Morgunblaðið - 27.08.2007, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurður ÖrnHermannsson
fæddist í Keflavík 9.
ágúst 1959. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 14. ágúst
síðastliðinn.
Foreldrar hans
eru Guðrún Emils-
dóttir f. 30. 7. 1930
og Hermann Sig-
urðsson f. 19. 6.
1930, búsett í
Reykjanesbæ. Al-
bræður Sigurðar
eru Skúli Hafþór f. 9. 9.1956,
Helgi Þór f. 25. 9.1957, Emil
Ásólfur f. 19. 7. 1961, Hermann
Rúnar f. 18. 8. 1962 og Margeir f.
21. 8. 1966, allir búsettir í Reykja-
nesbæ. Systir hans sammæðra er
Hjördís Árnadóttir f. 28. 12. 1952,
búsett í Reykjanesbæ. Systkini
samfeðra eru Katrín f. 23. 12.
1951, Egill f. 19 11. 1952, bæði
búsett á Akureyri, og Elsa Katrín
f. 25. 9. 1953, búsett í Reykjavík.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar
er Alma Tóm-
asdóttir f. 22. 10.
1966. Foreldrar
Ölmu eru Hrefna
Pétursdóttir f. 7. 1.
1943 og Tómas
Skaphéðinn Sig-
urgeirsson f. 4. 3.
1936, látinn 22. 2.
1976, fósturfaðir
Ölmu er Almar
Viktor Þórólfsson f.
21. 12. 1946. Syskini
Ölmu eru Sigurgeir
Guðni f. 19. 3. 1960,
Guðrún Petra f. 19.
3. 1960, Hrefna Guðný f. 17. 4.
1969 og Viktoría Ósk f.2. 9. 1980.
Synir Sigurðar og Ölmu eru
Tómas Örn f. 14. 4. 1985, sam-
býliskona hans er Karen Ösp f. 2.
7. 1988, Hermann Sigurjón f. 13.
3. 1990, kærasta hans er Ísabella
Ósk f. 29. 6. 1991 og Viktor f. 7. 8.
1992.
Útför hans fer fram frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju mánudaginn
27. ágúst n.k. og hefst athöfnin
kl. 14.
Elsku engillinn okkar,
hér sit ég dofin og innantóm að
reyna að skrifa þér kveðjuorð, sem
er óþarft því þú ert í hjarta okkar
og huga og verður alltaf.
Þegar þú varst aðeins 4 mánaða
varst þú svo veikur að þér var vart
hugað lengra líf. Þá létum við
skíra þig, því ég var svo fullviss
um að þér myndi þá batna og þau
miklu undur gerðust að það var
rétt.
Eftir mánaðar dvöl á sjúkrahúsi
fengum við þig heim og má segja
að eftir það varð þér varla mis-
dægurt öll þín uppvaxtarár. Við
fengum að hafa þig hér með okkur
í 48 ár og sjá þig vaxa og verða
dugandi maður. Síðan eignaðist þú
yndislega konu, hana Ölmu þína,
og drengina þína þrjá sem nú
verða að sjá á eftir þér alltof fljótt.
Ég veit að þú fylgist með þeim og
okkur öllum sem núna sitjum sorg-
mædd og hnípin og skiljum ekki af
hverju þú varðst að fara núna. Það
er ekki á okkar valdi að ráða för-
inni. Ég vil þakka þér enn og aftur
fyrir hvað þú varst duglegur að
styrkja okkur í þeirri ákvörðun að
hafa bústaðaskipti og alla snún-
ingana með okkur eftir að pabbi
þinn veiktist og þurfti að vera upp
á aðra kominn með svo margt. Þú
varst alltaf til staðar fyrir okkur
og eflaust lögðum við meira á þig
en heilsa þín leyfði, þess vegna er
höggið svo þungt fyrir okkur að
missa þig svo fljótt.
Við hefðum viljað að þú gætir
verið með okkur hér á nýjum slóð-
um rétt hjá þínu heimili, en fékkst
að vera hér einn heilan dag og
gleðjast með okkur þó helsjúkur
værir og þökkum við það.
Þú stóðst meðan stætt var, það
sjáum við núna. Þú varst svo ljúf-
ur og góður drengur að það hefur
verið tekið vel á móti þér í heimi
ljóssins.
Þú verður alltaf í hjarta okkar
og huga og tekur á móti okkur
þegar þar að kemur.
