Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 26
26 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG VILDI AÐ ÉG
VÆRI GRENNRI
ÉG ÆTTI AÐ SKRIFA
MEGRUNARBÓK
ÉG SAGÐI
„GRENNRI“,
EKKI
„FLATARI“
ÉG
VERÐ!
NÚNA GET
ÉG FENGIÐ
AÐ VERA
HETJA!
...OG SÍÐAN...
ÉG BYRJA Á ÞVÍ AÐ
DANSA TIL AÐ RUGLA
ANSTÆÐINGANA... HLEYP ÉG!
FÓLK ER
FÍFL!
ÞEGAR ÉG
VERÐ STÓR
ÆTLA ÉG AÐ
BÚA ÞÚSUND
KÍLÓMETRA
FRÁ ÖLLUM!
HVAÐ
ÆTLAR ÞÚ
ÞÁ AÐ
BORÐA?
MAMMA
GETUR
KOMIÐ
TVISVAR Á
DAG OG
ELDAÐ
ÞAÐ ER
ALDEILIS
FERÐALAG
HVAÐ ER Í
MATINN?
PUTTA-
MATUR
HVERNIG GETUR
SPAGETTÍ OG
KJÖTBOLLUR VERIÐ
PUTTAMATUR?
ÉG FANN EKKI
HNÍFAPÖRIN
EVA, EKKI
GERA ÞETTA,
ÞÚ MANST
HVAÐ
GERÐIST
SÍÐAST
ÞANNIG AÐ ÞÚ
HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ
HITTA SJÚKLINGANA
ÞÍNA HEIMA?
JÁ, ÉG VONA
AÐ ÞAÐ SÉ Í
LAGI
Í FÍNU LAGI! ÞAÐ SKIPTIR
MIG ENGU MÁLI HVAR ÉG
FER TIL SÁLFRÆÐINGS
EN MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ
HVAÐ ÉG ER AÐ
BORGA FYRIR TÍMANA
ÞÁ ÆTTIR ÞÚ AÐ
GETA LÁTIÐ EINHVERN
ÞRÍFA HÉRNA
EIGUM
VIÐ EKKI
AÐ TALA
UM ÞÍN
VANDA-
MÁL?
HEILSAÐU UPP
Á HETJUNA...
ÉG... VAR EINU SINNI
SLÖKKVILIÐSMAÐUR....
EN EFTIR AÐ KONAN MÍN
LÉST Í ELDSVOÐA...
HEF ÉG VERIÐ MJÖG
HRÆDDUR VIÐ ELD
EFTIR ÞAÐ SEM ÞÚ GERÐIR Í DAG...
GERIR ÞAÐ ÞIG BARA
AÐ ENN MEIRI HETJU
dagbók|velvakandi
Fálkaorðuna á Dalvík
ÉG GET ekki orða bundist yfir
gestrisni Dalvíkinga í kringum fiski-
daginn mikla. Ég var mætt þarna
ásamt fjölskyldu minni á miðviku-
deginum og þá var orðið ansi margt
um manninn. Á öllum stöðum sem
maður þurfti að sækja þjónustu
voru allir eins og þeir hefðu fengið
sér meðferð í mannlegum sam-
skiptum, þvílík kurteisi og lipurð.
Meira segja fólkið sem þreif klósett-
in á tjaldstæðum bæjarins var í ess-
inu sínu alla helgina. Alveg fannst
okkur frábært að heimsækja blá-
ókunnugt fólk á föstudagskvöldinu
og þiggja hjá því fiskisúpur af hin-
um ýmsu gerðum og allt sem þeim
fylgdi. Okkur leið eins og við værum
komin heim til vina okkar, sennilega
hefur þessi frábæra vinakeðja sem
mynduð var fyrr um kvöldið átt þátt
í þeirri líðan. Skreytingarnar við
húsin voru rosalega skemmtilegar
og allir virtust taka þátt. Á kvöldin
gat maður rölt í bæinn og notið
stemmningar eins og gerist á góðu
kvöldi í útlöndum, tónlist var leikin
af fingrum fram úr góðum görðum
og ungir sem aldnir undu sér vel.
Þetta er aðeins brot af þessari heim-
sókn okkar sem ég rifja upp og er
alveg viss um að fálkaorðan á fullt
erindi til ykkar, Dalvíkingar. Takk
fyrir okkur.
Elínborg Ben.
