Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 25
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9-16 bað, kl. 9- 16.30 smíði/
útskurður, kl. 13.30 félagsvist, kl. 10-16 púttvöll-
urinn.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, morg-
unkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, kaffi.
Vetrardagskráin hefst í byrjun september skráning
og upplýsingar í síma 535 2760. Allir velkomnir.
Ferðaklúbbur eldri borgara | 30. ágúst dagsferð
um Suðurströnd, Seljalandsfoss, Skógafoss, Dyr-
hólaey, Kerlingardalur og Vík í Mýrdal. Munið
haustlitaferðina 21. september, allir eldri borgarar
velkomnir. Upplýsingar og skráning í síma 892
3011, Hannes.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan að
Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl.
10-11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK að Gjábakka
er opin á miðvikudögum kl. 13-14. S. 554 3438. Fé-
lagsvist er spiluð í Gullsmára á mánudögum kl.
20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á
föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi-
tár kl. 13.30. Kveðjuhóf verður haldið til heiðurs
Stefaníu Björnsdóttur miðvikudaginn 29. ágúst kl.
16, þar sem hún lætur af störfum hjá félaginu þ. 1.
sept. n.k.
Félag kennara á eftirlaunum | Dagsferð á Reykja-
nesið frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8 miðvikudaginn
29. ágúst. Skráning í s. 595 1111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi verður við til hádegis. Hádegisverður
kl. 11.40. Lomber kl. 13. Canasta kl. 13.15. Fyrirhuguð
vetrarstarfsemi verður kynnt fimmtudaginn 30.
ágúst kl. 14.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 postulínsmáln-
ing og ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13 handa-
vinna. Kl. 20.30 félagsvist.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, m.a. fjölbreytt handavinna og tréútskurður.
Kl. 19.30 sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug.
Frá hádegi spilasalur opinn. Björnsvöllur (púttvöllur
v/Breiðholtslaug) er opinn virka daga, kylfur og
kúlur án endurgjalds. Allir velkomnir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið opið öllum. Skrán-
ing stendur yfir. Postulín, tölvur, ljóðagerð, klaustur,
bókmenntir, magadans eða hvernig vilt þú sjá
starfið í vetur? Hugmyndabankinn opin virka daga
kl. 9-16. Haustfagnaður 29. ágúst. Ferð í Kjós 30.
ágúst. S. 568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og bóka-
stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Söng og sam-
verustund kl. 15.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 11-12 leikfimi, Janick.
Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-15.45 kaffi-
veitingar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Vídalínskirkja Garðasókn | Á morgun þriðjudaginn
28. ágúst fer Opið hús Vídalínskirkju í vettvangs-
ferð kl. 13. Farið verður til Grindavíkur og Salt-
fisksetrið skoðað. Kaffi drukkið á leiðinni. Heim-
koma áætluð upp úr kl. 16. Þeir sem óska að koma
með láti vita í síma 895 0169. Verið velkomin.
60ára afmæli. ÞórunnIngólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslandsfunda
ehf., til heimilis á Strandvegi
21 í Garðabæ, er sextug í dag.
Hlutavelta | Þessir ungu krakkar héldu tombólu á Garðatorgi og var
hún til styrktar Rauða krossinum. Þau söfnuðu 3.400 krónum. Þau heita,
Arnar Ingi, 5 ára, Hekla Mist, 7 ára, og Alexandra Petrea, 7 ára.
dagbók
Í dag er mánudagur 27. ágúst, 239. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Ámorgun, þriðjudag, kl.20.30 mun Guðrún Svein-bjarnardóttir, doktor ífornleifafræði, flytja fyr-
irlestur um fornleifarannsóknir í
Reykholti. Fyrirlesturinn er hluti af
röðinni Fyrirlestrar í héraði og fer
fram í Snorrastofu í Reykholti.
„Í fyrirlestrinum mun ég fjalla
um rannsókn á gamla kirkjugrunn-
inum í Reykholti, en uppgröftur
hófst þar árið 2002 með stuðningi
Kristnihátíðarsjóðs og lauk í sum-
ar,“ segir Guðrún.
„Kirkjan í Reykholti var færð um
set á 19. öld, en í ljós hefur komið að
fram að því höfðu kirkjubyggingar á
staðnum allar verið reistar á sama
reitnum. Uppgröftur í gamla kirkju-
grunninum hefur leitt í ljós minjar
um hverja kirkjuna ofan á annarri,
en við teljum að elsti grunnurinn sé
frá árdögum kristni á Íslandi, á 11.