Guð geymi þig, ljúflingur,
við elskum þig, og við munum
hugsa vel af veikum mætti um
Ölmu þína og drengina ykkar.
Mamma og pabbi.
„Þú ert það yndislegasta sem
hefur komið í mitt líf. Þú ert minn
besti vinur. Ást mín á þér er með
orðum ólýsanleg. Ég hef elskað
þig frá fyrsta degi sem ég sá þig
og ást mín á þér hefur vaxið frá
ári til árs. Þú ert sá engill sem guð
sendi mér og ég þakka honum fyr-
ir hvern dag með þér.“
Ástin mín, þessa fallegu ástar-
játningu ritaðir þú til mín, ég vil
segja þér að hugur minn til þín er
sá sami. Þín er sárt saknað af mér
og strákunum en minningin af þér
lifir í hjörtum okkar.
Þín að eilífu,
Alma.
Elsku Siggi bróðir.
Ég er ekki alveg búinn að ná því
að þú ert farinn, ég á eftir að
sakna þín,, kæri bróðir. Það var
alltaf gott að spjalla við þig um
fótbolta því þú hafðir mikinn
áhuga á þeim enska.
Mig langar að minnast Sigga
bróður með tveimur atvikum úr
æsku okkar.
Það fyrra var þegar ég var um
7-8 ára og Siggi var 10-11 ára. Það
gerðist í gömlu sundlauginni í
Keflavík. Ég var ekki búinn að ná
tökunum á að synda í djúpu laug-
inni, en Siggi og Ómar, vinur hans,
má segja „kenndu“ mér að synda í
djúpu. Sú aðferð er líklega ekki
skráð í skólanámsskránni. Siggi
var við bakkann öðrum megin og
Ómar hinum megin. Þeir köstuðu
mér til skiptis út í djúpu og þurfti
ég að bjarga mér og það tókst. Ég
náði að synda í djúpu lauginni.
Siggi vissi að ég gæti þetta og ég
vissi að Siggi bróðir myndi ekki
láta neitt koma fyrir mig.
Seinna atvikið gerðist nokkrum
árum seinna þegar Siggi var á
unglingsárunum. Siggi kom heim
eitt kvöldið og hafði fengið slæmt
höfuðhögg. Um það var rætt að
hann mætti ekki sofna, vegna þess
að það væri slæmt að sofna eftir
höfuðhögg. Þegar allir voru farnir
að sofa, læddist ég inn til Sigga og
var hjá honum um nóttina til þess
að fylgjast með honum eins og
hann hafði fylgst með mér. Ég
vissi að Siggi hefði gert það sama
ef þetta hefði verið eitthvert annað
af okkur systkinunum og ég veit
að hann fylgist með okkur þar sem
hann er núna.
Kæri Siggi, þú fylgist með fót-
boltanum og tippar þarna uppi í
góðu samlæti með hinum hörðu
Leedsurunum t.d. Billy Bremner.
Þangað til við hittumst aftur,
bróðir.
Hermann.
Elskulegur bróðir minn Sigurð-
ur Örn Hermannsson, ávallt kall-
aður Siggi, er látinn. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 14.
ágúst sl. eftir stutta en snarpa
baráttu við krabbamein.
Siggi var sjö árum yngri en ég.
Þegar hann var kornabarn var
hann alvarlega veikur og vart hug-
að líf. Kraftaverk gerast stundum
og Siggi vann bug á veikindum
sínum þá og óx og dafnaði í
stórum systkinahópi.
Siggi var fallegt barn og sú feg-
urð óx með honum allt til enda,
jafnvel síðustu vikurnar þegar
hann var fársjúkur, var hann fal-
legur.
Siggi var hæglátur alla tíð og
tróð sér hvergi fram, hann var
hinsvegar alltaf til staðar og tilbú-
inn til hjálpar þar sem hjálp var
þörf. Þannig var hann alltaf til
staðar fyrir aldraða foreldra okkar
og er missir þeirra og harmur
mikill. Kraftur Sigga var mikill og
hlífði hann sér ekki þó líkaminn
væri hættur að halda í við vilja-
styrkinn.
Siggi bróðir hjálpaði mér mikið
á síðasta ári þegar ég var á tíma-
mótum í mínu lífi og þurfti aðstoð
við að koma mér fyrir í nýrri íbúð,
þá var hann allt í senn, flutnings-
maður, rafvirki, smiður og reddari.
