Morgunblaðið - 27.08.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 23
daginn eftir að uppgötvaðist að þú
væri haldinn þessu banvæna
meini. Þú varst mjög brotinn þá og
við spjölluðum um að það eina sem
hægt er að gera í svona aðstæðum
er að halla sér að Guði og trúnni.
Það var gott að heyra þig segja að
þú hefðir alltaf verið trúaður, haft
þína trú. Þegar allt annað bregst
þá er það Guð sem við leitum til.
Nú ert þú kominn til Guðs og án
efa farinn að undirbúa að taka
móti okkur sem eftir lifum, þegar
okkar tími kemur. En þú sagðir
líka við mig, á okkar hinsta fundi,
að þú vonaðist eftir að fá að lifa í
tvö til þrjú ár í viðbót og ég hélt
að það myndi nú að minnsta kosti
verða svo en raunin varð allt önn-
ur og núna, rétt um mánuði síðar,
ertu farinn.
Elsku Siggi minn, það var ávallt
gott á milli okkar frændanna, ég
bar alltaf virðingu fyrir þér og leit
upp til þín á marga vegu sem þú
eflaust gerðir þér aldrei grein fyr-
ir. Hvernig þú barðist í gegnum
árin við verkina sem fylgdu vinnu-
slysinu á sínum tíma og lést aldrei
buga þig er mér óskiljanlegt. Það
þarf hugrekki til að standast slíka
hluti og láta þá ekki buga sig,
enda sýndirðu það í þessari stuttu
baráttu þinni við krabbameinið.
Það var allt lagt undir, ekkert væl,
en andstæðingurinn var ósigrandi
í þetta sinn.
Já, þetta gerist allt saman svo
hratt. Ég man hversu hreykinn þú
varst af að fá frænda með sama af-
mælisdag og þú þegar sonur minn
fæddist fyrir þremur árum. Það
eru bara þrjú ár síðan og nú, 48
ára og 5 daga, ertu allur. En þó að
ekkert verði úr sameiginlegum
veisluhöldum í framtíðinni þá veit
ég að minningin um þig verður
ávallt fersk á afmæli sonar míns,
afmælinu þínu. Þannig verður það
hjá mér og mömmu og öllum sem
voru þér nánir. Það er gott að
hugsa til þess.
Kæri frændi, ég veit að þú ert
stoltur af henni Ölmu þinni, Tóm-
asi, Hermanni og Viktori. Þau
stóðu sig öll eins og hetjur í kistu-
lagningunni, eins erfið og hún var,
og amma og afi eru eins og klett-
ar. Ég veit að þannig vildir þú
hafa það og þannig er það.
Siggi minn, nú er komið að
kveðjustundinni. Takk fyrir að
vera vinur minn og frændi og ég
veit að við munum hittast aftur á
öðrum og betri stað. Þangað til …
Þinn frændi og vinur,
Þór Jóhannesson.
Elsku vinur. Það var erfitt að
trúa og reyna að sættast við það
þegar þú hafðir greinst með
krabbamein. Daginn sem ég kom í
heimsókn til þín varst þú nýbyrj-
aður í lyfjameðferð og ég man það
þegar við töluðum saman um að
þetta hefði verið þinn besti dagur.
En það var svo erfitt að horfa á
þig svona veikan.
Elsku Siggi minn, stundirnar og
tímarnir sem við áttum saman
voru margir og góðir og þá vil ég
geyma í hjarta mínu.
Fljótlega eftir að við kynntumst
þá náðum við ótrúlega vel saman,
hvort sem það var saman í
vinnunni eða utan vinnunnar. Ég
man vel eftir þeim degi er ég fór
að kalla þig Sigga „bróður“ og
hvað Ölmu fannst það yndislegt og
við höfðum gaman af.