öld,“ segir Guðrún. „Kirkjan varð
sóknarkirkja á 12. öld og er þetta
fyrsta rannsókn á slíkri kirkju hér á
landi, og hún veitir auk þess heild-
arsýn yfir þróun byggingarinnar all-
ar þessar aldir. Mikið fannst af grip-
um í uppgreftrinum, alls um 2.000
fundarnúmer. Elstu gripirnir eru
frá 12. og 13. öld, m.a. hringnæla,
svonefndur kirkjukambur, brot úr
leirkönnum og glerbikar, auk mið-
aldaglers úr kirkjugluggum.“
Guðrún segir fyrstu kirkjuna í
Reykholti aðeins hafa verið um 4,5
metra að lengd: „Á 12. öld reis hér
stærri kirkja, með sérstökum kór og
stórum stoðarholum við hornin á
kirkjuskipinu. Þessi þróun sam-
ræmist því sem vitað er um kirkju-
byggingar í Noregi. Byggingarefnið
hefur þó að hluta til verið sér-
íslenskt, en m.a. er notaður hvera-
steinn sem sóttur hefur verið í ná-
grenni Reykholts,“ útskýrir
Guðrún. „Gripirnir sem fundist hafa
eru hins vegar ólíkir því sem fundist
hefur í norskum kirkjuminjum, en
suma munina hefur okkur tekist að
rekja til Englands, Frakklands og
Þýskalands og bendir það til að tölu-
verð tengsl hafi verið milli Reyk-
holts og meginlands Evrópu á mið-
öldum.“
Að sögn Guðrúnar er nú unnið að
úrvinnslu á þeim munum sem fund-
ist hafa: „Þótt uppgreftri sé lokið er
mikil rannsóknarvinna framundan,
og vonandi að fjármagn fáist til að
ljúka þeirri vinnu á næstu árum.“
Fræði | Fyrirlestur í Reykholti á þriðjudag um fornleifarannsóknir
Fróðlegir fundir
Guðrún Svein-
bjarnardóttir
fæddist í Reykja-
vík 1947. Hún
lauk BA-prófi í
sagnfræði og
þýsku frá HÍ
1972, meistara-
gráðu í forn-
leifafræði frá
University College í Lundúnum og
doktorsprófi frá Birmingham-
háskóla 1987. Guðrún hefur starfað
við rannsóknir og kennslu um ára-
bil, á Íslandi og í Bretlandi, einkum
við Þjóðminjasafn Íslands og UCL.
Guðrún er gift Robert Boyce, doktor
í sagnfræði, og eiga þau tvær dætur.
Tónlist
Austurbær | Kl. 20-21.30. Söngkonan Eivör Pálsdóttir við
undirleik Stórsveit Reykjavíkur leikur útsetningar á lögum
sínum.
Iðnó | Láð og lög kl. 21. Píanóleikarinn Agnar Már Magn-
ússon leikur lög af nýrri plötu ásamt septett sínum. Auk
þess kemur Kristjana Stefánsdóttir og syngur með Agnari
nokkur lög.
Mannfagnaður
Samtökin ́78 | Opið hús er í Samtökunum 7́8, Laugavegi
3, hvert mánudags- og fimmtudagskvöld. Regnbogasal-
urinn er opinn frá kl. 20-23.30 en bókasafnið frá kl. 20-23.
Stöðugt bætist nýtt og spennandi efni við safnkostinn. All-
ir velkomnir.
Fyrirlestrar og fundir
Árnagarður 311 | Kl. 12.15. Í opnum fyrirlestri á vegum Al-
þjóðamálastofnunar HÍ fjallar Houchang Chehabi, prófess-
or við Boston-háskóla, um stjórnarfar í Íran. Hann spyr
hvort kjör Mahmouds Ahmadinejads í embætti forseta hafi
haft einhver áhrif á stefnu íranska ríkisins. Að auki ræðir
hann kjarnorkuprógramm Írans.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að ber-ast
með tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudags- og
mánudagsblað. Fólk getur
hringt í síma 569-1100 eða sent á
netfangið ritstjorn@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2110
Reykjavík.
ÞESSI unga snót brosir kát til fólks þar sem hún tekur þátt í karnivali á sérstökum
barnadegi í Notting Hill í London í gær.