Þá var gott að eiga marga bræður
sem allir snerust í kringum stóru
systur líkt og þegar við vorum
börn. Það besta í lífi Sigga var
fjölskyldan hans, elskan hans hún
Alma og strákarnir Tómas, Her-
mann og Viktor. Ég man þegar
hann kom fyrst með ástina sína og
kynnti hana fyrir stóru systur.
Alma var þá 17 ára og þau voru
svo ástfangin. Það voru þau allt til
síðasta dags og mátti hann ekki af
ástinni sinni líta í veikindum sínum
og Alma stóð eins og klettur við
hlið hans.
Siggi var góður eiginmaður og
faðir. Hann var stoltur af strákun-
um sínum, var vinur þeirra og fyr-
irmynd. Það er erfitt fyrir Ölmu
og strákana að sætta sig við að
horfa á bak ástvininum langt fyrir
aldur fram. Þegar Siggi vissi hvert
stefndi sagðist hann hafa gert ráð
fyrir að sjá drengina sína eldast og
gefa sér barnabörn. Hann mun
vernda fjölskylduna sína um
ókomin ár, frá æðri stað.
Í miðjum veikindum Sigga fluttu
foreldrar okkar milli íbúða. Hann
náði því að heimsækja þau og var
svo glaður yfir því hversu vel fór
um þau í nýju íbúðinni.
Þegar andlát bróður míns bar að
var ég stödd erlendis, langt inni í
Julionsku ölpunum ásamt Ósk
dóttur minni. Það var erfitt að
vera svo langt í burtu en ég hugg-
aði mig við síðustu stundirnar sem
við áttum saman ég og Siggi, ég
var svo lánsöm að vera hjá honum
allan laugardaginn 11. ágúst og
fékk að sinna honum, gefa honum
fótanudd, faðma hann og kyssa.
Elsku Alma, Tómas, Hermann,
Viktor, mamma, pabbi, Hrefna, Al-
mar og allir aðrir sem elskuðu
Sigga, góður Guð veri með okkur
öllum á þessum erfiða tíma og um
alla framtíð.
Minningin um góðan dreng lifir.
Elsku bróðir minn, takk fyrir
allt.
Þín elskandi stóra systir,
Hjördís.
Elskulegur bróðir minn er fall-
inn frá eftir stutta en hetjulega
baráttu við erfið veikindi. Siggi
var fjórði í röðinni af okkur sjö
systkinum sem ólumst upp saman.
Hann eignaðist duglega og ynd-
islega eiginkonu, Ölmu, og strák-
ana Tómas, Hermann og Viktor.
Þau voru honum allt. Hann lenti í
vinnuslysi fyrir þónokkuð mörgum
árum. Þau veikindi reyndust hon-
um erfið, þrátt fyrir það harkaði
hann af sér og vann fyrir okkur fé-
lagana í Víkurási í mörg ár. Og var
hann með duglegri mönnum, ósér-
hlífinn og æðrulaus.
Elsku Siggi, ég á eftir að sakna
þín sárt, stórt skarð hefur verið
höggvið í fjölskyldu okkar en ég
veit fyrir víst, eins og ég sagði við
þig, að við eigum eftir að hittast
aftur.
Elsku Alma, Tómas, Hermann,
Viktor, mamma og pabbi, Guð gefi
ykkur styrk til að takast á við ykk-
ar mikla missi, sem og okkur öll-
um sem elskuðum hann.
Þinn vinur og bróðir,
Skúli.
Hann elsku Siggi er dáinn.
Hann hefur kvatt þennan heim eft-
ir baráttu við krabbamein.
Siggi var algjört gull af manni.
Alla tíð hefur Siggi reynst mér
mjög vel og nú er hans sárt sakn-
að því erfitt er fyrir nokkurn
mann að fylla það skarð sem Siggi
hefur skilið eftir í lífi okkar. Þar
sem að hann var í senn, sannur
vinur og ástríkur eiginmaður og
faðir.
Þó svo að ég hafi alla tíð dýrkað
Sigga og litið upp til hans þá hef
ég samt sem áður heyrt sögur af
því þegar ég var lítil og frekar
ósátt við Sigga, en það var þegar
hann „stal“ henni Ölmu minni frá
mér. En hún Alma gat nú ekki
fundið sér betri mann þar sem þau
tvö hafa verið fyrir mér hin full-
komnu hjón, alltaf jafn ástfangin.
Ég sagði alltaf og stend við það
enn að Siggi er pabbi minn númer
2. Þar sem ég var mjög mikið hjá
þeim sem barn og hef alltaf komið
reglulega í heimsókn eftir að ég
hætti að passa strákana og fá að
gista. Pabbi minn var svo mikið á
sjó á uppvaxtarárunum og ég mik-
ið hjá Ölmu og Sigga á þeim tíma,
því er nú kannski ekki svo skrítið
að ég hafi séð smápabba í honum.
Ég man að oft hjálpaði Siggi
mér með stærðfræðina, enda ekki
margir í fjölskyldu minni með eitt-
hvert stærðfræðivit. Hann sýndi
öllum mínum áhugamálum enda-
lausan áhuga. Ég held hann hafi
verið eina manneskjan í fjölskyld-
unni minni sem gaf sér tíma til
þess að hlusta á og horfa á Take
That-myndbönd með mér þegar ég
var unglingur. Það þarf nú sterkan
og góðan mann til að sitja undir
allri þeirri vitleysu. Það skipti mig
engu máli þegar ég kom heim til
Ölmu og Sigga að Alma væri ekki
heima. Því við Siggi gátum enda-
laust talað um daginn og veginn.
Margir segja að hann hafi verið
feiminn, en ég þekkti það ekki.
Þegar strákarnir voru litlir
passaði ég þá og það hef ég fengið
greitt margfalt til baka eftir að
Hildur Alma fæddist. Þegar við
Steinþór fórum til Kaupmanna-
hafnar í apríl sl. tók Siggi það að
sér að passa gullið okkar. Siggi sá
ekki sólina fyrir henni Hildi Ölmu
og sagði ætíð að hún væri litla
barnabarnið sitt. Enda eru Alma
og Siggi, amma og afi á ská.
Ég á alltaf eftir að muna þau
orð þegar Siggi sagði að Hildur
Alma væri eina barnabarnið sem
hann fengi að sjá. En ég veit í
hjarta mínu að þó svo að hann hafi
kvatt okkur þá vakir hann yfir
okkur og leiðir okkur í lífinu.
Hann mun fylgjast með henni
Ölmu sinni og sonum að handan.
Hann mun sjá öll barnabörnin sín
og vernda þau um ókomna tíð.
Elsku Alma, Tómas, Hermann
og Viktor, megi góður guð styrkja
ykkur í sorginni. Þið hafið misst
yndislegan mann, eiginmann og
föður. Hann vakir yfir ykkur og
leiðir ykkur áfram um ókomin ár.
Þó svo að hann sé farinn frá fjöl-
skyldu sinni og vinum er hann
ekki einn því ég veit að hann er í
góðra vina hópi nú þegar og að
lokum munum við hittast aftur.
Viktoría Ósk.
Elsku hjartans Siggi okkar, fal-
legi Siggi. Nú erum við, ástvinir
þínir, minnt á að vegir lífsins eru
órannsakanlegir. Við stöndum
agndofa frammi fyrir þeirri stað-
reynd að þú ert frá okkur tekinn.
Við viljum fyrst og fremst þakka
þér fyrir að hafa fengið að kynnast
þér, svo góður og ljúfur sem þú
varst. Við viljum þakka þér fyrir
allar góðu samverustundirnar sem
við fjölskyldan höfum notið með
þér og fjölskyldunni þinni. Það er
stórt skarð komið í hópinn okkar.
Þín verður sárt saknað sem mágs,
svila, frænda, ferðafélaga og vinar.
Elsku Alma og „strákarnir“ það
er erfitt að koma orðum að svo að
þau veiti stuðning og styrk á svona
tímum þegar harmurinn er svo
mikill, en minningin um Sigga
okkar mun lifa. Við sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur og öllum
öðrum ástvinum.
Hrefna, Ásgeir og strákarnir.
Það er ekkert auðvelt við það að
setjast niður til að rita til þín mína
hinstu kveðju Siggi minn en þó
finnst mér ég knúinn til þess þar
sem mér finnst ég ekki hafa náð að
kveðja þig áður en þú kvaddir, svo
miklu fyrr en ég hafði gert mér í
hugarlund.
Síðast þegar við töluðum saman
var í ganginum á Faxabrautinni
Sigurður Örn
Hermannsson
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
✡
Ástkær bróðir minn,
RICHARD TALKOWSKY
sellóleikari,
Klapparstíg 7,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 5. ágúst síðastliðinn.
Minningarathöfn verður haldin í Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 31. ágúst kl. 15:00.
Joan Talkowsky.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
✝
BJÖRN TH. BJÖRNSSON
er látinn.
Ásgerður Búadóttir.