Borinn út af félagsbústöðum
ÉG VAR ákaflega hissa á því að lesa
í dagblaðinu fyrir miðjan mánuð að
gamall maður hefði verið borinn út
vegna vanskila úr þjónustuíbúð
Reykjavíkurborgar. Þetta úrræði er
víst fyrir þá sem þurfa aðstoðar við
og mér skildist að þessi maður væri
reglumaður og hefði einungis ekki
náð endum saman. Þess vegna skil
ég ekki hvernig þetta er hægt? Ber
borgin ekki ábyrgð á velferð þessa
einstaklings og annarra sem bornir
eru út? Er hægt að ætlast til þess að
gamall maður sofi úti? Hvað ef það
væri komin vetur?
Framkvæmdastjóri Félagsbú-
staða sagði að reglur væru skýrar
um þetta og þetta væri einsdæmi.
En ég veit að ef fólk lendir í van-
skilum þá er engin miskunn sýnd,
hvorki hjá Félagsbústöðum né held-
ur Velferðarsviðinu. Það á að setja
lög um að ekki sé hægt að bera fólk
út vegna fátæktar. Ég vil skora á
þingmenn, þegar þing verður sett,
að koma strax með frumvarp varð-
andi þetta efni. Það er löngu tíma-
bært. Ég vil sjá samfélag sem er
mannvænt og hlúir að þeim sem
minnimáttar eru, en er ekki eins og
þessi gallharða markaðsvæðing sem
ekkert skilur annað en að græða
peninga.
Hallgrímur Kristinsson.
Þakkir
MISJAFNT var hvað hver og einn
valdi til að njóta á Menningarnótt.
Fyrir utan það að þakka skaparan-
um frábært veður langar mig til að
þakka fyrir fallega tónlist í Hall-
grímskirkju og hjá Söngskólanum.
Einnig sálmatónleika Ellenar Krist-
jánsdóttur í Kirkju óháða safnaðar-
ins. Ég þakka því ágæta fólki, sem
sýndi list sína og handverk á götun-
um, t.d. kransagerð hjá Blómálf-
inum við Vesturgötu. Ég þakka
starfsfólki Á næstu grösum fyrir
frábæra þjónustulund, sem það
sýndi til að sem flestir kæmust að til
að borða. Frábær skemmtun í Þjóð-
menningarhúsinu sagði vinkona
mín, sem var á öðru róli. En kærar
þakkir fyrir það sem ég náði að sjá
og meðtaka.
Vesturbæingur.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
VEGFARANDI á Laugavegi var vel búinn regnheldum fötum og regnhlíf í
þokkabót. Varla mátti það minna vera í úrhellinu fyrir helgi. Haustið er
svo sannarlega komið.
Morgunblaðið/Frikki
Haustar í borginni
FRÉTTIR
KARLAR til ábyrgðar er yfirskrift
ráðstefnu um karla og ofbeldi í nán-
um samböndum sem haldin verður
fimmtudaginn 30. ágúst nk. í Korn-
hlöðunni við Lækjarbrekku.
Á ráðstefnunni verður kynnt
norska verkefnið Alternative to
violence, auk þess sem íslenskir
sérfræðingar munu miðla af
reynslu sinni, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu.
Karlar til ábyrgðar er verkefni
sem hófst árið 1998. Verkefnið er
eina sérhæfða meðferðarúrræðið
hér á landi fyrir karla sem beita of-
beldi á heimilum og er um að ræða
einstaklings- og hópmeðferð hjá
sálfræðingum. „Þótt karlar séu
ekki einir um að beita ofbeldi er
meðferðarúrræðið aðeins fyrir þá,“
segir í tilkynningu.
Skráning á ráðstefnuna er á net-
fangið jafnretti@jafnretti.is fyrir
28. ágúst.
Karlar
og ofbeldi
HLAUPAHÁTÍÐ verður í vest-
urbæ Reykjavíkur 1. september
næstkomandi milli kl. 14 og 17
við Vesturbæjarlaug. Það eru
Hlaupasamtök lýðveldisins,
Vesturbæjarlaug og Þjónustu-
miðstöð Vesturbæjar sem bjóða
til fjölskylduhlaupsins. Ekki þarf
að skrá sig og ekkert þátttöku-
gjald að greiða. Hlaupnar verða
þrjár vegalengdir, barnahringur
sem er 400 m, stutt hlaup sem er
1 km og Vesturbæjarhringurinn
sem er 10 km. Melabúðin býður
öllum í grill eftir hlaupið og
hlauparar fá frítt í sund í Vestur-
bæjarlaug. Hátíðin verður sett af
Vilhjálmi Bjarnasyni. Kynnir er
Ágúst Kvaran og verndari Guð-
rún Arna Gylfadóttir.
Hlaupið í
vesturbænum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111