Eitt stærsta götupartí Evrópu var haldið í gær þegar þúsundir manna gengu um
Notting Hill í búningum og blésu í flautur og sköpuðu þannig hina einu sönnu
karnivalsstemningu.
Reuters
Sólskinsbros
FRÉTTIR
DAGANA 29. og 30. ágúst nk. mun
yfirmaður heilsurannsóknasviðs
Evrópusambandsins, dr. Octavi
Quintana Trias, dveljast hérlendis og
kynna sér starfsemi og rannsóknir
Íslenskrar erfðagreiningar. Miðviku-
daginn 29. ágúst mun hann flytja op-
inn fyrirlestur um evrópskar heilsu-
rannsóknir í fyrirlestrarsal ÍE að
Sturlugötu 8 kl. 16:30, að því er segir í
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist Health Research in
Europe and European Community
Funding. Dr. Octavi Quintana Trias
er læknir að mennt. Auk læknisstarfa
í heimalandi sínu, Spáni, hefur hann
gegnt fjölda opinberra trúnaðar-
starfa, bæði heima fyrir og á vett-
vangi Evrópusamstarfs, þ.á m. sem
yfirmaður alþjóðaskrifstofu spænska
heilbrigðisráðuneytisins og forseti
nefndar Evrópuráðs um siðfræði líf-
vísinda. Síðan árið 2002 hefur dr.
Quintana Trias stjórnað þeirri skrif-
stofu Evrópusambandsins sem hefur
umsjón með rammaáætlunum þess á
sviði heilsurannsókna, en á árunum
2007-2013 er áformað að verja um 6
milljörðum evra í því skyni.
Fyrirlestur hjá ÍE
OPNAÐUR hefur verið ferða- og
menningarvefur um Vestmanna-
eyjar á slóðinni www.VisitWestman-
Islands.com. Í tilkynningu frá að-
standendum segir að á vefsvæðinu
sé hægt að finna allar nauðsynlegar
upplýsingar um Vestmannaeyjar,
m.a. um ferðir til og frá Vest-
mannaeyjum, ferðamöguleika, gist-
ingu, sögu Vestmannaeyja og fleira.
Þá er ljósmyndagallerí á síðunni
og þar er hægt að nálgast útgefið
efni og horfa á kynningarmynd-
band.
Jafnframt segir í tilkynningunni
að vefurinn verði uppfærður reglu-
lega ásamt því sem nýir hlutir munu
birtast á síðunni.
Markmið hennar sé að auka með-
vitund um Vestmannaeyjar á heims-
vísu og deila þeirri náttúrufegurð
sem er í Vestmannaeyjum með sem
flestum, að því er segir í tilkynning-
unni.
Vefurinn er rekinn af 24seven ehf.
Nýr vefur um
Vestmannaeyjar
ur í góðar þarfir og mun nýtast
klúbbfélögum. Strókur heldur úti
starfsemi fyrir fólk á Suðurlandi
með geðraskanir.
Á myndinni eru frá, vinstri, í aft-
ari röð: Haraldur Gíslason, Guð-
mundur Bjarki Sigurðsson, Bjarki
Leósson og Konráð Jóhannsson.
Neðri röð frá vinstri er Margrét Lea
Haraldsdóttir, Anna Kristín Leós-
dóttir og Irena Birta Gísladóttir. Á
myndina vantar Unni Lilju Gísla-
dóttur, Þóru og Sigrúnu Jónsdætur,
Margréti og Steinunni Lúðvíks-
dætur og Katharínu Jóhannsdóttur.
Selfoss | Nokkrir krakkar sem bú
sett eru í grónu hverfi á Selfossi
tóku sig saman og opnuðu sjoppu
um síðustu helgi þegar haldið var
götugrill og seldu úr henni ýmsar
nauðsynjar sem slíkar samkomur
þurfa á að halda, gosdrykki, sælgæti
og fleira.
Afrakstur þessa framtaks var kr.
50.500 og með þá upphæð fóru þau á
stúfana og keyptu gasgrill og ýmsa
fylgihluti hjá Byko sem efldi fram-
takið og gaf krökkunum góðan af-
slátt. Gasgrillið afhentu þau svo
Klúbbnum Stróki þar sem það kem-
Gáfu andvirði sjoppu-
reksturs til Stróks
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson