Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 24

Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Lifandi myndir af austfirsku mannlífi 8. áratugarins. Pólitísk og heimspekileg lærdóms- saga eftir Guttorm Sigurðsson frá Hallormsstað. Fæst í helstu bókabúðum. Snotra. Spádómar Garðar Hljóðfæri EG Tónar Úrval af harmonikum í ýmsum stærðum og gerðum, auk fylgihluta, frá kr. 29.000. Akureyri S: 462 7374 & 660 1648. Reykjavík S: 568 3670 & 824 7610. Kennsla fyrir byrjendur. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið PMC silfur- og gullsmíða- námskeið. (Precious Metal Clay frá Mitsubishi Ltd.). Byltingarkennd aðferð - einfalt og skemmtilegt fyrir alla. PMC eru micro-agnir af silfri bætt með bindi- efnum þannig að silfrið er auðmótan- legt og það síðan brennt við hátt hita- stig þannig að aukaefnin brenna upp og eftir verður hreint silfur 999. Grunn- nám er 15 klst. (ein helgi), nemendur vinna 4 skylduverkefni og 2 frjáls (6 módelskartgripi). Kennt er er eftir alþjóðlegu kennslukerfi. Verð 45 þús. kr. Allt efni og áhöld inni- falin - ath. flest stéttarfélög niðurgreiða námið. VISA - EURO. Skráning og upplýsingar á www.listnam.is eða í síma 511 3100 og 695 0495. Námskeið í tréskurði Örfá pláss laus í september nk. Hannes Flosason, sími 554 0123. Til sölu Utanhúsklæðning og pallaefni úr sedrusvið Spónasalan ehf., Smiðjuvegur 40, gul gata, sími 567 5550. Þjónusta Móðuhreinsun glerja! Er komin móða eða raki milli glerja? Móðuhreinsun Ó.Þ. Sími 897 9809. Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Ýmislegt 580 7820 Nafnspjöld 580 7820 BannerUp standar Taska fylgir myndrenninga- Rope Yoga hjá Sigurjónu. Ný nám- skeið hefjast 27. ágúst og 3. sept- ember. Nokkur pláss laus. 4ra ára reynsla. Skráning og upplýsingar í síma 899 4329. Mjúkir og þægilegir dömu- inniskór úr leðri , skinnfóðraðir. verð: 6.550. Léttir og mjúkir dömu-inniskór úr leðri, skinnfóðraðir. verð: 6.880. Flottir dömuskór úr leðri, skinn- fóðraðir og með svæðanudd- punktum. Verð: 6.885 Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Ath. verslunin er lokuð á laugardögum í sumar. Létt fylltur í BC skál kr. 2.350. Buxur í stíl kr. 1.250 Mjúkur og yndislegur í BCD skálum kr. 2.350. Buxur í stíl kr. 1.250. Mjög flottur og haldgóður í CDE skálum kr. 2.350. Buxur í stíl kr. 1.250 Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg áðgjöf. www.misty.is. Lokað á laugardögum í sumar. Bílar VW árg. '98 ek. 104 þús. km. Vel með farinn, 15" álfelgur, spoiler, sam- litaður og þjónustubók. Sími 862 4937. Toyota Avensis. Reyklaus og fallegur. Beinskipting, árg. ‘02. Ek. 90 þús. km. Nýyfirfarinn af Toyota. Ný dekk fylgja. Ásett verð 990 þús. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 698 9808. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Kristófer Kristófersson BMW. 861 3790. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Mótorhjól Til sölu vegna mikillar fjölgunar barna… Eitt fallegasta hjól landsins. Hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi! Árið 2003, Ducati 749S. Einn eigandi frá upphafi. Einn þjónustuaðili frá upphafi. Ekið rúma 20.000 km. Tárfellandi eigandi veitir nánari upplýsingar í síma 660 1022. Mótorhjólafatnaður. Útsala á Or- range mótorhjólafatnaði. Ótrúlegt verð, allt á að seljast. Sjá nánar á www.staupasteinn.is eða uppl. í síma 847 3988 eftir kl. 17. ✝ Geir ValbergGuðnason fædd- ist í Reykjavík 3. febrúar 1931. Hann lést á heimili sínu í Atlanta í Bandaríkj- unum þriðjudaginn 7. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar Geirs voru hjónin Þorbjörg Sigurð- ardóttir húsmóðir, f. í Háarima í Þykkvabæ 17. 6. 1905, d. 22. 4. 1990 og Guðni Guðnason verkamaður í Reykjavík, f. á Jaðri í Þykkvabæ 16. 9. 1905, d. 9. 9. 1965. Bróðir Geirs var Sig- urður Fannar byggingafræð- ingur, f. 27. 6. 1949, d. 21. 8. 2001. Geir kvæntist hinn 29.12.1955 Ásbjörgu Sveinu Húnfjörð hús- móður, f. í Reykjavík 22. 3. 