Það skipti ekki máli hvort við
strákarnir í vinnunni eða við fé-
lagarnir værum búnir að ákveða
að fara í keilu eða djamma, þú
varst alltaf til í slaginn. Þessir
tímar og stundirnar sem við fé-
lagarnir tveir áttum voru margar
og góðar. Það var svo gaman þeg-
ar þið Alma komuð í heimsókn,
strákarnir hlökkuðu svo til þegar
Siggi „bróðir“ eins og þeir kölluðu
þig kæmir.
Elsku vinur okkar, við gætum
skrifað heila bók um þig, hve ynd-
islegur þú varst og góður vinur.
Eins og þú sagðir oft sjálfur, ég
elska þig. Við elskum þig líka og
þín verður sárt saknað. Megi þú
hvíla í friði, elsku vinur.
Elsku Alma, synir og fjölskylda.
Við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð og megi Guð styrkja ykkur
í þessari miklu sorg.
Þínir kæru vinir,
Elvar og Guðrún Björg.
Í dag kveðjum við hinstu kveðju
Sigurð Örn Hermannsson, sem var
starfsmaður hjá okkur í Víkurási
til fjölda ára. Okkur var illa brugð-
ið þegar við fréttum fyrir rúmlega
2 mánuðum að hann hefði greinst
með krabbamein en héldum í von-
ina að hann fengi lækningu og
næði heilsu á ný. En fyrr en nokk-
urn óraði fyrir er komið að kveðju-
stund og við erum harmi slegin.
Siggi hafði allt til að bera sem
prýða má góðan starfsmann og
vinnufélaga. Hann var duglegur,
ósérhlífinn og úrræðagóður, trygg-
ur, fínn spilafélagi í kaffitímum,
góður vinur vina sinna, stundum
dálítið dulur en alltaf einlægur og
hvers manns hugljúfi, svona mætti
lengi telja. Einhverjum kann að
þykja þetta klisjukennd upptaln-
ing en þetta er bara það sem kem-
ur upp í hugann þegar við minn-
umst Sigga. Og hann var fyrst og
fremst góður drengur, hafði sér-
lega gott hjartalag og reyndist öll-
um vel sem til hans leituðu.
Siggi hætti störfum hjá okkur í
Víkurási fyrir um 2 árum vegna
gamalla meiðsla sem hann hlaut
sem ungur maður í hafnarvinnu en
fékk aldrei bót á. En hann kíkti
endrum og sinnum til okkar í
heimsókn og leysti stundum af
þegar mikið lá við. Það var gott að
fá hann inn á verkstæðið og við
fundum að það var gagnkvæmt,
honum fannst gott að vera með
gömlu vinnufélögunum aftur. Veik-
indi hans í sumar komu okkur öll-
um á óvart og þótt útlitið væri
svart trúðum við ekki öðru en að
hann ætti eftir meiri tíma en raun
varð á. Okkur er orða vant. Marg-
ar spurningar um lífið og tilveruna
herja á hugann en fátt er um svör.
Það var ætlunin að rétta Sigga
lítið bænakver til að hafa á nátt-
borðinu og grípa í, og láta fylgja
með svohljóðandi ritningarvers:
Og Drottinn mun sjálfur fara fyrir
þér, hann mun vera með þér, hann
mun eigi sleppa af þér hendinni né
yfirgefa þig. Óttast þú eigi og lát
eigi hugfallast. (5. Mósebók 31:8)
Tileinkum það eftirlifandi aðstand-
endum og biðjum góðan Guð að
hjálpa þeim í gegnum þessa miklu
sorg.
Vottum Ölmu, drengjunum, for-
eldrum, systkinum og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð. Minn-
ingin um góðan dreng lifir.
Fyrir hönd vinnufélaga í Vík-
urási,
Benjamín Guðmundsson.
Atvinnuauglýsingar
ⓦ
Áhugasamir hafi
samband við Ólöfu
í síma 899 5630.
Blaðberi
óskast
Blaðbera vantar sem
fyrst í
Innri-Njarðvík
Sölumenn í verslun
Óskum að ráða duglegan og hressan sölumann
í verslun okkar. Áhugavert starf við að selja
spennandi vörur. Markið er rótgróin framsækin
verslum með reiðhjól, æfingatæki, skíði og
fleiri sportvörur. Umsóknareyðublöð liggja
frammi í verslun okkar í Ármúla 40.
Einnig er tekið við umsóknum á netfangið:
markid@markid.is
Sölufulltrúi óskast
Framsækin verslun á höfuðb.sv. vantar metn-
aðarfullan sölufulltrúa í 80-100% starf. Fastur
vinnutími er 12-18 virka daga og annan hvern
laugardag. Einnig getum við bætt við okkur
sölufulltrúa í hlutastarf seinni part dags. Hent-
ugt fyrir metnaðarfulla námsmenn. Skilyrði eru
góð íslenskukunnátta og æskilegt er að um-
sækjendur séu eldri en 25 ára. Nánari uppl.
veittar í síma 848 6287 (Guðrún).
Ljósmyndastofan Mynd óskar eftir
aðstoðarmanneskju
í fullt starf sem fyrst. Starfið felur í sér t.d. af-
greiðslu, frágang, símasvörun sem og aðstoð
við ljósmyndara.
Upplýsingar ekki veittar á staðnum og ekki er
óskað eftir nema.
Umsóknir berist á box@mbl.is merktar:
,,L - 20515’’ fyrir 7. september. Reyklaus
vinnustaður.
Fasteignasalan
Miklaborg
leitar að kraftmiklum sölumönnum til að bæt-
ast í hóp öflugs liðs starfsmanna. Við val á um-
sækjendum verður m.a. annars leitað eftir:
Jákvæðni og starfsgleði.
Íslenskukunnáttu, bæði í rituðu og töluðu máli.
Metnaðargirni og ábyrgðarkennd.
Reynslu af fasteignasölu/sölumennsku.
Fasteignasalan Miklaborg er ört vaxandi fyrir-
tæki sem ætlar sér að verða í fremstu röð á
sviði fasteignaviðskipta. Hjá Mikluborg er mikil
áhersla lögð á jákvætt starfsumhverfi, metnað í
starfi og framúrskarandi vinnuaðstöðu. Mikla-
borg er reyklaus vinnustaður.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja
um. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Umsóknir skal senda á oskar@miklaborg.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Til leigu
snyrtileg skrifstofuherbergi í Ármúla.
Mismunandi stærðir. Góð aðstaða.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Fyrirtæki
Atvinnu/viðskiptatækifæri
Til sölu rótgróið netfyrirtæki í fjarkennslu,
skuldalaus og þægilegur rekstur sem borgar
sig upp stuttum tíma. Hægt að reka fyrirtækið
hvaðan sem er. Hentar vel samheldinni fjöl-
skyldu með góða tölvukunnáttu.
Verð kr. 8.000.000. Fyrirspurnir sendist á net-
fangið: olol@torg.is.
Tilkynningar
Fullyrðingar
í merkingum matvæla
Vegna nýrra reglna Evrópusambandsins um
notkun fullyrðinga í umbúðamerkingum
matvæla vill Umhverfisstofnun vekja athygli á
að íslenskum framleiðendum og innflytjendum
matvæla, þar með talið fæðubótarefna, gefst
nú kostur á að koma á framfæri upplýsingum
um heilsufullyrðingar sem þeir óska eftir að
nota í framtíðinni. Fullyrðingarnar verða að
vera rökstuddar með vísindalegum gögnum.
Frekari upplýsingar og eyðublöð er að finna
á heimasíðu stofnunarinnar www.ust.is og hjá
Jónínu Þ. Stefánsdóttur og Brynhildi Briem í
síma 591 2000.
Gögn skulu send til Umhverfisstofnunar fyrir
1. október 2007.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar