni er boðið
upp á fyrirlestra um land og þjóð,
heimsóknir til fyrirtækja að eigin
vali. Ferðalög, meðal annars til
Hofsóss, einkenna seinni vikuna.
Þar var hópurinn um helgina, en
hann fer frá Akureyri á morgun aft-
ur til Reykjavíkur. Útskrift verður
síðan á miðvikudag.
Að þessu sinni eru þátttakendur á
aldrinum 43 til 74 ára, 10 frá Kanada
og sex frá Bandaríkjunum. Allir eru
í fyrstu heimsókninni til Íslands en í
sumum tilfellum hafa skyldmenni
áður tekið þátt í Snorraverkefni.
Gaman að kynnast áður
ókunnum ættingjum
Ljósmynd/Arngrímur Baldursson
3 km hlauparar Daginn eftir komuna skelltu þátttakendur sér í
Glitnishlaupið. Aftari röð frá vinstri: Dorothy Johnson, Ronald Johnson,
Barbara Johnson, David Garrett, Arnette Anderson, Susan Lee Garrett,
Shirley Una Syms, Elizabeth Ann Magnusson Lawrence, Leigh Syms,
Elizabeth Arend, Amanda Hargis og Almar Grímsson, formaður
þjóðræknisfélagsins. Neðri röð frá vinstri: Linda Wilkinson, Beverly
Anderson, Ásta Sól Kristjánsdóttir verkefnisstjóri, Halldor Bjarnason og
Anna Björk Guðbjörnsdóttir.
10 km hlauparar Systurnar Solveig Christie og Karen Botting.
ÚR VESTURHEIMI
Borgarbyggð | Borgarfjarðar-
deild Rauða kross Íslands hefur
ráðið nýjan starfskraft í 20%
stöðu. Ása S. Harðardóttir tók
við stöðunni í sumar og segir að
markmið starfsins sé fyrst um
sinn að leggja áherslu á þjónustu
við erlenda íbúa svæðisins og
þjónustu sem kölluð er heimsókn-
arvinur. ,,Heimsóknarvinaþjón-
usta Rauða krossins er liður í því
að sporna við félagslegri ein-
angrun hinna ýmsu þjóðfélags-
hópa, en samkvæmt skýrslu RKÍ
,,Hvar þrengir að“ er einangrun
eitt alvarlegasta þjóðfélagsmein
nútímans. Heimsóknarvinur er
sjálfboðaliði sem heimsækir gest-
gjafa sinn að öllu jöfnu einu sinni
í viku og geta sjálfboðaliðar verið
á öllum aldri, jafnt konur sem
karlar. Og þeir sem fá heimsókn-
ir eru líka konur, karlar, ungir og
aldraðir. Ása segir heimsókn-
arvinina og gestgjafana hafa ým-
islegt fyrir stafni s.s. tala saman,
hlusta á tónlist, spila, föndra, fara
saman út að ganga, í bíó, á kaffi-
hús, fara í bíltúr eða bara það
sem þeim dettur í hug. ,,Mik-
ilvægt er að geta tekið hverjum
og einum eins og hann er, og fyr-
irkomulag heimsóknarinnar er
samkomulag beggja“.
Sjálfboðaliðar sem heimsækja
fara á sérstakt námskeið hjá
Rauða krossi Íslands og eru
bundnir trúnaði og þagnarskyldu.
,,Það þarf að vera tryggt að vitn-
eskja um persónulega hagi fari
ekki lengra,“ segir Ása.
Námskeið fyrir sjálfboðaliða í
Borgarbyggð og nágrenni sem
vilja gerast heimsóknarvinir verð-
ur haldið í lok september nk. og
er hægt að skrá sig sem sjálf-
boðaliða á heimasíðu RKÍ,
www.redcross.is.
Mikil þörf á náinni samvinnu
Borgarfjarðardeild RKÍ bauð
erlendum börnum á grunn-
skólaaldri í Borgarbyggð upp á
aukanámskeið í íslensku í ágúst.
,,Já, við töldum mikilvægt að
halda námskeið fyrir þessa krakka
og réðum kennara úr Grunnskól-
anum til þess að kenna. Nám-
skeiðið stóð í 8 daga, nemendum
var skipt í tvo hópa eftir aldri,
yngri og eldri. Þátttaka var mjög
góð enda nemendur meðvitaðir um
að aukin íslenskukunnátta bætir
sjálfstraustið og ýtir undir gagn-
kvæma virðingu í vinahópunum.
Ýmislegt fleira var brallað en
bein kennsla því einn daginn var
farið í sund og síðasta daginn var
skroppið í Húsafell. Kennarar
voru þær Ingibjörg Grétarsdóttir
og Sólrún Tryggvadóttir.
Ása tók þátt í því að stofna
grasrótarhreyfinguna ,,Félag
áhugafólks um margmenningu í
Borgarbyggð“ sl. vetur og var í
stjórn félagsins um tíma. ,,Ég
sagði mig úr stjórn félagsins þeg-
ar ég var ráðin í þessa stöðu, og
kýs frekar að starfa náið með fé-
laginu á vegum Rauða krossins,
þótt ég sé auðvitað enn í félaginu.
Mikil þörf er á náinni samvinnu
allra íbúa Borgarbyggðar í gras-
rótinni vegna ört breyttrar sam-
setningar fólksins á svæðinu. Hér
búa nú um 300 erlendir íbúar og
fer fjölgandi, hingað flyst fjöl-
skyldufólk í meira mæli en áður.
Búið er að ákveða fjölþjóðahátíð í
Borgarnesi í samvinnu við Marg-
menningarfélagið en framkvæmd
þess hefur verið frestað fram á
næsta ár. Ástæða frestsins er
fyrst fremst tímaskortur við und-
irbúning, en við viljum standa vel
að svona uppákomu. Svo er auð-
vitað mikilvægt að nefna að ann-
an hvern sunnudag í vetur verður
opið hús í húsnæði RKÍ í Borg-
arnesi á vegum Margmenning-
arfélagsins. Húsnæði RKÍ er í
safnaðarheimilinu Félagsbæ við
Borgarbraut og eru allir velkomn-
ir sem áhuga hafa á margmenn-
ingu og betra mannlífi í Borg-
arbyggð.
Heimsóknarvinir og margmenning
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Þjónusta Ása S. Harðardóttir var í sumar ráðin starfsmaður Rauða krossins hjá Borgarfjarðardeild.
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur
vala@simenntun.is