1935. Foreldrar hennar voru Vil- hjálmur Jósepsson Húnfjörð Íþöku, New York og lauk B.Sc. prófi í greininni 1956, mastergr- áðu 1957 og doktorsgráðu (Ph.D.) 1961. Að loknu námi kom Geir heim og starfaði sem sérfræð- ingur í matvælaiðnfræði við At- vinnudeild Háskóla Íslands 1961 til 1963 en þá fluttist hann til Bandaríkjanna og réði sig til Philip Morris í Richmond þar sem hann stundaði rannsóknir á tób- aki en árið eftir réðst hann til Coca-Cola í Atlanta í Georgíu og starfaði fyrst við rannsóknir og framleiðslu á tei og var þá með aðsetur í Perú, Englandi, New Jersey og Kenýa. Árið 1976 varð hann deildarstjóri við rannsókna- og þróunardeildina í höf- uðstöðvum Coca-Cola í Atlanta. Hann vann þar aðallega við þróun á innihaldsþáttum og uppskriftum fyrir margs konar drykkjarvörur. Geir lét af störfum 1994 og bjó í Atlanta til dauðadags. Útför Geirs fór fram í Atlanta, föstudaginn 10. ágúst. blikksmíðameistari í Reykjavík, f. á Valdalæk á Vatns- nesi í V-Hún., 11. 2. 1898, d. 2. 7. 1973 og kona hans Sigríður Ólafsdóttir Húnfjörð húsmóðir, f. á Geit- areyjum á Breiða- firði, 6. 10.1898, d. 13. 7. 1981. Börn Geirs og Ásbjargar eru: 1) Gary Valberg fasteignaendurskoð- andi, f. í Plainfield New Jersy 16. 5. 1968. Kona hans er Amanda Mull- ins kennari, f. í Atlanta 24. 8. 1969. Börn þeirra eru: Garret Valberg, f. í Atlanta 19. 5. 1996 og Abigail Elise, f. í Atlanta 27. 8. 1998. 2) Linda Denise, matráðs- kona, f. í Atlanta 9. 11. 1970. Geir var stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1951. Hann stundaði nám í matvælaiðn- fræði við Cornell háskólann í Besti vinur minn, Geir Guðnason, er látinn. Vinskapur okkar nær yfir 60 ár eða frá því við kynntumst fyrst í Menntaskólanum í Reykjavík. Við lukum stúdentsprófi 1951 og fórum saman til Bandaríkjanna til náms í byrjun árs 1953. Fjárráð okkar leyfðu ekki þann munað að fljúga og tókum við mun ódýrari kost að sigla með fragtskipi til New York. Þaðan lá leiðin í Ohio Wesleyan-háskólann í Deleware, Ohio. Sumarið eftir fyrstu önnina dvöldum við í Buffalo, N.Y. þar sem við fengum vinnu í bílaverk- smiðjum. Geir vann hjá Ford en ég hjá Chevrolet og leigðum við saman herbergi á KFUM hóteli þar sem leigan var dollar á dag á mann. Vinn- an var erfið en nokkuð vel borguð og var vikukaupið rúmlega $100. Til samanburðar var leyfileg gjaldeyr- isyfirfærsla að heiman $600 ársfjórð- ungslega. Eftir veru okkar í Buffalo skildu leiðir, Geir fór til Íþöku, N.Y og inn- ritaðist í Cornell-háskólann en ég varð áfram í Ohio. Eftir skólárið þar skipti ég um skóla og hóf nám við Rensselaer Polytechnic Institute í Troy, N.Y. og varð þá styttra á milli okkar og urðu heimsóknir tíðar hvor til annars. Við Gunna kona mín gift- um okkur í Troy vorið 1955 og var Geir að sjálfsögðu svaramaður minn við þá athöfn. Ég gat launað honum greiðann hálfu ári síðar þegar þau Obba giftu sig í sömu kirkju 29. des- ember 1955. Geir var vel gefinn og feiknagóður námsmaður. Þó að vísindin hafi heill- að hann mest þá var hann mikill málamaður. Hann hélt íslenskunni hreinni þrátt fyrir langa veru erlend- is og ég veit til þess að samstarfs- menn hans leituð ekki ósjaldan ráða hjá honum þegar kom að því að semja vísindagreinar. Geir hafði mjög ákveðnar skoðanir á flestum málum og fylgdi ekki alltaf straumn- um í þeim efnum. Hlýnun jarðar var honum hugleikin og var hann ekki sammála Al Gore um að hún væri öll af mannavöldum heldur hefði orku- gjafinn sjálfur, sólin, miklu meira með það að gera. Hann hafði gott skopskyn og var ákaflega ljúfur í öll- um samskiptum. Ég man ekki eftir að við hefðum nokkurn tíma orðið sundurorða í öll þessi ár. Kannski er það vegna þess að við bjuggum lengst af langt frá hvor öðrum og þá gildir hið fornkveðna: Ganga skal skal-a gestur vera ey í einum stað. Ljúfur verður leiður ef lengi situr annars fletjum á. (Úr Hávamálum) Geir var afar barngóður og hafði gaman af að tala og leika við börn og styrkti hann gjarnan stofnanir sem hjálpuðu og líknuðu börnum Á síð- ustu árum voru samskipti okkar Geirs mest í gegnum tölvuna, fyrst með tölvupósti og nú síðast með tölvusíma tengdum vefmyndavél. Í tilefni af 50 ára stúdentsafmæli MR-51 árgangsins var gefið út Stúd- entatal með æviágripum og þrem myndum af hverjum og einum, ein stúdentsmynd, ein skopmynd og ein mynd í nútímanum. Skopmyndirnar voru fegnar úr Faunu, skopmynda- bók sem gefin var út við útskriftina 1951. Geir tók að sér að skanna myndirnar og minnka þær niður í passamyndastærð og leysti hann þetta verkefni með mikilli prýði. Góður vinur er kvaddur með sökn- uði. Við Gunna sendum Obbu og öðr- um aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. Jón Reynir Magnússon. Geir Valberg Guðnason Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Co- unt). Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.